Dagur - 04.11.1985, Qupperneq 7
4. nóvember 1985 - DAGUR - 7
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Handbolti 3. deild:
við fríska Týrara
„Reynslu- og úthaldsleysi háir
liðinu, einnig vantar breidd
í liðið. Það eru mikið til sömu
mennirnir sem spila leikinn
út í gegn. Þó fínnst mér þetta
vera á réttri leið hjá okk-
ur og ég er bjartsýnn á fram-
haldið,“ sagði Helgi Helgason
fyrirliði Völsungs í handbolta,
eftir að lið hans hafði tapað
fyrir Tý í 3. deildinni 22:30 á
föstudagskvöld.
Leikurinn fór rólega af stað og
liðin skiptust á að skora fyrstu 4
mörkin, staðan eftir 6 mínútur
2:2. Þá tóku Týrarar forystu með
3 mörkum í röð og áttu Völsung-
ar erfitt með að stöðva horna-
menn Týs. Liðin skiptust síðan á
um að skora fram að hálfleik og
staðan þá 13:10 Tý í vil.
í byrjun seinni hálfleiks tók
Ómar Rafnsson góða rispu og
skoraði 4 af 5 fyrstu mörkum
Völsunga, en Týrarar svöruðu
jafnan strax aftur. Um miðjan
síðari hálfleik var staðan 20:15
Tý í vil og virtust Völsungar
hvorki hafa úthald né getu til að
ógna forystu þeirra. Þegar um 10
mínútur voru eftir af leiknum og
staðan 24:16, reyndu Völsungar
að taka úr umferð 1 og 2 menn,
en það bar lítinn árangur. Og þá
reyndu þeir síðustu mínúturnar
að leika maður á mann frá miðju,
en það gekk síst betur. Lokastað-
an eins og áður sagði, Týr 30,
Völsungur 22.
Völsungum hefur bæst liðsauki
frá fyrstu leikjunum, sem eru
þeir Sveinn Freysson og Ómar
Rafnsson (báðir úr knattspyrnu-
liðinu, eins og fleiri) og stóðu
þeir sig þokkalega. Að vísu varð
Ómari það nokkuð oft á, að fá
dæmdan á sig ruðning í sókninni.
Þá voru þeir Pálmi og Bjarni
markvörður sæmilegir. Sigurður
Illugason er þó sennilega sá
leikmaður Völsungs, er mest hef-
ur komið á óvart með góðum
leikjum.
Lið Týs er skipað frekar ung-
um mönnum og léku þeir flestir
vel í þessum leik.
Mörk Völsungs: Pálmi Pálma-
son 7 (4), Ómar Rafnsson 4, Pét-
ur Pétursson 3, Sigurður Illuga-
son 3, Arnar Guðlaugsson 2,
Helgi Helgason 2 og Birgir
Skúlason 1.
Flest mörk Týs skoruðu Hörð-
ur Pálsson 7 og Jón Kr. Jónsson
5.
Dómarar voru þeir Stefán
Arnaldsson og Ólafur Haralds-
son og dæmdu þeir mjög vel.
Helgi Helgason reynir markskot.
Mynd: KK
Völsungar réðu ekki
Körfubolti:
Tindastóll
ósigraður
Tveir Icikir fóru fram í 2. deild
íslandsmótsins í körfubolta á
Húnavöllum um helgina. Á
föstudagskvöld léku USAH og
ÍA og sigraði ÍA í þeim leik
með 91 stigi gegn 83. Á laugar-
dag léku síðan Tindastóll og
IA og sigraði Tindastóll með
103 stigum gegn 97.
Leikur Tindastóls og ÍA var
jafn rétt í byrjun, en síðan tóku
Tindastólsmenn leikinn í sínar
hendur og höfðu örugga forystu
út leikinn. í hálfleik voru þeir
með 17 stiga forystu, en lokatölur
urðu eins og áður sagði 103:79
Tindastól í vil.
Atkvæðamestir í liði Tinda-
stóls voru þeir Kári Marísson
sem skoraði 30 stig, Haraldur
Leifsson 28 og Þorgeir Njálsson
12-
Lið ÍA er að mestu borið uppi
af tveimur mönnum, Gísla Gísla-
syni (áður ÍS) og Garðari Jóns-
syni. Gísli skoraði 24 stig en
Garðar eitthvað minna.
Tindastóll hefur nú lokið 3
leikjum í 2. deildinni og unnið þá
alla og stefna þeir ótrauðir á 1.
deildina. Þá má geta þess að um
áramótin verður að öllum líkind-
um tekið'í notkun nýtt íþróttahús
og mun öll aðstaða við inniíþrótt-
ir batna þá verulega,
Leikur USAH og ÍA var mjög
jafn og spennandi, þó Skaga-
mennirnir hafi yfirleitt haft frum-
kvæðið í leiknum. Þegar um 4
mínútur voru eftir náðu Hún-
vetningar að jafna, en Skagamenn
voru sterkari á endasprettinum
og sigruðu með 92 stigum gegn
83.
Gfsli Gíslason leikmaður ÍA
var óstöðvandi í leiknum og skor-
aði 43 stig.
Knatt-
spymu
úrslit
Úrslit leikja í 1. og 2. dcild
ensku knattspyrnunnar um
, helgina urðu þessi:
l.deild
! Arsenal-Man.City 1-0 1
Aston Villa-Oxford 2-0
Ipswich-Chelsea 0-2
Liverpool-Leicester 1-0
Luton-Birmingham 2-01
Man.United-Coventry 2-0
Newcastle-Watford 1-1 x
Q.P.R.-Sheff.Wed. 1-1 x
Southainpton-Tottenham 1-0 1
West Ham-Everton 2-1 1
j Nottm.Forest-W.B.A. 2-1
2. deild:
Barnsley-Oldham 1-01
Bradford-C.Palace 1-0
Brighton-Norwich 1-1 x
Charlton-Shrewsbury 4-1
Fulham-Sunderiand 1-2 2
Grimsby-Millwall 5-1
Leeds-Portsmouth 2-11
Middlesbro-Blackburn 0-0 x
Sheff.United-HuII 3-1
Stoke-Huddersfield 3-01
Wimbledon-Carlisle 4-1
STAÐAN
1 . deild
Man.United 15 13-2- 0 35: 5 41
Liverpool 15 94- 2 32:15 31
Sheff.Wed 15 8-4- 3 22:21 28
Chelsea 15 8-3- 4 21:15 27
Arsenal 15 8-3- 4 19:15 27
West Ham 15 74- 3 26:17 26
Nottm.Forest 15 8-1- 6 26:22 25
Everton 15 7-3- 5 27:18 24
Newcastle 15 6-5- 4 23:23 23
Luton 15 5-6- 4 26:19 21
Watford 15 6-3- 6 30:28 21
Tottenham 14 6-2- 6 27:19 20
Q.P.R. 15 6-2- 7 16:21 20
Coventry 15 4-5- 5 21:2117
Aston Villa 15 4-5- 6 20:21 17
Southampton 15 4-5- 6 17:21 17
Birmingham 14 5-1- 811:2116
Oxford 16 3-6- 7 22:31 15
Leicester 16 3-5- 8 19:32 14
Man.City 15 2-5- 8 13:24 11
Ipswich 15 2-2-11 7:24 8
W.B.A. 15 1-3-1113:38 6
STAÐAN
2. deild
Portsmouth 15 11-2- 2 29: 8 35
Wimbledon 15 84- 3 17:12 28
Oldham 15 8-3- 4 25:15 27
Sheff.U. 15 7-5- 3 26:18 27
Charlton 13 8-2- 3 27:17 26
lllackburn 15 74- 4 17:12 26
Norwich 15 7-4- 4 27:17 25
Barnsley 15 64- 5 16:13 22
Brighton 15 6-4- 5 24:21 22
C.Palace 15 6-3- 6 20:19 21
Leeds 15 5-5- 5 18:18 20
Grinjsby 15 4-6- 5 23:20 18
Hull 15 4-6- 5 22:21 18
Huddersf. 15 4-6- 5 15:22 18
Sundcrland 15 5-3- 7 14:22 18
Stoke 15 3-7- 5 16:17 16
Fulham 13 5-1- 7 12:14 16
Bradford 13 5-1- 7 16:2116
Millwall 15 4-3- 8 18:26 15
Middlesbro. 15 2-6- 7 7:16 12
Shrewsbury 15 2-5- 8 17:26 11
Carlisle 15 i 1-3-11 14:41 6