Dagur - 30.10.1985, Page 2
2 - DAGUR - 30. október 1985
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 360 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 35 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GI'SLI SIGURGEIRSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFÍ KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN,
GESTUR E. JÓNASSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík),
YNGVI KJARTANSSON, KRISTJÁN G. ARNGRIMSSON,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRIMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Jeiðari___________________________________
Hin sjálfsagða
byggðastefna Skota
Nýlega fóru 20 Norðlendingar, aðallega sveitar-
stjórnarmenn, í ferð til norðurhluta Skotlands.
Ferðin var skipulögð af Fjórðungssambandi Norð-
lendinga og í samráði við Highlands and Islands
Development Board, sem er eins konar þróunar-
stofnun fyrir hálönd Skotlands og eyjarnar vestur
og norður af.
Þótt margt sé ólíkt með stjórnarfari og sveitar-
stjórnarmálum í Skotlandi og á íslandi má vafa-
laust margt af Skotum læra hvað varðar uppbygg-
ingu og þróun þeirra svæða sem fólksflótti hefur
hrjáð um aldir. Fyrir tuttugu árum var fyrst tekið á
þessu vandamáli af alvöru, en þá hafði fólksflóttinn
frá hálöndunum og eyjunum staðið í um tvær aldir.
Nú er gífurlegu fé varið til þess að viðhalda byggð,
einkum með því að byggja upp atvinnufyrirtæki og
auka þar með atvinnuframboðið.
Að þessu er unnið með ýmsum hætti, bæði á
ríkisstjórnargrundvelli og sem verkefni fylkisins,
Highlands Regional Council. Almennt má segja að
þarna sé um stjórnarstefnu að ræða sem að sumu
leyti er tilkomin vegna nauðungarflutninga og gíf-
urlegra erfiðleika fólks í þessu geysistóra en
strjálbýla landi.
Árið 1965 var sett á fót Higlands and Islands De-
velopment Board eða Þróunarstofnun hálandanna
og eyjanna sem hefur haft til umráða gífurlegt fé
og mikil völd. Hin almenna stefna og þessi áhrifa-
mikla stofnun hafa valdið því að fólksflóttinn frá
þessum strjálbýlu héruðum hefur nú hætt og fólki
er farið að fjölga á nýjan leik. Á árabilinu 1973 til
1983 hafði með aðgerðum stofnunarinnar tekist að
skapa um 23.500 ný störf í 7 þúsund fyrirtækjum.
Allt er þetta starf unnið samkvæmt arðsemiskröf-
um og með hag þjóðarinnar allrar að leiðarljósi er
til langs tíma er litið.
Stofnunin getur lánað eða styrkt fyrirtæki með
allt að 50% af stofnkostnaði og í undantekningar-
tilvikum 70%. Hún getur keypt hluti í fyrirtækjum
og ráðið framkvæmdastjóra, veitt sérfræðiaðstoð
og starfsþjálfun, keypt og selt land og byggt iðn-
garða, aðstoðað á félagslegum sviðum, s.s. með
framlögum til kaupfélagsverslana í minnstu þorp-
unum, styrkt kynningar- og markaðsmál fyrir
svæði eða fyrirtæki, stofnað og rekið eigin fyrirtæki
og hún átti 314 slík fyrirtæki í árslok 1983 og var
mögulegt að fá um 70 þeirra leigð. Þá getur stofn-
unin aðstoðað við ýmiss konar áætlanagerð.
Þróunarstofnunin starfar í nánu samráði við fylk-
is- og svæðastjórnir, en þess ber að geta að sveit-
arstjórnarmál eru með allt öðrum hætti í Skotlandi
en á Islandi. I Skotlandi eru engar eiginlegar sveit-
arstjórnir, heldur svæðastjórnir og fyrir allt há-
landasvæðið og eyjarnar er fylkisstjórn. Þrátt fyrir
þennan mun gætu íslendingar lært mikið af
Skotum, einkum hvað varðar þann sjálfsagða
hugsunarhátt og það hugarfar sem ríkir gagnvart
strjálbýlinu þar.
__viðtal dagsins.
j Kristbjörn Óskarsson í viðtali:
A 501 penna og
enga tvo eins
„Nú eru þeir orðnir 493,“
sagði Kiddi við mig fyrir
nokkrum dögum. Næst þegar
við mættumst voru þeir orðnir
497. Og loks rann upp hinn
langþráði dagur. Þeir voru
orðnir 500. Kiddi sem heitir
raunar Kristbjörn Oskarsson
safnar pennum. Við vorum
löngu búin að ákveða að hann
kæmi í viðtal þegar pennarnir
væru orðnir 500 og nú er þessu
takmarki náð pennarnir orðnir
501.
- Hvernig þarf penni að vera
til að komast í safnið þitt Kiddi?
„Ég safna alls konar pennum,
en þeir þurfa að vera merktir
fyrirtæki, stofnun, einstaklingi,
stað eða landi eða að vera mjög
óvenjulegir útlits."
- Hvar fékkst þú hugmyndina
að því að gerast pennasafnari?
„Ég stundaði nám í þrjá vetur
við Öskjuhlíðarskóla. f Reykja-
vík kynntist ég konu sem heitir
Ágústa Hjálmtýsdóttir og hún á
stórt pennasafn. Hjá henni fékk
ég hugmyndina.“
- En hvernig hefur þú eignast
alla þessa penna?
„Fólk hefur gefið mér þá. Við
Ágústa höfum samband og ef við
eigum tvo eins þá skiptum við á
þeim. Þegar ég var búinn að
safna 300 kom viðtal við mig í
Víkurblaðinu og þá fréttu margir
af þessu og sendu mér penna.
Þeir komu frá fólki bæði sem
ég þekkti og þekkti ekki. Oft fæ
ég senda penna í pósti og það er
ekki einu sinni merkt frá hverjum
þeir koma, þá er maður að velta
fyrir sér hver hafi sent þá.“
- Nú ertu í viðtali við Dag.
Áttu von á að lesendur blaðsins
hugsi til þín, ef þeir eiga svona
penna sem þeir mega sjá af?
„Ég vona það. Ég er ákaflega
þakklátur því fólki sem hefur gef-
ið mér penna. Það er mjög gam-
an að eiga svona safn.“
- Ætlar þú að halda lengi
áfram við þessa söfnun?
„Ég veit það ekki. Þar til ég
hef eignast flestar tegundir sem
hægt er að fá og ég á ekki fyrir."
- Áttu einhvern uppáhalds-
penna?
„Þeir eru allir fallegir. Ég á
penna sem eru merktir mörgum
stöðum og fyrirtækjum á Islandi.
Svo hefur fólk sem ferðast er-
lendis fært mér penna. Þeir eru
margir skemmtilegir."
- Veistu um fleiri svona stór
pennasöfn?
„Ég þekki einn annan á Húsa-
vík sem safnar pennum, en veit
ekki hvað hann á marga.“
Ég fékk að skoða pennana
hans Kidda. Það var virkilega
gaman. 501 penni og engir tveir
eins. í safninu eru litlir pennar og
stórir pennar. Venjulegir pennar
merktir fyrirtækjum og pennar
frá fjarlægum íöndum. Ýmsir
undarlegir pennar jafnvel hring-
laga, nokkrir sem fljótt á litið
virðast ekki vera pennar.
Þess skal getið að Kiddi býr að
Höfðavegi 8 á Húsavík ef ein-
hvern sem þetta les mundi langa
til að gleðja hann með penna-
sendingu. - IM
K/URW FJARAN'N' VFR
OSS/ /9£> T/9L/J OM /)Ð
FFTm VÆR/ K//FFI-
VFL/N /)Ð F/)fV1 SOFUF
FG PEF/V/ A/Ú kMFFf-
VFÍ FFÚ fo/v/vf/? !
ttt^