Dagur - 20.02.1985, Blaðsíða 2

Dagur - 20.02.1985, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 20. febrúar 1985 „Mem still yfir öskudeginum áður fyrr“ - Lárus Zophoníasson rifjar upp „gamla öskudaga" Áttu von á því að þurfa að greiða mikil opinber gjöld? Jósavin Helgason: Nei, ég er bóndi og á því ekki von á háum gjöldum í ár. Finnur Sveinbjörnsson: Nei, ekki mjög mikil. Ég var með 450 þúsund í tekjur á síð- asta ári. Ég veit ekki hvað ég þarf að borga mikið af því. Hörður Guðmundsson: Ég var með 580 þúsund í tekj- ur á síðasta ári. Ætli ég þurfi ekki að borga svona 140 þús- und af því, eða svipað og í fyrra. Ég hef svo góðan sjó- mannaafslátt. Ólafur Tryggvason: Ég á ekki von á því, nei. Laufey Vilhjálmsdóttir: Ég veit það ekki, ætli það verði ekki svipað og í fyrra, býst ég við. Það er öskudagur í dag og mik- ið um að vera hjá yngri kyn- slóöinni, indíánar, álfkonur, trúðar, kábojar og galdranorn- ir hafa þeyst um bæinn syngj- andi „Nú er frost á fróni“ í góða veðrinu og þegið sæl- gætispoka ellegar einhverja aura fyrir viðvikið. Hvað um það, okkur fýsti að vita hvern- ig öskudagsmálum hafi verið háttað hér áður fyrr og hittum því að máli Lárus nokkurn Zophaníasson bókavörð á Amtsbókasafninu og báðum hann að segja okkur frá ösku- dögum „dentíðarinnar“. „Ég veit það ekki nákvæmlega hvenær öskudagur var fyrst hald- inn hér á Akureyri, en dettur í hug að það hafi verið í kringum 1880-90. Mér finnst að það hljóti að vera einhverntíma þar um bil. Af hverju? Jú, þá var bærinn að stækka svo mikið og það var hér meira af börnum en áður. í upp- hafi voru hátíðahöldin ekki bundin við öskudaginn, ég er hérna með endurminningar Jón- asar Stefánssonar, en hann var að alast upp hér á Akureyri milli 1880-90 og hann segir: Mánu- daginn í byrjun föstu var venju- lega sleginn köttur úr tunnu. Síð- an hefur þessi siður færst fljót- lega yfir á öskudag. Það voru venjulega tvö lið sem áttust við í kattarslagnum, annað af Oddeyr- inni og hitt úr Innbænum og oft mikill hiti í leiknum, einhverju sinni barst leikurinn út á Pollinn sem var ísi lagður og þar börðust þessi lið um stund. Nei, það voru engin illindi, bara þessi vanalegi hverfabardagi. Gamla Snorraportið var mið- punkturinn, þar var kattarslagur- inn og segir Jónas í endurminn- ingum sínum að gengið hafi verið í hús í námunda við portið og sungið, það var seinna sem farið var að syngja í búðum. Ég man eftir því þegar ég var smápolli staddur í einhveri búð að púki rekur hausinn inn í búðina og ég Með upplýsingu lands og lýðs frá byrjun þessarar aldar hafa skottur og aðrir draugar horfið í skuggann. Uppvakningar af ýmsu tagi áttu að koma fram hefndum fyrir misgerðir eða sært stolt, sem ekki hafði tekist að hefna fyrir, svo að um munaði. Því fer fjarri að nútímamenn séu sáttfúsari en fyrri tíma menn, en þeir beita e.t.v. ekki sömu að- ferðum og fyrr á tímum. Nú þegar allt logar í verk- föllum og hótunum um að ganga úr starfi þrátt fyrir málamynda- samþykktir eru kennarar og starfsfólk sjúkrahúsa í Reykjavík og víða um land í miklu upp- námi, sem rekja má beint til kröf- varð óskaplega hræddur, en það var verið að syngja inni í þessar búð, það eru líklega rúm 50 ár síðan.“ - Hvernig var með búning- unnar um þrjátíu prósent kaup- hækkun. Stjórnandi þessarar kröfugerðar Kristján Thorlacius fullyrti að nógir peningar væru til, svo að hann og hans fylgifisk- ar væru ekki til viðtals um lægri kauphækkun, og þar að auki hefðu opinberir starfsmenn feng- ið verkfallsrétt, og þann rétt ætti að nota til þess að sýna mátt sam- takanna (þ.e. Kristjáns og Co.) Opinberir starfsmenn hafa fengið greitt kaup fyrirfram (einn mánuð) og ætlaðist Kristján til þess að opinberir starfsmenn í verkfalli væru á fullum launum. Petta fór þó ekki eins og Kristján fullyrti, óg samið var um helm- ana? „Þeir voru töluvert öðruvísi en nú tíðkast, oftast var um stælingu á gömlum hermannafötum að ræða. Fólk hafði úr minna að ingi lægri kauphækkun en krafist var í upphafi, og allt að mánaðar- kaup glataðist. Áberandi margir seðlar voru auðir þegar samið var. Kristján gat ekki vísað á peningana, sem hann hafði sagt tiltæka, en hann sagðist vera til- tölulega ánægður. Ekki gat sú ánægja verið til hagsbóta fyrir þá sem Kristján taldi sig vera að berjast fyrir, þeirra hagur er verri. Vfsitalan rýkur upp, geng- ið er fallið um meira en tuttugu prósent og vextir hafa stórhækk- að. Við þessar aðstæður versnar hagur launþega og stjórnvöld ráða lítið við þessa kollsteypu. Sá efnahagsbati, sem áunnist hafði er rokinn út í veður og vind spila og lét sér nægja að næla borða á fötin og setja axlaskúfa á matrósaföt og borðaleggingar á buxur. Þannig voru flestir en það slæddust alltaf karlar, kerl- ingar og púkar með. Mér fannst meiri stíll yfir þessu áður fyrr, það var meira skipulag, liðin voru stærri og það var ailtaf geng- ið fylktu liði, tveir og tveir saman og ævinlega foringi sem fremstur gekk. Núna virðist gilda að vera sem fæstir í liði, hugsunarháttur- inn er sá að þá fái þau meira sæl- gæti.“ - Gróðasjónarmið? „Ég veit það ekki, þetta breyt- ist allt. En það var meiri her- mennskublær yfir þessu í gamla daga, ekki það að það hafi verið meiri hasar, heldur yfirbragðið og stíllinn, menn marseruðu um bæinn. Þetta er losaralegra núna finnst mér.“ - Þetta var bundið við stráka í fyrstunni. „Já, lengi vel voru það ein- göngu strákar sem voru í ösku- dagsliðum. Ég er nær viss um að það hefur verið eftir 1930 sem stelpur fóru að taka þátt í þessu og þær voru þá í sér liðum, kannski með litla bræður sína með sér. Það var svo enn síðar að liðin blönduðust. Nei, ég veit ekki af hverju þetta var bundið við stráka. - Hvað var gert eftir hádegi á öskudeginum? „Það var haldið öskudagsball í Barnaskólanum, nei, ekkert endilega grímuball, ég held að það hafi verið allur gangur á því. Krökkum voru stundum gefnir peningar fyrir söng sinn eins og núna er og ég vissi til þess að þeir splæstu stundum í bíl og fóru rúnt inn fyrir bæinn. Ég heyrði um flokka sem fengu sér bíl og keyrðu fram í Kristnes og sungu við mikinn fögnuð. Bílar voru þá ekki almenningseign og mikið upplifelsi að koma upp í slík far- artæki.“ - mþþ og framsóknarmenn, sem eru ábyrgir fyrir stjórninni, öðrum fremur, eru mjög aðþrengdir. Var það ekki tilgangurinn með verkfalli opinberra starfsmanna að koma fram hefndum fyrir hrakfarir Kristjáns og Ólafs Ragnars Grímssonar sem ætluðu að taka Framsóknarflokkinn í sína þjónustu en urðu að láta sér nægja að stofna svokallaða Möðruvallahreyfingu, sem Ólaf- ur Ragnar yfirgaf eins og sökkv- andi skip, en Kristján sat eftir með skömmina? Reykjavík 15. febr. 1985. Skúli Ólafsson. Lárus Zophoníasson. Mynd: KGA Lesendahornió Möðruvallaskotta

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.