Dagur - 04.01.1985, Síða 3
4. janúar 1985 - DAGUR - 3
„Ég er gull og gersemi":
Eftirminnileg
sýning L.A.
„Ég er gull og gersemi“
- sjónleikur eftir
Svein Einarsson,
byggður á skáldsögu
Davíðs Stefánssonar,
Sólon íslandus,
kvæðum skáldsins
og öðrum heimildum.
Leikmynd:
Örn Ingi Gíslason.
Búningar:
Freygerður Magnúsdóttir.
Lýsing og myndvörpun:
David Walters.
Tónlist:
Atli Heimir Sveinsson.
Leikstjórn:
Sveinn Einarsson.
Sýning Leikfélags Akureyrar á
„Ég er gull og gersemi“ eftir
Svein Einarsson er einstaklega
myndræn og mikið augnayndi.
Leikmyndin umlykur áhorfand-
ann og með örum og vel heppn-
uðum ljósaskiptingum er rétt eins
og augað skynji sýninguna í
„steríó“. Leikurinn fer auk held-
ur ekki aðeins fram á sviðinu,
heldur einnig á göngum frammi í
sal. Bara fyrir þessa sök er hér
um áhrifamikla sýningu að ræða,
en margt fleira kemur til. Það er
þó ekki síst þessi umgjörð verks-
ins sem gerir það svo eftirminni-
legt og er að líkindum punktur-
inn yfir i-ið.
Leikritið gerist bæði í nútírn-
anum og á þeim tíma þegar Sölvi
Helgason, söguhetja verksins,
var uppi. I allundarlegu jólaboði
fara gestirnir að rifja upp sögu-
sagnir um þennan landshorna-
flakkara og listamann, fyrir til-
stilli þeirrar sem heldur boðið, en
hún er leikin af Sunnu Borg.
Þetta er ekki auðskilin persóna,
svolítið loftkennd, og tekst
Sunnu vel að gæða hana ævin-
týralegum blæ og dulúðugum.
Þetta flakk á milli nútímans og
fyrri tíðar einkennir verkið og
má segja að það sé í góðu sam-
ræmi við viðfangsefnið, flakkar-
ann Sölva, og einnig í samræmi
við þær flögrandi hugmyndir sem
almenningur gerir sér einatt um
listir og listamenn.
Theodór Júlíusson fer með
langstærsta hlutverkið í sýning-
unni, leikur sjálfan Sölva. Hon-
um tekst býsna vel upp, lýsir
skapbrigðum hans vel og stendur
vel undir því að vera burðarásinn
í verkinu. í öðrum stórum hlut-
verkum má nefna Sigurveigu
Jónsdóttur, sem á stórgóðan leik,
og einnig Guðlaug María Bjarna-
dóttir. Yfirleitt er leikurinn
hnökralítill. Þó var eins og vant-
aði eitthvað á leikinn í nútíma-
senunum og almennt séð var
leikurinn betri og heilsteyptari
þegar sýnt var frá fyrri tíð. Þetta
lýsir þó e.t.v. aðeins nútímanum
eins og hann er og þeirri yfir-
borðsmennsku sem allt of oft rík-
ir gagnvart listum og lista^
mönnum og til þess ætlast að
þannig ynnist úr verkinu.
Tónlist Atla Heimis Sveinsson-
ar kom mjög á óvart og var bein-
línis skemmtileg, flutningur góð-
ur og áttu þar stærstan hlut að
máli Kristján Eldjárn Hjartar-
son, sem er góður leikari og fjöl-
hæfur, og Fanny Tryggvadóttir.
Aður hefur verið minnst á leik-
mynd Arnar Inga og lýsingu
Davids Walters. Hvort tveggja er
frábært og virkar vel saman.
Búningar eru misjafnir og tekur
maður helst eftir því að eitthvað
skorti á í þeim efnum í þeim at-
riðum sem gerast í nútímanum,
rétt eins og með leikinn sem áður
var nefndur.
í heild er þetta bráðskemmti-
legt verk - dramatískt og alvar-
legt í bland við kímni. Það er
einkar áhrifamikið og maður er
ekki laus við það eftir að sýningu
lýkur. Vel hefur tekist til hjá
Leikfélagi Akureyrar að þessu
sinni. Þetta er mikil og metnað-
arfull sýning, höfundi og leik-
stjóra og öllum aðstandendum til
sóma. HS
Atvinnurekendur,
fyrirtæki, stofnanir
Undirritaður mun á næstunni hefja ráðgjafar-
þjónustu í iðjufræði (ERGONOMIU)
undir nafninu
FOFW/ÖFU1
Ráögjöf og
kennsla i C
iöjufræöi. \
Ráðgjöfin verður miðuð við eftirlit á vinnustöðum og kennslu
í vinnutækni.
Áhugafólk vinsamlegast hafið samband um pósthólf 127
602 Akureyri eða í síma 96-21733 á kvöldin.
Magnús H. Ólafsson sjúkraþjálfi.
Akureyringar
Bæjargestir
laugardagskvöldið
5. janúar.
Hljómsveit
Steingríms
Stefánssonar leikur
fyrir dansi
til kl. 02.
Matur framreiddur
frá kl. 19-22.
Verið
velkomin.
Boröapantanir
teknar í síma 22200.
HÓTEL KEA AKUREYRI
Dynheimar staðurinn sem við sækjum.
Diskótek 71
föstudag 4. janúar 1985 frá kl. 22-01
a T|rri loksins í Dynheimum,
U. tölvupopp framið á staðnum.
ám* \
Nýr árgangur
sérstaklega
velkominn.
m
staður unga fólksins