Dagur - 22.11.1985, Page 5

Dagur - 22.11.1985, Page 5
22. nóvember 1985 - DAGUR - 5 hjátrú eða hvaðZ Haraldur Ingi Haraldsson skrifar Um huliðshjálm Pað er mikið hagræði að geta gengið um ósýnilegur og hér á eftir fara nokkur ráð til þess, þó svo að þau séu varla hentug hundavinum. Taktu lítinn, gráan hund, aflífaðu hann, og taktu úr honum hjartað. Taktu síðan tré úr rauðgreni og kljúfðu það í annan endann, á þann enda festir þú hjartað. Einum mánuði fyrir Jóns- messu skaltu láta grenispýtuna með hjartanu í mold þar sem ræktað tún og úthagi mætast. Settu með hjartanu sjö sáðkorn og á þessum stað mun vaxa huliðshjálmur. Önnur aðferð mælir með svörtum hundi. Gera á sem fyrr nema hvað reka á þrjár grenispýtur í hjartað. Milli þeirra mun vaxa huliðshjálmur í formi steins. Eftir að hann hefur vaxið í níu næt- ur er hann fullvaxta. Steininn skal hafa í lófa sér þegar hverfa á öðrum sjónum. Þriðja tilbrigðið er að grafa hjarta úr svörtum rakka í rauð- greniöskju og geyma það til Jónsmessunætur. Þá er það tekið upp og þurrkað undir hægri hendinni og þá er kominn huliðs- hjálmur. Hafi rakkinn hins vegar verið mórauður, þá á að binda hjartað í hnakkagrófina og þá sýnist eigandi þess vera mórauður hundur. Enn um huliðshjálm Séu menn dýravinir eru hér tvær aðr- ar aðferðir sem ekki eru eins fjand- samlegar málleysingjum, alla vega fer allt vel að lokum. Taktu hrafns- unga, aflífaðu hann, settu spýtu um þverar kverkar honum þannig að hann sé vel fastur í hreiðrinu. Þegar fullorðnu hrafnarnir verða þess varir munu þeir leita um landið allt að þremur steinum og bera til ungans. Einn þeirra er lífsteinn, svo unginn lifni við aftur, ánnar er lausnarsteinn, svo unginn losni og svo huliðshjálmssteinn, svo hreiðrið finnist ekki aftur. Sé þess gætt að ræna aðeins huliðshjálmssteininum, þá verður unginn frír og frjáls. Önnur aðferð svipuð þessari er að vaka yfir hreiðri í þrjú dæg- ur og hrista yfir því bláan klæðisbút. Fullorðni hrafninn kemur þá með tvo steina í gogginum, annan leggur hann á brjóst ungans en hinn á magann. Hafirðu næga þrautsegju til að bíða þar til ung- inn lifnar við, þá nærðu steininum. Göt Náttúruleg göt í trjám, fjöllum eða steinum hafa um langan aldur, víðs vegar í heiminum, verið álitin búa yfir lækningamætti og sá sem gengi í gegnum þau ætti von á að fá ein- hverja bót meina sinna. Margir skottulæknar leggja áherslu á slík göt í kenningum sínum og ýmis fræg göt eru til sem íbúar nágrennisins geta vitnað til um lækningamátt þeirra. Einkum þykja göt af þessu tagi vera áhrifarík gegn ensku veik- inni, kíghósta, tæringu og mæði. Sums staðar er því haldið fram að með því að ganga í gegnum gat geti barnlaus kona öðlast frjó- semi á ný. Sá sem læknast á slíkum stað er tengdur honum órjúfandi böndum um eilífð. Flaut Það eru til þeir staðir þar sem vissara er að láta það vera að flauta. Engum námaverkamanni dettur t.d. í hug að flauta niðri í námu af ótta við að það komi af stað sprengingu. Sumir sjó- menn halda því líka fram að það að flauta úti á sjó geti vakið upp storm. Sú hjátrú er algeng hjá leikurum að það boði ógæfu ef flautað er í leikhúsinu, að ekki sé talað um sé það gert í búningsherbergjun- um, þá er eins víst að sýningin á eftir mistakist. Flautandi konu og galandi hana er ekki gott að mæta á förnum vegi, hvort tveggja boðar ógæfu. Hvers vegna svo er hefur ekki verið skýrt svo fullnægjandi sé. Sumir halda því fram að orsökin sé sú að þegar Kristur var negldur á krossinn stóð kona þar hjá og flautaði og Pétur sveik frelsarann í kapp við hanagal. Bridgefélag Akureyrar Akureyrarmót Bikarkeppni Alþýðubankamót Síðastliðið þriðjudagskvöld 19. nóvember voru spilaðar 9. og 10. umferð í sveitakeppni Bridgefé- lags Akureyrar, Akureyrarmóti. Röð efstu sveita þegar 5 um- ferðir eru til mótsloka, er þessi: 1. Gunnar Berg 192 2. Páll Pálsson 186 3. Kristján Guðjónsson 181 4. Gunnlaugur Guðmundss. 179 5. Örn Einarsson 170 6. Stefán Sveinbjörnsson 169 7. Jón Stefánsson 157 8. Júlíus Thorarensen 155 Næstu tvær umferðir verða spilaðar nk. þriðjudagskvöld kl. 19.30 í Félagsborg. Skráning í Bikarkeppni Bridgesambanda Norðurlands vestra og eystra stendur nú yfir og þarf að vera lokið fyrir 1. des- ember. Hörður Blöndal 23124 og Örn Einarsson 21058 taka við skráningu auk stjórna bridgefé- laganna. Öllum er heimil þátt- taka. Laugardaginn 30. nóvember efna Alþýðubankinn og Bridge- félag Akureyrar til bridgekeppni í nýja Alþýðuhúsinu á Akureyri. Er keppni þessi öllum opin og spilaður verður tvímenningur. Keppni hefst kl. 10 og er áætlað að henni ljúki um kl. 18. Þátt- tökugjald er kr. 1.000 pr. par og er innifalinn í því hádegisverður. Þátttökutilkynningar þurfa að hafa borist til stjórnarmanna BA fyrir föstudag 29. nóv. Að lokinni keppni verður efnt til dansleiks í Alþýðuhúsinu. ítrekað skal, að keppnin er öllum spilurum opin. Þá skal og vakin athygli á, að spilað verður um silfurstig. MICHA Nýir prjónakjólar ocr peysur. Frá Lindbergs Bómullarstretch, flauelsbuxur í öllum stærðum. Nýkomið: Þýskar blússur og samkvæmisdress. Vel klædd erkonan ánægð. Greiðslukort \7isa Eurocard "Tíáku.t/eidiui jStehmnnar Hafnarstræti 98 • Akureyri • Sími (96) 22214 - löpið á laugardögum kl. 10-12. Tílboð óskast Tilboð óskast í MMC Cordia árg. 1983, í því ástandi sem hann er eftir umferðaróhapp. Bifreiðin verður til sýnis á B.S.A.-verkstæðinu mánu- daginn 25. nóvember frá kl. 13-17. Tilboðum skal skila þriðjudaginn 26. nóvember ’85 fyrir hádegi. GMBOÐIÐ HF Sunnuhlíð, sími 21844. Dansarar frá Dansstúdíói Sóleyjar frumsýna nýjan dans, sem er sérstaklega saminn fyrir Sjallann. Ásthildur Cesil syngur nokkur lög af nýútkominni plötu sinni „Sokkabandsárin“. Föstudagur 22. nóvember: Plötukynningar Skriðjöklarnir koma fram í fyrsta skipti í Sjallanum og kynna plötu sína „Var mikið sungið á þínu heimili“. Laugardagur 23. nóvember: Tískusýning frá tískuverslnninni Ping Pong kl. 23.30. Hljómsveitin AMWV* ásamt diskóteki. Matseðill helgarinnar: Djúpsteiktar raekjur „orty“ m/sósu tartar. Kampavínssorbet. Heilsteiktur nautahryggvöðvi m/gufusoðnu grænmeti, koníakssteiktum sveppum og fersku salati. Kafti og konfektbiti. Kr. 840,- Kristján Guðmundsson og Grímur Sigurðsson leika fyrir kvöldverðargesti. Rjómalöguð aspargussúpa. Sinnepsgljáð svínasteik m/Róbertssósu, gufusoðnu grænmeti og fersku salati. Hljómsveitin Aliint* leikur fyrir dansi ásamt Skriðjöklum og diskóteki. SjóMúut

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.