Dagur - 04.11.1985, Page 9
4. nóvember 1985 - DAGUR - 9
vtmð
vmm
4 /ineÁ
VlDEQ
VIDEÓ
VIDEÓ
Það var haft eftir einhverjum
að það væri enginn maður með
mönnum í nútímaþjóðfélagi
sem ekki ætti sóda-stream-
tæki, visakort og videótæki.
Sumir eiga allan þennan
munað, ef hægt er að kalla
þetta það. Aðrir eiga sóda-
stream og videó og enn aðrir
eiga videó og visakort.
Hvernig sem allt snýst þá er
videó eitt af því sem mörgum
þykir ómissandi hlutur í heimilis-
tækjaeign. Skyldi ástæðan vera sú
að fólk vill frekar sitja og horfa
á videó í stað þess að spjalla sam-
an eftir erfiði dagsins? Fræðingar
segja að of mikið vinnuálag og
mikil streita sé valdurinn í þess-
um efnum og að nútímamaður-
inn sé á góðri leið með að hætta
að geta tjáð sig með orðum og
láti miðilinn mata sig í stað þess
að nota heilann. Þetta er eflaust
sterkt til orða tekið og kannski
fjarlæg sýn. Engu að síður er
videó til staðar og notkun virðist
almennari en margir hafa gert sér
grein fyrir. Þess vegna lék okkur
forvitni á að vita hversu almenn
notkun videótækja væri hér á
Akureyri.
Það eru nokkur atriði sem
menn leggja til grundvallar þegar
valin er mynd til sýningar í
heimahúsum. Margir spyrja
starfsmann myndbandaleigunnar
hvort viðkomandi mynd sé mikið
tekin. Ef svarið er jákvætt, er
það nægjanleg sönnun þess að
viðkomandi mynd er talin góð og
birtingarhæf fyrir fjölskylduna í
videótæki heimilisins. Sem betur
fer eru menn sem þekkja eitt-
hvað til kvikmynda og láta ekki
velja myndir fyrir sig. Hins vegar
virðist bera mjög mikið á því að
fólk velji sér myndir eftir því
hvernig ljósmyndin utari á hylk-
inu er. Þá er tekið tillit til þess
hve ljósmyndin hefur rnikið að-
dráttarafl. Það má heldur ekki
gleyma áhugasviði hvers og eins.
Þegar haft var samband við
myndbandaleigur á Akureyri var
tekið tillit til þess hversu lengi
þær hafa starfað. Því mynd-
bandaieigur spretta upp eins og
gorkúlur á haug. Það virðist sem
sagt vera gróðavænlegt að reka
myndbandaleigur. Þegar við fór-
um af stað taldist okkur til að 8
leigur væru í bænum.
Hins vegar skal það tekið fram
að við fengunr ekki nákvæma
tölu þeirra myndbandaleiga sem
starfandi eru. Enda erfitt þar sem
þær koma og fara eins og sólin.
Þeir aðilar sem við leituðum til
voru mjög fúsir til samvinnu í
þessari könnun okkar. Sá tími
sem miðað er við í könnuninni er
frá mánudegi 14. til mánudags
21. október. Voru þá taldar þær
spólur sem leigðar voru út á þess-
um dögum. Það kom margt fram
þegar farið var að spyrjast fyrir
um notkun myndbanda. Fólk tók
frá 1 spólu á dag og upp í 6. Á
einni leigunni kom fram að fastir
viðskiptavinir eru margir. Sagt
var frá einum slíkum sem átti það
til að fá 20 spólur á viku. Það gat
gerst viku eftir viku. Þannig að á
þessu sést að mismunandi er
notkunin.
Þegar afgreiðslumenn mynd-
bandaleiganna voru spurðir
hvaða efni nyti mestra vinsælda
sögðu þeir að mest væri spurt eft-
ir nýjum myndum. Eins eru flest-
ir sem setja fyrir sig ef mynd er
ekki textuð. Enda væru flestar
myndir textaðar og þýddi lítið að
bjóða upp á annað í dag. Flestar
leigurnar eru með allt sitt efni
textað. Einnig kom fram -að
myndir sem fengjust á leigunum
væru jafnvel komnar þangað
áður en viðkomandi mynd er
sýnd hér í bíói bæjarins. Einnig
væru myndaflokkar ýmiss konar
mjög vinsælir og setti fólk ekki
fyrir sig að sitja yfir fjögurra til
fimm tíma myndaflokki auk þess
að horfa á sjónvarpsdagskrá það
kvöldið.
Um videótækjaeign bæjarbúa
er lítið vitað. Hins vegar sagði
okkur einn myndbandaleigjand-
inn að á sína leigu kæmi alltaf
nýtt og nýtt fólk, sem benti til
þess að töluverð aukning væri á
videótækjaeign bæjarbúa. Slíkt
kom einnig fram hjá aðilum sem
selja videótæki að töluverð aukn-
ing væri í sölu tækjanna. Að vísu
bæri mest á henni fyrir jól og þeg-
ar von væri á gengisfellingu. Állir
sem spurðir voru töldu að mikið
væri af smygluðum tækjum í
notkun. Fólk hugsaði sig ekki
tvisvar um ef því byðist smyglað
videótæki á þokkalegu verði. En
í sambandi við viðskipti með
smygluð tæki væri ætíð um stað-
greiðslu að ræða og það í reiðu-
fé.
Afsláttur af slíkum tækjum
næmi oft einum þriðja kaupverðs
úr verslun hér á landi. Heyrst
hefur um menn sem eru í kaup-
siglingum og öðrum ámóta störf-
um sem hafa góðan aukapening
upp úr slíkum viðskiptum. Kæmu
menn með eitt til 4 tæki í hverri
ferð og fengju í sinn hlut allt upp
í eitt hundrað þúsund krónur.
Af þeim sex myndbandaleigum
sem haft var samband við, var
leiga mjög mismunandi, enda
umsetningin mismikil. Var leigan
allt frá rúmlega eitt hundrað
myndum og upp í tæplega fimmt-
án hundruð yfir vikuna sem skoð-
uð var. Samtals voru útleigðar
myndir þessa viku 2867. Ef það
er margfaldað með 52 vikum
koma út 149.084 myndir yfir árið,
sem leigðar eru á Akureyri. íbúa-
tala Akureyrar, sem sönnust. er
frá 1. desember 1984. en þá voru
íbúarnir 13711. Síðan deilum við
íbúafjöldanum í myndafjöldann
og fáum út 10.87 ntyndir á hvern
íbúa. Síðan tökum við íbúafjöld-
ann og deilum með 4 sem er
venjuleg fjölskyldustærð og fáum
út 3427 fjölskyldur. Síðan deilum
við fjölskyldufjöldanum í út-
leigðar myndir og fáum út að
hver fjölskylda horfir á 43,5
myndir á ári. Hver mynd reiknast
einn og hálfur tími og þá fáum
við út að fjölskyldan horfir á
videó í 65,25 klukkustundir á ári.
Það jafngildir 5,4 sólarhringum.
Samtals horfa Akureyringar á
videó í 223.626 klukkustundir á
ári, sem jafngildir 9318 dögum
eða 25,5 árum.
En hvað kostar svo dýrðin?
Hver spóla er leigð á 150 krónur,
spólurnar sem leigðar eru yfir
árið eru 149.084. Það jafngildir
því að Akureyringar hafi leigt
videóspólur fyrir kr. 22.362.600.
Það væri hægt að gera margt nýti-
legt fyrir alla þá upphæð. En vel
að merkja, það eru ekki allir sem
eiga videótæki. Að fá upp þann
fjölda er ekki mögulegt, þess
vegna held ég að best sé að halda
sig við þær tölur sem teljast rétt-
astar.
Þrátt fyrir þessa upptalningu á
notkun sem felst í útlánum
myndbandaleiga er mun meiri
notkun myndbanda hér á Akur-
eyri. Fyrirtækið Vídeólundur
rekur nokkuð umfangsmikla
starfsemi í Lundahverfi. Þar er
kapalkerfi sem tengt er í um 400
íbúðir.
Vídeólundur sendir út efni í
rúmlega 20 klukkustundir á viku.
Auk þessa eru nokkur sambýlis-
hús á Akureyri með eigin kerfi
þar sem sýnt er efni sem í flestum
tilfellum er fengið frá mynd-
bandaleigum.
Eins og komið hefur fram virð-
ist stöðug aukning í notkun
videótækja og er ekki vitað hvar
sú þróun endar. Enda er þróun
það ör í allri tækni er lýtur að
videótækjum, tölvum og öllu sem
tengja má slíkum tækjum að
ómögulegt er að spá um hversu
mikil áhrif þessi tækni á eftir að
hafa á mannlífið í framtíðinni.
Margir eru hræddir við þessa
þróun, en aðrir taka tækninni
fegins hendi og geta vart beðið
eftir nýrri og frekari þróun. Það
er sagt að mikill hluti almennra
samskipta eigi eftir að fara fram í
gegnum videó, tölvur og álíka
tæki í framtíðinni. Hvernig líst
ntönnum á það og hvað skyldi
það kosta? - gej
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Hrafnagilsstræti 31 e.h., Akureyri, þingles-
in eign Sigurðar Hallgrímssonar, fer fram eftir kröf.u Gunnars
Sólnes hrl. og Guðjóns Steingrímssonar á eigninni sjálfri
föstudaginn 8. nóvember 1985 kl. 14.45.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 95., 99. og 102. tbl. Lögbirtingablaðsins
1985 á fasteigninni Hjarðarlundi 4, Akureyri, þingl. eign Hall-
dórs Ásgeirssonar, fer fram eftir kröfu Guðmundar Ingva Sig-
urðssonar hrl„ Jóns Kr. Sólnes hrl„ bæjargjaldkerans á Akur-
eyri og Brunabótafélags íslands á eigninni sjálfri föstudaginn
8. nóvember 1985 kl. 15.15.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á Hamarsstíg 39 n.h., Akureyri, þinglesin
eign Erlu Bjarnadóttur, fer fram eftir kröfu bæjargjaldkerans á
Akureyri, innheimtumanns ríkissjóðs, Björns J. Arnviðarsonar
hdl. og Vilhjálms Vilhjálmssonar hdl. á eigninni sjálfri föstu-
daginn 8. nóvember 1985 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýsl var í 95., 99. og 102. tbl. Lögbirtingablaðsins
1985 á fasteigninni Skólastíg 5, Akureyri, þingl. eign Unnar
Björnsdóttur o.fl. fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes hrl. og
bæjargjaldkerans á Akureyri á eigninni sjálfri föstudaginn 8.
nóvember 1985 kl. 16.45.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 128., 130. og 133. tbl. Lögbirtingablaðsins
1985 á fasteigninni Sunnuhlíð 1, Akureyri, þingl. eign Svein-
björns Herbertssonar, fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes hrl.,
bæjarsjóðs Akureyrar og innheimtumanns ríkissjóðs á eign-
inni sjálfri föstudaginn 8. nóvember 1985 kl. 13.45.
Bæjarfógetinn á Akureyri.