Dagur - 16.01.1985, Blaðsíða 1

Dagur - 16.01.1985, Blaðsíða 1
TÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS MARGAR GERÐIR GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI FILMUhusid AKUREYRI 68. árgangur Akureyri, miðvikudagur 16. janúar 1985 6. tölublað Kveiktu í póstkassa Það er sem betur fer ekki ai- gengt að fólk fái brenndan póst, eins og gerðist á dög- unum hér á Degi. Um var að ræða lausn á krossgátu jóla- blaðsins, en bruninn var ekki það mikill að lausnin kæmist ekki til skila. Bréfið var lagt í póstkassa í Kaupangi við Mýrarveg og einhverjir óvitar hafa lagt eld að kassanum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem póstkassinn á þessum stað verður fyrir skemmdum. í þetta skipti var reynt að opna kassann með einhverjum verkfærum, en þegar það tókst ekki var eldur lagður í innihaldið. í>að þarf vart að taka fram hversu bagalegt þetta getur verið, auk þess sem verulegt tjón getur hlotist af þessum óvita- hætti. - HS Er gróður í hættu vegna hlýindanna? Sú _ einmunatíð sem verið hefur norðanlands undanfar- ið hefur valdið suntum áhyggjum, nefnilega þeim sem hafa með höndum rækt- unarstarf, hvort sem er sem tómstundaiðju eða að at- vinnu. Hlýindi um miðjan vetur geta nefnilega valdið ótímabæru brumi á gróðri, trjám og runnuin, sem síðan getur kalið í frostuin sem vafalaust má reikna með að komi. Sumir garðeigendur telja sig sjá breytingu á gróðri, einkum þar sem skjólgott er og hita ieggur frá húsum. Dæmi eru um að rósarunnar séu byrjaðir að bruma, jafnvel trátegundir eins og aspir og reyniviður, auk ým- issa runnategunda. Menn minn- ast þess að fyrir um þremur árum fóru aspir á Akureyri illa vegna hlýindakafla og frosta í kjölfarið. Sjá nánar bls. 3. Kavían/erksmiðja reist í Úlafsfirði? Byssu- hvellir í Inn- bænum? „Það er hvorki hægt að full- yrða um það af eða á að hér hafi verið um byssuhvelli að ræða. Það hefur ekki verið úr því skoriö.“ Petta sagði rannsóknarlög- reglumaður á Akureyri er við ræddum við hann. Um jólin var kvartað yfir hvellum í Lækjar- gili á Akureyri og töldu ein- hverjir aðilar sem hringdu þá í lögreglu að um byssuhvelli hefði verið að ræða. Aðfaranótt mánudags var síðan hringt í lögregluna úr húsi í Aðalstræti og kvartað um byssuhvelli. Lögreglan var stödd þarna nærri þegar hringt var en eftirgrennslan hennar lciddi ekkert í Ijós. Menn hafa velt því fyrir sér hvort mögu- leiki sé á að hvellirnir komi úr útblástursrörum bíla eða hvort hér sé um byssuhvelli að ræða sem vissulega væri alvarlegra mál. í kvöld verður haldinn fundur í Ólafsfirði þar sem rætt verður um það hvort stefna beri að því að koma á fót kavíarverk- smiðju í bænum. Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar hefur að undanförnu unnið forat- hugun á þessu máli fyrir atvinnu- málanefnd Ólafsfjarðar. í samtali við Dag sagði Ingi Björnsson hjá Iðnþróunarfélaginu að niður- stöður tillagnanna væru tiltölu- „Ég er búinn að búa hér alla mína tfð og ég man ekki annað eins veðurfar og hér hefur ver- ið í vetur,“ sagði Kristján Sig- urðsson bóndi á Grímsstöðum lega jákvæðar og að tímabært væri að bæta við einni kavíar- verksmiðju. Vitað er að slík verksmiðja sem gæti hugsanlega hafið vinnslu um mitt árið, myndi sjá 15 manns fyrir vinnu í Ólafsfirði, þannig að ljóst er að hér er um stórmál að ræða fyrir bæjarfélag- ið þar. Talað er um að framleiða þurfi 230 tonn af kavíar á ári úr grásleppuhrognum ef miðað er á Fjöllum er við ræddum við hann um veðurblíðuna sem verið hefur í allan vetur. „Þetta getur ekki verið betra og veturinn hefur verið alveg einstakur hérna, aldrei neinn snjór að ráði,“ sagði Kristján. „Það hríðaði aðeins hér í lok október í logni og eftir það var nokkuð svelluð jörð lengi vel en upp á síðkastið hefur tekið hérna upp svo mikið að það er meira en hálfautt. Það má líka segja að hér hafi ekki komið stórhríð í allan vetur, og verið sáralítil úrkoma, þetta er einstakt. við Frakklandsmarkað en ekki nema 62 tonn sé miðað við Bandaríkjamarkað, en þessar tölur þýða að þá gæti verksmiðj- an staðið undir sér. Ekki er ljóst hverjir yrðu aðal- eigendur að þessu fyrirtæki ef það verður stofnsett í Ólafsfirði, en það er m.a. það sem ræða á á hinum almenna fundi þar í bæn- um í kvöld. Grímsstaðir á Fjöllum: Aldrei ófært í vetur Sjá nánar bls. 3. Það hefur líka alltaf verið opið bílfæri á milli Norður- og Austur- lands hérna yfir hálendið í allan vetur og um helgina fór hérna t.d. um rúta frá Egilsstöðum sem var með fólk í skemmtiferð til Akureyrar. Það er fólksbílafæri og hefur verið lengst af,“ sagði Kristján að lokum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.