Dagur - 07.08.1985, Síða 9
7. ágúst 1985 - DAGUR - 9
Vel heppnað hestamannamót á Vindheimamelum:
Meistarasýningin glæsile
„Mikið asskoti væri nú gaman
að eiga þó ekki væri nema einn
af þessum hestiun! Ég hefði
ekki trúað því að óreyndu, að
ég ætti eftir að sjá þá svona
marga háreista og spengilega
saman í einum hópi,“ sagði
einn ónefndur hestamaður á
hestamótinu á Vindheimamel-
um í Skagafirði um helgina.
Hestamir sem hann átti við ero
íslandsmeistararnir í tölti allt
frá árinu 1981, sem stóðu að
eftirminnilegri sýningu á mót-
inu. Má raunar segja, að glæsi-
Ieiki þeirra hafi verið há-
punktur mótsins.
íslandsmeistararnir sem sýndir
voru á mótinu voru Hrímnir
Bjöms Sveinssonar, sem varð ís-
landsmeistari í tölti 1981; Fleygur
Olil Amble, sem varð meistari
1982; Snjall Þórðar Þorgeirsson-
ar, sem varð meistari 1983; Tinna
Einars Ö. Magnússonar, sem
varð meistari 1984; og Kórall
Orra Snorrasonar, sem varð ís-
landsmeistari í tölti 1985. Þessir
hestar eru allir í toppformi og var
sýning þeirra einstaklega glæsi-
leg.
Blær Sörlason frá Sauðárkróki
varð hlutskarpastur í keppni al-
hliða gæðinga þeirra Skagfirð-
inga. Hann er í eigu Sveins
Guðmundssonar á Sauðárkróki,
en Guðmundur sonur hans sýndi
hestinn. Blær hlaut 8,33 í aðal-
einkunn, en í öðru sæti varð Þyr-
ill Skafta Steinbjömssonar á Haf-
steinsstöðum, flugvakur 5 vetra
gæðingur, sem fékk 8,11 í aðal-
einkunn. Blesi Jósafats Jónsson-
ar á Sauðárkróki varð í 3. sæti
með 8,06 í aðaleinkunn.
Ekki langt í Sörla
250 m skeið:
1. Leistur, 8 v. skagfirskur 22,4
sek.
Eig: Hörður G. Albertsson,
Hafnarfirði.
Knapi: Sigurbjörn Bárðarson.
2. Börkur, 11 v. frá Ólafsfirði
22,8 sek.
Eig: Tómas Ragnarsson, Reykja-
vík.
Knapi: Eigandi.
3. Vani, 9 v. þingeyskur 22,8 sek.
Eig: Erling Sigurðsson, Mosfells-
sveit.
Knapi: Eigandi.
Börkur fékk 2. sætið, þar sem
hann náði þessum tíma í fyrri
sprettinum, en þá hljóp Vani
upp.
250 m folahlaup:
1. Lótus, 6 v. úr Rángárv.s. 18,2
sek.
Eig: Kristinn Guðnason, Skarði.
Knapi: Róbert Jónsson.
2. Gustur, 6 v. skagf. 18,3 sek.
Eig: Helgi Einarsson, Reykjavík.
Knapi: Þurí Bára Birgisdóttir.
3. Frá, 6 v. skaftfelisk'.
Eig: Helgi Eiríkson, Garðabæ.
Knapi: Eigandi.
350 m stökk:
1. Neisti, 7 v. rangæskur 24,3
sek.
Eig: Hörður G., Albertsson,
Hafnarfirði.
Knapi: Erlingur Erlingsson.
2. Tvistur, 13 v. rangæskur 24,3
sek.
Eig: Hörður G. Albertsson,
Hafnarfirði.
Knapi: Anna Dóra Markúsdótt-
ir.
3. Nasi, 8 v. borgfiskur 24,6 sek.
Eig: Elías Kristjánsson, Skr.
Knapi:. Jósafat Þröstur Jónsson.
800 m stökk:
1. Örn 8 v. rangæskur 58,7 sek.
Eig: Guðmundur og Inga Harð-
arbörn.
Knapi: Erlingur Erlingsson.
2. Lýsingur, 9 v. rangæskur 59,0
sek.
Eig: Fjóla Runólfsdóttir.
Knapi: Róbert Jónsson.
3. Tvistur, 13 v. rangæskur 59,6
sek.
Eig: Hörður G. Albertsson,
Hafnarfirði.
Knapi: Anna Dóra Markúsdótt-
ir.
800 m brokk:
1. Neisti, 9 v. skaftfellskur 1:29,1
mín.
Eig: Guðmundur Jónsson.
Knapi: Eigandi.
2. Alur, skagfirskur 1:32,6 mín.
Eig: Finnbogi Guðmundsson.
Knapi: Eigandi.
3. Brimur, 10 v. skagfirskur
1:44,9 mín.
Eig: Ólafur Örn Þórðarson, Ak-
ureyri.
Knapi: Erna Jóhannesdóttir.
Mótið á Vindheimamelum
tókst í flesta staði mjög vel, þrátt
fyrir kalsa báða mótsdagana. Um
8-900 manns voru á mótssvæðinu
þegar flest var. - GS
___________________________ mundl syni sínum og Blæ
sigurlaunin fyrir gæðingakeppnina.
Það var ekki langt í Sörla, þegar
keppt var í B-flokki gæðinga. Þar
varð sigurvegari Krapi Sveins
Jóhannssonar á Varmalæk, sem
Björn sonur hans sýndi. Krapi
minnir um margt á Hrímni
Björns, en Krapi er sonarsonur
Sörla frá Sauðárkróki, undan
Júpiter og meri frá Markúsi á
Reykjarhóli. Krapi fékk 8,35 í
aðaleinkunn, en í 2. sæti varð
Bylgja Jóns Friðrikssonar á
Vatnsleysu, sem Anna Þóra dótt-
ir Jóns sýndi. Hún fékk 8,17 í
aðaleinkunn. í 3. sæti varð Geys-
ir Jóns Olgeirs á Gígjarhóli, sem
Jóhann Magnússon sýndi. Hann
fékk 8,13 í aðaleinkunn.
í keppni 12 ára unglinga og
yngri sigraði Helgi Ingimarsson
á Blakk með 8,59 í aðaleinkunn.
í 2. sæti varð Stefán Friðrik Jóns-
son á Gusti með 8,25 í aðaleink-
unn og Elvar Einarsson á Tvisti
varð í 3. sæti með 7,99.
í keppni 13-15 ára unglinga
sigraði Björn Jónsson á Sissý
með 8,27 í aðaleinkunn. í 2. sæti
varð Ingólfur Helgason á Létti
með 8,03 og Halldór Gunnlaugs-
son varð 3. á Gusti með 8,00.
Úrslit kappreiða urðu sem hér
segir:
150 m skeið:
1. Glaumur, 7 v. skagfirskur 15.2
sek.
Eig: Árni Jóhannsson, Reykja-
vík.
Knapi: Jón Pétur Ólafsson.
2. Seifur, 6 v. skagfirskur 15,7
sek.
Eig: Leifur Þórarinsson, Keldu-
dal.
3. Menja, 7 v. Árnesingur 16,4
sek.
Eig: Aðalsteinn Aðalsteinsson,
Hæli.
Knapi: Styrmir Snorrason.
Sigurvegaramir í yngri
Íslandsmeistaramir í tölti; Bjöm Sveinsson á Hrímni; OIil Amble á Fleyg; Þórður Þorgeirsson á Snjalli; Einar Ö. Magnússon á Tinnu og Orrí á Kóral.