Dagur - 16.01.1985, Qupperneq 2
2 - DAGUR - 16. janúar 1985
- segir Ásta Sigvaldadóttir, eigandi
hannyrðaverslunarinnar Önnu Maríu
„I'etta hefur gengið alveg
geysilega vel, ég fékk mjög
góðar móttökur. Það er ótrú-
legur áhugi á prjónaskap, ég
hefði bara ekki trúað því að
óreyndu. Ég er tiltölulega ný-
komin hingað til Akureyrar,
en ég sá fljótt að það var þetta
sem vantaði og ég skellti mér
út í að koma þessu upp. Vissu-
lega var ég logandi hrædd í
byrjun um að búðin myndi
ekki bera sig, en sá fljótt að sá
ótti var ástæðulaus, því áhug-
inn er mjög mikill og konur
eru meira og meira að átta sig
á því að við erum með garn
sem þær hafa áður keypt í
gegnum póstkröfur.“ Það er
Asta Sigvaldadóttir eigandi
verslunarinnar Önnu Maríu
sem er sérverslun með hann-
yrðavörur sem er í Viðtali
Dags-ins í dag. Verslunin var
opnuð í byrjun október, en
hún er til húsa í verslunarmið-
stöðinni í Sunnuhlíð. Asta seg-
ist hafa mikla og góða sam-
vinnu við hannyrðaverslunina
Erlu, en auk þess er hún sjálf
að hefja innflutning á garni frá
Permin. í Önnu Maríu er selt
garn frá Pattons og Pheldal og
einnig er hún ein norðanlands
með Skútugarniö vinsæla.
„Eftir því sem ég kemst næst
hefur aðalverslunarmátinn á
þessu garni hingað tii verið í
gegnum póstkröfur,“ segir
Asta.
Við spyrjum Ástu fyrst af
hverju þessi mikli áhugi sem hún
segir vera á garni og hannyrða-
vörum stafi.
„Það er örugglega tískan í dag,
hún er svo einföld og það er mjög
auðvelt að prjóna t.d. fallegar
peysur með lítilli fyrirhöfn. Fólk
sér fallega peysu út í búð, en þær
eru yfirleitt mjög dýrar og fólk er
að átta sig á því að það er ekki
nema brot af kostnaði ef það
prjónar flíkina sjálft. Nú getur
það yfirleitt fengið sams konar
hráefni og er í tilbúnum flíkum
og það ýtir eflaust frekar undir.
En ég held að einfaldleiki og
frelsið sem ríkir í tískunni í dag
hafi mikið að segja.“
- Hvers konar fólk verslar
aðallega við þig? Ungar konur?
„Nei, nei, ekkert frekar, það
er sjálfsagt mest um konur, en
þær eru á öllum aldri. Það koma
hingað litlar stelpur úr barnaskól-
unum og allt upp í rosknar eldri
konur. Það fer í vöxt að strákar
prjóni og er það eflaust vegna
þess að nú er þeim kennt að
prjóna í skólanum, en ég held
samt að nokkuð vanti upp á að
hugarfarið gagnvart strákum og
prjónaskap breytist.
- Varstu ekkert hrædd um að
verða út úr hér í Sunnuhlíðinni,
hefði ekki verið betra ef búðin
væri staösett í Miðbænum?
„Eg hélt það fyrst, en þær
segja mér konurnar í hverfinu að
það hafi verið þetta sem vantaði
hingað. Þær eru mjög duglegar
að koma og spjalla við okkur, svo
ég held að það sé alls ekki verra
að vera hér. Þessi verslunarmið-
stöð á fullan rétt á sér og það eru
sífellt fleiri sem koma hingað og
versla.“
- Einhverjar nýjungar?
„Ja, við sýnum prufur af öllu
garni sem við erum með, sýnum
hvernig garnið er þegar búið er
Ásta Sigvaldadóttir.
að prjóna úr því. Við fylgjumst
vandlega með nýjustu litum og
tísku. Ég er áskrifandi að mörg-
um prjónablöðum, aðallega þó
frönskum. Aðalgarnið okkar er
líka franskt. Enska garnið er allt-
af klassískt, það er alltaf
jafngott, en það er töluverð
íhaldssemi í Bretlandi, þeir fylgj-
ast ekki eins vel með. Evrópu-
þjóðirnar, Frakkar, Belgar og
Hollendingar fylgjast betur með.
Við reynum að panta það garn
sem virðist í tísku samkvæmt
bestu heimildum. Ég reyni að
hafa allar klær úti til að fá þetta
garn um leið og það kemur á
markaðinn og það er í rauninni
lítið mál þegar ég hef svona góða
kúnna eins og raun ber vitni. Þeir
vilja líka fylgjast með því nýjasta
og eru áhugasamir og það sem
kom mér mikið á óvart er að eldri
konur fylgjast ekki síður með
því nýjasta sent er í gangi í
prjónaskapnum.“
- Hefur þú alltaf haft brenn-
andi áhuga á handavinnu?
„Ég hef lengi verið áhuga-
manneskja, já, í mörg ár og er
alltaf prjónandi. Ég held ég hafi
prjónað allt sem hægt er að
prjóna."
- Hvernig er að standa í versl-
unarrekstri?
„Það er mjög spennandi að
vera í þessu. Ég er að gera eitt-
hvað sem ég hef virkilega gaman
af að fást við, svo er alltaf gaman
að glíma við ný verkefni og tak-
ast á við eitthvað sem maður hef-
ur ekki gert áður.“
- Þú stóðst fyrir tískusýningu
á prjónafatnaði í gróðrarstöðinni
Vín nú um helgina, hvernig var
það?
„Okkur var tekið alveg frábær-
lega vel, troðfullt út úr dyrum og
komust færri að en vildu. Síminn
hefur ekki stoppað hjá mér í dag,
fólk vill endurtekningu.
Ég hef mikinn áhuga á að sýna
hvað hægt er að gera margt úr
garni. Nú er ég að safna efni í
aðrar sýningar, ég ætla að halda
áfram að sýna, það er svo ofboðs-
lega gaman að standa í því. Það
er sýningarhópur Sillu sem sýnir
fyrir mig, upprennandi stjörnur
og mjög gott að vinna með þeim.
Annars er svo margt búið að ger-
ast undanfarið hjá mér að það er
alveg með eindæmum, nú fer ég
að slappa af.“
- Komast einhver önnur
áhugamál að hjá þér en prjónarn-
ir?
„Já, já, þeir eru alls ekkert
númer eitt. Ég er þriggja barna
móðir og uppeldið tekur dágóðan
og skemmtilegan tíma. Nú, ég
hef gaman af að starfa með sýn-
ingarhópnum og svo æfi ég hand-
bolta með Sambandsstelpunum
einu sinni í viku. Á yngri árum
spilaði ég handbolta með Vík-
ingi, ég hef alltaf haft mikinn
áhuga á handbolta.“
- Að lokum, þú segist koma
að sunnan, hvernig stendur á því
að fólk að sunnan flytur hingað
norður, þar sem allt er sagt í
doða og drunga?
„Það er ósköp einfalt mál, ég
varð ástfangin. Ég vann hjá Ála-
fossi í Reykjavík og fólk frá Sam-
bandinu kom suður að keppa við
okkur í ýmsum íþróttum, þar
kynntist ég manninum mínum,
sem er héðan og tók upp á því að
flytja norður.“
- Og hvernig líkar?
„Mér líður vel hérna, er reynd-
ar alsæl. Það er svo gott fólk hér.
Ég fór með það veganesti að
heiman hingað norður að ég
kæmi fljótt til baka aftur, Akur-
eyringar væru leiðinlegir og
þurrir, en ég hef ekki kynnst
þessum lokuðu Akureyringum
ennþá og ég hef hitt svo marga að
ég get fullyrt að þeir eru ekki til
nema þá kannski helst í augum
Sunnlendinga.“ - mþþ
Þriggja kvölda keppni hefst föstudaginn 18. janúar
að Hótel KEA kl. 20.30.
Siðan verður spilað miðvikudagaria 30. janúar og 13. febrúar.
Aðalvinningur: Flugfar fyrir tvo til Reykjavíkur.
Einnig verða góð kvöldverðlaun.
Allir velkomnir - Verið með frá byrjun.
x Framsóknarfélag Akureyrar.
„Ghostbusters
í Dolby-stereo
Ghostbusters-aðdáandi hringdi:
Vegna skrifa ánægðs Siglfirðings
um hve forráðamaður bíósins á
Siglufirði hefur staðið sig vel við
að fá myndir til sýninga, viljum
við nokkrir vinnufélagar beina
þeim eindregnu tilmælum til for-
ráðamanna Borgarbíós á Akur-
eyri að sýna alls ekki sama eintak
af kvikmyndinni Ghostbusters
(Draugabanar) og Siglfirðingarn-
ir hafa undir höndum. Þeir eru
með mono-eintak en þessi mynd
nýtur sín alls ekki nema í Dolby
stereo. Tónninn er helmingur
ánægjunnar af þessari mynd.
Borgarbíó hefur yfir slíkum tækj-
um að ráða og þeir hafa bætt tón-
inn mikið hjá sér.
Svar: Það er rétt að það komi
fram að í samtali sem blaðamað-
ur Dags átti við Ragnar sýning-
armann í Borgarbíói á dögunum,
kom einmitt fram að Borgarbíó
hefur tryggt sér sýningarréttinn
á Ghostbusters í Dolby stereo og
verður myndin sýnd hér síöar í
mánuðinum. Þessi magnaöa
mynd verður því með alvöru
hljóði á Akureyri.
Þakkir
Hjálparsveit skáta á Akureyri vill
koma á framfæri þökkum til
bæjarbúa sem styrktu starf sveit-
arinnar vel fyrir áramótin.
Flugeldasala Hjálparsveitar-
innar gekk mjög vel, en hún er
aðaltekjulind sveitarinnar. Fyrir
það færir sveitin bæjarbúum og
öðrum viðskiptavinum sínum
bestu þakkir.