Dagur - 24.05.1985, Blaðsíða 6
Tíu ára afmæli Lundarskóla:
Um síðustu helgi hélt Lundar-
skóli á Akureyri upp á tíu ára
afmæli sitt og var mikið um
dýrðir. Dagskráin hófst fljót-
lega eftir hádegið með virðu-
legum ávörpum formanns
skólafélagsins, forseta bæjar-
stjórnar og formanns foreldra-
félagsins. Bárust skólanum
gjaflr frá æskulýðsráði, KA
og foreldrafélag skólans gaf
fé til framkvæmda við lóð
skólans.
Að þessu loknu hófust ýmiss
konar útileikir, það var sungið,
dansað, útileikhús var í gangi,
fimleikasýning og einhverjir fóru
í júdó. Boðið var upp á andlits-
skreytingu í tilefni dagsins og í
einni af kennslustofum skólans
héldu nemendur í þriðja bekk
Tansaníuhátíð, en þeir voru að
skila lokaverkefni sínu í samfé-
lagsfræði þar sem fjallað var um
Tansaníu.
Foreldrafélag skólans stóð fyr-
ir kaffisölu og er talið að um þús-
und manns hafi drukkið kaffi í
blíðskaparveðri við Lundarskóla.
Foreldrafélagið stóð einnig fyrir
flóamarkaði og af einhverjum
ástæðum var lítil sala í regn-
hlífum og skíðavörum, en að
öðru leyti var salan nokkuð góð.
Talið er að um tvö þúsund
manns hafi heimsótt svæðið og
tókst afmælið framar bestu von-
um að sögn skólastjórans Harðar
Ólafssonar. Sagði hann að heil-
mikið fjör hefði verið, en samt
engin ærsl og hamagangur eins og
stundum verður þegar mikill
mannfjöldi er saman kominn.
Menn voru sumsé í hátíðarskapi
í tíu ára afmælisveislunni. -mþþ
Margir gerðu góð kaup á flóamarkaðinum.
* \ á f'X
X,