Dagur - 04.01.1985, Síða 11
4. janúar 1985 - DAGUR - 11
Enginn
snjór
„Við bíðum í ofvæni eftir snjó
hér í Fjallinu því fyrr en hann
kemur getur við ekki opnað,“
sagði ívar Sigmundsson í Hlíð-
arfjalli er við ræddum við hann
um ástandið í Fjallinu.
„Það er alveg vonlaust að
reyna að opna hérna núna því
það má segja að hér sé alveg
snjólaust,“ sagði ívar. „Það má
segja að þetta sé alveg einstakt
ástand og t.d. í fyrra var besti
tíminn hér í janúar. En nú er
ástandið sem fyrr sagði afar
slæmt og það eina sem við getum
gert er að bíða og vona að úr
rætist.“ gk-.
Athugasemd
Þorsteinn Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Sindrafells hafði
samband við blaðið vegna
fréttar af málaferlum fyrir-
tækisins og Hitaveitu Akureyr-
ar.
Þorsteinn vildi taka það fram
að fyrirtækið hafi ekki verið í
vanskilum við hitaveituna, en
hitaveitan hafi ekki afhent það
magn af heitu vatni til fyrirtækis-
ins sem greitt var fyrir og er hann
vildi fá skuldajöfnun hafi verið
lokað fyrir vatnsafhendinguna.
„Það er svo hitt atriði málsins að
mér skuli gert að greiða fyrir vatn
sem ég fæ ekki inn vegna þess að
það er lokað, mér ber ekki að
borga þá reikninga. Það fransk-
brauð sem við fáum ekki borgum
við ekki fyrir,“ sagði Þorsteinn.
Ómar
enn á
ferðinni
Ómar Ragnarsson hefur nú
haldið fjórar skemmtanir í
Sjallanum að undanförnu og
hefur aðsókn verið geysileg.
Að vísu setti veðrið strik í
reikninginn þann 28. desember
en þá komst t.d. ekki hópur
Húsvíkinga til Akureyrar.
Vegna þessarar gífurlegu að-
sóknar skemmtir Ómar með sýn-
ingu sinni „Ómar í aldarfjórð-
ung“ í Sjallanum í kvöld og ann-
að kvöld, og einnig hafa verið
ákveðnar tvær sýningar dagana
18. og 19. janúar. Omar hefur
svo sannarlega slegið í gegn á
Akureyri, enda er sýning hans
byggð upp á „gullkornum“ frá 25
ára ferli og af nógu er að taka.
gk--
Allir velkomnir
í Laxdalshús.
Opið föstudag og
laugardag frá kl. 18.00.
Tileinkað Sólon Islandus verða eingöngu kertaljós á borðum
og munir frá gamalli tíð á veggjum.
Auk þess ljósmyndir úr umræddu leikriti.
Hafa matreiðslumeistarar Sjallans veg og vanda
af matreiðslu kvöldsins.
Matseðill:
Sjávarréttasúpa m/Drangeyjarbragði
og
grillaðir kjötréttir á teini að hætti flakkaranna
eða
reyktur lambahryggur með gufusoðnu grænmeti
eða
alheimsbuffsteik m/kryddsmjöri, bökuðum kartöflum,
gufusoðnu rósenkáli og ristuðum sveppum.
Opið til kl. 01. Léttar veitingar.
Borðapantanir í síma 26680 eða 22644.
Vegna frábærra undirtekta viljum við benda gestum á að panta
borð tímanlega, og leikhússmatargesti biðjum við vinsamlegast
að mæta tímanlega. svo þeirgeti notið veitinganna
sem best í ró og næði.
Heilsugæslustöðin á Akureyri
óskar eftir
3ja herbergja íbúð
fyrir lækni nú þegar í 4-5 mánuði.
Heilsugæslustöðin, sími 22311,
eða Ragnar Steinbergsson í síma 24459.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 71., 73. og 76 tbl. Lögbirtingablaðsins 1983
á fasteigninni Ártröð 5, Hrafnagilshreppi, þingl. eign Halldórs
Sigurgeirssonar, fer fram eftir kröfu Ólafs B. Árnasonar hdl.,
Árna Pálssonar hdl., Gunnars Sólnes hrl., innheimtumanns
ríkissjóðs og Björns J. Arnviðarsonar hdl. á eigninni sjálfri
miðvikudaginn 9. janúar 1985 kl. 15.00.
Sýslumaðurinn f Eyjafjarðarsýslu.
Framsóknarmenn
Framsóknarfélag Akureyrar
heldur fund að Strandgötu 31 mánudaginn 7.
janúar kl. 20.30. Áríðandi að fólk í nefndum
mæti.
Skátar/Foreldrar
St.Georgs./HSSA
Nýársvarðeldur verður haldinn
laugardaginn 5. janúar
Mæting kl. 17 á bílastæðinu í Kjarna.
Þeir sem ekki hafa far, mæti
við Hvamm kl. 16.30.
Klæðið ykkur eftir veðri
og takið nýársskapið með
Skátafélag Akureyrar.
F.V.S.A. F.V.S.A.
Félag verslunar- og skrif-
stofufólks á Akureyri
býður félögum sínum 67 ára og eldri, ásamt maka,
á sýningu Leikfélags Akureyrar
„Ég er gull og gersemi“
föstudaginn 11. janúar 1985.
Þátttaka tilkynnist á skrifstofu félagsins í síma 21635
eigi síðar en 8. janúar.
Stjórn F.V.S.A.
Skrifstofustarf
Óskum eftir að ráða starfsmann til almennra skrif-
stofustarfa auk símavörslu fyrir hádegi frá og
með 1. febrúar 1985. Reynsla í skrifstofustörfum
áskilin.
Nánari upplýsingar gefnar á skrifstofunni.
MOL&SANDUR HF.
v/SÚLUVEG - PÓSTHÓLF 618 - 602 AKUREYRI - SÍMI (96)21265
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Læknaritari óskast
sem fyrst í hálft starf á Barnadeild F.S.A.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf sendist framkvæmdastjóra sjúkra-
hússins fyrir 15. janúar 1985.
Upplýsingar um starfið veitir yfirlæknir deildarinn-
ar í síma 22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Vantar stýrimann
á Særúnu EA 251.
Upplýsingar í síma 63146.
Skrifstofustjórn
Óskum að ráða starfsmann
fyrir lítið iðnfyrirtæki.
Starfssvið:
★ Umsjón með reikningsgerð og innheimtu.
★ Undirbúningur að launa-, fjárhags- og við-
skiptabókhaldi fyrir tölvuvinnslu.
★ Greiðslu reikninga.
Við leitum að:
★ Starfsmanni sem getur starfað sjálfstætt og
hefur frumkvæði til verkstjórnunar.
★ Verslunarmenntun og/eða góð reynsla í sjálf-
stæðum skrifstofustörfum er nauðsynleg.
Umsóknareyðublöð á skrifstofunni.
RÁÐWN6ARNÓNUSTA
FELL hf. Kaupvangsstræti 4 -Akureyri • slmi 25455
Notum ljÓS A
í auknum mæli
i — í ryki, regm þoku
og sól.
UMFEROAR
RAÐ