Dagur - 12.04.1985, Blaðsíða 15
12. apríl 1985 - DAGUR - 15
Nokkrir fulltrúar frá Akureyri á þinginu.
Skátaþing á
lllugastöðum
Skátaþing, en það er haldið
annað hvert ár, var haldið ný-
lega á IHugastöðum í Fnjóska.
Þar mættu tæptega 100 skátar
víðs vegar af landinu og við
ræddum við Garðar Lárusson
frá Akureyri sem er varaskáta-
höfðingi á íslandi, um þingið
og mál því skyld.
„Þetta þing er í fyrsta lagi aðal-
fundur Bandalags íslenskra skáta
og tekur ákvarðanir um stefnu
hreyfingarinnar hér á landi. Á
þingið mættu fulltrúar frá 22
stöðum á landinu," sagði Garðar.
- Hverjar voru helstu niður-
stöður þessa þings?
„Undanfarin tvö ár hefur stað-
ið yfir vinna við endurskipulagn-
ingu á starfsemi skáta í landinu.
Við þurfum í okkar starfsemi
mikið af hjálpargögnum eins og
t.d. bókum og öðru slíku en út-
gáfa á þessum bókum hefur verið
í lægð undanfarið. Ætlunin er
hins vegar að menn taki sig á í
þessu máli og komi útgáfumál-
unum í betra horf. Þingið sam-
þykkti að reyna að herða mjög á
þessu máli svo þetta starf geti
Dúi Bjömsson stjórnaði kvöldvöku
orðið öflugt þegar næsta vetur.
Þá var fjallað mikið' um þá
skipulagsbreytingu að stofna
skátasambönd víðs vegar um
landið, og yrði þá um 6 eða 7 slík
sambönd að ræða. Þetta var mik-
ið rætt og málinu síðan vísað til
milliþinganefndar og endanleg
ákvörðun í þessu máli verður þvf
tekin á skátaþingi 1987. Þetta eru
þau mál sem voru fyrirferðarmest
og önnur störf þingsins voru
hefðbundin.“
- Hvernig er skátastarfið á
Akureyri í dag, stendur það með
blóma?
„Það má segja það, þetta er
mjög á uppleið aftur eftir að hafa
verið í nokkurri lægð í smátíma.
Ég held að virkir skátar á Akur-
eyri í dag séu um 500 talsins. í
félögunum tveimur á Akureyri
sem heita Skátafélag Akureyrar
og Valkyrjan eru virkir félagar
um 300 og um 200 eldri skátar
eru vel virkir einnig.“ gk-.
Garðar Lárasson ávarpar skátaþingið.
' Sími
96-31129.
Garðyrkjustöðin á Grísará
Pottablómasala - einnig gróöurmold 08
Bach-tónleikar
Akureyrarkirkju sunnudag 14. aprfl kl. 17.00.
Passíukórinn, Kammersveit Tónlistarskóla Akureyrar
ásamt einsöngvurum og orgelleikara flytja
Guðsríki eftir J.S. Bach undir stjóm Roars Kvam.
Mjög góðir
rúskinnssportskór.
Stærðir 35-39. Verð kr. 540,-
Stærðir 40-45. Verð kr. 612,-
Franskur rennilás.
Stærðir
31-40.
Ljósar gallabuxur
karlmanna
Verð aðeins kr. 560
Munið!
Opið á laugardögum kl. 10-12.
Eyfjörð
Hjattsyrargotu 4 ■ simi 22275
Póstsendum.
íbúðirtil sölu:
Eru m að hefja sölu á 10 íbúðum í fjölbýlis-
húsi sem byggt verður í sumar við Mela-
síðu 6.
3ja og 4ra herbergja íbúðum fylgir bílskúrsréttur.
íbúðirnar seljast tilbúnar undir tré-
verk, sameign frágengin.
Verð þann 1. mars 1985:
2ja herb. kr. 944.000,-
3ja herb. kr. 1.307.000,-
4ra herb. kr. 1.465.000,-
ATH: Lán Húsnæðismálastofnunar ríkisins þann 1.
jan. 1985:
Einhleypingar: kr. 601.000,-
2-4ra manna fjölskylda: kr. 763.000,-
5-6 manna fjölskylda: kr. 892.000,-
7 manna og fleiri: kr. 1.031.000,-
Draupnisgötu 7m
'fi 96-23248 Pósthólf 535 602 Akureyri.
AKUREYRARBÆR
Auglýsing
frá Hitaveitu Akureyrar
Notendur athugið að unnið verður við upp-
setningu á rúmmetramælum í eftirtöldum göt-
um dagana 15. til 21. apríl:
Espilundur, Birkilundur, Einilundur, Víöilundur,
Akurgerði, Kotárgeröi, Stekkjargeröi, Hamra-
gerði, Álfabyggð, Ásabyggö, Goöabyggð,
Byggöavegur, Lyngholt, Stórholt, Langholt, Ein-
holt, Þverholt, Miðholt, Stafholt, Hraunholt,
Krossanesbraut, Óseyri.
íbúar eru vinsamlegast beðnir að taka verk-
tökum vel og athuga, að hafa greiðan aðgang
að hemlagrindum.
Hitaveita Akureyrar.