Dagur - 12.12.1985, Qupperneq 4
4 - DAGUR - 12. desember 1985
Varúð!!! Þeir sem leggja
heilann í bleyti geta átt það á
hættu að vatnið renni út um
eyrun!
Tyggjóraunir!!!
Flestir kannast við þann hvimleiða ávana hjá börnum
(ja, og fullorðnum) að skilja tyggjóið sitt eftir á öllum
mögulegum og ómögulegum stöðum. Hver kannast
ekki við tyggjóklessur á stólum, borðum, diskum og
bollum? Óhætt mun samt vera að fullyrða að enginn
hefur orðið eins illa úti og pabbi hans Eiríks, og skal
eftirfarandi saga sögð því til staðfestingar.
Eitt kvöldið kom hann inn í stofu með buxurnar á hæl-
unum. Eiríkur leit á hann í forundran og spurði:
Af hverju hneppirðu ekki upp um þig, pabbi?
Og þú spyrð eftir því, var svarað með hvassri röddu.
Ert það ekki þú sem hefur skilið tyggjóið þitt eftir á
klósettsetunni? Pað klesstist í nærbuxurnar mínar.
Eiríkur rauk fram hálfhlæjandi og kom að vörmu spori
með terpentínubrúsa.
Komdu með afturendann, sagði hann, og þá skal ég
bjarga málunum. Og eftir smástund gat pabbi hans haldið áfram að glápa á imbann
ert hefði í skorist. Hvort Eiríkur fór að velja betri geymslustaði fyrir tyggjóið sitt
sögunni!!!
V
eins og ekk-
, fylgdi ekki
Vanmetín hjálpsemi!!!
Foreldrar Maríu litlu búa við hliðina á búðinni í hverfinu. Pó María sé aðeins fjögurra ára, er
mamma hennar farin að senda hana í búð annað slagið. Og núna um daginn þegar hún var að
baka til jólanna vantaði hana flórsykur og fleira í baksturinn. Hún skrifaði það upp á miða og
bað Maríu að hlaupa og kaupa þetta fyrir sig. María fór en þegar hún kom út sá hún minnis-
miða sem lá á gangstéttinni. Hún fór að skoða hann og sá að á honum voru miklu fleiri hlutir
en á hennar lista. Eftir smá íhugun henti hún sínum og fór með hinn í búðina. Kaupmaðurinn
varð að vonum dálítið undrandi að sjá hvað barnið átti að kaupa mikið en tók samt til vörurnar
og fór sjálfur með þær heim til Maríu.
Þegar mamma hennar sá allt það sem kaupmaðurinn kom með varð hún undrandi og sagðist
alls ekki hafa pantað þetta. Enda stóð ekki til að nota kálhöfuð og niðursoðið grænmeti í smák-
ökurnar. María játaði á sig það sem hún hafði gert og kaupmaðurinn fór með vörurnar til baka.
En María var lengi að velta fyrir sér vanþakklætinu í mömmu sinni, hún sem hafði bara verið
að gera henni greiða!!!
☆
Svar sem híttí í mark!!!
Kennarinn hafði gaman af að stríða krökkunum annað
slagiö. Dag nokkurn
þegar Siggi svaraði
erfiðri spurningu rétt,
sagði kennarinn:
Pú ert nú
ekki eins vitlaus
og þú Iítur út fyrir,
Siggi minn!
Nei, en það er meira
en hægt er að segja
um þig, svaraði
Siggi um hæl.
Allir brjáluðust úr
hlátri og kennarinn
hló manna hæst.
/=•■ i tf c*‘DJ
Ég ætla sko að vera örug;
um að það verði eitthvai
eftir handa gestunum...
☆
# Gildran
Hér kemur sagan af
manninum sem var svo
viss um að eiginkonan
væri honum ótrú að hann
ákvað að setja upp gildru
til að fá staðfestingu á
þessu.
Hann hringdi heim dag
einn eftir hádegið og
sagðist ekki geta komið
heim fyrr en um míðnætti.
Snemma kvölds laumað-
ist hann heim og sá þá að
lagttiafði verið á borð fyr-
ir tvo í borðstofunni.
„Jæja,“ hrópaði hann, „nú
hef ég loksins gripið þig
glóðvolga!" Svo þaut
hann herbergi úr her-
bergi, opnaði alla skápa
og velti um húsgögnum,
en fann engan mann.
Loks hljóp hann út á sval-
irnar og leit niður. í sama
bili sá hann mann koma út
úr húsinu og laga á sér
bindið.
Eiginmaðurinn var svo
ofsareiður að hann þreif
klæðaskápinn og hent!
honum fram af svölunum.
Skápurinn lenti beint ofan
á manninum niðri á göt-
unni og drap hann.
# Sögulok
Nú víkur sögunni til
Gullna hliðsins, þar sem
Lykla-Pétur var að taka
skýrslu af tveimur nýjum
umsækjendum um himna-
vist.
Hann vék sér að þeim fyrri
og spurði hvernig stæði á
ferðum hans. Maðurinn
svaraði þvi til að hann
hefði verið að koma út úr
verslun á neðstu hæð I
fjölbýlishúsi, alveg
grandalaus, bara að laga
bindið sitt. Allt í einu hefði
klæðaskápur fallið ofan á
hann og drepið hann!
Lykla-Pétur vorkenndi
manngarminum og
hleypti honum þvi inn.
Svo sneri hann sér að
seinni manninum, sem
honum þótti raunar harla
niðurlútur og spurði
hvernig á ferðum hans
stæði.
Maðurinn svaraði vand-
ræðalega: „Ég veit að þú
trúir mér ekki, en ég var í
þessum skápfjanda....“
_á Ijósvakanum.
Sögusteinn sem er á dagskrá á Rás I
á morgun kl. 10.40 mun fjalla um Þor-
geirsbola. Heilmargar sögur veröa
lesnar um bola, sem eins og margir
vita gekk Ijósum logum hér á Eyja-
fjarðarsvæðinu. Þorgeirsboli var hálf
ófrýnilegur því hann dró á eftir sér
húðina og svo gat hann breytt sér í
allra kvikinda líki. Þeir munu hafa verið
margir sem áttu samskipti við bola.
Um uppruna Þorgeirsbola eru til
margar sögur. Ein þeirra segir að
Þorgeir hafi vakið hann upp og sent
hann einhverjum en bola hafi verið
snúið aftur til Þorgeirs og hafi síðan
fylgt honum og niðjum hans í marga
ættliði. Bölvunin virðist þó vera aflétt
núna því bola hefur ekki orðið vart hin
síðari ár. Önnur saga segir að maður
hafi komið til Þorgeirs til að fá lánaðan
hníf og þegar Þorgeir neitaði að lána
honum hníf hafi maðurinn reiðst og
vakið upp bola sem Þorgeir var nýbú-
inn að slátra og flá að hálfu.
Sannleikurinn verður þó ekki leiddur
í Ijós í þessum þætti að sögn Haraldar
Inga því sannleikurinn er einhvers
staðar hulinn undir steini.
— útvarpM
FIMMTUDAGUR
12. desember
11.10 Ór atvinnulífinu -
Vinnustaðir og verkafólk.
Umsjón: Tryggvi Þór Aðal-
steinsson.
11.30 Morguntónleikar.
12.00 Dagskrá - Tilkynning-
ar.
12.20 Fróttir.
12.45 Veðurfregnir • Til-
kynningar • Tónleikar.
14.00 Miðdegissagan:
„Feðgar á ferð" eftir Heð-
in Brú.
Aðalsteinn Sigmundsson
þýddi. Bjöm Dúason les
(7). t
14.30 Á frívaktinni.
Sigrún Sigurðardóttir
kynnir óskalög sjómanna.
(Frá Akureyri).
15.15 Spjallað við Snæfell-
inga.
Eðvarð Ingólfsson ræðir
við séra Guðmund Karl
Ágústsson í Ólafsvík.
15.40 Tilkynningar • Tón-
leikar.
16.00 Fréttir • Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
' 16.20 „Fagurt galaði fugl-
inn sá.“
Sigurður Einarsson sér um
þáttinn.
17.00 Barnaútvarpið.
Stjórnandi: Kristín Helga-
dóttir.
17.40 Listagrip.
Þáttur um listir og
menningarmál.
Umsjón: Sigrún Björns-
dóttir.
Tónleikar • Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir • Dag-
skrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.50 Dagíegt mál.
Sigurður G. Tómasson flyt-
ur þáttiim.
20.00 Bókaþing.
Gunnar Stefánsson kynnir
nýjar bækur.
20.30 Tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands í
5. þ.m. -
Háskólabíói
Fyrri hluti.
Stjómandi: Karolos Trikol-
idis.
21.35 „Gegnum lífið á sjö-
tíuogáttasnúninga-
hraða.“
Þáttur um ljóð Einars Más
Guðmundssonar.
Símon Jón Jóhannsson
tekur saman.
22.00 Fréttir Dagskrá
morgundagsins.
22.15 Veðurfregnir • Orð
kvöldsins.
22.25 FimmtudaBumræðan.
Umsjón: Bjami Sigtryggs-
son.
23.25 Kammertónlist.
24.00 Fréttir ■ Dagskrárlok.
FOSTUDAGUR
13. desember
7.00 Veðurfregnir • Fróttir •
Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir • Tilkynningar.
8.00 Fréttir • Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna:
„Elvis, Elvis" eftir Mariu
Gripe.
Torfey Steinsdóttir þýddi.
Sigurlaug M. Jónasdóttir
les (13).
9.20 Morguntrimm • Til-
kynningar • Tónleikar,
þulur velur og kynnir.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fróttir.
10.05 Daglegt mál.
Endurtekinn þáttur Sig-
urðar G. Tómassonar frá
kvöldinu áður.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesið úr forustugrein-
um dagblaðanna.
10.40 „Sögusteinn" Umsjón:
Haraldur I Haraldsson (frá
Akureyri).
I rás 21
FIMMTUDAGUR
12. desember
10.00-12.00 Morgunþáttur.
Stjómendur: Kristján Sig-
urjónsson og Ásgeir Tóm-
asson.
Hlé.
14.00-15.00 í fullu fjöri.
Stjórnandi: Vignir Sveins-
son.
15.00-16.00 í gegnum tíð-
ina.
Stjómandi: Jón Ólafsson.
16.00-17.00 Bylgjur.
Stjómandi: Ásmundur
Jónsson.
17.00-18.00 Einu sinni áður
var.
Vinsæl lög frá rokktímabil-
inu, 1955-1962.
Stjómandi: Bertram
Möller.
3ja mín. fréttir kl. 11, 15,16,
og 17.
Hlé.
20.00-21.00 Vinsældalisti
hlustenda Rásar 2.
Tíu vinsælustu lögin leik-
in.
Stjómandi: Páll Þorsteins-
son.
21.00-22.00 Gestagangur.
Stjómandi: Ragnheiður
Davíðsdóttir.
22.00-23.00 Rökkurtónar.
Stjómandi: Svavar Gests.
23.00-00.00 Poppgátan.
Spumingaþáttur um tón-
list.
Stjómendur: Jónatan
Garðarsson og Gunnlaug-
ur Sigfússon.
RIKISLJIVARPÍÐ
A AKUREYRI
17.00-18.30 Ríkisútvarpið á
Akureyri - Svæðisútvarp.