Dagur - 30.10.1985, Blaðsíða 9

Dagur - 30.10.1985, Blaðsíða 9
30. október 1985 - DAGUR - 9 -JþróttÍL Umsjón: Kristján Kristjánsson „Bestu leikmenn Þórs eiga að ganga í KA“ - segir Ljubo Lazic þjálfari KA í handbolta Sigurður Pálsson KA-maður gekk yfir í raðir handknattleiksmanna KA úr Þór nú í haust. Nú vill Ljubo þjálfari sem sést á myndinni með Sigurði fá fleiri Þórsara til KA. Eins og flestum er kunnugt hefur 1. deildar keppnin í handknattleik legið niðri nú um skeið, vegna æfingaferðar landsliðsins til Þýskalands og Sviss. Þó hafa flest lið lokið 6 leikjum og þar á meðal KA. Blaðamaður Dags hafði sam- band við Ljubo Lazic þjálfara KA og ræddi við hann um mótið, það sem búið er og einnig um framhaldið. Hann var fyrst spurður hvort hann væri ánægður með stöðu KA í deildinni? „Ég er þokkalega ánægður með það sem komið er, þó er ég ekki sáttur við að hafa tapað leikjunum gegn Fram og KR í Reykjavík. Dómararnir komu í veg fyrir sigra í þeim leikjum. Dómararnir eru jafn ábyrgir og leikmenn gagnvart því að gera vel. Við virðumst þurfa að vera 6-7 mörkum yfir um miðjan seinni hálfleik í leikjum í Reykja- vík til að merja sigur. Þá vita það flestir að bæði dómarar og félög í Reykjavík, vilja KA í 2. deild. Það er svo sem skiljanlegt með félögin vegna kostnaðar, en það er óskiljanlegt með dómarana." - Hvað um framhaldið á ís- landsmótinu? „KA-liðið á ennþá möguleika á 3ja sætinu og þangað stefnum við. En okkur vantar miklu betri stuðning frá áhorfendum, bæði til að hvetja okkur og eins til að veita dómurunum aðhald. Það á að vera metnaður bæjarbúa að hér sé gott 1. deildar lið. Við eigum að spila 5 leiki í nóvember og þar af 3 heima, gegn FH, KR og Stjörnunni, en úti gegn Val og Víkingi. Heima- leikina eigum við að vinna, en ég held að við eigum ekki mögu- leika gegn Val og Víkingi fyrir sunnan, einfaldlega vegna þess að þau eru sterkari en KA. Liðið hefur orðið fyrir áfalli við að missa Jón Kiistjánsson vegna meiðsla, en það eru leik- menn í liðinu sem geta fyllt skarð hans. Þá hef ég beðið Erlend Hermannsson að spila með í næstu leikjum, hann er búinn að vera lengi í handbolta og er yfir- vegaður og snjall leikmaður. Annars er málið það, að KA er í 1. deild, en Þór í 3. deild, þess vegna ættu toppmennirnir í Þór að ganga til liðs við KA og aftur þeir leikmenn KA sem ekki kom- ast í liðið þar, að spila með Þór. Það er betra að eiga eitt lið í 1. deild, heldur en tvö í 2. deild og mér sýnist Þórsararnir ekki lík- legir til að komast í 2. deild.“ - Nú er Þorvaldur Jónsson markvörður hættur að æfa með' KA, hvað viltu segja um það? „Þorvaldur fór ekki eftir regl- um sem ég hef sett, þó reyndi ég að hliðra til fyrir honum t.d. í suðurferðum. Þær ferðir eru ekki neinar fjölskylduferðir. í fyrra var Þorvaldur markvörður númer 1, en í ár númer 2, það er eðlilegt að betri markvörðurinn spili. En ég lét Þorvald vita það að ég vildi að menn færu eftir því sem ég segði, en hef ekki séð hann síðan. í íþróttum verða allir að sitja við sama borð og fara í einu og öllu eftir því sem þjálfarinn segir.“ Að lokum vildi Ljubo Lazic ítreka það að bæjarbúar kæmu á leiki KA hér heima og létu vel í sér heyra á áhorfendapöllunum. Landsleikur til Akureyrar? Handknattleikssamband ís- lands hefur boðið forráða- mönnum íþróttafélaganna á Akureyri að fá norður, lands- leik á milli Islands og V,- Þýskalands sem fyrirhugaður er 7. des. næstkomandi. Ekki þarf að fjölyrða um það hversu mikill áhugi er hjá norð- lenskum handknattleiksunnend- um, að fá landsleik til Akureyrar. Málið er í athugun og mun blaðið fylgjast með framvindu rnála og tilkynna um leið og eitthvað verður ákveðið. V.-Þjóðverjar eru með eitt af sterkustu hand- knattleiksliðum í heimi og væri virkilega gaman að sjá þá í leik á fjölum íþróttahallarinnar á Ak- ureyri. 70 ára afmælis hátíð Þórs íþróttafélagið Þór varð 70 ára 6. júní síðastliðinn. Af því til- efni heldur félagið mikla og veglega afmælishátíð laugar- daginn 9. nóvember í Félags- borg. Hátíðin hefst með borðhaldi kl. 19.30 og verða flutt stutt ávörp og viður- kenningar veittar á meðan á borðhaldi stendur. Einnig verður dagskrá af léttara tag- inu og síðan stiginn dans til kl. 03. Veislustjóri verður Arnar Einarsson Ekki hafa allir verið jafn hrifnir af staðsetningu hátíðar- innar, en aðspurður kvað Bene- dikt Guðmundsson formaður Þórs, það ekki vera aðalmálið hvar hátíðin væri haldin. Held- ur það að allir félagar létu sjá sig á staðnum og sýndu þar sam- stöðu sína á þessum tímamót- um. Forráðamenn félagsins skora á alla velunnara Þórs að mæta á afmælishófið þann 9. nóvember. Þá verður einnig í tilefni þess- ara tímamóta gefin út vönduð bók, skráð af Gylfa Kristjáns- syni blaðamanni. í bókinni er fjöldi viðtala og ýmis fróðleikur úr sögu félagsins. Elín Jónsdóttir kvennaflokki. Þórleifur Karlsson 6. flokki og markakóngur KA 1985. Sigurður Ólason 5. flokki. Jóhannes Baldursson 4. flokki. Helgi Jóhannsson 3. flokki. Sverrir Björnsson 7. flokki. Myndir af verðlaunahöfum á uppskeruhátíð knattspyrnudeildar KA

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.