Dagur - 24.01.1986, Qupperneq 5
24. janúar 1986 - DAGUR - 5
,-hjátrú eða hvað?-
Haraldur Ingi
Haraldsson
skrifar
Snæfellsásinn
Bárður Snæfellsás var í hávegum
hafður á Snæfellsnesi. Bárðar saga
segir hann vera mennskan en þó
hafi tröllablóð runnið um æðar hans.
Sagan segir fyrst frá Bárði í Noregi,
en síðar kom hann til íslands og nam
land á Snæfellsnesi og bjó þar um
hríð, þangað til hann hvarf skyndi-
lega, „og þykir mönnum sem hann
muni í jöklana horfið hafa og byggt þar stóran helli, því að það
var meir ætt hans að vera í stórum hellum en húsum, því að hann
fæddist upp með Dofra í Dofrafjöllum. Var hann tröllum og lík-
ari að afli og vexti en mennskum mönnum, og var því lengt nafn
hans og kallaður Bárður Snæfellsás, því að þeir trúðu á hann ná-
liga þar um nesið og höfðu hann fyrir heitguð sinn, varð hann og
mörgum in mesta bjargvættur." Síðan bjó Bárður á jöklinum og
birtist mönnum aðeins við og við. „Var hann svo oftast búinn, að
hann var í grám kufli og svarðreip um sig, klafakerlingu í hendi
og í fjaðurbrodd langan og digran. Neytti hann og hans jafnan, er
Dísir.
Dísir gengdu margs konar hlutverki
meðal germanskra þjóða. Orðið
landdísir bendir til þess að landvættir
hafi þær líka verið. í Flateyjarbók er
fræg saga þar sem dísir leika aðal-
hlutverkið. „Þiðrandi tók sverð í
hönd sér og gekk út. Hann sá engan
mann. Kom honum þá það í hug, að
nokkrir boðsmenn mundi hafa riðið
fyrr heim til bæjarins og riðið síðan aftur á móti þeim, er seinna
riðu. Hann gekk þá undir viðarköstinn og heyrði, að riðið var
norðan á völlinn. Hann sá, að það voru konur níu og voru allar í
svörtum klæðum og höfðu brugðin sverð í höndum. Hann heyrði
og, að riðið var sunnan á völlinn. Þar voru og níu konur, allar í
ljósum klæðum og á hvítum hestum. Þá vildi Þiðrandi snúa inn
aftur og segja mönnum sýnina.
Þá bar að fyrr konurnar þær hinar svartklæddu og sóttu að
honum, en hann varðist vel og drengilega. Langri stundu síðar
vaknaði Þórhallur og spurði, hvort Þiðrandi vekti, og var honum
eigi svarað. Þórhallur kvað þá mundu ofsofið, og var þá út
gengið. Var á tunglskin og frostviðri. Þeir fundu Þiðranda liggja
særðan, og var hann borinn inn, og er menn höfðu orð við hann,
segir hann þetta allt, sem fyrir hafði borið. Hann andaðist þann
sama morgun í lýsing og var lagður í haug að fornum sið heiðinna
manna. Síðan var haldið fréttum um manna ferðir, og vissu menn
eigi vonir óvina Þiðranda. Hallur spurði Þórhall, hverju gegna
mundi þessi inn undarlegi hlutur. Þórhallur svarar: „Það veit eg
eigi, en geta má eg til, að þetta hafi engar konur verið aðrar en
fylgjur yðrar frænda. Get eg, að hér komi siðaskipti, og mun
þessu næst koma siður betri hingað til lands. Ætla eg þær dísir
yðar, er fylgt hafa þessum átrúnaði, nú hafa vitað fyrir siðaskipti
og það, að þær munu verða afhendar þeim frændum. Nú rnunu
þær eigi una því að hafa engan skatt af yður, áður þær skiljast
við, og munu þær hafa þetta í sinn hlut. En inar betri dísir mundu
vilja hjálpa honum og komust eigi við að svo búnu.““
Kristni saga.
Ármenn búa í fjöilum og steinum og
virðast hafa haft tröllseðli að ein-
hverju leyti þó svo miklu blíðari
væru þeir. í Vatnsdal voru tveir slíkir
og voru kallaðir bjargvættir dalsins.
Frá ármanni er sagt í Kristni sögu
og bjó sá í stórum steini. Friðrekur
biskup er á ferð í óða önn við að
kristna íslendinga. Þorvaldur Koð-
ránsson fylgir honum heim til föður síns þar sem kallinn er beðinn
um að taka skírn. „Þorvaldur bað föður sinn skírast, en hann tók
því seinlega. Að Giljá stóð steinn, sá er þeir frændur höfðu
blótað, og kölluðu þar búa í ármann sinn. Koðrán lést ei mundu
fyrri skírast láta en hann vissi, hvor meir mætti, biskup eða ár-
maður í steininum. Eftir það fór biskup til steinsins og söng yfir,
þar til er steinninn brast í sundur. Þá þóttist Koðrán skilja, að ár-
maður var sigraður. Lét Koðrán þá skíra sig."
Ódýru
hnífapörin
á statífi
komin aftur.
Litir: Rautt, hvítt og svart.
Búsáhöld • Tómstundavörur
Sunnuhlíð • Sími 26920
Sunnudagskaffi FHUE
Félag Harmonikuunnenda við Eyjafjörð heldur sunnu-
dagskaffi í Lóni Hrísalundi 1, 26. janúar kl. 3 e.h. Dansað
í lokin.
Ath: Félagsmenn og allir aðrir eru
boðnir velkomnir.
Kaffinefndin.
Bæj arstj órnarkosningar
Kjörnefnd framsóknarfélaganna á Akureyri auglýsir eftir
uppástungum um frambjóðendur á lista Framsóknar-
flokksins til bæjarstjórnarkosninga 1986.
Kjörnefnd tekur á móti uppástungum um frambjóðendur til 10. febrúar nk.
í kjörnefnd eru:
Gísli Kr. Lórenzson formaður ... sími 23642 Þorgerður Guðmundsdóttir sími 22279
Ólafur Ásgeirsson .......sími 21606 Bragi V. Bergmann .sími 26668
Sigurlaug Gunnarsdóttir .sími 26156
IMISSAN
Bílasýning
Laugardag 25. jan. og sunnudaginn 26. jan.
frá kl. 2-5 e.h. báða dagana að
Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar.
Komið og kynnið ykkur kjörin.
Bifreiðaverkstæði Ingvar Helgason hf.
Sigurðar Valdimarssonar Rauðagerði.
Óseyri 5a, sími (96) 22520.