Dagur - 30.10.1985, Blaðsíða 11

Dagur - 30.10.1985, Blaðsíða 11
30. október 1985 - DAGUR - 11 Nýlega er fallinn frá, Jóhann Skaptason, fyrrverandi sýslu- maður Þingeyinga, 81 árs að aldri. Með Jóhanni er genginn maður sem hafði áhrif á umhverfi sitt og skildi eftir sig djúp spor á lífsferli sínum. Farinn er gegn maður, sem setti svipmót á hvert verkefni, sem hann tók sér fyrir hendur. Manngerðin var sérstæð, rammíslensk og dæmigerð fyrir’ mann sem hafði í heiðri viðhorf og mannkosti sem hafa reynst þjóðinni til heilla um gengnar aldir. Hann var ungmennafélagi á aldamótavísu. Maður þjóðlegra framfara, sem ætíð huggði að hinu forna og arfi liðins tíma, þegar áformuð voru nývirki. Merkast dæmi um þetta er Safnhúsið á Húsavík. Saman fór rækt við fornar dyggðir og fram- farahugur um að búa safninu því besta sem krafist er um húsa- kynni og aðbúnað. Það er á eng- an hallað þótt sagt sé að Þingey- ingar eigi þetta framtak Jóhanni Skaptasyni að þakka öðrum fremur. Safnahúsið með látleysi sínu, ásamt hinni stílhreinu kirkju staðarins, gera Húsavík menningarlegri en ella. Safna- húsið er meira en fyrir augað. Það er vísir að menntasetri Þing- eyinga, en sá var draumur Jó- hanns Skaptasonar. Það hefði verið mjög að skapi Jóhanns, að Jarðhitaháskóli Sameinuðu þjóð- anna og Norræna eldfjallastöðin fengju þar aðsetur vegna við- fangsefna í tengslum við lifandi kviku þingeyskrar náttúru. Jóhann Skaptason átti ættir að íekja til þeirra þingeysku byggða, sem eru vestan Ljósa- vatnsskarðs. Honum var annt um þennan hluta Þingeyjarþings og vildi í engu vægja um endurskoð- un héraðsmarkanna andspænis Akureyri. Svo vel hélt hann á málum sínum, að ekki hvarflaði að vestanbyggðamönnum að ger- ast þegnar yfirvalda á Akureyri, þótt þægilegra væri um embættis- þjónustu. Sjálfur rækti hann vel frændsemi sína í Grýtubakka- hreppi og sérlega við þá í Skarði. í landi Skarðs helgaði hann sér reit til skógræktar og átti í skógarlundinum snoturt sumar- hús. Þennan stað valdi hann sér til dvalar öllum stundum, þegar embættisannir eða vetrarfærð hömluðu ekki og á meðan heilsan leyfði. Sýslunefndarstörfin voru Jó- hanni hugstæðari, en sum önnur skyldustörf sýslumanna. Hann stýrði sýslunefndum Þingeyjar- sýslna með skörungsskap og vildi í engu víkja frá því hlutverki, að þær væru héraðsvettvangur hinna ólíklegustu málefna, er komu upp í sýslunum. Hann hlutaðist til um að Þingeyjarsýslur og Húsavíkurkaupstaður gæfu út sameiginlega árbók fyrir héraðið í heild. Þetta er víðkunnugt ann- álarit og menningarsögulegt safnrit. Sýslumaður átti stóran þátt í þeirri breiðu samstöðu, sem náðist um stækkun sjúkra- hússins á Húsavík. Honum var annt um Lauga í Reykjadal og taldi Þingeyinga setja niður, ef héraðsskólinn yrði afhentur rík- inu. Slík var málafylgja hans, að skólinn var ekki afhentur meðan hann gegndi starfi oddvita sýslu- nefndar. Jóhann braut upp á mörgum málum í sýslunefnd og má þar nefna orkumálin. í samstarfi Þingeyjarsýslu og Húsavíkur- kaupstaðar var haldinn fundur um að vekja athygli stjórnvalda á virkjun Jökulsár á Fjöllum og stóriðju á Norðurlandi. Sýslu- maður var einn þeirra manna, sem skipaður var í orkumála- nefnd á sameiginlegum fundi Austfirðinga og Norðlendinga 1962, til að vinna að virkjun Jökulsár á Fjöllum. Bæði í sýslu- nefnd og á fjórðungsþingum braut hann upp á þeirri tillögu, að orkuvinnslufyrirtækin greiddu orkugjald þeim byggðarlögum, sem létu í té fallvötnin og jarðhit- ann. Ljóst er að, ef þessi hug- mynd hefði komið til fram- kvæmda að hvorki hefði komið til Laxárdeilu eða Blöndudeilu. Sýslumaður var náttúruvernd- armaður, en fyrst og fremst hags- munagæslumaður sinna byggða. Með þessu hugarfari réðist hann í það ófæruverk að leysa Laxár- virkjunardeiluna á sínum tíma. En þar réðu ferðinni á báða bóga menn sem ekki hirtu um leikslok- in og afleiðingar þeirra. Það var fjærri Jóhanni Skaptasyni að hall- ast að öfgum í málameðferð og það var ekki við hann að sakast um hvernig fór og það öllum í óhag. Tengsl Jóhanns Skaptasonar við landið og söguna mörkuðu viðhorf hans öðru fremur. Hann beitti sér fyrir, í sýslunefnd Suð- ur-Þingeyjarsýslu, að sýslan fengi yfirráð yfir hinum forna þingstað Þingey á Skjálfandafljóti. Þar hugðist hann endurreisa eins konar þingstað og samkomustað allra Þingeyinga. Leitt er að þessi hugmynd skuli enn ekki hafa komist í framkvæmd. Þetta er verkefni nýrra forystumanna í Þingeyjarþingi. Leiðir okkar Jóhanns Skapta- sonar lágu saman eftir að ég réð- ist sem bæjarstjóri til Húsavíkur 1958. Með okkur tókst góð vin- átta, sem hélst alla mína tíð á Húsavík. Við höfðum eðlilega mikið saman að sælda vegna starfa okkar. Á þeirri tíð var Húsavík að vakna af dvala eftir kyrrstöðutíma og var að breytast úr sjávarþorpi, þar sem þorri verkfærra manna sótti atvinnu sína á vertíðar og síld og yfir í bæ með vaxandi aflabrögð á heima- miðum, vetrarútgerð og vinnu í fiskiðjuverinu allt árið. Þá tíðk- aðist sá háttur að bæirnir önnuð- ust lögreglukostnaðinn og jafnvel bæjarstjórnin ákvað tölu lög- regluþjóna, ennfremur hverjir gegndu þeint störfum. Það kom af sjálfu sér að bæjarstjórnin, var treg að sinna kröfum tímans. Allt fór þetta vel að lokum. Lögreglu- þjónum var fjölgað. Keyptur lög- reglubíll. Byggð fangageymsla og lögregluvarðstöð. Þau voru ófá málin, sem við þurftum að takast á um og leysa okkar í milli. Jóhann var fálátur og óádeilinn, en þeim mun þyngri í málafylgju ef honunt fannst að sér væri misboðið. Hann kom ætíð til dyranna eins og hann var klæddur, sanngjarn og réttlátur, en var ekki misk- unnsamur við þá sem sviku lit í samskiptum við aöra. Jóhann var seinn til dóma og gat verið erfið- ur þeim, sem beittu lagastaf til að ná fram vilja sínum til að hnekkja á sanngjörnum málstað þeirra er minna máttu sín. Mér er það kunnugt að réttsýni hans og gott hjartalag var sterkara þegar á reyndi. Ég vil þakka drengilegan stuðning í störfum mínum og á nýjum vettvangi og áhuga hans fyrir málefnum Fjórðungssam- bands Norðlendinga. Þingeyingar kvöddu hinn látna sýslumann sinn í Húsavíkur- kirkju, laugardaginn 26. október. Jóhann Skaptason var borinn til hinstu hvíldar í Laufási þennan sama dag. Þar er fegurst útsýni á þingeyskri grund við Eyjafjörð. Laufás var sóknarkirkja þeirra frænda í Skarði. Áskell Einarsson. Fasteignasala við Ráðhústorg Opið kl. 13-19 virka daga. Sími 21967. Arnarsíða: 5 herb. endaraðhús- íbúð með innbyggðum bílskúr á neðri hæð. Skipti á 3-4ra herb. raðhúsíbúð eða neðri hæð möguleg. Mjög álitleg eign. Birkilundur: 5 herb. vandað ein- býlishús 150 fm og 32 fm bílskúr. Helgamagrastræti: Tvílyft ein- býlishús ca. 300 fm gæti nýst sem tvær íbúðir. Skipti á 4-5 herb. raðhúsíbúð eöa minna ein- býlishúsi. Hús í mjög góðu standi. Tungusíða: 5 herb. einbýlishús með innbyggðum bílskúr. íbúð- arhæðin 147 fm. Bílskúrog ann- að pláss 66 fm. Einholt: 5 herb. endaraðhús- íbúð ásamt bílskúr alls 145 fm. Möguleiki að taka 3-4ra herb. íbúð upp í. Þingvallastræti: 5 herb. einbýl- ishús ca. 136 fm. Þarfnast við- gerðar. Verð 1,5 milljón eða tilboð. Munkaþverárstræti: Tvær 3ja herb. ibúðir í sama húsi og möguleiki á einstaklingsíbúð í kjallara. Skarðshlíð: 4ra herb. íbúð á 3. hæð í blokk ásamt bílskúr. Ibúð- in er ca. 115 fm. Þvottahús og geymsla á hæðinni. Sólvellir: 4ra herb. íbúð á 2. hæð í 5 íbúða húsi. Hrísalundur: 2ja herb. íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi. Kaupandi að verslun með kvöldsöluleyfi. Kaupandi að 2-3ja herb. íbúð, ekki í blokk. Kaupandi að góðri hæð eða 4ra herb. raðhúsíbúð. ÁsmundurS. Jóhannsson ff— lögfraeöingur m • Fasteignasa/a Brekkugötu Solustjóri: Ólafur Þ. Ármannsson. Heimasími 24207. Oska eftir stúlku til afgreiðslustarfa í tískuvöruverslun. Upplýsingar I síma 26565 frá kl. 10-18. Til leigu Verslunarhúsnæðið Skipagata 1 til leigu. Tilboð skil- ist til Eignamiðstöðvarinnar Skipagötu 14, pósthólf 651. Nánari upplýsingar á skrifstofunni. EIGNAMIÐSTÖÐIN Skipagötu 14, 3. hæð (Alþýðuhúsinu) Opið allan daginn. Síminn er 24606 Sölustjori: Björn Kristjansson. Heimasími: 21776. Lögmaöur: Olafur Birgir Árnason A söluskrá: Skarðshlíð: 4ra herb. íbúð, ásamt bílskúr. Laus strax. Víðilundur: 2ja herb. íbúð á fyrstu hæð. Hamarstígur: 6 herb. efri hæð í tvíbýlishúsi. Gránufélagsgata: 4ra herb. íbúð á annarri hæð. Laus strax. Lækjargata: 2-3 herb. ódýr íbúð, góð kjör. Laus strax. Norðurgata: 3ja herb. íbúð á neðri hæð í tvíbýli. Skarðshlíð: 2ja herb. íbúð á þriðju hæð. Eldra einbýlishús á Svalbarðseyri. Hrafnagilsstræti: 5 herb. á efri hæð í tvíbýli. Tjarnarlundur: Lítil 2ja herb. íbúð á 2. hæð. Svalainn- gangur. ' Stórholt: 4-5 herb. íbúð á neðri hæð. Henni geta fylgt tvö herbergi, eldhús og snyrting í kjallara. Til sölu sem ein heild eða sítt í hvoru lagi. Eyrarlandsvegur: 5 herb. íbúð á efri hæð. Norðurgata: 4ra herb. íbúð í parhúsi. Jörvabyggð: 5 herb. einbýlishús með bílskúr. Brekkugata: 4ra herb. íbúð. Hvammshlíð: Einbýlishús í byggingu, skipti. Keilusíða: 4ra herb. íbúð á annarri hæð, laus fljótlega. Byggðavegur: 5 herb. íbúð á neðri hæð 140 fm. Eyrarlandsvegur: 5 herb. íbúð á neðri hæð. Tjarnarlundur: 3ja herb. íbúð á þriðju hæð. Möguleiki á skiptum á 2ja herb. íbúð. Símsvari tekur við skilaboðum allan sólarhringinn. Fasteignasalan hf opið frá Gránufélagsgötu 4, efri hæð, sími 21878 Kl. 5—7 e.h. Hreinn Palsson, lögfræðingur Guðmundur Jóhannsson, viðskiptafræðingur Hermann R. Jónsson, sölumaður-------------- 29. kjördæmisþing framsóknarmanna í Norðurlandkjördæmi eystra verður haldið að Hótel KEA á Akureyri dagana 1. og 2. nóv. nk. Þingið hefst kl. 20.00 á föstudag og lýkur á laugardagskvöld. Dagskrá: 1. Þingið sett. 2. Kjör starfsmanna þingsins. 3. Nefndakjör. 4. Skýrsla stjórnar og afgreiðsla reikninga. 5. Skýrslur þingmanna. 6. Kynning á Samtökum um jafnrétti milli landshluta. 7. Umræður um 5. og 6. lið. 8. Nefndastörf. 9. Ávörp gesta. 10. Framlagning mála. 11. Kosningar. 12. Afgreiðsla mála. 13. Önnur mál. 14. Þingi slitið. Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra og for- maður Framsóknarflokksins verður gestur á þinginu. Allar nánari upplýsingar veitir Áslaug Magnúsdóttir í síma 96-22479 eftir kl. 18.00 STJÓRN K.F.N.E.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.