Dagur - 23.10.1985, Qupperneq 5
_JDækuL
23. október 1985 - DAGUR - 5
Ofsjón listarinnar
Guðmundur Daníelsson:
Tólftónafuglinn
Útgefandi: ísafoldarprentsmiðja
Kápa bókarinnar vekur strax at-
hygli. Á forsíöu er mynd af
„Tólftónafuglinum" en á baksíðu
tvær myndir af höfundi. Á ann-
arri er hann ungur og fallegur,
hinni gamall og ljótur. Þar er og
kynning á bók og höfundi. Kápan
er vel gerð af Halldóri Árna
Sveinssyni. Milli fyrrnefndra
mynda eru þrjú ártöl: Fyrst 1910
sem er fæðingarár Guðmundar;
hann er því 75 ára, blessaður.
Annað ártalið er 1935 en þá kom
út fyrsta skáldsaga hans, Bræð-
urnir í Grashaga. Hann á því tvö-
falt afmæli, maðurinn og rithöf-
undurinn, þó að hann hafi raunar
gefið út ljóðabók fyrr, eða 1933.
Héðan fær hann heilshuga ham-
ingjuóskir og þökk. Þriðja ártalið
er 1985; þá gefur sama forlag út
þessa bók og hina fyrstu, ísafold-
arprentsmiðja, og gerir það af
smekkvísi.
Á þessu bili hefur komið út
nær ein bók á ári; ég veit um 46,
auk þýðinga. Þar fyrir utan hefur
hann skrifað firn í blöð og ritstýrt
nokkrum. En aðalstarfið hefur
verið kennsla og skólastjórn.
Sæmilegt dagsverk það!
Ég má til með að gerast pers-
ónulegur á þessum tímamótum
Guðmundar, þessa mikilhæfa og
-virka rithöfundar. Það er vegna
smáatviks sem kom fyrir í sam-
bandi við fyrstu skáldsögu hans.
Ég var unglingsskjáta er Bræð-
urnir í Grashaga voru lesnir
heima, hafði verið sendur í
hrossaleit sem oftar. Þoka var og
rigning. Ég kom því heim svang-
ur og votur, án þess að finna
bikkjurnar. Eldri bræður mínir
tóku erindisleysinu illa og skip-
uðu mér að fara og leita betur. Þá
spyr faðir minn: „Á nú að hafa
það við drenginn eins og þann í
Grashaga?" Þetta varð til þess að
ég fékk að borða og hafa fata-
skipti. Segi menn svo að skáld-
skapur sé einskis virði fyrir
mannlífið! Þetta þakka ég Guð-
mundi þótt seint sé.
En snúum okkur nú að þessari
nýju bók. Þetta er svokallaður
lykilróman, þ.e. verk byggt á
raunverulegum atburðum. Allir
munu þekkja staði þá er hún
Kristján
frá Djúpalæk
skrifar
fjallar um, þó undir gervinöfnum
séu; persónur munu og flestar
þekkjanlegar, a.m.k. af kunnug-
um. Þetta má kalla hvort tveggja
kost og galla. Hér í fámenninu,
þar sem allir þekkja alla, vekur
það spennu og kitlar forvitnina
um náungann. Hins vegar gæti
það valdið gremju, jafnvel sárs-
auka; því þótt höfundur unni
þessum persónum og dái þær á
sinn hátt er hann stundum svolít-
ið gráglettinn. En bókin er vissu-
lega skemmtilestur um alvarjegt
mál.
Vettvangur sögunnar er sjávar-
þorpið Skervík, söguhetjan
Valdimar, rithöfundur og kenn-
ari. Það stendur til að halda upp á
aldarafmæli barnaskólans, elsta
barnaskóla landsins. Sveitarstjór-
inn Elías hefur í mörgu að
snúast, rithöfundurinn er oft
truflaður.
Annað er þó meira en aldur
skólans; þar hafa fleiri listamenn
stundað nám en annars staðar.
Þorpið er gróðrarstöð slíkra, þótt
þeir séu nú allir brottfluttir.
„Mikilmenna“ getur ekki heima;
en þau scm fóru hugsa hlýtt til
æskustöðva og eitt sinn hafði
hópur þeirra komið og gróðursett
mörg tré. Þau þoldu hins vegar
ekki saltstorma strandarinnar og
dóu öll, utan eitt grenitré sem
tórði, en varð þó eins og van-
skapningur vegna ytri kjara,
raunar líkast þúfu.
Tveggja snillinga er mest getið
hér af frumgróðri þorpsins. Það
eru Jónmundur myndhöggvari,
„Jonni frá Suðurkoti“, og svo
Agnar Magnús, „Aggi Maggi“.
Hann er þó ekki raunverulegur
listamaður heldur sá er kemur
listinni á framfæri og gerir
skapendum hennar fært að hafa
að éta.
Það þarf að skrifa afmælisrit.
Aggi Maggi ætlar að gefa það út,
þorpinu að. kostnaðarlausu.
Hann ætlar líka að láta mynd-
höggvarann gera minnismerki í
stein af einum frómum skóla-
stjóra og gefa heimaþorpinu sínu
almennilega höfn, svo að bátana
hætti að reka upp á bryggju og
drepa af sér menn.
Einhvern veginn fer svo að
ekkert af þessu kemst í
framkvæmd. En aftur á móti gef-
ur Aggi Maggi Bandalagi lág-
launafólks dýrmætt listaverka-
safn (og hús undir það) og Félagi
einsöngvara hljómleikahöll. Og
þessir aðilar láta Jonna frá
Suðurkoti gera minnismerki um
gefandann og reisa í þorpinu
hans. Það er „Tólftónafuglinn“,
nútímalistaverk:
„Hann var úr svörtum málmi,
tuttugu metra hár óreglulega til
sniðinn bjálki, gegnumstunginn
tólf járnfleinum, grönnum og
gildum á víxl, og allir sem einn
sveigðir á ská niður á við, með
kúlur á endunum, þær minnstu
álíka og hrútspungar á stærð,
aðrar sem manns höfuð, þær
stærstu á stærð við fótbolta . . .
Líklega táknuðu fleinarnir flug-
fjaðrir. Þeir stóðu mishátt í
búknum miðsvæðis . . . Flestir
þeirra voru sveigjanlegir. Þess
vegna hlutu þeir að slást saman í
vindi og gefa frá sér mismunandi
hljóð, gjöll, ym og glymjanda,
stormþyt, klukknahljóm. Há-
spennuguð og drottinn! Myndjón
var flókið dæmi. Fugl hans var
ráðgáta."
Svona lýsir höfundur nútíma-
listinni skemmtilega; og margt
gerist merkilegt í þessum gróður-
reit fyrir listamenn - sem fara.
Hinir sem eftir sitja eru bara
venjulegt fólk. Afmælisundir-
búningur heldur áfram, hvað sem
tautar og raular, og hátíðin mikla
í tilefni þess er haldin.
Þó að bók þessi sé skrifuð í
glettnum tón, dálítið gráum,
varðar hún alvörumál: andúð á
fáránleika og yfirborðsskap.
bylgjur rísa á sæ og brotna, aldan
kemur og fer, hafið varir eilíft.
„Tólftónafuglinn“ ryðgar og fellir
fjaðrir, hið kræklótta tré í sand-
og seltuvindum þraukar og bætir
við sig grænum nálum vor hvert.
Hinn venjulegi maður, hið
venjulega þorp, hvar sem er í
heimi. Én tilhlaup tískuþjónanna
verður að knéfalli.
-Jesendahornið.
011 vandamál leyst samstundis
- Sitt sýnist hverjum um dagblaðið Dag
Á kaffitímum á Súlnabergi er viss
hópur manna sem setur svip sinn
á staðinn. Það eru hinir svoköll-
uðu fastagestir.
Umræðan hjá þessum hópi
manna er mjög víðfeðm. Þarna
eru leyst á einu bretti öll vanda- 1
mál ltðandi stundar - og önnur,
búin til. Allir helstu góðborgar-
arnir, svo og hinir minni háttar,
fá þarna svo sannarlega sína
meðhöndlun.
Af hreinni tilviljun var undir-
ritaður staddur við borð einnar
staðarklíkunnar þegar dagblaðið
Dag bar á góma.
Sitt sýndist hverjum um þær
breytingar sem urðu á blaðinu
við dagblaðsfæðinguna og lögðu
allflestir orð í belg. Fullyrðingar
eins og: Útþynnt efni, æsifrétta-
blað, eintóinar auglýsingar, gott
- -
UUKIK viii -
framtak, nauðsynlegur hlutur,
o.fl. o.fl. heyrðust. Sjónarmiðin
voru mörg enda mislitur hópur
við borðið.
En væri ekki gott fyrir hið ný-
fædda dagblað að beina augum
sínum sem mest til hins almenna
lesanda til að fá sem mesta inn-
sýn í það hvað fólkið raunveru-
lega vill?
„Terían" lætur ekki að sér
hæða. Þarna svífur andi fræðslu
og skemmtiefnis yfir borðum á
hverjum morgni og eflaust gæti
blaðið haft þar mann á fullum
launum við að vinna upp fréttir.
Sennilega þyrfti þó fljótt að
fjölga þar í starfsliðinu - því
sannleiksgildið er góðum blöðum
nauðsyn.
Já þær eru svo sannarlega
margar leiðirnar til fjölbreyttrar
fréttamennsku.
Baráttukveðjur.
Sveitavargur.
j^Skotveiðifélag^ v
Eyjafjarðar
Fundur fimmtudaginn 24. október kl. 20
að Skipagötu 2.
Fundarefni:
1. Þaulvanur fjallamaður leiðbeinir um notkun
áttavita og útbúnað til fjallaferða.
2. Önnur mál.
Félagar fjölmennið. Nýir félagar velkomnir.
\
Stjórnin.
Opið allan daginn.
Sími 23126.
Sölustjóri:
Einar Haraldur.
Lögmaöur:
Páll Skúlason, hdl.
FASTEIGNASALA
Ný fasteignasala
á Akureyri
Vantar eignir af öllum stærðum og gerðum á
skrá, nú þegar.
Anpro - Reykjavík - Anpro - Akureyri.
1930 1985
Félag verslunar- og skrifstofufólks
Akureyri
55 ára
afmælisfagnaður F.V.S.A.
verður haldinn 2. nóvember 1985 í Alþýðuhús-
inu, Skipagötu 14, 4. hæð.
Gestum heilsað með Tropical Punch kl. 19.30.
Borðhald kl. 20.00 stundvíslega.
Ávarp formanns.
Skemmtiatriði.
Happdrætti.
Hljómsveit leikur fyrir dansi til kl. 03.00.
Félagar og velunnarar láti skrá sig á skrifstofu
F.V.S.A. fyrir 29. október.
Miðasala á skrifstofunni Skipagötu 14 31. október og
1. nóvember. Miðaverð kr. 500,-
Skemmtinefndin.
Gömludansaklúbburinn SPORIÐ.
Göndudansanámskeið
fyrír alla aldurshópa
verður í Dynheimum dagana 25., 26. og 27. okt. ef
næg þátttaka fæst. Leiðbeinandi er Helga Þórarins-
dóttir frá Þjóðdansafélgi Reykjavíkur.
Fyrirhugað er að stofna dansklúbb í lok námskeiðs
fyrir unglinga á aldrinum 12-18 ára.
Skráning og uppl. í Dynheimum í síma 22710. Enn er
skráning í fullum gangi.
Síðasti innrítunardagur fímmtudagurínn 24. októ
ber til kl. 22.00.