Dagur - 10.01.1986, Page 8

Dagur - 10.01.1986, Page 8
8 - DAGUR - 10. janúar 1986 10. janúar 1986 - DAGUR - 9 - Jóhann Sigurjónsson, konrektor Menntaskólans á Akureyri, í helgarviðtali um vist hans á Bægisárjökli í tvö sumur og ráðningu hans í stöðu skólameistara MA Nýlega urðu nokkur blaðaskrif vegna breytinga í stjórn Menntaskólans á Akureyri. Sem kunnugt er hefur Tryggvi Gíslason verið ráðinn deildarstjóri í Norrœnu menningarmálaskrif- stofunni í Kaupmannahöfn ífjögur ár frá 1. júlí n.k. Strax og þetta spurðist út hófust vangaveltur um það hver tœki við stjórn skólans á meðan, þar sem Tryggvi lýsti því strax yfir að hann hygðist koma aftur til starfa við Menntaskólann á Akureyri. Fljótlega beindust sjónir manna að Jóhanni Sigurjónssyni sem er aðstoðarskólameistari Menntaskólans á Akureyri. Það varð líka ofan á að hann var ráðinn til að leysa Tryggva af en þó höfðu ýmsir atburðir orðið í millitíðinni sem settu svolítil strik í reikninginn. Meirihluti kennara skólans samþykkti á fundi sínum að mœlast til þess að starfið yrði auglýst laust til umsóknar og Helgarpósturinn birti grein í slúðurdálki sínum þar sem reynt var að láta líta svo út sem bœði Jóhann og Tryggvi hefðu óhreint mjöl í pokahorninu. En hver er hann þessi maður sem málin hafa að mestu snúist um, Jóhann Sigurjónsson. Til þess að kynna hann svolítið fyrir lesendum Dags var hann fengin í helgarviðtal og fyrst var hann spurður um uppruna og námsferil. „Ég er fæddur árið 1942 í Nes- kaupstað þar átti ég mína skóla- göngu fram til landsprófs. Haust- ið 1958 kom ég svo hingað í Menntaskólann í þriðja bekk. Síð- an fór ég beint til Noregs haustið eftir stúdentspróf eftir að hafa verið hér í fjögur ár og var í Noregi til 1969, tók þar tvær gráður, cand. mag. og cand. real. Haustið 1969 kom ég svo hingað til kennslu og hef verið hér síðan. Þær greinar sem ég lærði í há- skóla voru nú margar. Ég hef cand. mag. gráðu í efnafræði og jarðfræði en cand. real. gráðan er í jarðeðlis- fræði. Ég tók mitt lokaverkefni hér uppi á Bægisárdal. Við tókum tveir saman verkefni, ég og Helgi Björnsson jöklafræðingur. Hann tók Bægisárjökul og veðurfar en ég tók aftur landmótun, árrennsli og veðurfar. Við tengdum okkur þannig saman að við tókum við úrkomunni þegar hún féll, Helgi fylgdi henni svo í gegn um jökulinn og annaðist jöklarannsóknir en ég tók aftur við úrkomunni þegar hún kom út úr jöklinum og fylgdi henni út úr dalnum með rennslismæling- um. Síðan athugaði ég jarðfræði og landmótun svæðisins. Þetta var mitt lokaverkefni og ég fékk háskóla- kennararéttindi í þessu fagi.“ Tvö sumur á Bœgisárjökli Hvað dvölduð þið lengi við rannsóknir á Bægisárjökli? „Við vorum þar sumrin 1967 og 1968, tvo mánuði hvort sumar. Þeg- ar kom að því að við ætluðum að velja okkur lokaverkefni þá höfð- um við samband hingað heim við Sigurð Þórarinsson og Sigurjón Rist. Þeir stungu upp á nokkrum verkefnum við okkur sem öll reyndust svo viðamikil og dýr að við hefðum aldrei getað framkvæmt þau sjálfir á eigin kostnaö. Við fengum að vísu styrk úr vísinda- sjóði sem kom sér ákaflega vel því við höfðum talsverðan kostnað í sambandi við flutninga á tækjum frá Noregi til íslands. Síðan þurft- um við að borga tryggingar af tækj- um sem við fengum lánuð hjá Veðurstofunni og Orkustofnun. Svo þurftum við að kaupa ýmislegt efni til að byggja upp þá aðstöðu sem við þurftum til að geta stundað þessar rannsóknir á dalnum og jökl- inum. Við nutum alveg einstakrar hjálpar Steins Snorrasonar bónda á Syðri-Bægisá. Það er svona ættar- fylgja hjá þeim orðið að aðstoða menn við rannsóknir þarna uppi á dalnum og er Snorra gamla getið í heimildum frá fyrri tímum þar sem hann var að fylgja mönnum upp á Bægisárdal og -jökul. Steinn tók við af föður sínum og var okkur ákaf- lega hjálplegur. Hann skaut undir okkur hestum og keyrði draslið okkar á traktor eins langt og hann komst. Þetta voru ævintýraleg sumur því við lágum þarna í tjöldum og fengum á okkur eiginlega öll þau veður sem hægt er að hugsa sér. Einu sinni snjóaði 40 sentimetra á okkur. Við fórum með tjöldin upp í 750 metra hæð þannig að þarna var allra veðra von. Þetta var feikilegt erfiði. Við gengum fleiri kílómetra um fjöllin á hverjum degi. Ég eyddi mjög löngum tíma í mælingar og rannsóknir á jarðlögum og rennsli, og Helgi í veðurathuganir og rann- sóknir á jöklinum. Þetta var hálf- gert villimannalíf á okkur, við kom- um ekki til byggða svo dögum og jafnvel vikum skipti. „Krossaði tjaldið í bak og fyrir“ Þarna á Bægisárdalnum hef ég kannski orðið hvað hræddastur á ævinni. Að vísu held ég að ég hafi éinu sinni orðið enn hræddari en það stóð svo stutt yfir, ekki nema augnablik. Það var þegar ég var á námsárum mínum í Noregi. Þá var ég öskukall fyrstu tvö sumrin. Einu sinni var ég að koma inn í timbur- port, blístrandi og glaður eins og öskukallar eiga að vera, þá veit ég ekki fyrr til en „grand danois" hundur kemur á móti mér, leggur lappirnar á axlirnar á mér og byrjar að sleikja mig í framan. Mér varð verulega bylt við þar sem þetta gerðist svo snögglega en svo sá ég að hundurinn var blíður og góður svo ég ýtti honum til hliðar og hélt áfram með mín verk. En þegar ég var þarna uppi á Bægisárdal var það einhvern tíma að Helgi hafði farið suður að erinda fyrir okkur og ég var því einn á jöklinum í rúma viku. Eina nóttina vakna ég við það að tjaldið hristist allt og skókst. Ég skreið úr pokan- um og ætlaði að reka í burtu roll- urnar sem ég var viss um að væru þarna á ferðinni því að þetta hafði komið fyrir áður að við höfðum þurft að reka í burtu sauðfé sem hafði verið að hnjóta um tjaldstög- in. En þegar ég kem út sé ég ekki nokkurn skapaðan hlut. Það var dalalæða sem hafði lagst alveg upp að tjöldunum og í kringum þau en var bjart fyrir ofan. Ég hugsa með mér að rollurnar hafi bara horfið í þokuna og rek upp nokkur hljóð til að koma þeim lengra í burtu og skríð svo aftur inn í tjald og fer að sofa. Ég hafði ekki legið ýkja lengi þegar sami djöfulgangur byrjar aftur. Nú læddist ég mjög varlega upp úr pokanum og út úr tjaldinu en þar var enga hreyfingu að sjá. Þá fóru að rifjast upp fyrir mér sög- ur sem vinur minn Steinn Snorra- son, bóndi á Bægisá, hafði sagt mér. Ég man nú ekki fyrir víst hve- nær það var en þó minnir mig að það hafi átt að vera einhvern tíma á síðustu öld sem haft var í seli þarna uppi á dalnum. Þar var strákur sem var látinn vaka yfir fénu. Til þess að nýta drenginn var bundinn strokkur á bakið á honum þannig að þegar hann hljóp á eftir fénu hristi hann strokkinn og strokkaði þannig í leiðinni. Þetta var náttúrlega ekki fullharðnaður unglingur og senni- lega hefur þetta verið honum um megn því hann hengdi sig í kletti þarna 'á miðjuih dalnum. Klettur- inn heitir síðan Skúlaklettur eftir smalanum. Steinn var búinn að segja okkur það að Skúla þessum væri misvel ,við gesti á dalnum og ætti til hvekkja þá og gera þeim líf- ið leitt. Þar sem ég sá engar rollur þarna utan við tjaldið fór mig að gruna að þarna væri eitthvað ekki alveg hréint á ferðinni. Ég varð talsvert skelkaður því ég hafði fram til þessa tíma gert grín að öllu slíku og geri: gjarnan enn, en það runnu á mig tvær grímur, hvort það gæti verið eitthvað óhreint á ferð. Ég leggst fyrir einu sinni enn og þá heyri ég heilmiklar drunur og læti úti og allt í einu kemur stærðar bjarg ifljúgandi rétt niður með tjöldunum, langt ofan úr klettum. Þetta var svona frekar óeðlilegt að það væjri þarna grjóthrun á þessum tíma, ekki þar fyrir að það gæti hafa verið þarna næturfrost sem spreng^i þennan stein lausan. Það var hugsanlegt. Nú, ég fór út í þriðja sinn og hálfskammaðist mín fyrir athafnir mínar en ég krossaði tjaldið í bak og fyrir og las ein- hverjar bænaþulur sem ég mundi bestar og fór svo inn að sofa í þriðja sinn og svaf óáreittur til morguns. Ég skoðaði þetta allt daginn eftir og var að reyna að fjnna náttúruleg- ar skýringar á þessum ósköpum. Maður sá ekki langt í þokunni um nóttina og það gætu hafa verið þarna einhverjar rollur að rekast í tjaldið þó ég sæi þær ekki þegar ég fór út og eins er það hugsanlegt að frost hafi sprengt steininn lausan, en þetta var ákaflega skrýtið og skrýtnast var að það skyldi verða friður eftir að ég krossaði tjaldið. Ég verð að viðurkenna það að síð- an þetta gerðist hef ég ekki með heilum hug getað afneitað tilvist einhverra yfirskilvitlegra fyrir- bæra.“ „Merkilegt að bera saman allt sem skrifað hefur verið um svœðið“ Komust þið að einhverjum merkilegum niðurstöðum við þess- ar rannsóknir á jöklinum? „Nei, ég býst nú ekki við að það geti talist neitt sérlega merkilegt. Við skrifuðum hvor sína ritgerðina, mín var um 150 síður með myndum, línuritum og öllu saman og Helga ritgerð var álíka stór. Við gerðum lítið annað en að staðfesta tölulega það sem menn höfðu haft grun um áður. Við beittum ansi fullkomnum mæliaðferðum, þeim bestu sem þá var völ á og unnum svo úr þessum niðurstöðum eftir fyrra sumarið. Við héldum þessum mælingum svo áfram seinna sumar- ið með þeim ábendingum sem við höfðum fengið frá okkar prófessor- um, hvor um sig, breyttum svolítið um mæliaðferðir og endurtókum sumar mælingar sem við höfðum gert sumarið áður. Við notuðum þarna margs konar mæliaðferðir til að fá samanburð. Það var búið að gera hliðstæðar mælingar erlendis, m.a. í Skandinavíu og við sýndum fram á það að það gilti í stórum dráttum það sama hér um hegðun jökla og vatnsfalla. Auk þess var þetta náttúrlega talsverð heim- ildakönnun, sérstaklega í minni ritgerð. Ég reyndi að grafa upp allt það sem skrifað hafði verið um svæðið frá upphafi og fyrir vikið varð heimildalistinn gífurlega langur. Þær skiptu hundruðum, heimildirnar sem við könnuðum. Það út af fyrir sig er býsna merkileg- ur þáttur að bera saman allt það sem skrifað hefur verið um svæðið.“ - Þú hlýtur að hafa kynnst jarð- fræði og landslagi þessa svæðis býsna vel á þessum tíma sem þú varst við þessar rannsóknir? „Já þetta er náttúrlega tak- markað. Við erum á blágrýtissvæði og fjölbreytnin er ekki mikil. En maður kynntist ákaflega mörgum þáttum í náttúrufari og dýralífi vegna þess að við bjuggum í tjald- búðum í mismunandi hæð. Við vor- um allt frá 300 metrum yfir sjó og upp í 720-30 metra hæð og loks höfðumst við við uppi á jökli í 1000 metra hæð svo dögum skipti þegar við vorum við samfelldar mælingar uppi á jöklinum. Svo gengum við þarna upp á hæstu fjöll, 14-1500 metra há. Við vorum þarna við alls konar veðurskilyrði í þessar tuttugu vikur sem við dvöldum samanlagt þarna uppi, þannig að auðvitað kynntist maður náttúru landsins mjög vel og því dýralífi sem þarna var. Það hefur aftur haft mikil áhrif á þá afstöðu sem maður hefur tekið í náttúruverndarmálum." „ Var tregur til að sœkja um starf konrektors“ Nú hefur þú verið ráðinn skólameistari Menntaskólans á Ak- ureyri á meðan Tryggvi Gíslason verður í Kaupmannahöfn þar sem hann hefur verið ráðinn deildar- stjóri Norrænu menningarmála- skrifstofunnar. Hafðir þú áhuga á að taka að þér stjórn skólans þegar þú sóttir um starf konrektors fyrir þremur árum? „Ef við skoðum feril minn hérna í skólanum þá varð ég snemma deildarstjóri í efnafræði og jarð- fræði og fer þá strax að taka þátt í ákveðnum stjórnarstörfum. Síðan var ég alltaf viðloða ákveðin störf sem tengdust útskrift stúdenta á vorin og unnin voru af hópi kennara hér sem kallaðir voru Vel- vakandi og bræður hans, án þess að nokkur vissi hver Velvakandi var heldur vorum við allir bræður hans. Hlutverk þessa hóps er að fara yfir feril allra þeirra sem útskrifast og ganga úr skugga um að allt sé nú rétt með farið og skrifa burtfarar- skírteini þeirra. Fyrst var þetta allt saman handreiknað og skrifað en nú er þetta tvískipt. Annars vegar er tölvuútskrift sem þarf að yfirfara mjög vandlega og hins vegar er handskrifað skírteini. Þátttaka mín í stjórnunarstörfum jókst þegar farið var að gera stundaskrá skólans í tölvu. Þannig er að stundaskrá skólans er gerð í tölvu Tæknihá- skólans í Þrándheimi. Við útfyllum sérstök gögn hér sem við sendum út og vegna tengsla minna við Noreg og norskukunnáttu var ég tekinn inn í þetta starf haustið 1980. Þegar Tómas Ingi hætti sem konrektor sótti ég um það starf, en ekki fyrr en á síðasta degi, eftir að stór hópur samkennara minna hafði hvatt mig til þess. Akkúrat þetta sem nú er að gerast réði því að ég var ákaflega tregur til að sækja um starfið." „Ekki hœgt að auglýsa starfið lögum samkvœmt“ Hafðir þú þá einhverja vitn- eskju um að þessi staða ætti eftir að koma upp? „Ekki nákvæmlega þessi staða. Hins vegar hafði ég nokkurn veginn fulla vitneskju fyrir því að skóla- meistari ætlaði í eins árs leyfi, eins og við getum sótt um og fengið eftir að hafa verið þetta lengi í starfi. Hann hafi látið í það skína að hann hefði hug á að taka sér leyfi þó að enginn hefði þá getað séð fyrir þá stöðu sem nú er komin upp. Þegar ég sótti um starf konrekt- ors lýsti ég með því yfir að ég væri tilbúinn að stíga skrefið til fulls. Þegar maður ræður sig sem aðstoðarmann og staðgengil æðsta manns í stofnun verður maður að vera viðbúinn því að eitthvað geti komið fyrir hann og maður þurfi að hlaupa í skarðið um lengri eða skemmri tíma.“ - Nú samþykkti meirihluti kennarafundar í Menntaskólanum á Akureyri ályktun þar sem skorað var á menntamálaráðherra að hann auglýsti stöðu skólameistara skól- ans í fjarveru Tryggva Gíslasonar lausa til umsóknar. Hvernig er það fyrir þig að taka við þessari stöðu nú þegar ráðherra hefur ekki orðið við ósk kennarafundar? „Ég held að sú tillaga hafi kannski komið fram af mjög marg- þættum ástæðum og ýmsir þeirra sem studdu þá tillögu hafa lýst yfir að þeir hafi stutt hana af mismun- andi ástæðum. Sjálfsagt hafa ein- hverjir verið á móti mér sem er mjög eðlilegt. Maður situr tæplega í stjórnunarstöðu í þetta mörg ár án þess að fá einhvern á móti sér. Aðr- ir hafa lýst því yfir að þarna sé hreinlega um „prinsippmál“ að ræða; að það eigi að auglýsa svona stöður. Þar hefur verið vísað til þeirrar stöðu sem kom upp hjá Ríkisútvarpinu þegar Hjörtur Páls- son dagskrárstjóri var ráðinn for- stöðumaður Norræna hússins í Fær- eyjum en kom svo heim aftur fyrr en áætlað var. Þá er verið að tala um að tryggja þeim sem tekur við starfinu að hann verði ekki settur úr því fyrirvaralítið. Kennarar hér héldu að starf Hjartar hefði verið auglýst eins og útvarpsráð hafði lagt til að yrði gert en samkvæmt lögum var það ekki hægt, ekki frek- ar en hér. Ef kennarar hér hefðu gert sér grein fyrir því að sam- kvæmt lögum var ekki hægt að aug- lýsa þessa stöðu hefði þessi tillaga sjálfsagt aldrei komið fram. Þriðji hópur þeirra kennara sem samþykktu umrædda tillögu segir að þeir hafi gert það til þess að hægt yrði að gefa öðrum kost á að sækja um og síðan myndi menntamálaráð- herra óska eftir áliti kennarafundar eins og vaninn er að gera þegar ráð- inn er skólameistari og með því hefði sá skólameistari sem við tæki, hvort sem það hefði orðið ég eða einhver annar, miklu sterkari stöðu og stæði ekki í þeim sporum sem ég stend í nú. Ég skil vel afstöðu allra þessara manna en vegna þess hvernig lögum er fyrir komið er þetta bara ekki hægt með öðrum hætti en nú er hafður á.“ -yk.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.