Dagur - 03.05.1985, Blaðsíða 12

Dagur - 03.05.1985, Blaðsíða 12
i — RL'OAG — 889h ism .£ 12- DAGUR-3. maí 1985 Margrét Pétursdóttir, kennslustjóri á heilbrigðissviði. nema sem stunda nám á öðru ári heilbrigðis- sviðs Verkmennta- skólans, en þeir voru einmitt í verklegri kennslu að læra að skipta á rúmum við þœr aðstœður þegar sjúklingur má ekki hreyfa sig. „Sjúkiingarnir" voru tveir, annar reyndist stálsleginn sjúkra- liðanemi, en af hinum fóru engar sögur aðrar en þær að ýmist heitir hann Jón, Guðrún eða Elías og virðist bara býsna brosmildur miðað við að vera sjúklingur að atvinnu. Kennararnir Guðfinna og Guðný fylgdust með hvernig væntanlegir sjúkraliðar báru sig að og bentu á hvað betur mætti fara og hvurslags stellingar henta best þegar skipt er á rúmum. Ef réttri vinnutækni er beitt á starfið ekki að vera mjög erfitt, jafnvel þó um þunga sjúklinga sé að ræða. I smápásu sem gerð var á kennslunni voru sjúkraliðanem- arnir, Fjóla Hersteinsdóttir, Margrét Vestmann, Eyrún Guðmundsdóttir, Dúa Stefáns- dóttir og Sólveig Ólafsdóttir plataðir í smáspjall við Dag og auðvitað var fyrsta spurningin af hverju þær hefðu valið þetta nám. „Bara til að gera eitthvað.“ „Til að lenda ekki í frystihúsinu.“ „Það er ekki af hugsjón." „Jú, jú, það er gaman að leggja sitt af mörkum til að hlúa að sjúkl- ingum." „Það er að minnsta kosti ekki út af laununum sem maður velur þetta nám.“ - Og hver eru þá launin? „Ætli sjúkraliði í fullu starfi sé ekki með um 17 þúsund krónur „Við biðum efdr verklega náminu“ - Spjallað við sjúkraliðanema á heilbrigðissviði í Verkmenntaskólanum Kanntu að skipta á sem ekki má hreyfa slíkum aðstœðum. rúmi? Kanntu að sig? Ætli málið vand- Blaðamaður Dags brá skipta á rúmi þar sem í aðist ekki fyrir œði sér í heimsókn til liggur hjartasjúklingur mörgum ef þeir lentu í nokkurra sjúkraliða- r Pað eru þrír skólar á landinu sem útskrifa sjúkraliða, Sjúkraliðaskóli íslands, Fjöl- brautaskólinn í Breiðholti og Verkmenntaskólinn á Akureyri. Fyrstu sjúkraliðarnir voru útskrifaðir á Akureyri árið 1966 og var sjúkraliðanám þá stundað innan sjúkrahússins. Það var Ingibjörg R. Magnúsdóttir sem barðistfyrir því að héryrði komið á sjúkraliðamenntun ogsá hún um hanafyrst ístað. Námið var til að byrja með 8 mánuðir. Þegar framhaldsdeildir tóku til starfa við Gagnfrœðaskólann á Akureyri fluttist sjúkraliðanámið þangað jafnframtþví sem það var lengt í tveggja ára nám. Gagnfræðaskólinn útskrifaði alls 100 sjúkraliða. Nú er sjúkraliðanám stundað innan heilbrigðissviðs Verkmenntaskólans og þar er kennslustjóri Margrét Pétursdótt- ir. Nú tekur námið þrjá vetur og verklegt nám í þrjátíu ogfjórar vikur á ýmsum deild- um sjúkrahússins. Við heimsóttum nokkra sjúkraliðanema sem voru í verklegri kennslu og spjölluðum við þá, kennara þeirra og kennslustjóra og fer árangurinn hér á eftir. mþþ

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.