Dagur - 20.05.1985, Side 1
68. árgangur
Akureyri, mánudagur 20. maí 1985
FERMINGAR-
GJAFIR
í MIKLU
ÚRVALI
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Litmynda-
framköllun
Ð
AKUREYRI
55. tölublað
Daqur verður daqblað
Landsbyggðin mun eignast sitt
fyrsta dagblað í haust, en á
aðalfundi blaðstjórnar Dags á
laugardag var samþykkt sam-
hljóða að fjölga útgáfudögum
blaðsins í fimm i viku. Fyrir-
hugað er að þessi breyting
verði gerð í septembermánuði
og eru mannaráðningar og
tækjakaup þegar vel á veg
komin.
Þetta mál hefur verið í undir-
búningi alllengi og á síðasta ári
var Hagvangur m.a. fenginn til
að gera úttekt á rekstri blaðsins,
miðað við fimm blaða útgáfu, í
samráði við starfsmenn blaðsins.
Dagur mun eftir þessa breyt-
ingu sinna málefnum Norðlend-
inga, eins og áður, með öflugri
fréttaþjónustu og umfjöllun um
hagsmunamál þeirra og það sem
Missti vald
á eldinum
Það uppátæki manns nokkurs
í Búðagili á Akureyri sl. mið-
vikudag að kveikja í sinu við
kartöflugarð sinn hefði getað
endað ilia.
Maðurinn missti vald á eld-
inum sem breiddist óðfluga út og
um tíma var reykjarkófið í gilinu
geysilegt.
Slökkviliðinu tókst að ráða
niðurlögum eldsins, en sem fyrr
sagði hefði ekki mikið mátt út af
bera til að illa færi og voru hús
jafnvel í hættu um tíma.
Akureyri:
Helgiri alveg
„steindauð"
„Helgin hefur verið alveg
steindauð hér hjá okkur og
ekkert um að vera nema þetta
allra venjulegasta,“ sagði
varðstjóri hjá Akureyrarlög-
reglunni sem við ræddum við í
morgun.
Hann sagði eftir að hafa blað-
að í dagbók helgarinnar að
nokkrir minniháttar árekstrar
hefðu orðið, en þeir hefðu bara
verið „smánudd“ og engin
meiðsli og ekki gat hann fundið
nokkurn fréttnæman hlut í dag-
bók helgarinnar.
efst er á baugi hverju sinni.
Stefna blaðsins er sú að það verði
óumdeilanlega sá fjölmiðill sem
best sinnir þessum landshluta.
Verður öll starfsemi og efnis-
öflun við það miðuð, fyrst og
fremst.
Þá mun Dagur beita kröftum
sínum í enn ríkara mæli að bar-
áttu fyrir eflingu landsbyggðar-
innar í heild, sem með útflutn-
ingsframleiðslu sinni er horn-
Nýtt hótel var opnað á Akur-
eyri sl. föstudag. Það er til
húsa að Hafnarstræti 85 og
nefnist „Hótel Stefanía“.
Að sögn Stefáns Sigurðssonar,
sem er eigandi hótelsins, hófust
framkvæmdir við breytingarnar
um miðjan febrúar. Þá var hafist
handa við að rífa niður milliveggi
í húsinu, og síðan hefur verið
unnið mjög rösklega við að inn-
rétta og ganga frá. Hótel Stefanía
steinn þeirrar velferðar sem
menn vilja að ríki í landinu. Ár-
angur þess að vekja fólkið á
landsbyggðinni sjálft til umhugs-
unar um þessi mál hefur þegar
skilað árangri. Með öflugri fjöl-
miðli má vænta þess að sjálfsvit-
und landsbyggðarfólks vakni enn
frekar og jafnframt skilningur
þeirra sem ráða mestu um það
hvernig þessi mál þróast.
er 20 herbergja hótel. Sími er á
öllum herbergjum, og sjónvarp
verður komið með haustinu.
Flest herbergin eru með baði, en
þau sem ekki hafa slíkt eru með
handlaug.
Stefán sagði einnig að sérstök
útvarpsrás yrði fyrir hótelið auk
rása 1 og 2.
Lögð var áhersla á að láta
vinna allt varðandi innréttingar
og nýsmíði af fagmönnum á Ak-
Eins og áður sagði var þessi
breyting á útgáfunni samþykkt
samhljóða í blaðstjórn, en hana
skipa Valur Arnþórsson, formað-
ur, Stefán Valgeirsson, vara-
formaður, Hilmar Daníelsson,
Jón Sigurðarson, Hákon Hákon-
arson, Áskell Þórisson og Krist-
inn Sigmundsson, en Jóhann
Ólafsson sat fundinn sem vara-
maður þess síðasttalda. - HS
ureyri. Aðalgeir og Viðar og
Kótó sáu um smíði innréttinga.
Þórður og Karl sáu um pípulögn
og Norðurljós lagði rafmagn.
Múrverk unnu þeir Júlíus og
Guðni auk Magnúsar Gíslasonar.
Slarfsmenn verða fyrst um sinn 7.
Stefán Sigurðsson sagði að
hann legði fyrst og fremst áherslu
á góða þjónustu og þægilegt og
rólegt andrúmsloft. gej
Hótel Goðafoss:
Flugleiðir
og Eimskip
hluthafar?
„Þaö er engin launung aö við
höfum verið í viðræðum við
Flugleiðir og Eimskip um
væntanlega samvinnu í þessu
máli,“ sagði Guðmundur Sig-
urðsson, er hann var spurður
um fyrirhugaða byggingu hót-
els Goðafoss á Akureyri.
Eignarhluti Flugleiða og
Eimskips í hótelinu yrði allt að
45%. Ennfremur hefur verið
gefið vilyrði fyrir láni úr ferða-
málasjóði, en Ferðamálaráð
tekur málið til endanlegrar af-
greiðslu á fundi 22. maí nk.
í fyrsta áfanga hótelsins
verða 33 herbergi, lítill veit-
ingastaður, setustofa og bar.
Ef allt gengur að óskum hefj-
ast framkvæmdir í mars á næsta
ári, og er áætlaður byggingar-
tími 12-15 mánuðir. Samkvæmt
því verður nýja hótelið opnað
vorið 1988.
Hótel KEA:
12 ný
herbergi
í notkun
„Það er stefnt að því að opna
nýja hlutann nú á föstudag-
inn,“ sagði Kristján Jónas-
son, hótelstjóri á Hótel
KEA.
Þar er um 12 ný herbergi að
ræða. þar af eina „svítu". Her-
bergi eru þá orðin 34 en verða
orðin 51 næsta vor á Hótel
KEA.
Jafnhliða stækkun hótelsins
hefur verið unnið að endurbót-
um á öðrum vistarverum. og
verður haldið áfram með þær
framkvæmdir.
Hvað varðar frekari stækkun
á hótelinu er ekkert ákveðið
ennþá, en að sögn Kristjáns er
stefnt að frekari stækkun. gej
Ingunn Árnadóttir eiginkona Stefáns Sigurðssonar hóteleiganda klippir á borðann við opnun Hótels Stefaníu.
Stefán fylgist með.
„Hótel Stefanía
Hvemig má lækka hitunarkostnaö?
- Húseigendum á Akureyri og öðrum dýrum hitaveitustöðum gefinn kostur á lánum til orkusparandi aðgerða
„Eg vil hvetja alla Akureyr-
inga til að huga að einangrun
húsa sinna, stýribúnaði á ofn-
unum og öðru þar að lútandi,
því allar orkusparandi aðgerðir
verða mjög hagkvæmar eftir 1.
júlí - og ég undirstrika „mjög“
hagkvæmar.
Þetta sagði Guðni Jóhannes-
son, verkfræðingur og einn af
þremenningunum í verkefnis-
stjórn iðnaðarráðherra, sem hef-
ur yfirumsjón með átaki til orku-
sparnaðar meðal landsmanna.
Eftir 1. júlí veröa neytendur
Hitaveitu Akureyrar að greiða
fyrir allt það vatn sem þeir nota.
Eftir það fá neytendur ekki leng-
ur ómælt neysluvatn og ákveðinn
skammt til hitunar, sem þeir eru
síðan sjálfráðir um hvernig þeir
nýta, - eða hvort þeir nýta hann.
Eftir þessar breytingar er
mikilvægt fyrir húseigendur að
nýta allan þann hita sem þeir
kaupa út í hörgul. Það er líka
mikilvægt að hitinn rjúki ekki út
í veður og vind. Þess vegna er
rétt að nota sumarið til að huga
að einangrun húsanna og stýri-
búnaðinum á ofnunum. Úrbætur
geta kostað talsvert, en þær geta
borgað sig samt, jafnvel á stutt-
um tíma, ef þær leiða til verulegr-
ar lækkunar á hitaveitureikning-
unum.
Á vegum ríkisins stendur nú
yfir átak til orkusparnaðar. í
sambandi við það geta þeir hús-
eigendur sem þess óska fengið út-
tekt á húsum sínum með tilliti til
orkusparnaðar, sér að kostnaðar-
lausu. Það eina sem þeir þurfa að
gera er að senda inn umsóknir til
verkefnisstjórnarinnar, en eyðu-
blöðin er að fá hjá Húsnæðis-
málastjórn og byggingafulltrú-
um sveitarfélaga. Lán eru líka
veitt til orkusparandi aðgerða og
geta þau numið allt að 380 þús-
undum kr.
Nánar er fjallað um þetta mál
á bls. 9 í blaðinu í dag.