Dagur - 20.02.1985, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 20. febrúar 1985
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GÍSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN:
EIRÍKUR ST. EIRÍKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI: 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Arnar stöðvaði
Pálma
- og Áskell Örn Kárason sigraði
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 180 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 25 KR.
Sigur Áskels Kárasonar á skákþingi
Akureyrar þarf engum að koma á
óvart. Þetta er í þriðja sinn sem
hann vinnur sigur á skákþinginu.
Áður var það 1981 og 1982. Áskell
mætti frískur til leiks og tefldi af
leiftrandi sigurvilja sem fleytti hon-
um að lokum verðskuldað upp í
fyrsta sætið.
Annað sætið hlaut Pálmi R. Pét-
ursson, en þetta mun vera hans
langbesti árangur á skákþingi Akur-
eyrar til þessa. Tefldi Pálmi yfirleitt
ágætlega og er greinilega í sókn. f
þriðja sæti varð Kári Elíson og tókst
ekki að verja titil sinn á þessum víg-
stöðvum gegn hatrammri sókn
hinna vígreifu skákvíkinga. Fjórði
varð Gylfi Pórhallsson sem tefldi
veiklulega í fyrri hluta mótsins, en
náði sér á strik í seinni hlutanum og
var sá eini sem lagði Áskel að velli.
í fimmta sæti varð Jón G. Viðars-
son. Hann byrjaði illa í mótinu en
náði sér á strik í síðari hlutanum
eins og Gylfí. Voru örlagadísirnar
fremur óhliðhollar honum, nema
kannski í síðustu umferðinni! Sjötta
sætið vermdi hinn ungi Arnar Þor-
steinsson, hann er einn af þeim efni-
legri í skáklistinni hér á Akureyri,
en í þetta sinn var við ofurefli að
etja.
Skákstíll hins nýbakaða Akureyr-
armeistara hefur löngum þótt frem-
ur þungur og stöðulegur, líkt og hin
íslensku náttúruöíl! Hann á það
hins vegar til að taka hressilega á
móti sé á hann ráðist, og þá lætur
hann sverfa til stáls, eins og sést á
meðfylgjandi skák sem tefld var í 5.
umferð:
Hvítt: Gylfi Þórhallsson.
Svart: Áskell Örn Kárason.
Sikileyjarvörn - Laskers-afbrigðið.
1. e4-c5
2. Rf3-e6
3. d4-cxd4
4. Rxd4-Rf6
5. Rc3-Rc6
6. Rdb5-d6
7. Bf4-e5
8. Bg5-a6
(Nú er komið upp afbrigði sem
kennt er við Emanúel Lasker sem
var heimsmeistari í skák í 27 ár!)
9. Ra3-Be6
10. Rc4-Hc8
11. Rd5?
(Hér virðist hvítur víkja út af vegi
dyggðarinnar. Mun betra var 11.
Re3 (eða fyrst Bxf6).)
11. -Bxd5
12. exd5-Re7
13. Df3-b5!
14. Re3-Da5t
15. c3?-Hxc3!
(Laglegt tilbrigði við hróksstef! -
Konungur hvíts dæmist nú á volað-
an vergang.)
16. Ke2-e4!
17. Dh3-Hd3
(Með sykursætri hótun: 18. Dd2t
mát!)
18. Hdl-Rfxd5
19. Hxd3-exd3t
20. Kf3?
(Hvítur er í hörmulegri aðstöðu, en
meira viðnám veitti 20. Kxd3.)
20. -Rxe3
21. Bxe3-Del!
22. a4-Ddlt
23. Kg3-h5
24. f4-g6
25. axb5
(Ljóst er að staða hvíts er dauðvona
og aðeins spriklið eftir.)
25. -Delt
26. Kf3-Rf5
/ I <# VJIOM. tóe
'Askell'öRkj I KÁeflSoM k 'h/ 7\ 1 / /o % / 1 1
PÁlvvi l £ • PÉTuessoG /0 \'h/ / 'lz v 41 \ O 6 2
KÁe_i Eú soK 'k/ /0 y 1/ /0 4 51 3
Gýlfl ÞÓÞHÍlLLfSÖD O / /1 o /o o/ 4 o / /'lz. 4 45
oboiaAéDAe. Ui-DAe.Sc.oO oy /7 z / o/ h % /\ 4 H-5
flÁWAe. þoeSTEÍWGoO % h o/ / \o/\ H 31 b
27. Bf2-Ddlt
28. Ke4-d5t!
29. Kxd5
(Fjölbreytt er ferðalangsins líf!)
Kostuleg staða! - Hvítu mennirnir
standa í kjánalegum hnapp og þótt
hvítur sé hrók yfir hlýtur hann að
tapa!
39. Re2-Bxe2t
(Hvítur gafst upp því hann er mát í
fáum leikjum eftir 40. Kxe2-flDt
o.s.frv.)
Skákþingi Akureyrar verður slitið
með verðlaunaafhendingu og hrað-
skákmóti sunnudaginn 24. febr. kl.
13.30 í Barnaskóla Akureyrar.
K.E.
29. -Db3t
30. K34
Foringi var ég forðum
yfir firnaglæstum her,
en gaman er gengið úr skorðum
og gröfin nú heilsar mér!
30. -Dc4t
Hvítur gaf því eftir 31. Ke5 kemur
Bg7t mát og eftir 31. Kf3 mátar
svartur með Dd5t.
Vegna fjölda áskorana flýtur hér
með skák sem tefld var í 9. umf., en
lok hennar eru einkennilega snotur.
Hvítt: Arnar Þorsteinsson.
Svart: Kári Elíson.
Frönsk vörn (með sóknarlegu ívafi!)
1. e4-e6
2. d4-d5
3. e5-c5
4. c3-Rc6
5. Rf3-Db6
6. Bd3!?
(Öruggari leikaðferð er 6. Be2.)
6. -cxd4
7. cxd4-Bd7
8. Bc2-Rb4
9. Rc3-Rxc2t
10. Dxc2-Re7
11. 0-0-Rf5
12. B33-Be7
13. Hfel-0-0
14. g4?
(Vegurinn til glötunar er lagður
góðum áformum. Þessi sókndjarfi
leikur skilur eftir veikleika í stöðu
hvíts sem svörtum tekst að notfæra
sér í framhaldinu.)
14. -Rx3e
15. Hxe3-f6
16. Hadl-f5!
(Þarf endilega að fara þangað í ein-
um leik sem maður kemst í tveim-
ur?)
17. g5-f4
18. Heel-Be8!
19. h4-Bh5!
20. Kg2-Dc6
21. Da4-Dc7
22. Db5-a6
23. Dd3-Dd7
24. Re2-Hf5
25. Hgl-Haf8
26. Hcl-Bd8
(Svartur hefur betra tafl, en erfitt er
að komast áfram því staðan er
lokuð.)
27. Dc3?
(Betra var að koma riddaranum á
þennan reit og halda dömunni á d3.)
27. -Df7
28. Kfl-Dg6
29. Hg2-Hf57
30. Hdl-De4!
(Það fer að hrikta í stoðum hvítu
stöðunnar fyrir alvöru.)
31. Regl
(Nú er það svart maður! - En ekki
gekk 31. Hd3 vegna 31. Ba5!)
31. -Hc7
32. Dd3-Hc2
33. Rel-f3!!
(Nú strandar 34. Dxc2 eða Rxc2 á
34. fxg2t og við 34. Hg3 kæmi feg-
urðin 34. De2tH og svartur vinnur.)
34. Dxe4-dxe4
35. Hg3-Hxb2
36. d5-Hxf2t!!
(Áhrifaríkasta vinningsleiðin.)
37. Kxf2-Bb6t
38. Kfl-f2!
(Þetta göldrótta peðskrfli gerir út
um taflið.)
Uppsagnir kennara
Ófremdarástand er nú að skapast í fram-
haldsskólum landsins vegna uppsagna
kennara. Þeir munu ganga út 1. mars ef ekki
verður búið að leiðrétta launakjör þeirra veru-
lega. Ákvörðun kennaranna er skiljanleg,
launakjör þeirra miðað við ábyrgð og
menntun eru vægast sagt bágborin og á það
raunar ekki eingöngu við um kennara fram-
haldsskólanna heldur kennarastéttina í heild.
Menntamálaráðherra hefur framlengt upp-
sagnarfrest kennaranna, en þeir hyggjast
hafa það að engu, telja sig ekki vera að brjóta
lög hvað þetta varðar. Ágreiningur er um
túlkun lagaatriða og það verður að segjast
eins og er að málstaður kennaranna er mikl-
um mun viðkúnnanlegri heldur en sá mál-
flutningur sem menntamálaráðherra hefur
beitt í þessari deilu, og raunar í flestum þeim
deilum sem ráðherrann hefur komið sér í að
undanförnu.
í samþykkt sem gerð var í samstarfsnefnd
framhaldsskólanna á Norðurlandi nýlega
segir: Margt bendir til þess að framhaldsskól-
ar landsins verði óstarfhæfir á næstu mánuð-
um. Vandi íslendinga í efnahags- og atvinnu-
málum verður ekki leystur nema með bættri
þekkingu og menntun á öllum sviðum. Það
verður ekki nema með betri skólum og öflugri
menntun. Til þess þarf hæfa og vel menntaða
kennara. Þeir fást ekki til frambúðar nema
gegn sanngjörnum launum. Samstarfsnefnd
framhaldsskólanna skorar því á stjórnvöld að
bæta úr því ófremdarástandi sem ríkir í kjara-
málum kennara í landinu.
Undir þessa ályktun er auðvelt að taka.
Vandamálið er hins vegar ögn flóknara. Það
er til ansi lítils fyrir t.d. Akureyringa að út-
skrifa vel menntað fólk á æ fleiri sviðum ef
þetta unga fólk stendur síðan uppi verkefna-
laust að loknu námi. Þetta unga fólk hefur
tæpast bolmagn til að setja upp eigin rekstur
strax að námi loknu, jafnvel þótt það hafi
þekkinguna sem til þarf. Því tengist vandi
framhaldsskólanna vegna uppsagna kennara
því ástandi sem almennt ríkir í þjóðfélaginu.
Tæplega er hægt að reikna með að þetta
gangi þannig fyrir sig að fyrst verði allir
menntaðir mjög vel og síðan verði hafist
handa við atvinnuuppbygginguna. Þetta
hlýtur allt að þurfa að haldast í hendur.
Stjórnvöld landsins eru að berjast við
kreppu í efnahagsmálum og afleiðingar
eyðslu og ráðdeildarleysis undanfarinna
missera og ára. Ekki verður sagt að kennarar
framhaldsskólanna séu með uppsögnum sín-
um að skrá sig til þátttöku í þessar baráttu,
en afstaða þeirra er hins vegar skiljanleg,
vegna þeirra kjara sem þeir búast við.
Skákþing Akureyrar: