Dagur - 19.12.1984, Blaðsíða 1
67. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 19. desember 1984
129. tölublað
Húsmóðurstarfiö:
Metið
til hálfe
- í starfsaldri
Kjaranefnd hefur samþykkt
starfsreglur vegna samþykktar
bæjarstjórnar Akureyrar frá
19. júní 1984 um starfsaldur
vegna heimilisstarfa, sem met-
inn skal í störfum hjá bænum.
Meginreglan er sú að hver sá
sem veitir forstöðu heimili, þar
sem tveir eða fleiri einstakling-
ar búa, telst hafa heimilis-
starf að aðalstarfi. Séu heimil-
isstörf unnin sem aðalstarf eftir
20 ára aldur skal sá tími sem
unninn er í fullu starfi metinn
til hálfs í starfsaldri og getur
slíkur áunninn starfsaldur
mestur orðið 4 ár.
Þá segir ennfremur að áunninn
starfsaldur hjá öðrum en hinu op-
inbera geti þó aldrei orðið meiri
en 6 ár. Þessi vinnuregla var sam-
þykkt af öllum nefndarmönnum,
en fulltrúi kvennalistans gerði
sérbókun þar sem tekið er fram
að þó þessi samþykkt sé spor í
rétta átt séu heimilisstörf enn
ekki metin að verðleikum. Vill
fulltrúinn að skilgreiningin á
húsmóðurstarfi sé óháð því hvort
viðkomandi vinni einnig utan
heimilis og einnig að starfsreynsl-
an sé meira metin, t.d. að hún sé
metin til 6 ára eftir 10 ára starf á
heimili.
Allir starfsmenn Akureyrar-
bæjar sem ofangreind samþykkt
kjaranefndar nær til njóta þessa
frá 19. júní 1984. HS
Frostnótt í Sandgerðisbót.
Mynd: KGA.
Frystihús Jökuls hf.:
Nýttþak
sett á
í vikunni
- Vinnsla um mánaðamótin jan./feb.
Nú er unnið að því hörðum
höndum á Raufarhöfn að
koma þaki yfir frystihús Jökuls
hf. eftir brunann á dögunum.
Fjöldi manna hefur unnið að
þessu verkefni að undanförnu
og er búist við því að þakið
verði komið á sinn stað í þess-
ari viku.
Hólmsteinn Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Jökuls hf. sagði í
samtali við blaðamann Dags að
stefnt væri að því að hefja bráða-
birgðavinnslu í frystihúsinu ekki
síðar en um mánaðamótin janú-
ar/febrúar. Ekki yrði þó hægt að
vinna á fullum afköstum í frysti-
húsinu en einhver vinnsla sjávar-
afla gæti farið þar fram.
- Það hefur engin ákvörðun
verið tekin ennþá hvort byggt
verður nýtt frystihús eða gamla
frystihúsið verður gert upp.
Framkvæmdastofnun sem leggur
til féð hefur sitt að segja í þeim
efnum og ætli ákvörðun liggi ekki
Hækkað álag á fasteignagjöld:
„Verðum að bregðast
við aukinni verðbólgu"
- segir Sigurður Jóhannesson bæjarfulltrúi - Sjálfstæðismenn andvígir
„Við verðum að bregðast við
aukinni verðbólgu á þennan
hátt, því ljóst er að hún mun
rjúka upp núna og hafa veru-
leg áhrif á það hvernig þessi
gjöld innheimtast,“ sagði Sig-
urður Jóhannesson, talsmaður
meirihluta bæjarstjórnar Ak-
ureyrar, um þá ákvörðun
meirihlutans að innheimta
fasteignaskatt með 25% álagi
og holræsagjald með 50%
álagi.
„Ástæðan fyrir því að við inn-
heimtum ekki fasteignagjöldin í
fyrra með öllum þeim álögum
sem heimilað var, var sú að verð-
bólgan var á hraðri niðurleið og
því líkur á að raungildi skattanna
skilaði sér betur en þegar verð-
bólgan var mikil. Því var lagt
12,5% álag á fasteignaskattinn og
20% álag á holræsagjöldin. Nú
hefur orðið breyting á í verð-
bólgumálum til hins verra og ef
bærinn á að fá raungildi þessara
gjalda verður að innheimta þau
með fullu álagi,“ sagði Sigurður.
Hann sagði að þetta ylli raun-
hækkun upp á 9,48%, en þar sem
25% hækkun hefði orðið á fast-
eignamati og aukning orðið í hús-
rými yrðu tekjur bæjarins af fast-
eignagjöldum tæplega 40% meiri
á næsta ári en því sem nú er að
líða. Tekjur af fasteignagjöldum
á þessu ári nema um 87 milljón-
um króna. Ef sama regla hefði
verið notuð og í fyrra hefðu fast-
eignagjöldin orðið 111,7 milljón-
ir á næsta ári, en þar sem álagið
er hækkað verða þau 122,3 millj-
ónir.
„Þegar betur verður séð hver
þróunin í verðlagsmálum verður
eftir áramót munum við taka tillit
til þess við álagningu útsvara og
reyna að halda útsvarsálagning-
unni eins lágri og unnt verður,“
sagði Sigurður Jóhannesson.
Minnihlutinn í bæjarstjórn
klofnaði vegna þessa máls. Full-
trúar Sjálfstæðisflokks lýstu
andstöðu við þessa álagningu en
í bæjarráði óskaði Freyr Ófeigs-
son, Alþýðuflokki, eftir að bók-
aður yrði stuðningur hans við til-
lögur meirihlutans varðandi
álagningu fasteignaskatts og hol-
ræsagjalds. - HS
fyrir um áramótin, sagði Hólm-
steinn og bætti því við að stjórn
Jökuls hefði þó margoft lýst yfir
þeirri skoðun sinni að byggja ætti
nýtt frystihús.
Þess má geta að hluti þeirra
sem unnu hjá Jökli hf. eru nú á
atvinnuleysisbótum en einar tíu
konur hafa að undanförnu sótt
vinnu til Þórshafnar. Ekki liggur
enn fyrir hvort atvinnuleysis-
tryggingasjóður taki þátt í þeim
kostnaði sem hlýst af ferðunum
á milli Raufarhafnar og Þórs-
hafnar. - ESE
2 brennur
á Akureyri
„Það hefur verið sótt um leyfi
fyrir einni áramótabrennu á
Akureyri og hún verður á
Árnagarði,“ sagði Ólafur Ás-
geirsson aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn í samtali við Dag.
Ólafur sagði að sú brenna yrði
í umsjá Skautafélags Akureyrar
og embættis garðyrkjustjóra. Þá
mun vera byrjað að hlaða brennu
í Þorpinu austan Þverholts en
Ólafur sagði að ekki hefði enn
verið sótt um leyfi fyrir þeirri
brennu. Það væri hins vegar
nauðsynlegt að gera og yrði ein-
hver fullorðinn að vera í forsvari
fyrir brennumönnum.
Tap og sigur hjá
Hitaveitu Akureyrar
Hitaveita Akureyrar hefur
áfrýjað til Hæstaréttar dómi
þeim er féll í máli fyrirtækisins
Sindrafells á hendur stofnun-
inni. Málið snerist um það að
lokað hafði verið fyrir heitt
vatn til fyrirtækisins vegna
vanskila, en gjalds fyrir heitt
vatn á meðan lokað var, var
krafist. Þetta vildi fyrirtækið
ekki sætta sig við og vann
málið.
Þá hefur verið dæmt í því máli
er hitaveitan höfðaði gegn Þor-
katli Steinari Ellertssyni, eiganda
jarðarinnar Bjarkar í Önguls-
staðahreppi, vegna vangoldinna
reikninga. Þar var um gagnsök að
ræða því Þorkell höfðaði mál á
hendur hitaveitunni vegna
greiðslu fyrir vatnsréttindi sem
hann taldi sig eiga rétt á. Þessu
máli lyktaði þannig að hitaveitan
fór með sigur af hólmi en var þó
dæmd til greiðslu málskostnaðar.
Það varð til þess að hitaveitan
áfrýjaði til Hæstaréttar eins og
Þorkell hafði reyndar gert einnig.