Dagur - 04.11.1985, Page 6
6 - DAGUR - 4. nóvember 1985
Arnar Guðlaugsson.
Þjálfar
Amar
Völsung?
I? Samkvæmt heimildum Dags hefur stjórn
knattspyrnudeildar Völsungs, boðið Arnari
Guðlaugssyni að þjálfa meistarflokk
félagsins næsta keppnistímabil.
Liðið er í 2. deild og er mikill áhugi meðal
leikmanna liðsins að fá Arnar til starfa. Arn-
ar sem er búsettur á Húsavík hefur ekki gefíð
svar við því enn hvort hann taki að sér að
’ þjálfa liðið, en það mun skýrast innan tíðar.
Arnar er ekki ókunnugur þjálfun, þar sem
hann hefur verið aðstoðarþjálfari hjá meist-
araflokki Þórs á síðustu tveimur árum. Fyrst
með Þorsteini Ólafssyni og hann sá síðan um
i vetraræfingar meistaraflokks í tíð Jóhannes-
ar Atlasonar í fyrravetur við góðan orðstír.
Það verður því mikill fengur fyrir Völsung ef
þeim tekst að krækja í Arnar.
Sigurður
til
Vopnafjarðar?
Dagur hefur fregnað að Sigurður Halldórs-
son er þjálfaði Völsung í knattspyrnu á síð-
asta keppnistímabili standi í viðræðum við
Vopnfírðinga um að þjálfa þar á koinandi
tímabili.
Kinherji frá Vopnafírði komst sem kunn-
ugt er í 2. deild á síðasta tímabili og ætla þcir
sér að gera meira en bara hanga í þeirri
deild. Þá hefur einnig heyrst að Borgnesing-
ar hafí líka áhuga á Sigurði sem er mjög
frambærilegur þjálfari og sterkur leikmaður.
KA-FH
- á þriðjudag
Annað kvöld kl. 19.30 verður leikur KA og
FH í 1. deildinni í handknattleik á dagskrá.
Þessum leik hefur verið flýtt um cinn dag að |
beiðni FH-inga. KA-mönnum dugir ekkert "i
annað en sigur gegn FH, en liðið hefur ekki t
enn unnið leik á heiuiavclli. KA mun leiku :
án Jóns Kristjánssonar sem handarbrotnaði í |
leik fyrir skömmu og niun það veikja liðið |
verulega. g
'
Mynd: KÓÁ
Jóhann Samúelsson í kröppum dansi
Þórsara vantaði herslu-
muninn gegn Tý
„Það var argasta óheppni að
tapa þessum Ieik. Þetta var
nokkuð góður leikur hjá
okkur, nema í vörninni. Okkur
munaði um Aðalbjörn Svan-
laugsson sem ekki gat leikið
með vegna veikinda. Þá fannst
mér of mikið ósamræmi í dóm-
um dómaranna og hefur það
getað ráðið úrslitum í þessum
leik,“ sagði Gunnar Gunnars-
son þjálfari Þórs í handbolta
eftir naumt tap gegn Tý í 3.
deildinni.
Þessi lið virðast nokkuð jöfn
að styrkleika og var jafnræði með
þeim allan fyrri hálfleik. Þó
leiddu Týrarar með 1 til 2
mörkum. Staðan í hálfleik var
14:12 Tý í vil. Eitthvað virtist
tímavarslan vera í ólagi, en þar
sem enginn tímavörður var mætt-
ur í byrjun leiks, hljóp ungur
áhorfandi í skarðið. Og ekki var
nú gamla eldhúsklukkan til að
létta honum störfin.
í seinni hálfleik var mikil
spenna og Þórsarar voru ekki á
því gefa eftir. Þegar tæpar 15
mínútur voru eftir af leiktíman-
um jöfnuðu Þórsarar í fyrsta
skipti 20:20. Og þegar tæpar 5
mínútur voru eftir komust þeir
yfir 25:24, Týrarar jöfnuðu og
komust aftur yfir, Þórsarar jöfn-
uðu, en Týrurum tókst að merja
sigur með tveimur síðustu mörk-
um leiksins. Lokastaðan því Týr
28, Þór 26.
Tveir Þórsarar voru útilokaðir
í leiknum, Kristinn Hreinsson á
10. mínútu seinni hálfleiks og
Ólafur Hilmarsson þegar um 3
mínútur voru eftir af leiknum.
Og máttu Þórsrar illa við því að
missa þessa menn útaf, þar sem
lítil breidd er í liðinu.
Þórsliðið lék nokkuð vel í þess-
um leik og var allt annað að sjá til
liðsins heldur en gegn Fylki um
daginn. Vörnin er sennilega það
sem brást í þessum leik, en það
er hlutur sem hægt er að laga.
Bestir í annars jöfnu liði voru
þeir Sigurpáll Aðalsteinsson og
Jóhann Samúelsson, ungir og
efnilegir strákar.
Hjá Týr voru bestir þeir Sverr-
ir Sverrisson og Jóhann Benónís-
son.
Mörk Þórs: Gunnar Gunnars-
son 6 (1), Sigurpáll Aðalsteins-
son 6, Jóhann Samúelsson 5, Ing-
ólfur Samúelsson 5 (3), Ólafur
Hilmarsson 3 og Hörður Harðar-
son 1.
Flest mörk Týs skoruðu þeir
Jóhann Benónísson 12 (3) og
Sverrir Sverrisson 6.
Dómarar voru þeir Stefán
Arnaldsson og Ólafur Haralds-
son og vantaði samræmi í dóma
þeirra.
Fer Logi
til Þórs
eða
Logi Einarsson sem varði
mark Leifturs í 2. deildinni í
knattspyrnu í sumar, hefur
ákveðið að yfirgefa herbúðir
þeirra.
Logi ætlar að vera á Akur-
eyri í sumar og mun annað
hvort ganga til liðs við Þór eða
KA. Eru taldar meiri líkur að
hann fari til Þórs og mun ráðn-
ing Þorsteins Ólafssonar til
Þórs vega þungt á metunum.
Logi varði mark Leifturs með
ágætum í sumar, en liðið féll
sem kunnugt er í 3. deild.
Ólafsfirðingar þurfa þó ekki að
örvænta yfir markmannshall-
æri, því eins og greint var frá í
KA?
Degi fyrir stuttu mun Þorvald-
ur Jónsson ætla að spila með
Leiftri í sumar. Þorvaldur
varði mark KA í sumar og ef
Logi fer til Þórs, standa KA-
menn uppi markmannslausir
fyrir komandi tímabil. Enn er
þó langt í mót og ástæðulaust
að vera með áhyggjur af þess-
um málum strax. Því eins og
menn sem fylgjast með á
íþróttasviðinu vita, eru alltaf
miklar umræður um félaga-
skipti í gangi á þessum árs-
tíma. En hvort sem Logi gerir
að ganga í KA eða Þór, þá
mun hann styrkja það lið
mikið.
Fer Logi til Þórs?