Dagur - 01.10.1985, Síða 5
1. október 1985 - DAGUR - 5
Bragdlaukar
ráða bladaskrifum
- Valmundur Árnason í Sjallanum spurður um gagnrýni
Það geríst æði oft að menn
setja sig í dómarasæti, og
segja, bæði í ræðu og riti, að
þetta eða hitt sé ekki nógu
gott, eða betra en annað. Al-
þekkt eru skrif ritstjóra Dag-
blaðsins-Vísis í Reykjavík er
hann situr á veitingahúsum
landsins og lætur bragðlauk-
ana ráða því sem úr penna
hans kemur.
Nýlega var þessi ágæti rit-
stjóri á ferð um veitingahús
Akureyrar og bragðaði á þeim
krásum sem þar voru á boð-
stólum. Auðvitað varð margt
bragðið í munni hans til þess
að penninn varð vondur, og
annað kætti sama skriffæri.
Þeir sem mest fá fyrir ferðina
ef bragðlaukar ritstjórans kætast
ekki, eru væntanlega matreiðslu-
meistarar viðkomandi húsa. Einn
þessara matreiðslumeistara er
Valmundur Árnason sem starfar
í Sjallanum. Hann var spurður
hvernig þessi skrif kæmu við þá
sem störfuðu við veitingahúsin.
„Það er ágætt að einhver mað-
ur gefur sig út í það að fara milli
staða og dæma veitingahúsin.
Það er spurning hvort hann sé fær
um að dæma fyrir fleiri en sjálfan
sig.“
Valmundur sagði að rekstur
eins og ritstjórinn væri að dæma
gengi þunglega á Akureyri.
„Hann talar um að þurfi að hafa
meira af ferskum vörum á boð-
stólum. En það verður að segjast
eins og er að það er mál sem erf-
itt er að halda í horfinu hér að fá
ferskt hráefni, bæði grænmeti og
annað. Hins vegar er þetta að
lagast þannig að það á að vera
hægt að taka sig á í þeim efnum,“
sagði Valmundur. “Ritstjórinn
dæmir aðallega það sem við köll-
um „lausamat" sem mjög erfitt er
að halda úti hér á veitingahúsum,
vegna þess hversu fáir viðskipta-
vinir eru. Þetta gengur þokkalega
um helgar, en í miðri viku er
þetta mjög erfitt. Markaðurinn
er hreinlega ekki nógu stór til að
þetta geti verið á sama mæli-
kvarða og í Reykjavík. Þess
vegna höfum við í Sjallanum lok-
að fyrir „lausamat" í Mánasal frá
síðustu mánaðamótum. Hins
vegar tökum við hópa eins og
verið hefur. Þetta er að mínu áliti
það sem gerir að verkum að erfitt
er að reka veitingastaði með því
formi sem ritstjórinn vill.“
- Getur verið að fólk fari ekki
nógu mikið út að borða vegna
þess að það telur þennan munað
óf dýran?
„Dýr og ekki dýr. Það verða
allir að fá eitthvað fyrir sinn
snúð. Við erum að reyna að flytja
inn gott hráefni, sem þar af leið-
andi er í dýrari flokki. Það kemur
fram í grein ritstjórans að hann
telji að matur eigi að vera ódýrari
hér fyrir norðan. Það er eins og
þessir menn átti sig ekki á því að
landsbyggðafólk þarf að borga
flutningskostnað af vörum sem
Reykvíkingar hafa í nágrenninu.
Ég sé ekki að þetta eigi við rök
að styðjast hjá honum.“
- Má ætla að skrif sem þessi
hafi áhrif á aðsókn veitingahúsa?
„Það kemur á engan hátt fram
hjá okkur, því aðsókn er svipuð
og verið hefur, og fólk er ekki að
tala um þessi skrif við okkur. Það
hefur frekar komið fram að fólk
vill sýna samstöðu sína með okk-
ur og vill jafnvel láta skoðun sína
í ljósi í blöðum. Ég hef alveg lát-
ið allt slíkt afskiptalaust. Einnig
held ég að fólk sé hætt að taka
verulegt mark á þessum
skrifum."
- Hvernig snúa þessi skrif að
þér?
„Ég tel að sumt af þessu skrif-
um sé ágætt og ritstjórinn hafi
margt til síns máls. En aftur á
móti er margt af þessu rugl, sem
ekki er hægt að taka alvarlega.
Við sem eldum ofan í manninn
sjáum best hvernig þessi skrif má
oft rekja til vankunnáttu í matar-
gerð,“ sagði Valmundur Árnason
kokkur í Sjallanum, og sagði í
lokin að mikið væri framundan í
vetur hvað varðaði sælkerakvöld,
villibráðarkvöld og fleira í þeim
dúr. - gej
Valmundur Árnason.
Jesendahorniá
Hvers vegna veiðir
Snæfellið fyrir siglingu?
Fyrir skömmu var rætt við Sig-
mar Halldórsson frystihússtjóra í
Hrísey um aflabrögð, horfur í
atvinnumálum í vetur og fleira.
Fram kom í máli hans að Hrísey-
ingar hafi átt góða samvinnu við
Dalvíkinga um sameiginleg hags-
munamál, sem væru rekstur
frystihúsanna á Dalvík og Hrís-
ey. Því þessi hús væru rekin á
sameig'inlegum grunni. Ennfrem-
ur sagði Sigmar að hann hefði
kosið að sjá meira af þeim fiski
sem Dalvíkurtogararnir kæmu
með að landi. Þá væntanlega í
þeim tilgangi að halda uppi mik-
illi og góðri atvinnu í Hrísey.
Maður sem fylgst hefur vel
með þessum málum vildi koma
nokkrum spurningum á framfæri,
fyrst svo mikil velferð er borin
fyrir hagsmunum fólksins sem
vinnur í fiskvinnslunni í Hrísey:
Hvers vegna er togari þeirra
Hríseyinga, Snæfell’ - látinn sigla
og selja afla í Þýskalandi? Hvers
vegna er hann látinn selja afla í
Hafnarfirði? Hvers vegna er
hann látin selja fisk í gáma á ísa-
firði? Og hvers vegna er Snæfell-
ið nú að veiða fyrir siglingu?
Jrá Heimaey
npmenn - Kaupfélög
'
i
_______1
Birgið ykkur upp af hinum
frábæru Heimaeyjarkertum.
Látið hinn hreina loga
Heimaeyjarkertanna veita
birtu og yl.
HEIMAEY, kertaverksmiðja,
Faxastíg 46, 900 Vestmannaeyjum. Sími 98-2905.
Langar þig að syngja í kór?
Passíukórinn vantar fleira fólk, einkum karlaraddir.
Þetta er tilvalið tækifæri til að læra að syngja í kór
(nótnalestur og raddbeitingu), auk þess að kynnast
skemmtilegum og fallegum tónverkum.
Æfingar eru í tónlistarskólanum á miðvikudögum
kl. 20-22 og laugardögum kl. 15-17.
Nánari uppiýsingar í síma 26216 á kvöldin.
Samstarfshópur
í lok kvennaáratugar S.Þ.
Konur á Akureyri!
Ákveðið er að halda sýningu á handavinnu kvenna, dag-
ana 19.-20. október.
Við leitum eftir munum allt frá aldamótum og fram á þennan
dag. Þær konur sem eiga eitthvað í fórum sínum eða vita af
hjá öðrum, vinsamlega hafið samband við:
Júdithi Sveinsdóttur, sími 24488 eða
Margréti Kröyer, sími 23527.
Konur norðan Akureyrar hafi samband við Ragnhildi Sigvalda-
dóttur, sími 96-61218.
Skotveiðimenn!
Haglaskot í urvali. Verð frá kr. 13,50
pr. stykki í heilum kössum (200 skot í
kassa = 2.700).
Opid alaugardögum 10-12.
\Si
Eyfjörð
Hjalteyrargötu 4 - simi 22275
herb. íbúð
Viljum taka 2ja herb. íbúð á leigu fyrir starfsmann
frá 1. okt. nk.
Nánari upplýsingar hjá Jóni Arnþórssyni í síma
21900.
iðnaðardeild Sambandsins,
Akureyri.
Aðalfundur
Framsóknarfélags Akureyrar
verður haidinn fimmtudaginn 10. október að
Hótel KEA og hefst kl. 20.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning fulltrúa á kjördæmisþing.
Stjórnin.