Dagur


Dagur - 07.10.1985, Qupperneq 3

Dagur - 07.10.1985, Qupperneq 3
7. september 1985 - DAGUR - 3 Islandsmet? Á aðalfundi Garðræktarfélags Reykhverfinga hf. síðastliðinn laugardag baðst stjórnarfor- maðurinn Hrólfur Árnason undan endurkosningu. „Mér fannst það orðið tímabært, enda farinn að finna fyrir aldr- inum,“ sagði Hrólfur. Hann tók við sem stjórnarformaður félagsins 32ja ára gamall og þó Hrólfur beri aldurinn vel eru liðin 50 ár síðan. Hugsanlegt er að Hrólfur hafi hér sett íslandsmet í stjórnarfor- mennsku. Hreiðar Karlsson kaupfélags- stjóri á Húsavík var kjörinn for- maður stjórnar í stað Hrólfs. Og er hann sjötti maðurinn sem gegnir þessu embætti hjá félaginu en það hefur starfað samfleytt frá stofnun 1904, og gæti því verið elsta starfandi hlutafélag á land- inu. Þeir Steingrímur Jónsson sýslumaður, Bjarni Benediktsson kaupmaður, Stefán Guðjónsen kaupmaður og Sigurður Bjark- lind kaupfélagsstjóri voru stjórn- arformenn félagsins fyrr á árum. - IM ,Við getum ekki haldið áfram að hittast svona...‘ Mynd: KGA „Þetta er að verða öflug fjöldahreyfing" - segir Pétur Valdimarsson formaður Samtaka um jafnrétti milli landshluta Landssamtök um jafnan rétt milli landshluta héldu fund að Hótel Varðborg sl. sunnudag. Aðalmálefni fundarins var stofnun Akureyrardeildar samtakanna og kosning stjórnar. Stjórnin hefur ekki skipt með sér verkum, en hana skipa: Gunnar Pétursson, Halldór Backman, Kristján Baldursson, Lára Ellingsen, Olafur H. Torfason, Sigurður Jónsson og Sólrún Sveinsdótt- ir. jafnan rétt milli landshluta er Pétur Valdimarsson. Hann er nú nýkominn úr ferð um Vestfirði. Þar voru stofnaðar deildir sam- takanna á Bolungarvík, ísafirði, Suðureyri, Flateyri, Þingeyri, Bíldudal og Patreksfirði. Reiknað er með að í lok októ- ber eða í byrjun nóvember verði búið að stofna deildir um allt land og þá verði boðað til sam- eiginlegs fundar fulltrúa allra deilda til að taka ákvarðanir um framhaldið. áætla að félagar í samtökunum væru nú nálægt 10000 að tölu. „Þetta er því að verða öflug fjöldahreyfing, mun öflugri en maður þorði að vona í upphafi,“ sagði Pétur ennfremur. BB. Hæg heimatökin: „Mini- golf“ og sund Bæjarstjórn Akureyrar hefur veitt Sundfélaginu Óðni leyfi til reksturs „mini-golfs“ á lóð Sundlaugar Akureyrar á kom- andi sumri. Bæjarstjórn hafði tvívegis áður hafnað umsókn- um um hliðstæðan rekstur á lóðinni. Forsaga þessa máls er sú að stjórn Sundlaugar Akureyrar sótti um það fyrir allnokkru síðan að fá að setja upp „mini-golf“ á lóð sundlaugarinnar. Því var hafnað. Næstir til að leita á náðir bæjarstjórnar í sömu erindum voru fulltrúar einkaframtaksins. Sterkustu rökin fyrir að neita þeim um leyfi voru þau að mjög gott samstarf þyrfti að vera við stjórn sundlaugarinnar varðandi þennan rekstur og því ekki ráð- legt að hann væri í höndum einkaaðila. Það er því ekki fyrr en nú, í þriðju atrennu, sem Sundfélagið Óðinn hreppir hnossið, með þeim skilyrðum þó að samráð skuli haft við sundlaugarstjórn og íþróttaráð og þeim skilyrðum hlýtt sem þau setja. BB. Formaður Landssamtaka um Pétur Valdimarsson sagðist r Húsavík: Utflutningsostur fluttur landleiðina Tveir dráttarbílar með gáma- grindur voru sendir af Skipa- deild SÍS til að flytja 34 tonn af osti frá Mjólkurstöð KÞ til Rcykjavíkur. Þar var ostagám- unum komið fyrir um borð í skipi og fluttir til Svíþjóðar. Fram að þessu hafa strand- ferðaskip verið notuð til slíkra flutninga, en þar sem ekkert skip sem hentaði til þessara flutninga var á áætlun á þessum tíma voru bílarnir sendir. Gróflega reiknað mun þurfa um 340 tonn af mjólk til að fram- leiða ostinn, sem fluttur var á þennan nýstárlega hátt. - IM Gámunum komið fyrir á bílunum. Mynd: I.M. HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐ Á AKUREYRI Taktu nú tímann! Ef þér tekst að lesa þennan texta og gera þér fulla grein fyrir innihaldi hans á 14 sekúndum óskum við þér til hamingju með árangurinn og þökkum fyrir ómakið. Ef ekki, gæti Hraðlestrarskól- inn orðið þér verulega að liði í námi og starfi. Við kennum nýjar aðferðir við lestur, sem geta margfaldað lestrarhraða. Það þarf tæpast að fara mörgum orðum um hagnýti þess fyrir námsmenn, stjórnmála- menn, stjórnendur fyrirtækja, kennara, lög- fræðinga, fjölmiðlamenn og reyndar alla þá sem þurfa að lesa og hafa á reiðum höndum geysilegt magn upplýsinga og staðreynda. 6 vikna hraðlestrarnámskeiðin okkar út- heimta talsverða vinnu og ástundun, en þegar upp er staðið getur árangurinn spar- að ómældan tíma og gert mönnum starf eða nám léttara og árangursríkara. Næsta námskeið hefst laugardaginn 12. okt. og kostar 3.800 krónur. Upplýsingar og innritun eru í síma 91-16258 milli klukkan 8 og 10 á kvöldin. HRAÐLESTRARSKÓUNN - 14 sekúndur.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.