Dagur - 12.12.1985, Qupperneq 13
12. desember 1985 - DAGUR - 13
—íþróttitL
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Nóg að gera hjá
róttafólki
Það verður mikið að gerast á
ýmsum sviðum íþrótta um
helgina og má þar nefna blak,
körfubolta, handbolta og
sund. Ættu flestir því að fá
eitthvað við sitt hæfi, að horfa
á.
Við skulum byrja á körfu-
boltanum, en á föstudag og laug-
ardag leika Þórsarar í 1. deildinni
í Höllinni við Fram. Leikurinn á
föstudag hefst kl. 20, en á laugar-
dag kl. 14. Framarar tróna nú á
toppi deildarinnar og virðist fátt
geta stöðvað þá úr þessu. Þórsar-
ar töpuðu stórt fyrir þeim í
Reykjavík um daginn, en þeir
hafa sýnt miklu betri leiki hér fyr-
ir norðan og því getur allt gerst
um helgina. Ef Þórsurum tekst
ekki að vinna báða leikina er
nokkuð öruggt að þeir fara ekki
upp þetta árið.
Kvennalið KA í blaki fær
heimsókn um helgina og eru það
stúdínur sem koma og spila tvo
leiki. Á föstudagskvöld kl. 21 og
á laugardag kl 15.15 í Glerár-
skóla. Kvennaliðinu hefur ekki
gengið allt of vel til þessa, en
vonandi ná þær að velgja ÍS-
stelpunum undir uggum. Karlalið
KA fær líka heimsókn frá ÍS og
leika þeir á undan kvenfólkinu
á laugardag, eða kl. 14. Karlaliðið
hefur aðeins unnið einn leik til
þessa og var það gegn Þrótti Nes.
í fyrsta leiknum í deildinni, en
Að loknu Laugamóti:
Slæm mistök
blaðamanns
allir þessir leikir eru að sjálf-
sögðu í deildinni.
Tveir leikir verða í 3. deildinni
í handbolta og er það lið UMFN
sem kemur norður og leikur gegn
Völsungi og Þór. A föstudags-
kvöld við Völsung á Laugum kl.
20 og á laugardag við Þór í Höll-
inni kl. 12.15 á undan körfubolta-
leiknum. Völsungum hefur ekki
tekist að vinna leik á heimavelli
ennþá, en með áframhaldandi
stuðningi frá áhorfendum ættu
þeir að fara ná sigri heima. Þórs-
arar hafa leikið misjafnlega það
sem af er móti, stundum leikið
ágætlega, en þess á milli hafa
leikir liðsins verið hörmulegir.
Liðið er ungt og á áreiðanlega
eftir að sýna góða leiki í framtíð-
inni.
Að lokum má geta þess að Des-
embermót Óðins í sundi heldur
áfram á laugardag kl. 16 og því
lýkur á sunnudag, en keppni þá
hefst kl. 13. Ætla sér margir
sundmenn stóra hluti og gera
jafnvel atlögu að íslandsmetum
á mótinu.
Matráðskona óskast
í Skíðahótelið eftir áramót.
Upplýsingar í síma 22280.
Fatalagerinn
opnar stórmarkaö
í dag, fimmtudag að Laxagötu 5.
Höfum mikið úrval af fatnaði, barnafötum,
jogginggöllum, peysum, buxum á dömur og
herra og margt margt fleira.
Einnig höfum við HI-MEN barnajogginggalla.
Minnum á okkar landsfræga lága verð.
Opið eins og í verslunum.
FATALAGERINN HF.
Laxagötu 5 • Akureyri
Umsjónarmanni íþróttasíð-
unnar urðu á þau hrikalegu
mistök í blaðinu, að segja það í
fyrirsögn á þriðjudag að KA
hafi unnið Þór í úrslitaleik á
Laugamótinu í innanhúss-
knattspymu sem haldið var um
síðustu helgi. En staðreynd
málsins er sú að leiknum lauk
með jafntefli 6:6.
Engu að síður vann KA b mót-
ið vegna hagstæðara markahlut-
falls. Þetta leiðréttist hér með og
eru hinir hörundsáru Þórsarar
beðnir velvirðingar á þessum
leiðu mistökum. Eins og einn
þeirra sagði, það er nógu slæmt
að gera jafntefli og tapa mótinu
fyrir það, þó ekki sé verið að aug-
lýsa það að við höfum tapað leik,
því við töpuðum engum leik á
þessu móti.
Leikurinn sem um getur var
mjög jafn og spennandi og mikill
hraði. Þórsarar tóku forystuna,
en KA-menn komust síðan í 3:1.
Þórsarar jöfnuðu 4:4 og komust
yfir 5:4. KA-menn jöfnuðu 5:5,
Þórsarar komust í 6:5 og á loka-
sekúndum náðu KA-menn að
jafna leikinn með marki eftir
aukaspyrnu sem mörgum fannst
frekar óréttmæt. En hvað um
það, dómarinn ræður og ekki
þýðir að gera aðsúg að honum
þó ekki gangi allt upp. Þá má
geta þess að hinn prúði leikmað-
ur Þórs, Jónas Róbertsson skor-
aði 3 sjálfsmörk í úrslitaleiknum.
Sá hlær best
sem síðast hlær
Getraunaleikur fjölmiðla stendur nú sem hæst og eftir 4 umferðir
eru Morgunblaðið, DV og Alþýðublaðið efst með 21 leik réttan,
Þjóðviljinn og Ríkisútvarpið eru með 20 leiki rétta, NT19 og Dag-
ur er í neðsta sæti með 18. Sum blöð hafa verið að gera grín að ár-
angri Dags í þessari keppni, en eins og máltækið segir, sá hlær best
sem síðast hlær og verða þau orð látin duga að sinni.
Vinningar í síðustu viku fóru til margra aðila, en alls voru 106
raðir með 12 rétta og gaf það 13.975 kr. fyrir hverja röð. Með 11
rétta voru 1702 og gaf það 373 kr. á hverja röð. AIIs seldust
1.129.000 raðir og var vinningspotturinn 2.116.890 kr. Flestar rað-
ir seldi knattspyrnudeild Fram, alls 79.000.
Getraunakeppni fjölmiðla JO í5 jg S s «o -Q. < > Q £ Morgunblaðið c e •3 »o 'O sr Ríkisútvarpið Dagur
Arsenal-Liverpool X 1 2 1 X 2 2
Aston Villa-Man.United 2 2 2 1 1 1 X
Chelsea-Sheffield Wed. 1 1 1 X 1 1 1
Ipswich-Q.P.R. 1 1 1 1 1 1 X
Manchester City-Coventry 1 1 1 2 X 2 1
Newcastle-Southampton 1 2 X 2 X X 1
Nottingham Forest-Luton 1 1 1 X 1 1 1
Oxford-W.B.A. 1 1 X X 1 1 1
Watford-Tottenham X 2 2 1 1 X 2
Barnsley-Charlton 1 X 1 1 X 2 2
Blackburn-Sunderland 1 X 1 X X 1 1
Oldham-Norwich 2 2 X 2 2 X 2
Kynning
föstudaginn 13. desember frá kl. 3-7 eh.
S Egils appelsín
smákökudeig
tilbúið í ofninn.
Kynnum á laugardag frá kl. 2-6 eh.
Albani pilsner.
Hrísalundi.
Frá Kjöimarkaði KEA Hrísalundi