Dagur - 19.12.1984, Síða 13
19. desember 1984 - DAGUR - 13
Hver
verður
kjörinn
„íþrótta-
maður
ársins“?
Þar sem þetta er síðasta
íþróttasíðan í btaðinu á þessu
ári ætlar undirritaður að leyfa
sér nokkrar vangaveltur um
það hver verði kjörinn
„íþróttamaður ársins“ á Akur-
eyri, fyrir árið 1984.
Ef við lítum fyrst á skíðaíþrótt-
ina þá fer ekki hjá því að nafn
Nönnu Leifsdóttur komi upp í
hugann. Hún var gífurleg yfir-
burðakona á Landsmótinu sem
háð var í Hlíðarfjalli um páskana
og hélt þaðan með þrenn gull-
verðlaun.
Þorvaldur Jónsson sem vann
m.a. skíðastökkkeppnina er
ákaflega fjölhæfur íþróttamaður
og leikur í marki hjá KA bæði í
handknattleik og knattspyrnu. Ef
titillinn væri veittur fyrir fjöl-
hæfni kæmi Þorvaldur sennilega
út sem sigurvegari.
Lyftingamaðurinn Kári Elíson
er sterkur „kandidat“ um titilinn.
Óþarfi er að rekja afrek hans á
árinu en hann hefur staðið efstur
á mótum hérlendis og erlendis og
ég minnist þess ekki að hann hafi
nema einu sinni á árinu hitt ofjarl
sinn. Fleiri lyftingamenn hafa
gert það gott og má nefna Harald
Ólafsson sem afþakkaði boð
um þátttöku á Olympíuleikunum
í sumar.
Að sjálfsögðu koma knatt-
spyrnumenn til greina við þetta
kjör. Erlingur Kristjánsson var
kjörinn „knattspyrnumaður
ársins“ af knattspyrnuráði en
fleiri eru „volgir“ og mætti nefna
nöfn eins og Jónas Róbertsson,
Bjarna Sveinbjörnsson, Halldór
Áskelsson og Óskar Gunnarsson,
alla leikmenn úr Þór í því sam-
bandi. Yfirleitt skáru einstakir
leikmenn Þórs sig meira úr í sum-
ar en leikmenn KA sem voru
jafnari þótt Erlingur hafi staðið
þar nokkuð upp úr.
Þá hefur ekki verið getið um
mjög efnilega íþróttamenn sem
iðka júdó og sund hér í bænum
og unnu afrek á árinu, og fim-
leikafólki vex mjög ásmegin
þessa stundina. Það er því ljóst
að hlutverk þeirra sem koma til
með að standa að kjöri þessu
verður ekki öfundsvert.
Leiknir knattspyrnumenn eins og Óskar Gunnarsson njóta sín vel í innanhússknattspyrnu.
Akureyrarmótið í knattspyrnu:
Það vprður hart bar-
ist í Iþróttahöllinni
- Um 40 leikir í höllinni á tveimur dögum
Akureyrarmótið í innanhúss-
knattspyrnu verður háð í
íþróttahöllinni 28. og 29. des-
ember. Keppt verður í 10
flokkum og verða leikirnir
tæplega 40 talsins. Keppt verð-
ur í 6. flokki, 5. flokki, 4.
flokki, 3. flokki, 2. flokki, 1.
flokki og meistaraflokki karla
auk „old boys“ og í eldri og
yngri flokkum kvenna.
Keppnin hefst kl. 16 á föstu-
daginn og verða þá leikir yngri
flokkanna á dagskrá. Forsvars-
menn Knattspyrnuráðs Akureyr-
ar hafa beðið blaðið að koma því
á framfæri við foreldra að mæta
þá í íþróttahöllina og hvetja
strákana til dáða. Á laugardaginn
hefst keppnin síðan kl. 10 og
verður leikið fram á kvöld eða
þar til tekist hefur að fá fram úr-
slit í öllum flokkum.
KA og Þór senda að sjálfsögðu
lið til keppni í öllum flokkunum
sem keppt verður í, og Vaskur
mun senda tvö lið í mótið. Óhætt
er að mæla með þessu móti sem
góðri skemmtun, a.m.k. hefur
svo reynst undanfarin ár að
innanhússknattspyrna hefur ver-
ið vel sótt á Akureyri og fólk
Fyrsta umferðin í Norður-
landsriðli yngri flokka íslands-
mótsins í handknattlcik verður
háð I íþróttahöllinni á Akur-
eyri flmmtudaginn 27. des-
ember, 3. dag jóla og hefst
keppnin kl. 16.
Það eru piltar úr Akureyrarlið-
skemmt sér vel. Leikirnir eru
stuttir og því gengur allt vel fyrir
sig, enda þarf að halda vel á
spöðunum. ef takast á að leika
mótið á tveimur dögum.
unum KA og Þór sem þar munu
berjast mikilli baráttu ef að lík-
um lætur og verður keppt í 3., 4.
og 5. flokki. Þetta er fyrsta um-
ferðin af þremur sem félögin
leika til þess að fá úr því skorið
hvaða lið komast í úrslitakeppni
íslandsmótsins.
Handbolti
þeirra yngstu
„Jólapönnukökugolfhraðmót"
- Það kann að hljóma undar-
lega á þessum árstíma ef fara á
að segja frá golfmóti. Stað-
reyndin er hins vegar sú að um
helgina var haldið golfmót á
velli Golfklúbbs Akureyrar, og
var ekki snjókorn á vellinum er
mótið fórfram.
„Þetta er jólapönnukökugolf-
hraðmót," sagði Haraldur Sig-
urðsson fulltrúi í Útvegsbankan-
um á Akureyri, en það var einmitt
starfsfólk bankans sem hélt þetta
mót. Hófst það kl. 13 á sunnudag
og mættu starfsmenn til leiks auk
þess sem nokkrir aðrir voru við
golfleik á vcllinum.
Nafn mótsins þarfnast e.t.v. út-
skýringar. Jólapönnukökurnar
sem eru í nafni mótsins eru til-
komnar vegna þess að á 4. teig
bauð Haraldur Sigurðsson kepp-
endum upp á nýbakaðar pönnu-
kökur og kaffi, en Haraldur hefur
verið „veitingastjóri" í þeim
mótum sem fram hafa farið á veg-
um bankans á árinu. Hraðmót er
þetta kallað vegna þess að það lá
á að ljúka keppninni áður en
dimmdi en fáar stundir gefast til
golfleiks vegna skammdegisins
þótt ekki sé snjór á þessum árs-
tíma.
„Eftir því sem ég best yeit er
þetta síðasta golfmót ársins í
Evrópu," sagði Haraldurer mótið
var að hefjast. Það er a.m.k. víst
að ekki verða þau fleiri á Akur-
eyri á þessu ári, því strax að mót-
inu loknu tók að kyngja niður
snjó, - jólasnjórinn var kominn.
1—X—2
Þorbergur Ólafsson.
„Núna
eða
aldrei“!
„Ef Manchester United sigrar
ekki í deildinni núna þá gerist
það aldrei, það eru hreinar lín-
ur með það,“ segir Þorbergur
Ólafsson spámaður vikunnar
og einn af einlægari aðdá-
endum Manchester United
hér á landi.
Ég held satt að segja að
þetta sé að koma hjá okkur
núna og að United muni vinna
með yflrburðum. Við höfum
aldrei verið ineð svona sterkt
lið (!) þannig að ef titillinn
kemur ekki núna þá verð ég
vitlaus.“
- Engir sem geta veitt
„ykkur“ keppni?
„Það verða þarna nokkur
lið svona til þess að veita
„okkur“ aðhald, smálið eins
og Liverpool, Arsenal, Tott-
enham og Everton, en þau
verða þarna bara sem uppfyll-
ing. „Við“ verðum orðnir efst-
ir strax eftir jólalotuna og eftir
það verður ekki aftur snúið,“
sagði spekingurinn að lokum.
Þorbergur spilar grimmt í
getraunum en um árangur er
ekki vitað. Spá hans er
þannig:
A.Villa-Newcastle x
Everton-Chelsea 1
Man.Utd.-Ipswich 1
Norwich-Tottenham 1
QPR-LiverpooI 1
W.Ham-Southampton x
Fulham-Man.City 2
Huddersf.-Brighton 1
Notts C.-Charlton 2
Portsmouth-Oxford 1
Wimbleton-Birm.ham x
Wolves-Leeds 2
Sigbjörn
í „júmbósætið"
Sigbjörn Gunnarsson Aston
Villa „fan“ hefur þann vafa-
sama heiöur að skipa „júmbó-
sætið“ eftir síðustu helgi.
Hann náði aðeins 3 réttum
leikjum en Siguröur Pálsson
Arsenalniaður og starfsmaður
Sigbjörns í Sporthúsinu hreyk-
ir sér sem fyrr á toppnum með
6 leiki rétta. Sex spámenn hafa
síðan náð 5 lcikjum réttum.
1—X—2