Dagur - 04.11.1985, Qupperneq 1
Akureyri:
22 milljónir í
videómyndir á ári
Heimild til
68. árgangur
Akureyri, mánudagur 4. nóvember 1985
134. tolublað
verkfallsboðunar
Á fundi sem haldinn var í gær
með fiskverkunarfólki og
samninganefnd Einingar var
samþykkt að samninganefnd
og baknefnd í bónussamninga-
viðræðunum veitti trúnaðar-
ráði heimild til að boða til
verkfalls fiskverkunarfólks, ef
til aðgerða þyrfti að grípa.
„Pað ríkti mikill einhugur á
fundinum og þetta var samþykkt
með öllum greiddum atkvæð-
um,“ sagði Björn Snæbjörnsson
sem sæti á í samninganefndinni.
Kröfur Einingar til handa fisk-
verkunarfólki eru þær að greitt
verði um 40 króna fast álag, sem
tekið yrði af bónusgrunninum og
fært yfir á fasta álagsgreiðslu sem
greidd yrði til allra. Þetta gerir
það að verkum að þeir sem lægst-
an bónus hafa nú fá mesta
hækkun.
„Þetta er gert til að jafna bilið
á milli þeirra sem mestan bónus
hafa og þeirra sem minnst hafa.
En eins og þetta er í dag, er bilið
mjög mikið,“ sagði Björn. -mþþ
Á kjördæmisþingi framsóknarmanna í Norðurlandi eystra, sem haldið var á Hótel KEA. Ingvar Gíslason í ræöustól
en önnur frá vinstri á myndinni er Valgeröur Sverrisdóttir, sein var kosin formaður sambandsins og hlaut ennfremur
flest atkvæöi í miðstjórnarkjöri. Mynd: KGA.
Kynningardagur
grunnskólanna:
Foreldrar mættu
mjög vel
Á laugardaginn var haldinn
kynningardagur í flestum
grunnskólum landsins í þeim
tilgangi að kynna foreldrum
aðbúnað í skólunum svo og
starf kennara og nemenda.
Foreldrar fjölmenntu í skólana
og að sögn þeirra skólastjóra sem
Dagur hafði samband við var
jafnt og gott streymi foreldra í
skólana frá klukkan 8 um morg-
uninn og fram eftir degi.
Ekki er fjarri lagi að ætla að
um 70% foreldra skólabarna á
Norðurlandi hafi komið í heim-
sókn í skólana á laugardaginn.
Foreldrar yngri barna mættu yfir-
leitt betur en foreldrar nemenda í
unglingadeildum.
Foreldrarnir gengu um og
skoðuðu húsakynnin og flestir
tylltu sér inn í kennslustofu ein-
hverja stund og fylgdust með því
sem fram fór og aðstoðuðu jafn-
vel börn sín við námið.
Allir voru mjög ánægðir með
þessa nýbreytni í skólastarfinu og
með hliðsjón af því hvernig til
tókst er ekki óeðlilegt áð ætla að
dagur sem þessi verði endurtek-
inn að ári. Ekki spillir það heldur
fyrir, að kennarar höfðu á orði að
börnin hefðu verið óvenju þæg
og róleg! BB.
Stjórn verkamannabústaöa á Akureyri:
15 íbúðir í smíðum
14 í undirbúningi
Stjórn verkamannabústaða á
Akureyri mun væntanlega
efna til útboðs vegna nýrra
byggingarframkvæmda í kring-
um næstu áramót. Um er að
ræða byggingu 14 nýrra íbúða.
Þegar er búið að bjóða út jarð-
vegsskipti vegna þessara fram-
kvæmda.
Framkvæmdir standa nú yfir
við smíði 15 fbúða á vegum
verkamannabústaða. Áætlað er
að þeim framkvæmdum ljúki
snemma árs 1987.
Samtals er stjórn verka-
mannabústaða því með 29 íbúðir
í takinu, ýmist í smíðum eða vel
á undirbúningsstigi og er það
mikilvæg lyftistöng fyrir bygging-
ariðnaðinn hér á Akureyri.
Hákon Hákonarson, formaður
stjórnar verkamannabústaða,
sagði að auk þessara fram-
kvæmda kæmi til greina að kaupa
eitthvað af notuðu húsnæði á al-
mennum markaði.
„Pað er nauðsynlegt að benda
á það sem er jákvætt í málefnum
byggingariðnaðarins á Akureyri,
því mörgum hættir til að einblína
á dökku hliðarnar," sagði Hákon
Hákonarson. BB.
I óformlegri könnun sem gerð f könnuninni kemur fram að
hefur verið kemur í ljós að menn taki allt upp í 20 videó-
videónotkun á Akureyri er myndir á leigu yfir vikuna. Alls
mjög mikil. Könnunin fór fram munu Akureyringar leigja
vikuna 14.-21. október sl. Leit- 149.084 myndir á ári. Það kostar
að var til 6 aðila sem starf- rúmar 22 milljónir á ári. Nánar er
rækja videóleigur hér í sagl frá þessu á bls. 9.
bænum.
Framsóknarmenn í Norðurlandskjördæmi eystra:
Kvennabylting á
kjördæmisþingi
Konur settu mjög mikinn svip
á kjördæmisþing framsökn-
armanna í Norðurlandi eystra,
sem haldið var á Akureyri um
helgina. Þær voru þriðjungur
þingfulltrúa og hafa ekki áður
verið svo margar, og þær tóku
virkan þátt í störfum þingsins.
Enn meiri athygli vöktu þó úr-
slit kosninga í kjördæmisstjórn
og miðstjórn Framsóknar-
flokksins. Af sjö aðalmönnum
í kjörstjórn eru nú fímm konur
og af 8 aðalfulltrúum í mið-
stjórn voru helmingaskipti
milli kynjanna. Undantekning-
alaust voru konur í efstu sæt-
um við kosningar. Konur mega
því vel við hlutskipti sitt una,
enda hafa þær unnið ötullega
að því að komast til meiri
áhrifa.
Mikill hugur var í þingfulltrú-
um og meginatriði þingsins var
endurnýjuð og virkari barátta
fýrir hagsmunum landsbyggðar-
fólks. í umræðum um stjórnar-
samstarfið bar nokkuð á því að
fulltrúum þætti sem frjálshyggjan
hefði sett um of svip á samstarfið
síðustu misserin. Ingvar Gíslason
taldi að langt samstarf við Sjálf-
stæðisflokkinn gæti haft óheilla-
vænleg áhrif fyrir Framsóknar-
flokkinn og sagði að hugsjónaleg-
ar endurhæfingar þyrfti við. Stef-
án Valgeirsson lýsti áhyggjum
sínum með minnkandi fram-
kvæmdir á landsbyggðinni og
sagði að snúast yrði gegn pen-
ingahyggjunni. T.d. hefði vaxta-
frelsið gert þá ríku ríkari og þá
fátæku fátækari. í ræðu Guð-
mundar Bjarnasonar kom fram
að erfitt hefði verið að fá Sjálf-
stæðisflokkinn tií að taka á vanda
húsbyggjenda. Almennt töldu
menn þó að stjórnarsamstarfið
myndi haldast út kjörtímabilið,
enda væru mörg aðkallandi
vandamál sem þyrfti að leysa. í
ræðu sem Steingrímur Her-
mannsson flutti á þinginu sagði
hann, að nú væri meiri þörf fyrir
flokk sem stýrt gæti þjóðinni út
úr vanda, með skynsemina að
leiðarljósi, en nokkru sinni fyrr.
Umbótasinnaður félagshyggju-
flokkur, sem Framsóknarflokk-
urinn væri, ætti meira erindi í dag
en oft áður, og hafna bæri öfgum
frjálshyggju og ríkissósíalisma.
í stjórnmálaályktun þingsins
var lýst stuðningi við áframhald-
andi heildarstjórnun fiskveiða,
en undanskilja línu- og hand-
færaveiðar, háskólakennslu á
Akureyri og þar segir að það hafi
verið mistök að gefa vexti frjálsa
haustið 1984. Þá segir að erfið
staða sjávarútvegs og landbúnað-
ar hafi leitt til vaxandi misvægis
á milli landsbyggðar og höfuð-
borgarsvæðis. „I landinu býr ein
þjóð og Framsóknarflokkurinn
telur réttláta skiptingu verðmæta
í þjóðfélaginu grunnforsendu
einingar hennar. Ríkisstjórninni
ber að leiðrétta áorðið misvægi
nú þegar.“
Sjá bls. 3 og 11. HS