Dagur - 07.02.1986, Síða 16
Helgarmatseðill Smiðjunnar
Humarsúpa með safran ★ Frönsk lauksúpa, gratineruð ★
Rækjumús með avocado ★ Sítrónusteikt Pekingönd ★
Ostfyllt lamb með Grand Mariniére-rjóma ★
Black and white (nauta- og grísalundir)
með humri og spergli á jarðsveppasósu ★
Kramarhús fyllt með jarðarberjum ★ Sælkeravagn Smiðjunnar.
„Islensk skinn
eru þau bestu“
Að öllum líkindum verður
engin kennsla í grunnskólum á
Norðurlandi eystra á mánu-
daginn. Kennarar munu leggja
niður kennslu til að mótmæla
því að félagar I Hinu íslenska
kennarafélagi, HÍK hafa 5%
hærri laun á mánuði en félagar
í Kennarasambandi íslands.
Pessar aðgerðir á Norðurlandi
eystra eru hluti af samræmdum að-
gerðum kennara um allt land.
Þannig verður heldur engin
kennsla á Vesturlandi á mánu-
daginn og kennarar á Vestfjörð-
um og í Reykjavík fella niður
kennslu á þriðjudag.
„Þetta er ólögleg aðgerð, því
við leggjum niður vinnu en erum
ekki að nýta okkur heimild til
fundarhalda. En við verðum að
knýja fram leiðréttingu og ætlum
jafnframt að koma saman og
ræða okkar mál, m.a. hvað við
gerum ef þessar aðgerðir duga
ekki til,“ sagði Ragnhildur
Skjaldardóttir í Þelamerkurskóla
en hún er formaður Bandalags
kennara á Norðurlandi eystra.
Félagar í HÍK fengu 2% hækk-
un umfram KÍ í júní og síðan aft-
ur með kjaradómsúrskurði í nóv-
ember en þá fengust 3%. Kenn-
arar í þessum félögum eru með
sömu menntun og sömu starfs-
reynslu og kenna hlið við hlið og
því er í hæsta máta óeðlilegt að
launin séu mismunandi lág.
Ragnhildur sagði að fjármála-
ráðherra og menntamálaráðherra
hefðu marglýst því yfir að þessi
munur væri óeðlilegur. Þessar
aðgerðir yrðu því dregnar til
baka ef yfirlýsing kæmi frá
stjórnvöldum í dag um að launa-
mismunurinn verði leiðréttur.
BB.
-segirÞorbjörnÁrnason
hjá Loðskinni hf.
„Þegar litið er til framtíðarinn-
ar er Ijóst að okkur kemur til
með að skorta hráefni. Hins
vegar hefur hráefnisskortur
ekki háð okkur enn sem komið
er,“ sagði Þorbjörn Árnason
framkvæmdastjóri sútunar-
verksmiðjunnar Loðskinns h.f.
á Sauðárkróki í samtali við
Dag.
Fyrirsjáanlegur samdráttur í
dilkakjötsframleiðslu hefur vald-
ið skinnaframleiðendum nokkr-
um áhyggjum. Svo gæti farið að
þá færi að skorta hráefni til fram-
leiðslunnar strax á næsta ári.
„Við höfum haft mjög gott
samstarf við skinnadeild Sam-
bandsins á Akureyri varðandi
hráefnisöflun en við skiljum það
vel að þeir geti ekki misst mjög
mikið af hráefni til okkar. Þeir
hafa nóg með sína framleiðslu,"
sagði Þorbjörn ennfremur.
Gott verð hefur fengist fyrir
skinnavörur að undanförnu enda
er eftirspurn meiri en framboð.
Loðskinn h.f. selur mest til Finn-
lands en einnig nokkuð til hinna
Norðurlandanna.
Þorbjörn sagði að frá Norður-
landi færu engin skinn hálfunnin
úr landi en hins vegar væri nokk-
uð um slíkt á Suðurlandi.
„Það er hefð fyrir því að telja
að Spánverjar framleiði bestu
mokkaskinnin til fataframleiðslu.
Við höfum ekki fengið eins gott
verð og þeir fyrir okkar skinn en
við vinnum að því. Staðreyndin
er nefnilega sú að íslensku skinn-
in eru best. Ég get því ekki sagt
annað en að við séum bjartsýnir
hvað framtíðina varðar,“ sagði
Þorbjörn að lokum. BB.
Norðurland:
Útlit fyrir mikla
laxveiöi í sumar
„Já það er full ástæða fyrir
stangveiðimenn á Norðurlandi
að vera bjartsýnir á komandi
veiðitímabil og því valda hag-
stæð ytri skilyrði,“ sagði Einar
Hannesson hjá Veiðimála-
stofnun er Dagur ræddi við
hann í gær.
Einar sagði að þær rannsóknir
sem fiskifræðingar hafa gert,
bentu ótvírætt til þess að bjartari
horfur séu framundan á Norður-
landi fyrir veiðimenn. í fyrra var
um mun betri veiði að ræða í ám
landsins en verið hafði, og var
fyrst og fremst um að ræða fisk
sem hafði verið eitt ár í sjó. í
norðlenskum ám er tiltölulega
meira af tveggja ára fiski en í
öðrum ám landsins þannig að í
sumar ætti að vera mikið um
tveggja ára fisk í ám norðan-
lands, fisk sem er á bilinu 8-12
pund að þyngd.
„Það er ekki ástæða til að ætla
annað en að það komi mikið af
þessum tveggja ára fiski í norð-
lensku árnar og svo gengur einnig
mikið af ársgömlum fiski þannig
að útlitið norðan- og austanlands
er bjart,“ sagði Einar. gk-.
Svalbarðseyri:
Sláturhúsinu
„Fyrst um sinn a.m.k. á meðan
verið er að athuga hvort ekki
er hagkvæmt að nýta slátur-
húsið á Akureyri betur, höfum
við lokað sláturhúsinu á Sval-
barðseyri,“ sagði Hafþór
Helgason fulltrúi hjá KEA í
gær.
Sláturhúsið á Akureyri er mjög
gott og fullkomið og það er
spurning um að nýta það enn bet-
ur en gert hefur verið. Við höfum
einnig ákveðið að leggja fyrst og
fremst áherslu á kjötvinnslu á
Svalbarðseyri og síðar á fram-
leiðslu í kartöfluverksmiðjunni ef
aðstæður lagast. Þessir þættir
yrðu þámegináherslupunktar hér
og verslunin."
- Nú eruð þið einmitt þessa
dagana að endurskipuleggja
reksturinn. Er von á fleiri breyt-
ingum?
„Við erum að skoða ýmsa hluti
Raðsmíðaskipin:
Akureyringar bjóða
í eitt skipanna
Dagur hefur fyrir því öruggar
heimildir að aðilar á Akureyri
ætli að bjóða í eitt af raðsmíða-
skipunum fjórum sem nú er
verið að bjóða út.
Skipin fjögur sem hafa verið í
smíðum hjá þremur skipasmíða-
lokað
hérna á Svalbarðseyri. Það hefur
ríkt hér nokkur óvissa sem er
eðlilegt á fyrstu dögum svona
leigu. Hún fer þó minnkandi frá
degi til dags og hlutirnir eru
smátt og smátt að komast í eðli
legt horf þótt enn séu endar laus-
ir. Það er eins og við er að búast
þegar komið er að fyrirtæki í
þeirri rekstrarstöðu sem Kaupfé-
lag Svalbarðseyrar var í,“ sagði
Hafþór Helgason.
fyrirtækjum hér á landi undanfar-
in ár, - þar af tvö hjá Slippstöð-
inni - eru talin mjög hentug til
ýmissa veiða, svokölluð fjölveiði-
skip. Er vitað um að mikill áhugi
er víða um land meðal manna að
komast yfir þessi skip.
Það eru einstaklingar á Akur-
eyri, hugsanlega í einhverri sam-
vinnu við Akureyrarbæ, sem
hyggjast gera tilboð í eitt skip-
anna, en tilboðin þurfa að hafa
borist fyrir 21. febrúar. Kaup-
endur verða að leggja fram 15%
kaupverðsins en 85% fást lánuð.
Skipin fá kvóta og hefur verið tal-
að um „vannýttar“ fisktegundir í
því sambandi og þá aðallega átt
við rækju. Hins vegar er talið að
þorskkvóti þeirra verði sáralítill
eða rétt um 200 tonn á hvert skip-
anna.
Skipin tvö sem Slippstöðin
smíðar eru komin nokkuð jafn-
langt áleiðis. Hægt verður að
Ijúka smíði þeirra á nokkrum
mánuðum þannig að hægt verður
að afhenda þau í sumar, en beðið
verður með ýmsa hluta þeirra þar
til ákveðið hefur verið hverjir
kaupa þau og þessir hlutir unnir í
samráði við kaupendurna. gk-.
Tvö
innbrot
Tvö innbrot voru framin á Ak-
ureyri í fyrrinótt, en þjófarnir
höfðu ekki mikið upp úr krafs-
inu.
Farið var inn í vöruafgreiðslu
KEA. Þar var stolið tölvuborði
og segulbandi og einhverjar
skemmdir unnar. Það mál er
upplýst.
Þá var brotist inn í Malbikun-
arstöðina og stolið þar einni gam-
alli talstöð en öðru ekki. Unnið
er að rannsókn þess máls. gk-.