Dagur - 24.05.1985, Side 3

Dagur - 24.05.1985, Side 3
24. maí 1985 - DAGUR - 3 Bílaiðnaðurinn, sem enn er umfangs- mesti iðnaður heims, er að hjarna við eftir síðari öldudalinn af völdum ol- íuverðhækkana og efnahagskreppu. Talið er að um 3,9 milljónir manna hafi unnið við bílaframleiðslu í Bandaríkjunum, Evrópu og Japan árið 1979. Síðan lá leiðin undan, en síðustu 2-3 árin hefur aftur árað bet- ur og bílaverksmiðjur í Bandaríkjun- um og Japan eru farnar að skila hagnaði. Flestir framleiðendur reyna nú að hasla sér völl á Bandaríkjamarkaði, því þar virðist helst vera von til hagn- aðar að nokkru marki. Bandaríkja- menn greiða nú með glöðu geði 50% hærra verð að jafnaði fyrir bíl en þeir gerðu fyrir 5-6 árum. Því er jafnvel haldið fram að Japanir séu ánægðir með kvóta sinn á Bandaríkjamarkaði (innflutningur frá Japan er takmark- aður við 1.850 þús. bíla á ári) því takmörkunin hafi gert japanska bíla eftirsótta og því hægt að selja þá á hærra verði en ella. Þar með hafi tekjur Japana af_ bílaútflutningi til USA aukist þrátt fyrir minni sölu í stykkjum talið. Takmörkun innflutnings frá Japan var ætluð til að auðvelda bandarísku bílasmiðjunum aðlögun að breyttum aðstæðum, aukinni samkeppni og dýrara eldsneyti. Stóru framleiðend- urnir hafa tekið þetta alvarlega og eru allir (General Motors, Ford, Chrysler og American Motors) komnir vel á veg með endurskipu- lagða framleiðslu, bæði nýjar gerðir bíla og nýjar framleiðsluaðferðir. Jafnframt hafa þessi stóru fyrirtæki gengið til aukinnar samvinnu við bílaframleiðendur í Japan og Evrópu. í Evrópu eru það sex fyrirtæki sem bítast um markaðinn, GM, Ford, Volkswagen, Fiat, Renault og Peugeot. Frönsku fyrirtækin, Ren- ault og Peugeot eru enn að berjast við taprekstur. Fiat er nú réttum megin við strikið og Volkswagen ger- ir ráð fyrir sléttri útkomu á síðasta ári. Dótturfyrirtæki amerísku ris- anna eru í harðri samkeppni og veitir GM (Opel) þar heldur betur sem stendur. í Japan er Toyota óumdeilanlega í Honda broddi fylkingar og hafði 40% af markaðinum þar árið 1983, ef frá eru taldir smábílar. Reyndar er Daihatsu, dótturfyrirtæki Toyota, fremst flokki í framleiðslu og sölu smábíla í Japan. Einhverjir tímabundnir stjórnunarerfiðleikar hafa þjakað Nissan að undanförnu og því er lík- legt að Toyota hafi meiri áhyggjur af miklum uppgangi Honda að undan- förnu. Honda hefur náð miklum ár- angri í útflutningi og þá einkum á fremur dýrum og vel búnum bílum. Þá hefur Mazda (Ford á 25% í Mazda) einnig gengið vel í útflutn- ingi, einkum þó til Evrópu. Hér hefur þó fyrst og fremst verið talað um hinn almenna markað og algenga framleiðslu. Nokkrir bíla- framleiðendur, sem sérhæfa sig í framleiðslu vandaðra og jafnframt heldur dýrari bíla virðast lúta öðrum lögmálum en almennt gerist í bíla- heiminum. Má þar nefna að Daiml- er-Benz verksmiðjurnar högnuðust hressilega öll samdráttarárin og búa fjárhagslega við einna sterkasta Bflaframleiðsla fer nú aftur vaxandi. öðu framleiðenda í Evrópu. Svip- aða sögu má segja af Volvo, BMW, Porsche og fleiri slíkum. En hverjir framleiða mest af bílum og hverjir eiga alla þessa bíla? Árið 1984 var framleiðsla helstu fyrirtækja í bílaiðnaði sem hér segir: Fjöldi bíla Bílaeign (og stundum lífskjör) er oft tilgreind með því að telja hve margir íbúar eru um hvern bíl og til fróðleiks læt ég hér fljóta með tölur þar um frá árinu 1983. íbúar á hvern bíl 1,9 1. General Motors 2. Ford 3. Toyota 4. Nissan 5. Volkswagen/Audi 6. Renault 7. Peugeot 8. Fiat 9. Chrysler 10. Honda 11. Mazda 12. Mitsubishi 13. Daimler-Benz 14. Austin-Rover USA USA Japan Japan V.-Þýskal. Frakkland Frakkland Ítalía USA Japan Japan Japan V.-Pýskal. England 6.330 þús. 3.620 þús. 2.490 þús. 2.050 þús. 1.880 þús. 1.550 þús. 1.460 þús. 1.390 þús. 1.270 þús. 1.020 þús. 770 þús. 590 þús. 480 þús. 400 þús. USA Ástralía V.-Þýskaland Frakkland Ítalía Bretland Spánn Japan A.-Pýskaland Brasilía Mexikó Sovétríkin Taiwan Suður-Kórea Nígería Kína 2.3 2.5 2.6 2,8 3.4 4.4 4.5 6,0 15,0 16,0 26,0 27,6 104,9 125,0 10.200,0 I Kína eru 10200 íbúar um hvern bfl en á íslandi 2-3. Tekið skal fram að hér er um að ræða heildarframleiðslu fyrirtækjanna ásamt dótturfyrirtækjum. ísland er líklega í flokki með Ástr öluni og V.-Þjóðverjum í þessar töflu. GARÐYRKJUAHÖLD SKÓFLUR ALLS KONAR RISTUSPAÐAR KANTSKERAR GARÐHRlFUR HEYHRÍFUR GARÐSLÁTTUVÉLAR RAFMAGNSORF GARÐKÖNNUR SLÖNGUHENGI SLÖNGUTENGI VERKFÆRAHENGI O.FL. O.FL. O.FL. GARÐSLÖNGUR 20 OG 30 MTR. GÚMMlSLÖNGUR ALLAR STÆRÐIR PLASTSLÖNGUR GLÆRAR MEÐ OG ÁN INNLEGGS Á UTIGRILLIÐ ÓDÝR OG GÓÐ VIÐARKOL KVEIKJILÖGUR Gleðilegt sumar Akureyringar-Norðlendingar FLAGGSTANGIR ÚR TREFJAGLERI, FELLAN- LEGAR MEÐ FESTINGU 6-8-10 M. ÍSLENSK FLÖGG MARGAR STÆRÐIR FLAGGSTANGAHÚNAR FLAGGLlNUR FATNAÐUR Á BÖRNIN POLLABUXUR ÓDÝR OG GÓÐ STÍGVÉL VINNUFATNAÐUR ÓDÝR STlGVÉL SILUNGANET UPPSETT BLÝ- OG FLOTTEINAR KOLANET SLÖNGUR BJORGUNARVESTI Á BÖRN OG FULLORÐNA BÁTADÆLUR KEÐJUR SVARTAR OG GALV. LÁSAR, VÍRAR, KÓSAR MIKIÐ ÚRVAL MALNINGARVÖRUR TILBOÐSVERÐ * OPIÐ ÁLAUGARDÖGUM VERIÐ VELKOMIN SLÖKKVITÆKI MIKIÐ OG GOH ÚRVAL AF ALLS KONAR SLÖKKVI- TÆKJUM, BRUNAKEFLUM OG REYKSKYNJURUM ERUM AÐ FÁ SEGLBfíETTI VINSAMLEGAST STAÐFESTID PANTANIfí * Góð vara fyrir gott verð SKIPAÞJONUSTAN HF. VERSLUN, UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN TRYGGVABRAUT 10 - SIMAR (96)24725 - 21797 - 602 AKUREYRI

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.