Dagur - 04.01.1985, Qupperneq 2
2 - DAGUR - 4. janúar 1985 r
rA söluskra:
Lerkilundur: 5 herb. einbýlis-
hús 136 fm og 35 fm bílskúr.
Gott hús, þægileg stærö, góður
staður. Skipti til athugunar.
Þórunnarstræti: Stór húseign
ca. 345 fm við sunnanvert Þór-
unnarstræti. Tvær hæðir og
íbúðarkjallari, með 4ra herb.
íbúð. Hæðirnar nýtast saman
og eru möguleikar á 7-9 her-
bergjum tveimur snyrtingum og
eldhúsi. Stór og nýræktuð lóð.
Húsnæðið býður upp á ýmsa
notkunarmöguleika. Til greina
koma skipti á einbýlishúsi.
Tungusíða: 5-6 herb. einbýl-
ishús 150 fm og 50 fm bílskúr.
Hægt að taka verðminni eign
upp í. Góð lán áhvílandi.
Rimasíða: 140 fm einbýlishús
rúmlega fokhelt og sökklar
undir bílskúr. Lóð frágengin,
skipti á 3ja eða 4ra herb. íbúð
þarf ekki að losna strax.
Flatasíða: Uppsteypt einbýlis-
hús 130 fm. Ýmis skipti mögu-
leg.
Grundargerði: 4-5 herb. rað-
húsíbúð um 120 fm á tveimur
hæðum. Mjög góð íbúð.
Norðurgata: 4-5 herb. neðri
hæð 128 fm og geymslur. Sér
inngangur. Bein sala eða skipti
á einbýlishúsi eða raðhúsi.
Þórunnarstræti: 5 herb. 150
fm efri sérhæð í tvíbýlishúsi og
35 fm innbyggður bílskúr.
Möguleiki á skiptum.
Munkaþverárstræti: Húseign
með tveimur íbúðum alls um
226 fm. Auðvelt að gera sem
einbýli.
Eyrarlandsvegur: 4-5 herb.
íbúð á 2. hæð í þríbýlishúsi,
mikið endurbætt. Bílskúrsrétt-
ur.
Hrafnagilsstræti: 4ra herb.
miðhæð í þríbýlishúsi um 100
fm. Skipti á 2-3ja herb. íbúð
möguleg.
Sólvellir: 3-4ra herb. íbúð 95
fm nettó, í 5 íbúða húsi. Laus
fljótlega.
Grenivellir: 4ra herb. íbúð,
hæð og kjallari ásamt 50 fm
vönduðum bílskúr.
Seljahlíð: 5 herb. 128 fm rað-
húsíbúð og 30 fm bílskúr. Allt
á einni hæð og auk þess
geymsla í kjallara. Góð eign.
Spítalavegur: 3ja herb. íbúð
á efri hæð ca. 50 fm og 25 fm
geymslur. Sér inngangur.
Hafnarstræti: 5 herb. ca. 120
fm efri hæð í tvíbýlishúsi. Sér
inngangur.
Keiiusíða: 2ja herb. vönduð
íbúð ca. 58 fm á 1. hæð.
Tjarnarlundur: 2ja herb. ein-
staklingsíbúð á 4. hæð. Sam-
komulag um fyrirkomulag á
greiðslum.
Lækjargata: Ódýr 3ja herb.
íbúð ca. 65 fm. Sér inngangur.
Kringlumýri: 2ja herb. 49 fm
íbúð út úr einbýlishúsi. Lítill bíl-
skúr fylgir. Allt sér.
Sæból Glerárhverfi: Ódýrt
húsnæði með aðstöðu fyrir bíl-
apartasölu og nokkrum lager af
notuðum varahlutum. Einnig
aðstaða til bílasprautunar.
Óskað er eftir tilboðum í allt
eða hvort fyrir sig.
ATH. Kaupendur að eignum á
Eyrinni. Hæð með bílskúr og
einbýli með bílskúr. Aðrir staðir
koma til greina.
Kaupandi að raðhúsi í Glerár-
hverfi eða sambærilegu.
Ágætu viðskiptavinir,
óskum ykkur gleði og gæfu
á nýju ári.
Þökkum samskiptin á liðna
árinu.
ÁsmundurS. Jóhannsson
mm lögfraeðingur m Brekkugötu m
Fasteignasa/a
Brekkugötu 1, sími 21721.
Sölum.: Ólafur Þ. Ármannsson
við kl. 17-19 virka daga.
heimasími 24207.
EIGIMAMIÐSTÖÐIN1
SKIPAGOTU 1 - SIMI 24606
OPIÐ ALLAN
DAGINN
Gleðilegt nýár
Þökkum viðskiptin
á liðnu ári.
Lerkilundur:
5 herb. einbýlishús ca. 137
fm ásamt 30 fm bílskur. Ýmis
skipti.
Hjallalundur:
2ja herb. íbúð á 1. hæð í fjöl-
býlishúsi ca. 64 fm, góð eign.
Skipti á raðhúsi.
Hrísalundur:
2ja herb. íbúð á 2. hæð / fjöl-
býlishúsi, ca. 57 fm.
Tjarnarlundur:
2ja herb. ibúð á 4. hæð í fjöl-
býlishúsi, 54 fm, skipti á
stærri eign.
Seljahlíð:
4ra herb. raðhús á einni hæð,
97 fm, ýmisleg skipti.
Fjólugata:
4ra herb. neðri hæð i tvíbýl-
ishusi, 100 fm, rúmgóð ibúð.
Eyrarlandsvegur:
5 herb. íbúð á efri hæð í tví-
býlishúsi, 120 fm, töluvert
endurnýjuð.
Tjarnarlundur:
4ra herb. íbúð í fjölbýlishúsi,
100 fm, skipti á góðri hæð
eða raðhusi.
Eiðsvallagata:
3ja herb. íbúð á 2. hæð i þrí-
býlishúsi, endurbætt.
Laxagata:
4-5 herb. íbúð á efri hæð í
tvibylishúsi, 90 fm.
Ránargata:
4-5 herb. ibúð á efri hæð í
tvibýlishúsi, 120 fm, ásamt
24 fm bílskúr.
Norðurbyggð:
5 herb. raðhúsíbúð 150 fm -
skipti á 3ja herb. íbúð.
Þórunnarstræti:
164 fm efri hæð í tvíbýlishúsi
ásamt 30 fm bilskúr, skipti á
minni eign.
Dalsgerði:
5 herb. raðhúsíbúð á tveim
hæðum 119 fm - skipti á 3ja
herb. íbúð.
Steinahlíð:
194 fm raðhúsibúð á tveim
hæðum, ásamt 30 fm bilskúr.
Borgarhlíð:
4-5 herb. raðhúsíbúð á tveim
hæðum 155 fm, ásamt 29 fm
bilskúr innbyggðum.
Tungusíða:
5 herb. einbýlishus, á tveim
hæðum 190 fm ásamt 74 fm
bilskúr.
Stapasíða:
279 fm einbýlishús á tveim
hæðum. Neðri hæð fullfrá-
gengin en efri hæð tilbúin
undir tréverk. Bilskúr ca. 32
fm. Skipti möguleg.
Reykjasíða:
4ra herb. einbýlishús ca. 143
fm ásamt 38 fm bilskúr, góð
eign.
Langahlíð:
6 herb. einbýlishús á tveim
hæðum ca. 182 fm asamt 43
fm bílskur, innbyggðum.
Opið ailan daginn.
Síminn er 24606.
Sölustjóri:
Björn Kristjansson.
Heimasimi: 21776.
Lögmaður:
Ólafur Birgir Arnason.
- Rætt við Jón Arnþórsson, sem afhenti forsætisráðherra
undirskriftalista með nöfnum 4.032 álverssinna fyrir áramótin
„Við áhugamenn um framfarir við
Eyjafjörð viljum okkar byggðar-
lagi allt það besta og við viljum
leggja okkar af mörkum til þess að
framtíð okkar afkomenda í Eyja-
firði sé eins trygg og tök eru á.
Þess vegna höfnum við engum at-
vinnukostum fyrirfram, en tökum
niðurstöðum rannsókna þegar þær
liggja fyrir,“ sagði Jón Arnþórs-
son í samtali við Dag, en hann
hafði veg og vanda að undir-
skriftasöfnun til stuðnings þess að
stóriðjukostur við Eyjafjörð verði
skoðaður grannt.
Steingrími Hermannssyni, forsæt-
isráðherra, voru afhentir undir-
skriftalistarnir skömmu fyrir áramót-
in, en á þeim voru nöfn 4.032
ábyrgra Eyfirðinga 18 ára og eldri.
Áður hafði Steingrímur fengið í
hendur undirskriftalista með nöfnum
rúmlega 3.000 Eyfirðinga, sem mót-
mæltu hugsanlegu álveri við Eyja-
fjörð.
„Við afhentum Steingrími undir-
skriftalistana í peningakassa,“ sagði
Jón, „til að leggja áherslu á að sterk
efnahagsleg rök eru fyrir því að stór-
iðja verði efld við Eyjafjörð, í góð-
um félagsskap við það atvinnulíf sem
fyrir er. Auk þess voru listarnir
bundnir í sauðskinn, í trausti þess að
áliðja geti hér eins og víðar lifað í
góðu samlyndi við gjöfula náttúru.“
- Nú hefur ykkar undirskrifta-
söfnun staðið í nær hálft ár; hvers
vegna tók hún svona langan tíma?
„Hún hefur nú ekki staðið í hálft
ár, en það er rétt, að liðið er hálft ár
frá því að hún hófst.
Við byrjuðum í júnímánuði á síð-
asta ári og var undirskriftasöfnunin í
fullum gangi í um fjórar vikur. Þá
tókum við okkur sumarfrí, ekki síst
vegna þess að fyrirhuguð var ferð til
Alcan í Kanada, þar sem ellefu Ey-
firðingum var gefinn kostur á því að
skoða álverksmiðjur í gróðursælu
landbúnaðarhéraði. Við töldum víst,
að eftir þá ferð yrðu niðurstöður
hennar kynntar fyrir heimamönnum
á a.m.k. jafn mörgum fundum og
haldnir voru um málið í júní, þar
sem framkvæmdastjóri Iðnþróunar-
félagsins var í fararbroddi. Þeir fund-
ir urðu fimm talsins, sem að megin-
efni voru um mengun af óþekktri
stærð. En mörgum til furðu voru
niðurstöður Kanadaferðarinnar
aldrei kynntar á fundum, enda fundu
álversandstæðingar enga mengun af
völdum Alcan í Kanada, þrátt fyrir
60 ára álvinnslu fyrirtækisins þar.
Þegar ljóst var að ekkert yrði úr
kynningarfundum á vegum Kanada-
faranna tókum við til okkar ráða og
gáfum út kynningarrit um helstu rök-
in fyrir stóriðju við Eyjafjörð, en síð-
an gerðum við lokaátakið í undir-
skriftasöfnuninni. Það er því ekki
hægt að segja að sjálf undirskrifta-
söfnunin hafi staðið nema í tæpa tvo
mánuði. Miðað við það er árangur-
inn viðunandi, ekki síst vegna þess
að við gættum þess að allir sem skrif-
uðu undir væru orðnir 18 ára og bú-
settir í Eyjafirði. En ég hygg að ál-
versandstæðingar hafi ekki viðhaft
sömu leikreglur."
- Kom árangur álversandstæðinga
ykkur á óvart?
„Já, þeim varð vel ágengt í sinni
undirskriftasöfnun, sem byrjaði á
fyrsta fundi þeirra í Freyvangi í byrj-
un júní og lauk í þann mund sem
Kanadafararnir voru að koma heim.
Þá var ekki beðið boðanna með að
afhenda forsætisráðherra afrakstur-
inn, enda augljóst að þeir óttuðust að
mengunargrýlan sem þeir mögnuðu
upp, yrði ekki lengur áhrifaafl í bar-
áttunni eftir að Kanadafararnir snéru
heim, án þess að finna mengun.
Enda hafa álversandstæðingar
hopað úr hverju víginu í annað. I
upphafi baráttunnar voru þeir sjálf-
skipaðir náttúrufræðingar í fremstu
víglínu, en þegar mengunin fannst
ekki þótti það ekki vænlegt lengur.
Þá gerðust þeir hagfræðingar, sem
vildu leiða villuráfandi Eyfirðinga
um frumskóg fjármálanna. En þegar
þess er gætt, að Búrfellsvirkjun er að
verða skuldlaus eign landsmanna eft-
ir viðskiptin við álverjana voðalegu í
Sviss og Straumsvík, þá stendur að-
eins eitt eftir, það er félagsfræðin,
sambýlisvandamálin. En álversand-
stæðingum hefur orðið hált á þeirri
röksemdafærslu, því Kanadafararnir
sáu álver í góðri sambúð við gjöfult
landbúnaðarhérað. Sömu sögu er að
segja um Hafnarfjörð, þar sem ísal
hefur verið sterkasta aflið í uppbygg-
ingu bæjarins á undanförnum árum.
Fastheldni starfsmanna ísals á störfin
sín er líka eftirtektarverð, ein sú
mesta hér á landi, þar sem rúmlega
helmingur starfsmanna verksmiðj-
unnar hefur unnið þar í meira en 10
ár, en fyrirtækið er aðeins 15 ára
gamalt.
Nú eru erfiðir tímar í okkar aðal-
atvinnugreinum, þannig að þörf er á
nýjungum til að auka fjölbreytni at-
vinnulífsins. Þegar þannig stendur á
höfum við ekki efni á móðuharðind-
um af mannavöldum, eins og við
leyfum okkur að nefna málflutning
úrtölufólksins þegar framfarasókn
ber á góma.
Hlutur Iðnþróunarfélagsins í þessu
máli er einnig ádeiluverður. Auðvit-
að átti félagið, eðli sínu samkvæmt,
að beita sér fyrir málefnalegri um-
ræðu um stóriðjukostinn, í stað þess
að láta nota sig í þágu þeirra sem
hafna álveri að óathuguðu máli. Við
viljum láta skoða stóriðjukostinn
grannt og við tökum þeim niður-
stöðum sem yfirstandandi rannsóknir
leiða í ljós. Vonandi verða þær
niðurstöður jákvæðar, þannig að
hægt verði að efla atvinnulíf héraðs-
ins svo um muni. Vandi Eyjafjarðar
er stór og við höfum ekki efni á að
hafna atvinnukostum að óathuguðu
máli. Niðurstöður undirskriftanna
sýna að á síðasta ári voru skoðanir
skiptar um þetta mál. Eðlilegast er
því að stjórnvöld feli hlutlausum að-
ilum að komast að raunverulegum
vilja heimamanna, með skoðana-
könnun eða opinberri atkvæða-
greiðslu,“ sagði Jón Arnþórsson í lok
samtalsins. - GS
11
' 1
1
xwxííiííi-xíx
Fasteignasalan
Brekkugötu 4, Akureyri.
Gengíð inn að austan.
omðfráki. 13-18. sími 21744
2ja herb. íbúðir:
Víðilundur: íbúð á 3. hæð um 54 fm.
Kjalarsíða: (búð á 3. hæð f svalablokk um 61 fm.
Hrísalundur: (búð um 49 fm.
Keilusíða: (búð á 2. hæð um 60 fm.
Smárahlíð: íbúð á 1. hæð um 45 fm.
3ja og 4ra herb. íbúðir:
Tjarnarlundur: 4ra herb. íbúö í suðurenda.
Hjallalundur: 4ra herb. íbúð á 4. hæð í suðurenda.
Norðurgata: 4ra herb. neðri hæð í tvíbýlishúsi um
115 fm. Laus strax.
Hjallalundur: 4ra herb. íbúð á 1. hæð í suðurenda.
Lækjargata: 3ja herb. íbúð í þríbýlishúsi. Selst
ódýrt.
Lækjargata: 4ra herb. efri hæð í þríbýlishúsi.
Melasíða: 3ja herb. íbúð á 4. hæð um 84 fm.
5 herb. íbúðir:
Grundargerði: 5 herb. raðhúsíbúð á 2 hæðum.
Reynivellir: 5 herb. miðhæð í þríbýlishúsi. Bíl-
skúrsréttur.
Þingvallastræti: Neðri hæð í tvíbýlishúsi. Góður
kjallari.
Þórunnarstræti: Sérhæð í tvíbýlishúsi ásamt
bílskúr.
Einbýlishús:
Hraungerði: Einbýlishús á einni hæð ásamt
I bílskúr.
Brekkusiða: Fokhelt einbýlishús, hæð og ris ásamt
: bílskúr. Skipti möguleg.
Langahlíð: Einbýlishús á tveimur hæðum ásamtj
góðum bílskúr. Skipti möguleg.
Einholt: 5 herb. raðhúsíbúð á tveimur hæðum um j
134 fm.
Kaupandi að 2ja herb. íbúð í Smárahlíð eða
Borgarhlíð. 1
Kaupandi að raðhúsíbúð í Glerárhverfi.
Kaupandi að 2ja herb. ibúð í Lundahverfi.
Sölustjóri: Sævar Jónatansson.
Gunnar Sólnes hrl„ Jón Kr. Sólnes hrl., Árnl Pálsson hdl.