Dagur - 04.11.1985, Page 3
4. nóvember 1985 - DAGUR - 3
Á fyrsta fundi stjórnar og varastjórnar Kjördæmissambands Framsóknarflokksins í Norðurlandi eystra t.f.v.:
Áslaug Magnúsdóttir, Þóranna Björgvinsdóttir, Hafþór Helgason, Snorri Finnlaugsson, Halldóra Jónsdóttir, Úlf-
hildur Rögnvaldsdóttir og Sigurgeir Aðalgeirsson. Á myndina vantar Valgerði Sverrisdóttur og Jón Sigurðarson úr
aðalstjórn og Gunnar Hilmarsson og Tryggva Sveinbjörnsson úr varastjórn. Mynd: HS
Valgerður kosin formaður
Valgerður Sverrisdóttir var
kosin formaður stjórnar Kjör-
dæmissambands framsókn-
armanna í Norðurlandskjör-
dæmi eystra, en hún ásamt
fjórum öðrum konum hlaut
kosningu í sjö manna aðal-
stjórn.
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir
fékk flest atkvæði, síðan Val-
gerður Sverrisdóttir, þá Halldóra
Jónsdóttir og Áslaug Magnús-
dóttir. Einnig hlutu kosningu
Snorri Finnlaugsson, Þóranna
Björgvinsdóttir og Jón Sigurðar-
son. í varastjórn voru kosnir
Gunnar Hilmarsson, Hafþór
Helgason, Sigurgeir Aðalgeirs-
son og Tryggvi Sveinbjörnsson.
Við kosningu í miðstjórn
Framsóknarflokksins varð röðin
þessi: Valgerður Sverrisdóttir,
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir,
Bjarni Aðalgeirsson, Halldóra
Jónsdóttir og Jón Sigurðarson
frá eldri mönnum, en Áslaug
Magnúsdóttir, Hafþór Helgason
og Áskell Þórisson frá yngri
mönnum. Varamenn í miðstjórn
eru Hákon Hákonarson, Jóhann-
es Geir Sigurgeirsson, Níels Árni
Lund, Guðlaug Björnsdóttir, Ari
Teitsson, (yngri) Sigurgeir Aðal-
geirsson, Snorri Finnlaugsson og
Þórólfur Gíslason. HS
m
©oierk
Þessar vinsælu furuhillur fást nú
I miklu úrvali á frábæru verbi.
TRYGGVABRAUT 24 PÓSTHÓLF 266 602 AKUREYRI SÍMI (96)21410
Alþýðubandalagið:
Aðalfundur kjördæmisráðs
á Norðurlandi eystra
Aðalfundur kjördæmisráðs
Alþýöubandalagsins í Norður-
landskjördæmi eystra var hald-
inn að Illugastöðum í Fnjóska-
dal dagana 19.-20. október.
Á dagskrá fundarins voru, auk
venjulegra aðalfundarstarfa,
m.a. sveitarstjórnarmál og voru
flutt fjögur framsöguerindi um
mismunandi þætti sveitarstjórn-
armálanna. Góður rómur var
gerður að máli framsögumanna
og í kjölfarið fylgdu fjörugar um-
ræður.
Þá var rætt um stjórnmálavið-
horfið og málefni Alþýðubanda-
lagsins og stjórnmálaályktun
samþykkt.
Þungamiðja stjórnmálaálykt-
unarinnar er gagnrýni á störf nú-
verandi ríkisstjórnar og telja al-
þýðubandalagsmenn á Norður-
landi eystra það sem algert for-
gangsverkefni að koma henni frá
völdum.
Þinghaldið þótti takast vel,
enda aðstæður til fundarhalda'
hinar bestu á Illugastöðum. BB.
Slátrun sauðfjár á Sauðárkróki:
Góður meðalþungi
Slátrun sauðfjár lauk hjá slát- er 1.847 kindum fleira en haustið
urhúsi Kaupfélags Skagfirð-
inga á Sauðárkróki miðviku-
daginn 16. október.
Álls var lógað 44.685 fjár, sem
1984. Þar af voru dilkar 41.035,
sem er 1.442 fleira en 1984 og
fullorðnar kindur 3.650 á móti
3.245 1984.
Leiðrétting
Fyrir stuttu birtist frétt þess
efnis að tveir ungir piltar á
Húsavík hefðu verið með
byssu undÍT höndum og farið
mjög ógætilega með skotvopn-
ið. Hefðu meðal annars skotið
á íbúðarhús og eitthvað fleira.
Hafa skal það sem réttara
reynist og komum við því hér
með á framfæri að aðeins annar
pilturinn handlék byssuna sem
olii bæði hræðslu og skemmdum.
Það skal tekið fram að allar
upplýsingar varðandi þetta mál
fengum við hjá áreiðanlegum að-
ilum, sem síðan vildu koma þessu
á framfæri.
Meðalþungi dilka varð 14,478
kg að frádreginni vatnsléttingu,
sem er 678 gramma samdráttur
frá fyrra ári. Samt sem áður er
þessi meðalþungi með því besta
sem verið hefur allmörg undan-
farin ár önnur en 1984. Meðal-
þungi fullorðins fjár varð einnig
rúmum 600 grömmum minni.
Heildarmagn kjöts af þessu
sláturfé nam um 690 smálestum.
Áður en sauðfjárslátrun hófst,
var lógað hjá sláturhúsi KS 475
nautgripum, og nam kjötið af
þeim nm 64 smálestum. Nú er
aftur hafin slátrun nautgripa, og
má búast við slátrun um 400 gripa
til viðbótar.
Að lokinni slátrun nautgripa
hefst slátrun á folöldum og
hrossum, og má búast við svipuð-
um fjölda og í fyrra, eða 4-500.
cristal
vönduðu bresku
vegg-og gólfílísarnar
Steinprýði hf. hefur tekið við
umboði John Lindsay hf. á
íslandi fyrir hinar þekktu
framleiðsluvörur breska fyrir-
tækisins H & R Johnson
Tiles, og fyrirtækjanna A G
Tiles og Maw & Co.
Fyrirtækin eru þekkt fyrir
vandaða og fjölbreytta fram-
leiðslu á CRISTAL vegg- og
gólfflísum, auk fylgihluta og
margvíslegrar gjafavöru úr
gleri.
Verðið er hagstætt og í
sumum tilvikum lægra, en
áður hefur þekkst hér á landi.
Steinprýði hefur fyrirliggj-
andi sýnishorn ásamt öllum
nánari upplýsingum, og
býður nýja viðskiptavini og
að sjálfsögðu gamla viðskipta-
menn velkomna.
/
Nýr umboðsmaður á Islandi
i: steinprýAi hf.
■B Stórtiö(öa16 slmi 83340-84780
Umboðsmaður á Akureyri:
^skaplif