Dagur - 23.08.1985, Síða 13
23. ágúst 1985 - DAGUR - 13
Norðurlandsmót í
golfi á Húsavík
Norðurlandsmótið í golfi fer
fram á Húsavík um helgina.
Mótið hefst kl. 9 í fyrramálið
og verða þá leiknar 18 holur,
en á sunnudaginn hefst keppni
kl. 8 um morguninn og verða
þá leiknar síðari 18 holur
mótsins.
Að venju er búist við mikilli
þátttöku kylfinga víðs vegar af
Norðurlandi, eða frá Húsavík,
Akureyri, Ólafsfirði, Sauðár-
króki og jafnvel frá Siglufirði.
Keppt verður í þremur
flokkum, karlaflokki, kvenna-
flokki og unglingaflokki. Telja
verður að Kristján Hjálmars-
son sem leikur á heimavelli sé
sigurstranglegastur í karla-
flokki, Inga Magnúsdóttir í
kvennaflokki, en í unglinga-
flokki getur orðið um jafnari
keppni að ræða en undanfarin
ár því á Húsavík er að koma
upp nokkur hópur unglinga
sem veitir nú jafnöldrum á
Akureyri jafnan harða keppni
í mótum.
Hörkubarátta í
knattspymunni
Heil umferð verður í 2. deild
fslandsmótsins í knattspyrnu
á morgun, laugardag.
Spennan í 2. deild er nú í
hámarki en á toppi deildarinn-
ar berjast ÍBV, Breiðablik,
KA og KS harðri baráttu um
tvö laus sæti í 1. deild að ári.
Eins og er standa ÍBV og
Breiðablik best að vígi en KA
og KS koma þar skammt á
eftir.
Leikirnir um helgina eru
Völsungur-Fylkir á Húsavík,
ÍBÍ og IBV, Breiðablik og KS,
UMFN og Skallagrímur og
Leiftur og KA leika á Ólafs-
fjarðarvelli. Allir leikirnir
hefjast kl. 14.
í 3. deild B er baráttan um
efstu sætin ekki síðri. Þar berj-
ast Einherji frá Vopnafirði,
Magni frá Grenivík og Tinda-
stóll frá Sauðárkróki um efsta
sætið sem gefur sæti í 2. deild
að ári og um helgina er einmitt
leikur sem getur haft mikil
áhrif á gang mála þar.
Einherji og Tindastóll mæt-
ast á Vopnafjarðarvelli kl. 14
á morgun. Aðrir leikir eru
Þróttur-Leiknir, Valur-Magni,
Huginn-HSÞ. Allir leikirnir
eru kl. 14 á morgun.
Friðbjamar-
dagur
Minjasafn templara, Aðal-
stræti 46 Akureyri Frið-
bjarnarhús, hefur verið opið á
sunnudögum í sumar frá kl.
14-17.
Friðbjarnarhús er kennt við
Friðbjörn Steinsson bóksala
sem var einn af stofnendum
góðtemplarareglunnar á ís-
landi. Akveðið hefur verið að
tileinka Friðbirni síðasta opn-
unardag hússins í sumar.
A sunnudaginn kemur, 25.
ágúst eru allir velkomnir í
Friðbjarnarhús. Þar verður
gestum boðið kaffi og heitar
vöfflur. (Ókeypis). Og sem
endranær geta menn fræðst
um sögu og starfsemi góð-
templarareglunnar. Einnig
fást í húsinu minjagripir sem
tengjast húsinu og 100 ára af-
mæli reglunnar.
Sandspymukeppni
Um síðustu helgi fór fram
sandspyrnukeppni við Hrafna-
gil í Eyjafirði á vegum Bíla-
klúbbs Akureyrar. Þar var
mikið um kraftmikla bíla sem
tættu upp sandeyrar Eyja-
fjarðarár. Enda fór það svo að
tvö Evrópumet voru sett.
Nú hyggst Bílaklúbburinn
halda aðra keppni sem fram
fer á sama stað. Verður þessi
keppni nk. laugardag. Það
þarf varla að taka fram að atlir
mestu og bestu sandspyrnubíl-
ar landsins verða á staðnum.
Keppt verður í öllum
flokkum, svo sem í flokki
grindabila sem ganga undir
nafninu „dragsterar", í flokki
sérútbúinna fólksbíla. sérút-
búinna jeppa. Einnig verður
keppt í flokki „standard" bíla.
bæði jeppa og fólksbíla. Þarna
gefst fólki möguleiki að sjá
kraftmikla og „skrýtna" bíla
með stórar og kraftmiklar
vélar. Keppnin hefst kl. 14.00.
Forstjóraskipti hjá Iðnaðardeild Sambandsins:
„Mannaskipti þýða
allíaf breytingar“
- segir Jón Sigurðarson nýráðinn forstjóri
„Þetta nýja starf leggst vel í mig, það
er f eðliíegu framhaldi af því sem ég
hef verið að gera, þannig að ég geng
bjartsýnn til þeirra verkefna sem bíða
mín,“ sagði Jón Sigurðarson, nýráð-
inn framkvæmdastjóri Iðnaðardeildar
Sambandsins, í samtali við Dag.
Jón tekur við framkvæmdastjóra-
starfinu 15. sept., af Hirti Eiríkssyni,
sem flyst til Reykjavíkur og tekur þar
við starfi framkvæmdastjóra Vinnu-
málasambands samvinnufélaganna.
„Ég fluttist til Akureyrar tuttugu og
fjögurra ára gamall og byrjaði þá að
starfa að iðnaðarmálum. Þetta nýja
starf er á sömu braut, en það stærsta
sem ég hef fengist við,“ sagði Jón.
- Þýðir þetta einhverjar breytingar
á rekstrinum?
„Já, svona mannaskipti þýða alltaf
einhverjar breytingar. Það fyrirtæki
sem ekki er sífellt að breytast, það
getur ekki lifað. Það verða því eflaust
einhverjar breytingar á rekstrinum, en
ég vil ekki úttala mig um þær núna.“
- Nú er þetta viðamikið starf og
tímafrekt; hefur það einhverjar breyt-
ingar í för með sér varðandi þín auka-
störf?
„Já, ég þjóna nú ekki mörgum tóm-
stundastöfum með þessu, eða stjórn-
málum.“
„Ekid seirtm
vœnrn að breyta til“
- segir Hjörtur Eiríksson, fráfarandi forstjóri
„Ég er búinn að vera í 36 ár hjá Iðnað-
ardeildinni um næstu áramót, þannig
að mér fannst vera kominn tími til að
prófa eitthvað nýtt,“ sagði Hjörtur
Eiríksson, fráfarandi forstjóri Iðnað-
ardeildarinnar og verðandi fram-
kvæmdastjóri Vinnumálasambands
samvinnufélaga, í samtali við Dag.
„Ég fer héðan með mjög góðum
huga, þó ég muni sakna margs frá Ak-
ureyri, bæði úr starfi og leik, eins og
gefur að skilja. En það var ekki seinna
vænna fyrir mig að skipta um starf,
fyrst ég á annað borð var ákveðinn í
að gera það.“
- Nú ertu að flytja aftur til æsku-
stöðvaniia, eftir áratuga búsetu á Ak-
ureyri; ertu ekki orðinn rótgróinn Ak-
ureyringur?
„Jú, jú, ég er orðinn rótgróinn Akur-
eyringur og sjálfsagt verður það eitt-
hvert átak að rífa sig upp. Én ég er
ekkert farinn að velta því fyrir mér
ennþá og mikla það ekki fyrir mér.“
- í hverju verður nýja starfið
fólgið?
„Það er fólgið í því að hafa umsjón
með öllum samningum sem gerðir eru
á vegum samvinnuhreyfingarinnar.
Þetta er því nýtt, en ég kem ekki alveg
ókunnugur til starfa, því með þann
stóra hóp fólks, sem vinnur hjá Iðnað-
ardeildinni, hef ég kynnst samninga-
- Þýðir þetta, að þú dragir þig út úr
bæjarpólitíkinni?
„Ég á ekki von á breytingum á því
sviði á næstunni. En hvað verður við
næstu bæjarstjórnarkosningar mun ég
ræða við mín flokkssystkini þegar þar
að kemur,“ sagði Jón Sigurðarson.
- GS
málum. Ég held að það sé hverjum og
einum nauðsynlegt, að skipta um starf
af og til á lífsleiðinni og slíkt fer sem
betur fer í vöxt hérlendis. Ég hlakka
til að takast á við ný verkefni og ég er
mjög ánægður með minn eftirmann,
Jón Sigurðarson. Ég óska honum gæfu
í starfi,“ sagði Hjörtur Eiríksson.
- GS