Dagur - 01.10.1985, Side 6

Dagur - 01.10.1985, Side 6
6 - DAGUR - 1. október 1985 Sláturhús KÞ Húsavík: Meðalvigt fyrstu dagana 14,113 kg Slátrun hófst hjá Sláturhúsi KÞ á Húsavík þann 12. sept. síðastliðinn. „Þetta fer nokkuð vel af stað. Við stöndumst áætlun fullkomlega og vonum að allt gangi vel,“ sagði Jóhannes Þórarinsson, sláturhús- stjóri. Slátrun á að ljúka 16. okt. og er áætlað að slátra 43 þús. fjár eða um 3 þús. fleira en í fyrra. Um 130-140 manns vinna við slátrunina og gekk nokk- uð vel að fá fólk til vinnu. Meðalvigt fyrstu fimm dagana er 14,113 kg á dilk. í fyrra var meðalvigt í sláturtíðinni 14,5 kg, en það skal at- hugað að það fé sem slátrað var fyrstu dagana var úr upp- sveitum og sagði Jóhannes að bændur þar hafi fengið mun betri meðalvigt í fyrra. Hann telur nokkurn veginn augljóst að meðalvigt eigi eftir að lækka verulega. Ný- lega hafa verið gerðar miklar endurbætur á aðstöðu til stórgripaslátrunar í húsinu og sett upp banabox fyrir stórgripi. - IM. Smáhlé við slátrunina. Þorsteinn Sigurgeirsson, < Unnið við fláningu. Skrokkarnir klæddir i plast at Margreti og Helgu. Sláturhússtjór kjötsalnum. Gamla fjósið á Möðruvöllum fær senn nýtt hlutverk. Nýreist hlaða við tilraunafjósið að Möðruvöllum. „Við buum til haust og vetur í frystikistum" Möðravellir í Hörgárdal eru fyr- ir margt sögufrægur staður. Kirkjustaður til margra alda, klausturstaður, menntasetur, amtmannssetur. A Möðruvöll- um hefur brunnið oftar en á öðrum stöðum á landinu. I flestum ef ekki öllum tilfellum er það vegna klaufaskapar mannanna. Búskapur hefur verið stundaður á Möðruvöll- um frá fyrstu tíð, og alltaf þótt kostajörð. í dag er á Möðruvöllum starf- semi sem tengist búskap á þann hátt að þar er tilraunastarfsemi sem stuðlar að betri nýtingu jarða og þess sem þær gefa af sér. Starfsemi tilraunastöðvarinnar hófst á Möðruvöllum 1974. Áður var hún allt frá 1903 til húsa í Gróðrarstöðinni á Akureyri. Nýlega fórum við í skoðunar- ferð að Möðruvöllum. Leiðsögu- maður var Jóhannes Sigvaldason tilraunastjóri stöðvarinnar. Hann tók við starfi tilraunastjóra Til- raunastöðvarinnar á Möðruvöll- um, eins og hún heitir, árið 1983. Það fyrsta sem við skoðum er fjósið á Möðruvöllum, það er að segja nýja fjósið. Það var tekið í notkun á haustdögum 1984. Þetta fjós hýsir 48 kýr á básum, auk þess sem þar eru stíur fyrir kálfa. Jóhannes segir að fjósið, sem er allt hið vandaðasta, sé rýmra en bændur byggi yfirleitt vegna þess að rúmt þurfi að vera fyrir þá starfsemi sem þarna fer fram. Til- raunir hafa vart byrjað að nokkru marki í fjósinu þannig að því Ieyti sé lítil reynsla komin á húsið. En sem fjós sé húsið allt hið besta og reynist vel. Það hefur tekið langan tíma að byggja fjósið. Byrjað var á bygg- ingunni 1976, „svo það er búið að basla í þessari byggingu í 9 ár,“ segir Jóhannes. Áætlað er að í nýja fjósinu fari fram tilraunir varðandi fóðrun kúa og kálfa. „Við eigum nóg af heyi til vetrar- ins,“ segir Jóhannes, þegar við göngum inn í hlöðuna sem er sambyggð fjósinu. Allar tilraunir sem þarna fara fram eru tengdar íslensku fóðri, og þá mest þurr- heyi. Hugmyndir eru uppi um að mala þurrhey til gjafar, og reyna þannig að auka það magn sem hægt er að láta hverja skepnu éta. Þarna er um að ræða að nýta innlent fóður betur en nú er gert, til að spara fóðurbætiskaup. „Það er mikil vinna og þarf mikið hug- vit til að gera slíkar tilraunir,“ segir Jóhannes. „Og það vantar sérstaklega hugvit,“ bætir hann við. Tilraunastöðin á Möðruvöllum er rekin af Ræktunarfélagi Norð- urlands og Rannsóknastofnun landbúnaðarins. Ríkið stendur straum af tilraununum, en Rækt- unarfélagið ber ábyrgð á bú- rekstrinum. Áður var tilraunabúið með fjárbúskap samhliða kúabú- skapnum. Það voru um 200 fjár. Fénu hefur nú verið fargað, því Möðruvallabúið er háð búmarki eins og önnur bú á landinu. Þess vegna var búmark fjárins fært yfir á kýrnar. Verið er að vinna heildarskipu- lag fyrir svæði tilraunastöðvar- innar. Mun þá verða ákveðið um staðsetningu nýrra bygginga, nýt- ingu þeirra sem fyrir eru. Verið er að gera upp gamla fjósið á Möðruvöllum. Þar verður tvenns konar starfsemi. Annars vegar mun skapast góð aðstaða vegna gróðurtilrauna. Sú aðstaða er nú í bílskúr sem Bjarni Guðleifsson hefur leigt tilraunastöðinni. Þar eru gerðar kaltilraunir, sem

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.