Dagur - 07.08.1985, Síða 5
7. ágúst 1985 - DAGUR - 5
Laugahátíð 1985:
Léleg aðsókn á dansleik
Laugahátíð ’85 stóð bara í einn
dag um nýliðna verslunar-
mannahelgi, að sögn Steinþórs
Þráinssonar framkvæmda-
stjóra hátíðarinnar.
Steinþór sagði að vegna íbú-
anna á svæðinu og áskorana frá
skólanefnd hefði verið horfið frá
því að halda þriggja daga hátíð
líkt og undanfarin ár enda hefði
hátíðin í fyrra misheppnast vegna
dræmrar aðsóknar þar sem allir
fóru í Atlavík. Það sama gerðist
nú með dansleikinn á sunnudags-
Bahá’iar
með sumar-
skóla á
Akureyri
Frá 2. til 11. ágúst munu
Baha’íar halda árlegan sumar-
skóla sinn í Húsmæðraskólan-
um, Akureyri. Þar er gert ráð
fyrir að um það bd 70 gestir
skólans muni eyða deginum
fram á kvöld við leik og störf.
Þessi sumarskóli er tileinkaður
því að 50 ár eru liðin síðan
Baha’í trúin var fyrst kynnt opin-
berlega á íslandi. Það var í júlí-
mánuði 1935 þegar bandaríska
blaðakonan Martha Root dvald-
ist hér á landi í mánaðartíma.
Heiðursgestur sumarskólans
verður dr. Hermann Grossmann,
en hann býr í Finnlandi. Hann
mun meðal annars flytja fyrir-
lestra um framlag ungmenna til
alþjóðaárs æskunnar.
Á meðan á skólanum stendur
er ætlunin að halda til grafreitar
fyrsta Baha’íans á íslandi, Hólm-
fríðar Árnadóttur, en hún hvílir
í kirkjugarðinum í sinni gömlu
heimabyggð, Hólum í Hjaltadal.
Fimmtudagskvöldið 8. ágúst
verður fræðslu- og skemmtidag-
skrá fyrir almenning, þar sem
fjallað verður um nauðsyn þess
að friðarviðleitni hefjist á ein-
staklingsgrundvelli og leiði þaðan
til stærri þjóðfélagseininga. Að-
gangur er ókeypis og opinn öllum
almenningi. Dagskráin hefst
klukkan 20.30 í Húsmæðraskól-
anum.
kvöldið þar sem Dúkkulísurnpr
léku fyrir dansi í íþróttahúsinu að
Laugum. Aðeins 130 manns sóttu
dansleikinn en hins vegar var
ágæt aðsókn að Sumargleðinni
sem var á fjölskylduskemmtun
fyrr um daginn.
Steinþór sagði að nánast engir
hefðu verið á tjaldstæðum sem
hótelið sá um og aðsókn að kvik-
myndasýningum á sunnudaginn
var heldur dræm.
Steinþór sagðist reikna með að
eftir reynsluna frá því í fyrra og
aftur í ár myndi HSÞ hætta að
halda Laugahátíð með því sniði
sem verið hefur undanfarin ár en
hugsanlega yrði á næsta ári tekin
upp skemmtun í tengslum við
héraðsmót og reynt að vekja upp
gömlu héraðsmótastemmning-
una. Það yrði þá einhverja aðra
helgi en verslunarmannahelgi.
-yk.
Lækningastofa
Hefi opnað lækningastofu að Hafnarstræti 95,4. hæð.
Viðtalstími aðeins eftir samkomulagi.
Viðtalsbeiðnum veitt móttaka í síma 22100, innan-
hússnúmer 249, alla virka daga milli kl. 11 og 13.
Magnús Stefánsson læknir.
Sérgrein: Barnasjúkdómar.
Hjól-
barðar
$ nýirog
i miklu úrvali.
Gúmmíviðgerð
sími 21400. Óseyri 2
Véladeild
símar 22997 og 21400.
TTLSÖLU
BARNAFATAVERSLUN
Til sölu barnafataverslun í Miðbænum. Öruggur
leigusamningur. Lágmarkslager.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar (ekki í síma).
REKSTRARRÁÐGJÖF
FELL hf. Kaupvangsstræti 4 - Akureyri - simi 25455
Y
ip Leikja námskeið
Nýtt námskeíð hefst mánud. 12. ágúst og stendur til
30. ágúst. Innritun 8.-9. ágúst frá kl. 13-17 á íþróttasvæði Þórs
og einnig námskeiðsdagana. Unglingaráð knattspyrnudeildar Þórs.
Salatbar í hádeginu
og á kvöldin.
Fjöldi smárra sem stórra
rétta á matseðlinum.
Opid alla virka daga
frá 12-13.30 og 18-01
Um helgar til 03
hefst fimmtudagínn 8. ágúst
Bamafatnaður, unglingafatnaður,
dömufatnaður, herrafatnaður, vefnaðarvara
og bútar, skór, hljómplötur o.fl. o.fl.
0.
0
SÍMI
(96) 21400