Dagur - 12.04.1985, Side 7
12. apríl 1985- DAGUR-7
- Friðfinnur K.
Daníelsson,
verkfræðingur og
iðnráðgjafi
hjá Fjórðungssambandi
Norðlendinga?
- Já, sá er maðurinn.
- Er það rétt að
þú sért að yfirgefa
Fjórðungssambandið ?
- Já, það eralveg
hreint laukrétt. Ég
sagði upp með þriggja
Ímánaða
fyrirvara, eins
og lög
gera ráð fyrir, og
reikna með að
ljúka störfum
í lok maí.
Hvað ertu þá
búinn að
vinna þarna Iengi?
- Tæplega tvö og hálft ár.
- Hvers vegna ertu að hætta?
- Ja, ég sé eiginlega ekki til-
gang í að halda starfi mínu hér
áfram á þeim nótum sem boðið
hefur verið upp á. Mig greinir
það mikið á við Fjórðungssam-
bandið um þetta starf. Auk þess
spila launamál inn í, en hins
vegar eru ákveðin ágreinings-
atriði sem ég sætti mig ekki við.
Þess vegna er ég á förum.
- Er það ágreiningur við
Áskel Einarsson?
- Nei, ekki vil ég beinlínis
segja það, það er ekki alfarið
rétt. Hitt er svo annað mál, að
framkvæmdastjórinn er andlit
sambandsins og starfsemin
hlýtur að bera keim af hans við-
horfum og vinnubrögðum.
- Hvað er það sem þú sættir
þig ekki við?
- Þegar ég var ráðinn í þetta
starf var reiknað með að ég
þjónaði Norðurlandi öllu. Nú er
verið að rífa þetta niður í ein-
ingar; það er ætlunin að ráða
iðnráðgjafa á Blönduósi og
einnig er á Húsvíkingum að
skilja, að þeir vilji fá iðnráð-
gjafa til sín. Ég held hins vegar
fast við þá skoðun, að það sé
skynsamlegra að byggja upp
eina iðnaðarmiðstöð fyrir
Norðurland. Það er hins vegar
rétt, að einn maður annar ekki
Norðurlandi öllu, en mér finnst
rétt að setja þetta undir eitt þak,
a.m.k. til að byrja með. Það
þarf að taka á þessu máli í sam-
einingu; það er ekki til gæfu að
margir séu að gaufa við sama
verkefnið, hver í sínu horni.
- Viltu meina að of margir
séu að grauta í sömu skálinni?
- Já, meðal annars. Ég get
tekið ákveðna samlíkingu. Ef
mér væri fengið það verkefni að
smíða geimferju og fara út í
geiminn, þá myndi ég safna vís-
indamönnunum saman og fá þá
til að taka á verkefninu í sam-
einingu. Ég er viss um að það
hafa Bandaríkjamenn og Rússar
gert. En að vera að rífa þetta
niður í stykki, setja einn iðnráð-
gjafa hér og annan þar, það
verður ekki iðnþróun á Norður-
landi til framdráttar. Þetta hefur
verið svipað því að standa úti í
snjóskafli, eiga að moka snjó,
en hafa enga skóflu.
- Viltu meina að Fjórðungs-
sambandið sé að gliðna í
sundur?
- Já, það hlýtur að koma sá
dagur við núverandi aðstæður.
Raunar get ég ekki betur séð en
það sé þegar sprungið í loft upp.
Það er einungis spurning um
hvenær sveitarfélögin hætta að
greiða framlög til sambandsins.
,JÉg get ekki
betur séð en
- Friðfinnur K. Daníelsson, iðnráðgjafi hjá
Fjórðungssambandi Norðlendinga á línunni
- Á Fjórðungssambandið þá
ekki rétt á sér?
- Jú, vissulega, en ég held að
það sé rétt að leggja það niður í
núverandi mynd. Ég myndi
byrja á því að segja upp öllum
mannskapnum, setjast síðan
niður og skilgreina ný markmið.
Þegar það hefur verið gert má
ráða fólk aftur, í samræmi við
þau markmið sem hafa verið
sett og þá kemur ef til vill til
greina að ráða sama fólkið. Það
er vel hugsanlegt, að nota megi
þá peninga sem hér fara í gegn í
þróunarsjóð atvinnulífsins, eða
til að vinna að einhverjum tíma-
bundnum verkefnum, sem t.d.
gætu staðið í 5 ár. Að þeim tíma
loknum má endurskoða mark-
miðin á ný.
- Iðnþróunarfélag Eyjafjarð-
ar er með starfsemi hér; stangast
ykkar verkefni ekki á?
- Jú, það má til sanns vegar
færa. Raunar eru hér þrír aðilar,
sem eru að grauta í sömu skál-
inni; Fjórðungssambandið, Iðn-
þróunarfélagið og Atvinnumála-
nefnd Akureýrarbæjar. Þegar
ég hóf hér störf hafði ég sam-
starf við Iðnþróunarfélagið til
að byrja með, en síðan hefur
það samstarf lognast út af. Og
því miður eru dæmi þess að við
séum að vinna að sömu verkefn-
unum, sitjandi á okkar skrifstof-
um hér við sömu götuna. Þess er
skemmst að minnast, að fyrir
skömmu auglýsti atvinnumála-
nefndin eftir húgmyndum um
nýjungar í iðnaði. Þessar hug-
myndir voru síðan sendar til
Iðnþróunarfélagsins til úr-
vinnslu. Nú veit ég ekki betur en
að þar sé að finna hugmyndir
sem ég var búinn að fjalla um -
og til mín komu þær frá sömu
aðilum og sendu þær síðan til at-
vinnumálanefndarinnar.
- Iðnaður, er að finna þar
þann vaxtarbrodd sem menn
binda vonir við?
- Nei, ég held að menn verði
aðeins að fara að gá að sér
þarna, því þetta er að verða svo-
lítið útjaskað; talið um iðn-
þróun og allt það. Reynsla
undanfarinna ára sýnir, að störf-
um í iðnaði hefur ekki fjölgað
að neinum mun og iðnaður hér
á landi er orðinn mörgum árum
á eftir iðnaði í okkar nágranna-
löndum. Og ef við tökum okkur
ekki stórkostlega á á næstu
árum breikkar þetta bil enn
meira. Það þarf að tæknivæða
iðnaðinn og beita fullkomnari
stjórnunaraðferðum. Það þýðir
aukna framleiðni og um ieið
fækkar þeim höndum sem vinna
að iðnaði, nema stórkostleg
aukning komi til. En það þarf
mikið að gerast til þess að úr
því geti orðið.
- Hvar er þá vaxtarbroddur í
atvinnulífinu?
- í matvælaiðnaðinum, ég
hef óbilandi trú á honum. Auk
þess get ég nefnt plastiðnað,
járniðnað og ferðaþjónustu. En
við þurfunt að leggja áherslu á
útflutningsiðnað.
- Er ávinningur að stóriðju?
- Já, að vissu leyti, en við
verðum að vara okkur á því, að
sú stóriðja verði ekki eins og
olía á ónýtar legur, sem
hrynja hvort sem er. Mikið af
okkar smáiðnaði er t.d. mjög
vanþróaður og úr því þarf að
bæta mjög hröðum höndum.
Það þarf að lyfta honum upp á
miklu hærra plan. En stóriðja
getur vissulega styrkt stöðu okk-
ar ef rétt er á málunum haldið.
Ég er hins vegar ekki hrifinn af
þeirri umræðu sem hér hefur
verið um álver.
- Álversandstæðingur?
- Nei, ekki beint. En mér
finnst umræðan hafa verið með
skringilegu móti. Ég get t.d.
ekki séð að áliðnaður sé í vexti;
getur einhver sýnt fram á það?
Ég óttast hið gagnstæða; að
notkun á áli dragist saman á
næstu árum. Og hvaða gagn
höfum við af álveri, sem enginn
grundvöllur er fyrir?
- Að lokum Friðfinnur, hvað
ætlar þú að gera?
- Það er ekkert ákveðið í því
sambandi. Það eina sent ég hef
tekið ákvörðun um er að koma
mér héðan út sem allra fyrst. En
ég er Eyfirðingur, frá Gnúpu-
felli, þannig að hér á ég heima
og hér vil ég vera. Vonandi finn
ég eitthvað að gera við mitt
hæfi.
- Gangi þér vel og þakka þér
fyrir spjallið.
- Sömuleiðis. - GS
Full búð aí nýjum vörum
Nýkomnir
coctailkjólar.
Tískuskartgripir og belti í úrvali.
Vel klædd er
konan ánægð.
Jakkapeysur í úrvali
frá hinu þekkta danska
'"yt/c/M
Fleiri gerðir væntanlegar.
Komið • Sjáið • Skoðið
Verslunin er opin kl. 10-18 og laugardaga kl. 10-12.
1$ iJiólu.WLólun J3teinunnúz_
Hafnarstræti 98 • Akureyri ■ Sími (96) 22214 ■
Jazzdansstudio Alice
Glerárgötu 26 - Sími 24979
Ný 6 vikna námskeið hefjast
mánudaginn 15. apríl.
)Jazzdans fyrir alla aldurshópa frá 7 ára aldri.
Byrjendur og framhald.
Jazzleikfimi fyrir konur. Byrjendur og framhald.
Rólegir timar, styrkjandi æfingar, teygjur og slökun.
Sturtur ★ Sauna ★Ljós
Alltaf heitt á könnunni.
Innritun og upplýsingar í síma 24979 milli kl. 15 og 22.
Afhending skírteina sunnudag 14. aprfl miflí
kl. 16 og 18 að Glerárgötu 26 (gengid inn frá Hvannavöllum).
Sólbaðsstofan sími 24979.
Opið mánudaga tiJ föstudaga kl. 15-23, laugardaga frá kl. 10-19.
Deildarfundur
Aðalfundur Dalvíkurdeildar KEA
verður haldinn í Víkurröst þriðjudaginn 16. apríl
1985 og hefst kl. 20.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Deildarstjórn.
ÖLL ÞJÓNUSTA FYRIR
Háþrýstislöngur,
tengi&barka
í BILINN, SKIPIÐ EÐA VINNUVELINA
PRESSUM TENGIN Á • VÖNDUÐ VINNA
Ný og stærri tæki
ÞÓRSHAMAR hf.
______ SÍMI96-22700
HVAR SEM ER-HVENÆR SEM ER