Dagur - 12.04.1985, Blaðsíða 8
8-DAGUR- 12.
Það var kalt og sumir klæddu sig vel.
Það er búið að vera skítkalt
hérna í Hollandi. Ekki svona
kuldi sem tíðkast heima á íslandi
þar sem hann nær ekki inn fyrir
þröskuldinn og glóandi ofnar sjá
um að halda sundfataveðri í
hverju herbergi, heldur kuldi
sem herjar alls staðar annars
staðar en í stofunni sem oft er
eina herbergið sem kynt er. Ég
hélt satt að segja, þar til að Hol-
landsdvölinni kom, að ekkert
væri sjálfsagðara en að á klósett-
inu væri alltaf miðevrópskur
sumarhiti og ég skal segja ykkur
það, ykkur sem sitjið nú á þessum
stað með Dag í höndunum að þið
eruð lukkunnar pamfílar. Annars
ætlaði ég að tala um karnival en
ekki klósettferðir.
# Fjórir dagar
Dagana sautjánda til tuttugasta
febrúar héldu Suður-Hollending-
ar karnival með pompi og prakt,
en þessi hátíð er kaþólskur siður
og hefur þann tilgang að nú geti
allir sleppt fram af sér beislinu
áður en hinn alvarlegi föstumán-
uður gengur í garð. Þó svo að
flestir hafi það til siðs að
skemmta sér ærlega og láta svo
föstuna lönd og leið. Ular tungur
segja einnig að páfinn í gamla
daga hafi bara fengið lánað miðs-
vetrarblótið sem átti sér stað í
flestum heiðnum trúarbrögðum,
en hvað um það það er ÆGI-
LEGA GAMAN.
Helgi kyssir.
Trumbur og tamborínur út um allt.
Vegna innlausnar sparisldrteina ríkissjóÓs bjóÓum
VERÐTRYGGÐA
nf / z
1—1 LJ kh;„;
vaxtareiknir
Allir afgreiðslustaðir Samvinnubankans annast innlausn
spariskírteina ríkissjóðs og bjóða sparifjáreigendum
verðtryggðan Hávaxtareikning með vöxtum.
Hávaxtareikningur er alltaf laus og óbundinn.
Kynntu þér Hávaxtareikninginn.
Betri kjör bjóÖast varla
Samvinnubankinn