Dagur - 21.11.1984, Blaðsíða 12
Meðalskiptaverðmæti togaranna:
Minni togarar koma
vel út fyrir norðan
- en stærri togarar á höfuðborgarsvæðinu
slá þeim norðlensku við
Samkvæmt yfirliti sem LÍÚ
hefur sent frá sér er meðal-
skiptavcrðmæti minni togara
á hvert kíló verulega hærra á
Unglingaflokkur:
Einvígi um
titilinn
Þeir Einar 1 léðinsson og Rún-
ar Sigurpálsson verða að tefla
í einvigi um efsta sætið í ungl-
ingaflokki á haustmóti Skák-
félags Akurcyrar.
Eftir venjulega keppni voru
þeir Einar og Rúnar efstir og
jafnir með 4 vinninga af 6
mögulegum og verða þeir að
tefla áfram.
I þriðja til fjórða sæti urðu
þeir Tómas Hermannsson og
Bogi Pálsson með y/i vinning.
- ESE
Haustmót SA:
Gylfi og
Jón efstir
Þcgar átta umferðir höfðu vcr-
ið tefldar á haustmóti Skákfé-
lags Akureyrar voru þcir Gyiíi
Þórhallsson og Jón Björgvins-
son efstir og jafnir meö 71/:
vinning.
í þriðja sæti á mótinu cr
Arnar- Þorsteinsson með 6
vinninga og i fjórða til fimmta
sæti cru þeir Jón Garðar
Viöarsson sem fengið hafa 5'/5
vinning úr sjö skákum og
Jakob Þór Kristjánsson með
sama vinningafjölda en eftir
átta skákir.
Tefldar verða 13 umferðir
og er teflt í Barnaskóla Akur-
eyrar. - ESE
Austur- og Norðurlandi en
Suðurlandi og Vestfjörðum.
Með öðrum orðum er hvert
kfló í afla minni togara fyrir
austan og norðan verðmeira en
hinna. Dæmið snýst við þegar
stærri togararnir eru bornir
saman.
Meðalskiptaverðmætið pr. kg
á Austfjörðum var þannig 9,58
kr. og á Norðurlandi 9,48 kr. á
sama tíma og það var 7,80 kr. á
minni togurum á Suðurlandi og
8,62 kr. á Vestfjörðum.
Annað kemur hins vegar út úr
dæminu þegar litið er á meðal-
skiptaverðmæti á hvern úthalds-
dag. Þá eru Vestfirðingar hæstir
með 107.510 kr., en þeireru jafn-
framt með langmestan afla á
hvern úthaldsdag eða tæplega
12,5 tonn. Næstir koma Austfirð-
ingar með 86.090 kr. skiptaverð-
mæti á úthaldsdag og afli þeirra
nam 10,7 tonnum á dag að með-
altali. Norðlendingar komu næst-
Starfsmannafélög KEA og
verksmiðja SÍS og Landssam-
band ísl. samvinnustarfsmanna
gangast fyrir kynningu á sam-
vinnuvörum í samkomusal
verksmiðjanna, Félagsborg,
nk. laugardag og sunnudag. Er
þetta í samræmi við samþykkt
sem gerð var á 10 ára afmæli
LÍS og er markmiðið að vekja
athygli almennings á þessum
vörum og hvetja fólk til að
kaupa þær og auka þar með at-
vinnu í Iandinu og bæta hag
þjóðarinnar.
Kynningin um helgina stendur
frá kl. 14-18 báða dagana. Að-
gangur er ókeypis og öllum heim-
ill. Kynntar verða vörur frá
Ullarverksmiðjunni Gefjunni,
ir með 85.900 kr. pr. úthaldsdag
og rétt rúmra 9 tonna afla á dag,
en Sunnlendingar reka lestina
með 83.560 kr. á úthaldsdag,
þrátt fyrir næstmesta meðalafla
á dag, eða 10,7 tonn. Skýrist
þetta af lágu meðalskiptaverð-
mæti á hvert kíló.
Hjá stærri togurunum snýst
dæmið við varðandi landshluta
því reykvískir og hafnfirskir
togarar af stærri gerð ná betri ár-
angri en þeir akureyrsku, sam-
kvæmt þessu yfirliti LÍÚ. Fyrir
sunnan er meðalskiptaverðmæti
á kíló 8,60 kr. en 7,81 kr. fyrir
norðan. Meðalskiptaverðmæti á
úthaldsdag er kr. 95.036 hjá tog-
urum á höfuðborgarsvæðinu og
meðalafli á úthaldsdag er 11
tonn, en hjá Akureyrartogurun-
um er meðalskiptaverðmæti
101.684 kr. á dag, enda dagsafli
þeirra meiri en þeirra sunn-
lensku, eða um 13 tonn á hvern
úthaldsdag að meðaltali. HS
Skinnaverksmiðjunni Iðunni, föt
og skór frá ACT, vörur frá
Mjólkursamlagi KEA, Brauð-
gerð KEA, Kjötiðnaðarstöð
KEA, Efnagerðinni Flóru og
Efnaverksmiðjunni Sjöfn. Einnig
munu Samvinnutryggingar og
Húsnæðissamvinnufélagið Búseti
kynna starfsemi sína.
Skemmtiatriði verða á klukku-
stundar fresti. Allir gestir fá
ókeypis happdrættismiða og í
vinninga eru innlendar sam-
vinnuvörur. Myndbönd verða í
gangi og verður þar sýnt ýmiss
konar efni um samvinnuhreyfing-
una. Má því segja að á boðstól-
um verði efni við allra hæfi og
ætti fjölskylöan að geta komið í
Félagsborg og skoðað, smakkað
og skemmt sér.
Kynning á sam-
vinnuvörum
Hann hafði víst verið heldur tregur við Torfunefsbryggjuna sá guli, og held-
ur er þessi af smærri gerðinni. Enda fékk hann að halda tórunni.
Mynd: KGA
Sækir um lóð fyrír
miðbæjarmarkað
„Þessi lóð er sérstaklega hugs-
uð fyrir miðbæjarmarkað og
kannaðar verða aðstæður til að
setja slíkan markað upp þar,“
sagði Valur Arnþórsson, kaup-
félagsstjóri, þegar hann var
inntur eftir umsókn kaupfé-
lagsins um lóðina Skipagötu
7-9, þar sem Gleraugnaþjón-
ustan er og sunnan hennar.
„Til samanburðar kemur einn-
ig lóðin sem Kaupfélag verka-
manna stendur á og einnig bygg-
ingareitur 13a, en það má segja
að allir þessir staðir komi til álita.
Eins og nú horfir virðist Skipa-
gata 7-9 vænlegasti kosturinn.“
Valur sagði að á næsta ári
myndi kaupfélagið fyrst og
fremst leitast við að ljúka þeim
verkefnum sem nú eru í gangi,
þ.e. byggingu verslunarhúss á
Dalvík og áframhaldandi fram-
kvæmdum við hótelið, þannig að
það er ekki búist við að hafist
verði handa um þetta á næsta ári,
það biði lengri framtíðar. HS
„Það er gert ráð fyrir svip-
uðu veðri á Norðurlandi í
dag og á morgun, hægri
austanátt,“ sagði Trausti
Jónsson veðurfræðingur í
morgun.
„A föstudag verður áttin
norðaustan, þá fer veður
heldur kólnandi og um leið
gæti orðið slydda eða
slydduél fyrir norðan.
# Hálfmánar og
halastjörnur
„Hefurðu heyrt um nýju leyni-
útvarpsstöðina, i einka-
rekstri meira að segja, sem
rekin er á Akureyri," sagði
kunningi S&S, komínn alla
leið að sunnan, um leið og
hann sparkaði upp hurðinni.
Síðan lagðist hann flatur á
gólfteppið og brosti dular-
fullt. Þegar hann fékk ekki
annað svar en spurnarsvip:
„Húsnæði hennar var meira
að segja tekið í notkun með
pomp og prakt og hálfmánum
um síðustu helgi,“ sagði
hann og beit í halastjörnu
sem hann dró úr pússi sínu.
Með það var hann rokinn og
gaf öngvar skýringar á þess-
ari leynilegu einkastöð, sem
hann sagði rekna á Akureyri.
# Enginn er
ómissandi
Frammistaða íslendinga í
landsleiknum gegn Wales
kom verulega á óvart og
megum við svo sannarlega
vel við una að sleppa með 2:1
tap. Margir óttuðust að liðið
myndi brotna niðut án þeirra
Ásgeirs, Atla og Janusar en
svo fór þó ekki og sýnir það
best að enginn er ómissandi.
Það er annars umhugsunar-
efni hve erfiðlega gekk að ná
í atvinnumennina i þennan
leik. Ásgeir gat ekki leikið
vegna þess að hann þurfti að
leika með liði sínu - kvöldið
áður!!! og Atli þurfti að bjarga
sökkvandi skipi fótboltaliðs
Þuslaraþorps.
# Kostuieg
yfirlýsing
Það var annars kostuleg yfir-
lýsing sem Atli Eðvaldsson
lét frá sér fara í viðtali við eitt
Reykjavíkurblaðanna fyrir
landsleikinn við Wales. Atli
sagði þar að KSÍ þyrftl að
ganga hart eftir því við félög-
in að þau létu leikmenn lausa
í landsleiki eins og ákvæði (
samningum segja til um.
Svíarnir gerðu þetta misk-
unnarlaust og hótuðu mála-
ferlum ef félögin létu menn-
ina ekki lausa og eina leiðin
fyrir KSÍ væri að beita sömu
brögðum. Síðan kom þetta
venjulega kjaftæði um heið-
urinn fyrir að leika fyrir ís-
lands hönd og það kom því
verulega á óvart þegar Atli
lýsti því yfir að hann kæmist
ekkl í landsleikinn. Þuslara-
þorp hafði gert hann að fyrir-
liða vegna meiðsla annarra
lefkmanna og þá gleymdist
heiðurinn og harkan sem
áður hefur verið getið um.