Dagur - 16.01.1985, Page 6
6 - DAGUR - 16. janúar 1985
16. janúar 1985 - DAGUR - 7
„Aðeins
bestu
hráefnin
em nógu
góð fýrir
okkur“
- segir Kristinn
Bergsson, hönn-
uður hjá
skógerðinni
Að baki þeim góðu viðtökum
sem ACT-skórnir hafa fengið
á íslenskum markaði, liggur
ekki síst góð hönnun. ACT er
topp tíska, skór úr besta fáan-
lega hráefni sem gefa influttum
skóm ekkert eftir. Við spurð-
um hönnuðinn Kristinn Bergs-
son hvort það væri ekki erfitt
að fylgjast með og fá stöðugt
nýjar hugmyndir.
- Pað er auðvitað talsvert starf
því yfirleitt reynum við að hugsa
a.m.k. sex mánuði fram í tímann
og nú erum við t.d. farnir að
velta fyrir okkur haust- og vetrar-
tískunni næsta ár.
Að sögn Kristins leggja hann
og sölustjórinn, Úlfar Gunnars-
son mikla áherslu á að starfa náið
saman og þeir sækja t.d. erlendar
skósýningar tvisvar sinnum á ári.
- Við fylgjumst vel með því
sem keppinautarnir eru að gera.
Við njósnum eins og aðrir en á
þessum sýningum fáum við bæði
hugmynd um hvað kaupmenn
vilja og eins hvaða litir verða í
tísku. Síðan reynum við að vera
Krístinn Bergsson.
betri en hinir, segir Kristinn en
þess má geta að forráðamen skó-
verksmiðjunnar hafa lagt ofur-
kapp á vöruvöndun og það að
nota besta hráefni.
- Aðeins besta hráefnið er
nógu gott fyrir okkur, segir
Kristinn.
í spjallinu við Kristinn kemur
fram að skóverksmiðjan keypti
nú í fyrsta sinn í nokkuð mörg ár,
íslenskar nautgripahúðir til fram-
leiðslunnar. Húðirnar eru sútað-
ar í Noregi en síðan eru skórnir
sniðnir og unnir fullkomlega hjá
Iðunni. Allt er því íslenskt nema
sjálfur sólinn, sem er innfluttur
og sútunin.
- Þetta teljum við besta hrá-
efnið sem völ er á og síðustu
sendingar hafa verið hreinasta
afbragð. En það má iíka koma
fram að verðið er nokkuð hátt
þó við seljum okkar framleiðslu
á mjög samkeppnishæfu verði.
- Hvað verður í tísku í
skófatnaði í sumar og næsta
haust?
- Það eru ökklaskórnir, bæði
með spennum og reimaðir, fyrir
karla og konur. Litirnir í sumar
verða áfram svart, hvítt og svo
rautt og svarti liturinn verður ör-
ugglega f fararbroddi næsta
vetur, sagði Kristinn Bergsson.
- ESE
- HEIMSÓKN í SKÓVERKSMIÐJU SAMBANDSINS Á AKUREYRI
Það hafa skipst á skin og skúrir hjá Skóverksmiðjunni Iðunni á Akureyri. Fyrirtækið lifði uppgangstíma á árunum fyrir stríð, fjöldi fólks
var þar í vinnu og Iðunnarskór voru á flestra fótum. Síðan tók að halla undan fæti. Erlendur innflutningur frá láglaunasvæðum, ásamt með
því að tollar voru afnumdir í áföngum í kjölfar inngöngu íslands í EFTA, gerðu samkeppnisaðstöðu Iðunnar vonlausa. Háværar raddir
voru uppi um það innan Sambandsins að loka verksmiðjunni en vegna atvinnuástandsins á Akureyri þráuðust menn við og sennilega eru
menn sammála um það í dag að það var farsæl ákvörðun að gefa verksmiðjunni enn eitt tækifæri. í dag er uppgangur hjá Kðunni. ACT-
skórnir hafa slegið í gegn. Vöruvöndun og gæði sitja í fyrirrúmi og aðeins dýrasta og besta hráefnið er nógu gott. Það hefði einhvern tíma
þótt saga til næsta bæjar að íslenskt leður væri notað í skóframleiðslu, en svo. er þó raunin. íslenskar nautgripahúðir sem að vísu eru sútaðar
í Noregi, eru besta hráefnið og kúskinnsskórnir sem alþýða manna gekk á til forna, eru því enn í fullu gildi. Skóverksmiðjan Iðunn byggir
á þjóðlegri hefð en um fyrirtækið leika líka alþjóðlegir tískustraumar.
„Verksmiðjan var dauðadæmd“
- segir Richard Þórólfsson, verksmiöjustjóri hjá Iðunni
- Það má segja að hér hafl verið upp-
gangstímar allt fram yfir stríð en þá fór
erlend framleiðsla að flæða yfír landið.
Þetta gerði okkar samkeppnisaðstöðu af-
leita ekki síst eftir að tollarnir voru lækk-
aðir og síðan afnumdir og í lok sjöunda
áratugarins má eiginlega segja að verk-
smiðjan hafí verið dauðadæmd.
Þetta sagði Richard, verk-
smiðjustjóri í skóverksmiðjunni
Iðunni, en hann tók að sér að
sýna blaðamanni Dags verk-
smiðjuhúsnæði og þá fram-
leiðslu sem þar fer fram.
Skóverksmiðjan var að sögn
Richards stofnuð árið 1936. Var
þessi ákvörðun tekin í fram-
haldi af byggingu sútunarverk-
smiðju Sambandsins á Akur-
eyri. Fyrsta framleiðsluárið var
1937 en þá voru framleidd 35
þúsund pör af skóm hjá Iðunni.
Verðmæti þeirrar framleiðslu
nam tæpum 183 þúsund kr. en
greidd vinnulaun fyrir það ár
voru rúmar 41 þúsund kr.
Launakostnaður var því fremur
lítill í upphafi en til samanburð-
ar má nefna að árið 1967 þegar
framleidd voru tæp 57 þúsund
pör af skóm í verksmiðjunni,
var framleiðsluverðmætið tæpar
19 millj. kr. en launakostnaður
rúmar 8 millj. kr.
- Þrátt fyrir að verksmiðjan
hafi átt undir högg að sækja, var
hún rekin með nokkuð góðum
árangri allt fram að brunanum
mikla sem varð hér í loks ársins
1968. Þá brann helmingur verk-
smiðjuhúsnæðisins og það var
talið álitamál hvort byggja ætti
verksmiðjuna upp. Vegna at-
Richard Þórólfsson.
vinnunnar í bænum var þó talið
æskilegt að skóverksmiðjan yrði
rekin áfram og því var hér byggt
nýtt verksmiðjuhús sem flutt
var inn í árið 1970. Erlendir að-
ilar voru fengnir til að endur-
skipuleggja reksturinn en þrátt
fyrir það kom fljótlega í ljós að
erfiðleikar steðjuðu að og 1981
var tekin ákvörðun um að loka
verksmiðjunni alveg. Hún hafði
þá verið rekin með halla um
nokkurt skeið og útlitið var
mjög dökkt. Vélakostur var auk
þess gamall og úreltur, segir
Richard og bætir því við að
þetta ár hafi jafnframt verið
ákveðið að gera lokatilraun til
þess að halda þessari starfsemi
áfram.
- Menn voru alls ekki bjart-
sýnir en með tilliti til atvinnu-
ástandsins og áskorana kaup-
manna víða um land var ákveð-
ið að reyna til þrautar. Nýr
maður, Kristján Jóhannesson,
iðnaðarverkfræðingur, var ráð-
inn til að aðstoða við uppbygg-
inguna. Á sama tíma var byrjað
með nýtt merki - ACT og mikið
átak var gert í markaðsmálum
sem nú er að skila árangri, sagði
Richard Þórólfsson.
- ESE
Pt'öfaó’ann
hmnrt wrnjúkur
Úlfar Gunnarsson.
„Frábærar viðtökur“
- segir Úlfar Gunnarsson, sölustióri
- Viðtökurnar hafa í einu orði
sagt verið frábærar og við
höfum bara eitt markmið. Að
vera betri en keppinauturinn.
Ég hef líka tekið eftir því í
þessu starfi að vöruvöndun og
gott hráefni virðist alltaf skila
sér, sagði Úlfar Gunnarsson,
sölu- og markaðsstjóri hjá Ið-
unni í samtali við Dag.
Að sögn Úlfars var það ekki
síst eftir að farið var að framleiða
tískuskó fyrir yngri aldurshópa
að salan jókst og hlutfallslega,
betra verð fékkst fyrir framleiðsl-
una. Um 10% af þeim skóm sem
seldir eru hér á landi koma frá
skóverksmiðjunni Iðunni og eru
þá taldir til markaðarins allir þeir
erlendu íþróttaskór sem hér eru
seldir. Við spyrjum Úlfar hvort
áform séu uppi um að fara út í
framleiðslu á íþróttaskóm?
um ACT-herferðina
- Nei, það sem við munum
fyrst og fremst leggja áherslu á er
að fara í auknum mæli út í vand-
aða kuldaskó, loðfóðraða með ís-
lenskri gæru. Við framleiðum
þegar bestu kuldaskó sem eru á
markaðinum og það ætti að
hjálpa okkur í að ná aukinni
markaðshlutdeild. Reyndar hafa
þessir kuldaskór reynst það vel
að það liggur í loftinu að við
munum sýna slíka pelsfóðraða
skó á sýningu norrænna skó-
kaupmanna sem haldin er árlega.
í máli Úlfars kemur fram að
skóverksmiðjan er nú rekin með
fullum afköstum miðað við dag-
vinnu en auk þess var unnin veru-
leg yfirvinna í nóvember- og des-
embermánuði sl. Framleiðsla
verksmiðjunnar hefur verið um
60 þúsund pör á ári sl. tvö ár og
fyrir síðustu jól var ástandið
þannig að nánast var slegist um
skóna í verslunum og færri fengu
en vildu.
- Það hefur haft talsvert mikið
að segja fyrir okkur að dóms-
málaráðuneytið hefur keypt hjá
okkur skó fyrir lögregluþjóna og
tollverði, um 800 pör á ári en auk
þess hafa öryggisskórnir okkar
farið til ÍSAL, í málmblendiverk-
smiðjuna á Grundartanga, til
skipafélaganna og skipasmiðj-
anna, segir Úlfar.
- Hvaða nýjunga er að vænta
frá verksmiðjunni?
- Það sem nú liggur fyrir er
ný lína í fermingarskóm og eins
munum við leggja mikla áherslu
á ACT Bambino, barnaskóna.
Það er algjör nýjung hjá okkur
sem gaf góða raun fyrir jólin, seg-
ir Úlfar Gunnarsson. - ESE
SAFETY RLM
SAFETY FILM
/y^/J
■ , - „ ; í.