Dagur


Dagur - 30.10.1985, Qupperneq 3

Dagur - 30.10.1985, Qupperneq 3
30. október 1985 - DAGUR - 3 Tölvuvædd framleiðslustýring: Ráðstefna í Mánasal Næstkomandi fímmtudag klukkan 15.30 gengst Iðnþró- unarfélag Eyjafjarðar fyrir ráðstefnu þar sem Páll Jensson, forstöðumaður Reiknistofnunar Háskólans, flytur fyrirlestur um tölvu- vædda framleiðslustýringu, m.a. í frystihúsum. Fyrirlestur- inn verður í Mánasal Sjallans. Fjallað verður almennt um notkun tölva við framleiðslu- skipulagningu og í því sambandi mun Páll ræða sérstaklega um framlegðarhugtakið og nýjar hugmyndir um rétta og ranga notkun þess. Þá verður nýþróað ákvarðanakerfi fyrir daglega afurðasamsetningu (pakkninga- val) í frystihúsum kynnt og enn- fremur fjallað um möguleika á að nota slík kerfi í öðrum fram- leiðsluiðnaði. Ráðstefna um lífríki Mývatns Náttúruverndarráð boðar til ráðstefnu um lífríki Mývatns og Laxár og áhrif kísilgúr- náms, í Norræna húsinu, 2. og 3. nóvember 1985. Á undanförnum 15 árum hafa vísindamenn stundað margvís- legar rannsóknir á Mývatni og Laxá og er markmið ráðstefnun- ar að draga fram þá þætti sem mikilvægastir eru í lífríki þessa vistkerfis. Einnig að setja saman rannsóknaáætlun sem miðar að því að afla vitneskju um áhrif efnistöku af botni Mývatns, á Mý- vatn og Laxá. Landshappdrætti vegna tón istarhúss Þann 12. þ.m. var dregið í landshappdrætti Samtaka um byggingu tónlistarhúss. Vinningar, sem eru 20 bifreið- ar af gerðinni Honda Civic, féllu á eftirtalin númer: 400, 7155, 39205, 47675, 51378, 69861,78881, 80895, 94004, 107120, 128801, 128868, 130073, 147860, 155046, 161990, 164448, 180647,184294, 196463. Vinningshafar eru beðnir að snúa sér til skrifstofu samtak- anna, Garðastræti 17, sími 29107, kl. 14-18 daglega. Samtök um byggingu tónlistarhúss. Hreggviður Þorgeirsson, Tor Ekland og Ásgeir Sverrisson höfðu veg og vanda af kynningunni. Finnskur rafbúnaður Mikill fjöldi rafvirkja og manna sem tengdir eru rafíðn- aði, rafveitum og raforkuver- um, eða um 85 manns, var saman kominn í Sjallanum á þriðjudaginn. Þar fór fram kynning á rafbúnaði frá fyrir- tækinu Strömberg í Finnlandi. Sýndur var búnaður fyrir há- og lágspennu, riðabreytar, raf- mótorar, álagsrofar, spólurof- ar af öllum stærðum og margt fleira sem fyrirtækið flytur til íslands. Fyrirtækið ískraft í Reykjavík er umboðsaðili fyrir Strömberg á íslandi. Ásgeir Sverrisson frá ís- kraft og Tor Eklund frá Ström- berg sögðu að fyrirtækið væri gamalt í hettunni. Framleiðsla hefði byrjað árið 1889. Upphaflega og fram að 5. ára- tugnum var mest um innanlands- framleiðslu að ræða. Síðustu 20 ár hefur verið lögð megináhersla á útflutning. Strömberg hefur skapað sér gott nafn sem fram- leiðandi rafbúnaðar í Evrópu og víðar. Þriðji hluti framleiðslunn- ar fer til útflutnings. Meðan byggðalínan var í bygg- ingu á íslandi framleiddi Ström- berg stóran hluta af efni og tækj- um sem þar var notað. Átti ríkið viðskipti við Strömberg upp á 5 milljónir finnskra marka, sem eru um 350 milljónir ísl. kr. Fyrirtækið framleiðir rafbúnað í skip og fleiri tæki. Til dæmis framleiddu þeir allan rafbúnað í stærsta olíuborpall heims, sem smíðaður var í Suður-Kóreu. Aðalstöðvar Strömberg eru í Helsingfors og Vasa í Finnlandi. -gej Vetraráætlun Flugleiða Vetraráætlun millilandaflugs Flugleiða tekur að fullu gildi sunnudaginn 27. október. Daglegar ferðir verða til Kaup- mannahafnar, sex ferðir í viku til Luxemborgar, fjórar til London og New York og þrjár til Glasgow. Tvisvar í viku er flogið til Chi- cago, Gautaborgar, Oslóar, Stokkhólms og Færeyja. Viku- lega er flogið til Detroit og fastar áætlunarferðir hefjast að nýju til Salzburg þann 21. desember. Vetraiáætlun Flugleiða innan- lands hefur tekið gildi og eru nú fleiri ferðir á viku en nokkru sinni fyrr að vetri til. Milli Akur- eyrar og Reykjavíkur eru 24 ferðir á viku, 14 til Vestmanna- eyja og 12 til ísafjarðar. Til Húsavíkur og Sauðárkróks er flogið sex sinnum í viku, fjórum sinnum til Hornafjarðar og þrisv- ar í viku til Norðfjarðar' og' Patreksfjarðar. Til Þingeyrar er flogið tvisvar í viku. BILARAFMAGN ÖLL ÞJÓNUSTA VARÐANDI RAF- KERFIBIFREIÐA ^ALTKHXATOllAll norðurljós sf. RAFLAGNAVERKSTÆÐI FURUVÖLLUM 13 SiMI 21669 Við rýmum lagerinn. Lagerútsala hefst föstudaginn 1. nóvember. Leikföng með miklum afslætti í kjallaranum, gengið inn að norðan. Opið frá kl. 14-18. marm&urimi HAFNARSTRÆTI 96 SIMI 96*24423 AKUREYRI \ Tölvuvædd framleiðslustjórnun - með frystihús sem dæmi - Páll Jensson forstöðumaður Reiknistofnunar Há- skólans flytur fyrirlestur um ofangreint efni í Sjallan- um fimmtudaginn 31. október kl. 15.30. Fjallað verður almennt um tölvunotkun við skipu- lagningu framleiðslu og í því sambandi um fram- legðarhugtakið og nýjar rannsóknarniðurstöður varðandi rétta og ranga notkun þess. Þá verður nýtt ákvarðanakerfi fyrir daglega afurða- samsetningu í frystihúsum kynnt og ennfremur fjall- að um möguleika á að nýta slíkt kerfi í öðrum fram- leiðsluiðnaði. Fyrirlesturinn er byggður á erindi sem flutt var á NORDATA 85, þar sem höfundur hlaut fyrstu verð- laun fyrir framlag sitt. Fundargjald er kr. 500,- (kaffiveitingar innifaldar). Þátttaka tilkynnist til Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar hf. í síma 96-26200 fyrir kl. 12.00 fimmtudaginn 31. október. iðnþróunarfélag Eyjafjarðar hf. Nýlcga var afhjúpuð stytta við sjúkrastöðina Vog. Hún er gefin SÁÁ í niinn- ingu Hilmars Helgasonar, fyrsta formanns SÁÁ, af þakklátum alkóhólistum og fjölskyldum. Það var sonur Hilmars, Stefán, sem afliúpaði styttuna við hátíðlega at- höfn á Vogi að viðstöddum vinum og ættingjum Hilmars, svo og stjórn og starfsfólki SÁÁ. Styttan heitir Andi og efnisbönd eftir Einar Jónsson mynd- höggvara og er afsteypan úr bronsi. UTSALA Útsala ★ Utsala ★ Utsala fimmtudag og föstudag kl. 1-6. Verslunin hættir. - 50-99% afsláttur. Vörur fyrir hestamenn. Barnavörur. Veiðivörur. Metravörur. Fatnaður. Skíði. Bakpokar. Fótboltar. Skór. Stígvél. Verslun Brynjólfs Sveinssonar Skipagötu 1

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.