Dagur - 20.02.1985, Qupperneq 12
ÞJÓNUSTA
FYRIR
HÁÞRYSTISLÖNGUR
OLÍUSLÖNGUR og BARKA
PRESSUM
TENGIN Á
FULLKOMIN TÆKI
VÖNDUÐ VINNA
Gjaldskrárhækkun rafveitu og hitaveitu á Siglufirði:
Dugar ekki til að
standa í skilum
„Þessi gjaldskrárhækkun er
ekki meiri en það að hitaveitan
hefur ekki fjármagn til að
greiða afborganir af lánum og
standa í skilum með fjár-
magnskostnað. Vanskil hita-
veitunnar um áramót námu
tæpum 5 milljónum króna og
í afborganir og vexti þar að
greiða 15 milljónir á þessu ári.
Tekjur eftir hækkun á
gjaldskrá verða ekki nema
rúmlega 18 milljónir, þannig
að það ætti að vera hverjum
manni augljóst að gjaldskráin
þurfti að hækka. Hækkun um
26% til hitaveitunnar nægir
ekki til að unnt verði að standa
í skilum og þarf því annað að
koma til. Unnið er að því að
koma inn á lánsfjáráætlun 6
millj. kr. lántökuheimild. Þeg-
ar er búið að breyta og iengja
lán rafveitunnar og spurning er
hvort halda á áfram að taka
erlend lán og lengja þau, á
sama tíma og stefnt er að því í
þjóðfélaginu að draga saman
erlendar skuldir.“
Þetta sagði Sverrir Sveinsson,
veitustjóri á Siglufirði, þegar
Dagur hafði samband við hann
vegna deilna um gjaldskrárhækk-
anir hitaveitu og rafveitu. Sverrir
sagði að gjaldskrár hefðu sáralít-
ið hækkað síðan í ágúst 1983 en
vegna verðbólguþróunar í kjölfar
kjarasamninga hefði komið upp
sú staða að gjaldskrár hefðu orð-
ið að breytast. Hækkunin nemur
um 26% hjá hitaveitunni og
15-21% hjá rafveitunni, sem er
sarrbærilegt við hækkanir hjá
RARIK.
Safna
heimildum
úr sögu
Ólafsvíkur
Bæjarstjórn Ólafsvíkur hefur
í tilefni 300 ára afmælis Ólafs-
víkur sem löggilts verslunar-
staðar 1987 ákveðið að láta
rita sögu byggðarlagsins.
Söguritari verður Gísli Agúst
Gunnlaugsson sagnfræðing-
ur.
Hér með er farið þess á leit
við alla þá er heimildir kunna
að hafa undir höndum svo sem
gamlar myndir að lána þær til
verksins. Sömuleiðis að veita
ábendingar um hvern þann er
fróðleik hefur að geyma svo
hægt sé að nálgast hann.
Fólk búsett utan Ólafsvíkur
getur snúið sér með myndir til
Svavars Guðbrandssonar Lyng-
brekku 10, Kópavogi, sími
40048 og með ábendingar um
annan fróðleik til Ásgeirs Jó-
hannessonar Sunnubraut 38,
Kópavogi, sími hans er 41352
en báðir þessir menn hafa góð-
fúslega orðið við beiðni um að
veita liðsinni sitt.
í dag er sem sagt öskudagur. Og kötturinn sleginn úr tunnunni og fleira há-
vaöasamt aðhafst. Gunnar Páll Gunnarsson starfsmaöur Rafvcitu Akureyr-
ar var aö undirbúa kattartunnuna í gær. Alls sjá Rafveitumenn um þrjár
slíkar, eina á Ráðhústorgi, aðra á Sólborg, og úr þeirri þriðju slá þeir sjálfir
á árshátíð sinni á föstudaginn. Mynd: KGA
„Ég tel að þeir sem mótmæla
þessum hækkunum hafi ekki full-
an skilning á rekstri fyrirtækj-
anna og að hér sé um pólitískt
upphlaup minnihluta sjálfstæðis-
manna í bæjarstjórn að ræða og
jafnframt ábyrgðarleysi gagnvart
veitunum. Ég get nefnt sem dæmi
að við höfum notið niðurgreiðslu
á raforku til húsahitunar og erum
eina rafveitan sem fær endur-
greitt verðjöfnunargjald með
sérstakri heimild í lögum. Það
gefur náttúrlega auga leið að við
fengjum ekki þessa endurgreið-
slu nema vegna þess að rafveitan
þarf á henni að halda,“ sagði
Sverrir Sveinsson. HS
Sjafnar dömu-
bindi og
barnableiur
koma í apríl
„Vélin sem notuð verður við
framleiðsluna verður tilbúin
til afgreiðslu í næsta mánuði
þannig að ég geri ráð fyrir að
við gætum hafíð framleiðslu í
apríl,“ sagði Aðalsteinn
Jónsson í Sjöfn er við spurð-
um hann hvenær fyrirtækið
myndi hefja framleiðslu á
dömubindum og bleium eins
og ákveðið hefur verið.
Aðalsteinn sagði að hér væri
um mjög afkastamikla vél að
ræða. „Það veltur allt á því
hvað við náum miklum hluta
markaðarins hérna hversu góð
nýting verður á vélinni, en ég
reikna með að ef.við náum um
50% markaðarins gæti nýtingin
orðið nokkuð góð,“ sagði Aðai-
steinn. gk-.
Sýnd verk
50 listamanna
Dagana 1.-4. mars nk. verður
stór listsýning haldin í Safnhús-
inu á Húsavík. Nú þegar er
Ijóst, að yfir 50 listamenn
munu eiga verk á sýningunni.
Þetta er einn Iiður í fjáröflun
Æskulýðssambands kirkjunnar
í Hólastifti (Æ.S.K.), til
styrktar Sumarbúðunum við
Vestmannsvatn.
Margir af þekktustu lista-
mönnum landsins verða í þessum
hópi, og hafa allir gefið verk sín.
Húsvískir tónlistamenn munu
leika við opnun sýningarinnar,
sem er sölusýning og mjög fjöl-
breytt. Þarna getur að líta olíu-
og acrylmálverk, vatnslitateikn-
ingar, ljósmyndir, pastelmyndir,
grafikverk, höggmyndir, vefnað,
taumálun, útskorna muni og
prjón, svo að eitthvað sé nefnt.
Ættu allir að finna eitthvað við
sitt hæfi á þessari stórkostlegu og
fjölbreyttu sýningu. Einnig munu
verða á sýningunni gjafabréf frá
mörgum fyrirtækjum, sem styrkt
hafa Sumarbúðirnar í ár, til þess
verkefnis, sem bíður.
Á sl. ári var haldið hátíðlegt 25
ára afmæli Æ.S.K. og 20 ára af-
mæli Sumarbúðanna við Vest-
mannsvatn.
Á þeim árum, sem liðin eru
frá stofnun Sumarbúðanna, hefur
fjárhagurinn ekki leyft eðlilegt
viðhald húseignanna. Á aðal-
fundi Æskulýðssambandsins sl.
haust ákvað stjórnin og sumar-
búðanefnd að gera átak í þessum
málum í tilefni afmælisársins.
Leitað verður til allra velunnara
Æ.S.K. og Sumarbúðanna, fé-
lagasamtaka, einstaklinga og
bæjarfélaga, sérlega hér norðan-
lands um fjárstuðning til þessa
brýna verkefnis. Lögð verður
áhersla á endurnýjun þeirra hús-
eigna, sem fyrir eru, áður en lagt
verður í nýjar byggingar. Þeir eru
orðnir ófáir hópar barna, ung-
linga og aldraðra, sem hafa átt
ánægjulegar og . eftirminnilegar
stundir í Sumarbúðunum við
Vestmannsvatn. Barna- og æsku-
lýðsstarf sem þetta, er erfitt að
meta til fjár, en ber engu að síður
ríkulegan ávöxt. Er því heitið á
alla velunnara starfsins að láta
þessa sýningu ekki fram hjá sér
fara.
Spáð er vaxandi sunnanátt er
líða tekur á daginn. Stinn-
ingskalda, slyddu og rign-
ingu! einkum vestan tii á
Norðurlandi.
í kvöld snýst vindur svo til
s\ ,-áttar með éljum vestan til
en þá léttir til austan til á
Norðurlandi. Á morgun
verður hæg sv.-átt með élja-
votti á Nl. vestra en björtu
veðri sennilega frá Eyjafírði
og austur um.
# Jöfnun her-
kostnaðar
Nýtt sjónarmið hefur nú kom-
íð upp varðandi hækkun á
fasteignagjöldum, sem meiri-
hluti bæjarstjórnar Akureyrar
gekkst fyrir ( andstöðu við
minnihluta sjálfstæðis-
manna. Meirihlutinn hefur
haldið því fram að bæjarfé-
lagið þurfi ákveðið miklar
tekjur, svo notað sé orðlag
eins ágætis embættismanns i
bænum. Því hafi verið haldið
fram að launþegar hafi fyrst
og fremst þurft að borga
herkostnaðinn af verðbólgu-
baráttunni. Nú sé komið að
öðrum. Hækkun fasteigna-
gjaldanna komi nefnilega
fyrst og fremst niður á fyrir-
tækjum í bænum og þau
hljóti að vera aflögufær rétt
fnl 1Q (Tf UÍ7
m M J) — < Jjj.
eins og launþegarnir. Komið
verði til móts við hækkun
fasteignagjalda á almenningi
með lægri útsvarsálagningu.
Þetta sjónarmið snýst sem
sagt um það að verið sé að
jafna byrðum þessa her-
kostnaðar niður, réttlátar en
áður hafi verið gert.
# Ekki á Rás-
inni
Starfsmaður sá sem greint
var frá í S&S á mánudag og
var að afla auglýsinga fyrir
Rás 2 hafði samband, sagðist
ekki hafa kynnt sig sem
starfsmann rásarinnar, held-
ur fyrirtækis í Reykjavík sem
annaðist gerð leikinna aug-
lýsinga. Sagðist hann ekki
skilja að hægt hefði verið að
misskilja þetta.
# Sumarvinna í
kjallara MA
Vilhelm Ágústsson hefur
sem kunnugt er verið mikill
talsmaður álvers vlð Eyja-
fjörð og hvers konar atvinnu-
uppbyggingar á svæðinu.
Hann er málsvari þeirrar
skoðunar að ekkert megi lát-
ið óathugað ( þesum efnum
og lætur álit sitt á þelm sem
eru annarra skoðunar í Ijós
með ýmsum hætti. Á dög-
unum komu unglingar til
hans til að biðja um sumar-
vinnu og vikuna á undan
höfðu hátt á þriðja tug ung-
menna beðið um sumarvinnu
hjá fyrirtæki þeirra bræðra.
Það rann Vilhelm til rifja að
geta ekki liðsinnt unga fólk-
inu, en minnugur þess sem
andstæðingar stóriðju við
Eyjafjörð hafa látið frá sér
fara um smáiðnað og fleiri at-
vinnukosti í stað álversins,
benti hann unglíngunum á að
fara nú bara upp ( Mennta-
skóla, tala við Tryggva skóla-
meistara eða Erling kennara
Sigurðarson og biðja þá um
sumarvinnu við öll smáiðn-
aðartækifærin sem þeir væru
með í kjallara skólans. Þetta
myndi líklega flokkast undir
það sem kallað hefur verið
gálgahúmor.