Dagur - 12.12.1985, Side 10
10 - DAGUR - 12. desember 1985
Frá Heimaey
Á Fl
/ \ Kaupmenn - Kaupfélög
/ 1 Birgið ykkur upp af hinum
frábæru Heimaeyjarkertum.
Látið hinn hreina loga
^^^SttKK^Stb^Heimaeyjarkertanna veita
og
HEIMAEY, kertaverksmiðja,
Faxastíg 46, 900 Vestmannaeyjum. Sími 98-2905.
Opnunartími
verslana á Akureyri
í desember verða verslanir opnar utan
venjulegs verslunartíma sem hér segir:
Laugardaginn
Fimmtudaginn
Laugardaginn
Mánudaginn
Þriðjudaginn
Þriðjudaginn
14. des.
19. des.
21. des.
23. des.
24. des.
31. des.
frá kl. 10-18
frákl. 9-22
frákl. 10-22
frákl. 9-23
frákl. 9-12
frákl. 9-12.
Nýkomnar vörur frá
boduri
w
Kaffilögunar-
tæki
sGrýtaH
Búsáhöld • Tómstundavörur
Sunnuhlíð * Sími 26920
spurning vikunnac..
Ath. að þessi opnunartími gildir ekki fyrir mat-
vöruverslanir. s.
Kaupmannafélag Akureyrar
Kaupfélag Eyfirðinga.
Áfengi og
önnur vímu-
efni eiga aldrei sam-
leiö meö akstri, hvorki á
ferðalagi né heima viö.
Ekkert hálfkák gildir í |UWFER{W,
þeim efnum. Uráo
'ii! r
''i'iinih
Tn^ I 'i’ilf
|:i' [vi-«
IMIMUHL
Allt í jólamatinn
beint úr kjötborði.
Kjúklingar á góðu verði.
Gæsir - Endur - Kalkún.
Athugið: Allt lambakjöt nýtt og reykt
á gamla verðinu.
Verslið tímanlega til jólanna.
Kjörbúð KEA
Sunnuhlíð
Hvernig finnst þér að bregðast eigi
við í Hafskipsmálinu?
Guðríður Þorsteinsdóttir:
Ég hef ekki fylgst nægilega
vel með þessu máli til að geta
tjáð mig um það af nokkru
viti. En þetta mál er allt sam-
an mjög loðið, maður veit í
rauninni ekki hversu um-
fangsmikið það er. En samt
er ég viss um það er ákaflega
víðfeðmt. Ég tel að þeir menn
sem ábyrgð bera í þessu
máli þurfi að gera hreint fyrir
sínum dyrum.
Arngrímur Bjarnason:
Skiptaráðandi hefur allt um-
boð til að rannsaka þetta mál,
þetta er opinber aðili og ég
held við hljótum að geta
treyst því að niðurstöður
rannsóknarinnar verði ekki
hlutdrægar. En þetta er ákaf-
lega slæmt mál allt saman.
Það er víða pottur brotinn í
okkar þjóðfélagi, en ég vona
að þetta mál verði krufið til
mergjar og sannleikurinn
komi í Ijós. Það er held ég
einhugur manna á meðal að
málið verði rannsakað.
Eiríkur Björnsson:
Það verður fyrst að komast
að því hver ber ábyrgðina í
þessu máli, síðan að ákveða
hvað eigi að gera. Þeir sem
ábyrgð bera eiga síðan að
borga. Það þarf að rannsaka
þetta mál ofan í kjölinn, en
aðalmálið er hver eigi að
annast rannsóknina. Rann-
sóknarnefndin má ekki vera
hlutdræg, við verðum að geta
treyst niðurstöðum hennar.
Ég lít þetta mál mjög alvar-
legum augum og held reynd-
ar að þjóðin geri það öll.
Jón Sólnes
Þetta mál þarf að rannsaka
ofan í kjölinn. Mér líst vel á
tillögur ríkisstjórnarinnar um
að skipa sérstaka nefnd til að
rannsaka þetta mál. En ég vil
að það komi skýrt fram að
mér finnst hlutur Seðlabank-
ans í þessu máli ekki of
góður. Seðlabankinn er nú
einu sinni aðaleftirlitsaðili
peningamála í landinu og
hefði því átt að grípa inn í
málin fyrir löngu.
Edda Kristjánsdóttir:
Þetta er mjög stórt mál og ég
vil láta rannsaka það til hlítar.
Hins vegar veit ég ekki
hvernig best er að standa að
þeirri rannsókn. Ég held það
taki svo óskaplega langan
tíma ef skiptaráðandi fer með
það, en á hinn bóginn þá
leysa nefndir engan vanda,
við vitum öll hvernig þær
starfa margar hverjar. Það
sem mérfinnst grunsamlegt í
þessu máli er að Albert
Guðmundssyni er stillt upp
við vegg. Það er svolítið
hárugt, því það vita allir að
það eru fieiri aðilar í þessu
máli. Og ég vona að þeir séu
ekki sloppnir.