Dagur - 17.07.1985, Síða 3
17. júlí 1985 - DAGUR - 3
Bikarmót Noröurlands
í hestaíþróttum
- verður haldið á nýjum velli hestamanna-
félagsins Hrings í Svarfaðardal
Það er óvenju mikið um að
Nýkomnar léttar og handhægar
kolsýrusuðuvélar
Hentugar í bílskúrinn og ótrulega ódýrar.
Norðurljós
Furuvöllum 13, sími 25400 og 25401.
vera hjá hestamönnum á Dal-
vík og Svarfaðardal um þessar
mundir. Undanfarnar vikur
hefur Eyjólfur ísólfsson verið
með reiðnámskeið og unnið
hefur verið að uppbyggingu
mótssvæðis við Flötutungu í
Svarfaðardal þar sem fram fer
nýstárlegt mót í hestaíþróttum
um næstu helgi. Við fengum
Ármann Gunnarsson, Lauga-
steini til að fræða okkur örlítið
nánar um þetta.
„Pað eru 30 manns sem sótt
hafa námskeiðin hjá Eyjólfi, er
það bæði reiðkennsla úti og
kennsla sem fer fram innanhúss.
Pessu lýkur núna um miðja vik-
una. Um síðustu helgi var haldið
hestamót félagsins, það var með
hefðbundnu sniði. Inn í það spil-
aði að vísu leiðinlegt veður og
skemmdi dálítið fyrir.
Um næstu helgi verður haldið
bikarmót Norðurlands £ hesta-
íþróttum. Það verður haldið á
nýjum velli félagsins, sem er 200
metra hringvöllur með beinni
braut og gerði inni í miðjum
velli. Við byrjuðum að vinna við
Hinn nýi völlur hestamanna í Svarfaðardal.
þennan völl í fyrrasumar og luk-
um því núna í sumar. Þarna er
búið að vinna heilmikið. í>að er
komin ágætis snyrtiaðstaða með
rennandi vatni, það var byggt í
samvinnu við kvenfélagið hérna
og er staðsett við veitingasölu
þeirra við Tungurétt.
Þetta bikarmót er með nokkuð
nýju sniði, sem ætti að koma
mjög skemmtilega út. Það eru
íþróttadeildir 6 hestamanna-
félaga sem taka þátt í þessu. Það
eru Þingeyingar, Akureyringar,
Eyfirðingar, Skagfirðingar, V-
Minnisvarði
afhjúpaður
- um Eirík Hjartarson sem ræktaði skóg
í landi Hánefsstaða í Svarfaðardal
í tilefni af þvi að öld er liðin
frá fæðingu Eiríks Hjartarson-
ar frá Uppsölum var afhjúpuð
afsteypa af minnisvarða í Há-
nefsstaðaskógi í Svarfaðardal
sunnudaginn 7. júlí.
Umrædd afsteypa er gerð eftir
minnisvarða sem afkomendur
Eiríks létu gera og reisa í Laug-
ardal í Reykjavík þar sem hann
hóf skógrækt sína hér á landi. Sá
minnisvarði var afhjúpaður í
Laugardai við hátíðlega athöfn 1.
júní síðastliðinn. Þegar minn-
isvarðinn var afhjúpaður í Há-
nefsstaðaskógi safnaðist nokkuð
af fólki saman í skógarreitnum og
kirkjukór Svarfdæla söng nokk-
ur lög. -yk
Sveit Amar vann
íslandsmeistarana
Nú stendur yfir Bikarkeppni
Bridgesambands íslands, en í
þeirri keppni taka þátt 40
sveitir innan B.S.Í. alls staðar
af landinu.
Alls spila 4 sveitir frá Akur-
eyri. Tvær eru fallnar úr keppn-
inni, sveitir Jóns Stefánssonar og
Zarioh Hamadi, sem báðar kom-
ust í aðra umferð en töpuðu þar
leikjum sínum mjög naumlega.
Sveit Þórarins B. Jónssonar Ak-
ureyri sigraði Bjarka Tryggvason
og félaga frá Sauðárkróki með
talsverðum mun og er sveit Þór-
arins þar með komin í 16 liða
úrslit.
En þá er að segja tíðindi af
Erni Einarssyni og hans sveit.
Þeir fengu íslandsmeistara 1985,
sveit Jóns Baldurssonar Reykja-
vík í heimsókn. Spilað var í Dyn-
heimum sl. sunnudag og urðu þar
fjölmargir áhorfendur vitni að
sigri heimamanna sem hlutu 13
IMPa umfram íslandsmeistar-
ana. Auk Arnar eru í sveitinni
Hörður Steinbergsson, Pétur
Guðjónsson og Ólafur Ágústs-
son.
í næstu umferð í 16 sveita úr-
slitum spilar sveit Arnar Einars-
sonar við sveit Sigurðar B. Þor-
steinssonar Rvík, eða sveit Braga
Jónssonar Rvík. Spilað verður á
Akureyri. Sveit Þórarins B. Jóns-
sonar spilar við sveit Þórarins
Sófussonar Hafnarfirði, syðra.
Bridgefólk er minnt á „Opið
hús“, í Dynheimum öll þriðj-
ludagskvöld kl. 19.30. Öllum er
heimil þátttaka. Spilaður er tví-
menningur.
Húnvetningar og við hér á Dal-
vík og Svarfaðardal. Það er ein
sveit frá Grana og Þjálfa sameig-
inlega, ein frá Létti, ein frá Funa,
ein frá Stíganda og Léttfeta sam-
eiginleg, ein frá Þyt og svo er ein
frá Hring sem er hestamanna-
félagið hér. Hver íþróttadeild
sendir 3ja manna sveit í hverja
grein, þannig að þetta ætti að
verða sterkt mót. Þetta á að vera
úrval hesta og reiðmanna af
Norðurlandi. Sú sveit sem kemur
út með hæstan samanlagðan
stigafjölda sigrar og fær veglegan
farandbikar sem Dagur gefur af
rausnarskap.
Seinni dag mótsins, svona eins
og nokkurs konar krydd, fer fram
úrslitakeppni, þar sem fimm
efstu einstaklingar í hverri grein
keppa til úrslita og það reiknast
líka inn í heildar stigafjöldann,
þannig að það verður ekki ljóst
hver sigrar fyrr en á síðustu
stundu.
Við ætlum að reyna að hafa
þetta svolítið huggulegt og
skemmtilegt. Það verður kvöld-
vaka ef veður leyfir,“ sagði Árm-
ann að lokum. - HJS.
HAGA
einingar
★ Eldhúsinnréttingar
★ Baðinnréttingar
★ Fataskápar
Hagstætt verð
og greiðslukjör.
J)|iiMrákLM8.
Hagi hf. Óseyri 4, Akureyri, sími 96-21488
^^ft-
^övW«-«- .
Miðvikudagur:
Steikt blálanga m/rjómasósu kr. 190,-
Marineraðar svínakjötssneiðar
m/kryddsósu kr. 240,-
Fimmtudagur:
Soðnar fiskbollur
m/hrísgrjónum og karrý’sósu kr.
Mínútubuff m/sveppum kr. 240,-
Föstudagur:
Skelsteikt rauðspretta m/salati kr. 180,-
Lambakótilettur m/frönskum kartöflum kr. 230,-
Q
Verið ávallt velkomin í Kjallarann.
Vörukynningar
nk. föstudag
frá kl. 15-19
☆
Bautabúiið
Pizzur
Sana
Diet Seven Up
☆
Opið til kl. 20 á fbnmtudögum
Akureyri