Dagur - 24.02.1986, Síða 7
6 - DAGUR - 24. febrúar 1986
24. febrúar 1986 - DAGUR - 7
Haukur Eiríksson.
íslandsgangan:
Haukur
var
bestur
Fyrsti hluti íslandsgöngunnar á skíðum var
haldinn á Egilsstöðum um helgina. Keppt
var í tveimur flokkum og urðu úrslit sem hér
segir:
I flokki 34 ára og yngri sigraði Haukur
Eiríksson Akureyri á 1,17,00 mín. en gengn-
ir voru 25 km. í öðru sæti varð Ingþór bróðir
hans á 1,19,56 mín. og þriðji varð Haukur
Sigurðsson Ólafsflrði á 1,21,06 mín.
I eldri flokknum sigraði Sigurður Aðal-
steinsson Akureyri sem gekk 25 km á 1,20,28
mín, annar varð Björn Þór Ólafsson Ólafs-
flrði á 1,23,04 mín, og þriðji Konráð
Eggertsson Ólafsflrði á 1,32,44 mín.
Þetta var fyrsta keppnin af fimm í vetur í
íslandsgöngunni, sú næsta verður háð á
Glerárdal við Akureyri.
Minningarmót:
Ólafsfirð-
ingar voni
sigursælir
Minningarmótið um bræðurna Nyvarð og
Frímann Konráðssyni var haldið á Ólafsfirði
I gærmorgun. Keppt var í mörgum flokkum í
skíðagöngu og urðu sigurvegarar þessir:
Í flokki pilta, 10 ára og yngri sigraði Albert
Arason Ó á 10,38 mín. en genjgnir voru 2
km. Thelma Matthíasdóttir O sigraði í
stelpnaflokknum á 9,33 mín.
Kári Jóhannesson A og Kristján Hauks-
son Ó háðu harða keppni í flokki 11-12 ára.
Kári fékk timann 10,49 en Kristján 10,50
mín. en gengnir voru 2,5 km. Grétar Björns-
son Ó sigraði í flokki 13-14 ára pilta á 17,15
mín. en gengnir voru 5 km. Magnea Guð-
björnsd. Ó sigraöi í flokki 13-15 ára stúlkna-
flokki á 14,59 mín. en þar voru gengnir 3,5
km.
í flokki 17-19 ára sigraði Sigurgeir
Svavarsson Ó á 32,26 mín. cn gengnir voru
10 km. Karlar gengu sömu yegalengd og þar
sigraði Haukur Sigurðsson Ó á 31,41, Ingþór
Eiríksson A annar á 32,14 mín. og Sigurður
Aðalsteinsson A þriðji á 33,43 mín.
Jþróttiii
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Stórgóður leikur
tryggði Þórsigur
- gegn Skagamönnum í 3. deildinni í handbolta
„Ég er mjög bjartsýnn á fram-
haldið, ekki síst eftir svona leik
eins og við sýndum gegn Akra-
nesi,“ sagði Gunnar M.
Gunnarsson þjálfari Þórs í
handbolta eftir að Þór hafði
unnið Akranes 22:18 í góðum
leik á laugardag.
Þetta var leikur tveggja liða
sem berjast um sæti í 2. deild að
ári og lengi vel leit ekki vel út hjá
Þórsurum. Liðið sótti sig þó mjög
eftir því sem á leikinn leið og í
síðari hálfleik lék liðið sérlega
góðan varnarleik og snéri leikn-
um sér í hag. Þessi sigur liðsins
var afar þýðingarmikill og eykur
möguleika liðsins á sæti í 2. deild
að ári.
Skagamenn byrjuðu með mikl-
um látum og komust í 10:4 í fyrri
hálfleik. Þá sögðu Þórsarar hins
vegar hingað og ekki lengra og
tóku öll völd í sínar hendur. Þeir-
skoruðu hvert markið af öðru og
í hálfleik var forskot Akraness
12:8.
En Þórsarar áttu enn eftir að
bæta við sig, sérstaklega í vörn-
inni, og Skagamönnum tókst
aðeins að skora 6 mörk í síðari
hálfleik. Þórsarar náðu því yfir-
höndinni og unnu verðskuldað
22:18 sem fyrr sagði.
Mörk Þórs í þessum leik skor-
uðu Ingólfur Samúelsson 8,
Sigurpáll Aðalsteinsson 4, Ólafur
Hilmarsson og Kristinn Hreins-
son 3 hvor, Gunnar M. Gunnars-
son 2 og Gunnar Gunnarsson og
Jóhann Samúelsson 1 hvor. Hjá
Skagamönnum var Pétur Ingólfs-
son markahæstur með 5 mörk.
Þórsarar eru þó ekki á grænni
grein þrátt fyrir þennan sigur.
Liðið á eftir þrjá erfiða útileiki,
gegn TÝ, UMFN og Fylki en lið-
ið hefur þó sýnt að það getur bit-
ið hressilega frá sér á góðum degi
og er til alls líklegt.
Stórt tap Völsungs
- gegn Skagamönnum að Laugum
Akureyrarmót í Hlíðarfjalli:
Ömggt hjá
Guðrúnu og
Guðmundi
„Þetta var Ijótt. Það var
almennt áhugaleysi og deyfð í
mannskapnum og þá fer þetta
svona. En það er greinilegt að
markvarslan hjá okkur er aðal-
höfuðverkurinn,“ sagði Arnar
Guðlaugsson leikmaður
Yölsungs í handbolta eftir stór-
tap Völsunga gegn IA á heima-
velli þeirra að Laugum í
Reykjadal á föstudagskvöld.
Skagamenn hófu leikinn af
krafti og börðust vel í vörninni og
létu vel í sér heyra. Þeir náðu
strax forystu og höfðu 2 mörk yfir
um miðjan fyrri hálfleik en voru
búnir að auka forskotið í 5 mörk
í hálfleik 17:12.
í síðari hálfleik héldu Skaga-
menn áfram baráttu sinni enda
skipti þessi leikur miklu fyrir þá.
Um miðjan síðari hálfleikinn var
enn 5 marka munur 22:17. A
næstu mín. skoruðu Skagamenn
7 mörk í röð og breyttu stöðunni
í 29:17. Völsungar skoruðu svo 4
mörk í lokin gegn 3 mörkum
Skagamanna og úrslit leiksins
öruggur Skagasigur 32:21.
Leikmenn Völsungs komust
aldrei í gang í þessum leik og
kannski ekki von þar sem upphit-
un þeirra fyrir leikinn var lítil
sem engin. Það voru aðeins þeir
Arnar Guðlaugsson og Birgir
Skúlason sem eitthvað sýndu.
í liði Skagamanna voru þeir
Pétur íngólfsson, Kristinn Reim-
arsson og Hákon Svavarsson
markvörður, sem varði ein 15
skot í leiknum, áberandi bestir.
Mörk Völsungs: Pálmi 6 (3),
Arnar Guðlaugsson 5, Birgir
Skúlason 4, Gunnar Jóhannsson
3 og þeir Sveinn Freysson, Magn-
ús Hreiðarsson og Gunnar Bóas-
son 1 mark hver.
Flest mörk Skagamanna gerðu
þeir Kristinn Reimarsson 11 og
Pétur Ingólfsson 9.
Þrátt fyrír góða tilburði töpuðu Völsungar fyrir ÍA.
Mynd: KK.
Stórleikur Amars
og Völsungur vann
Það var öðru fremur stórleikur
gömlu kempunnar Arnars
Guðlaugssonar sem færði
Völsungi sigur gegn UMFS í 3.
deildinni í handbolta um helg-
ina. Arnar lék sinn besta leik
með Völsungi og skoraði 8
mörk í leiknum sem Völsungur
vann 24:19.
UMFS var yfir framan af fyrri
hálfleik, ekki síst vegna góðrar
markvörslu markvarðar liðsins
sem lokaði markinu vel. Það var
ekki fyrr en Völsungi tókst að
jafna 7:7 að sýnt var að liðið
myndi hafa leikinn í hendi sér.
Staðan í hálfleik var 11:9 fyrir
Völsung og þótt munurinn yrði
aldrei stór var sigurinn aldrei í
neinni hættu.
Arnar skoraði 8 mörk fyrir
Völsung sem fyrr sagði, Pálmi
Pálmason, Skapti ívarsson og
Gunnar Jóhannesson 3 hvor,
Birgir Skúlason 2, og þeir Sveinn
Freysson og Magnús Hreiðarsson
sitt markið hvor. Hjá UMFS var
Andrés Gunnlaugsson marka-
hæstur með 9 mörk.
Völsungur á nú eftir einn
heimaleik, gegn Selfossi, og hafa
menn á Húsavík áhyggjur af því
að Selfyssingar hyggist gefa þann
leik sem þýðir tekjutap fyrir
Völsung.
Guðrún Kristjánsdóttir og
Guðmundur Sigurjónsson
urðu öruggir sigurvegarar um
helgina er keppt var í svigi Ak-
ureyrarmótsins í Hlíðarfjalli.
Keppendur voru færri en
undanfarin ár, enda hefur
þeim fækkað sem æfa í elstu
flokkunum og liggja sennilega
ýmsar ástæður þar að baki.
Guðrún vann öruggan sigur í
kvennaflokknum og var vel á
undan Grétu Björnsdóttur. Guð-
mundur hafði enn meiri yfirburði
í karlaflokki. Þá var einnig keppt
í stórsvigi í flokki 15-16 ára en
úrslitin í flokkunum urðu sem
hér segir:
Svig kvenna:
1. Guðrún Kristjánsdóttir KA 103,40
2. Gréta Björnsdóttir Þór 106,77
3. Anna M. Malmquist Þór 111,82
STAÐAN
3. deild
Staðan í 3. deild íslandsmóts-
ins í handknattleik eftir leiki
helgarinnar:
IBK 21 18 0 3 554:392 36
Týr 20 17 0 3 536:381 34
Akranes 21 13 3 5 535:439 29
Þór 21 13 3 5 485:412 29
Reynir ' 22 12 5 5 525:481 29
Fylkir 19 11 1 7 425:375 23
Selfoss 20 8 4 '8 421:417 20
Völsungur 21 8 1 12 505:519 17
Hveragerði 20 8 1 11 478:538 17
UMFN 21 7 3 11 514:516 17
ÍH 19 5 0 14 433:521 10
Skallagr. 21 3 1 17 413:547 7
Ögri 22 0 0 22 324:621 0
KA vann HK
- í 1. deild karla í blaki - UBK
vann kvennalið KA tvívegis
Jóhann Samúelsson skorar fyrir Þór í leiknum við Skallagrím.
Mynd: KGA.
KA tókst að vinna öruggan sig-
ur á HK er liðin mættust í 1.
deiid karla í blaki um helgina.
Stórsigur Þórs gegn fá-
mennu liöi Skallagríms
„Það er nú ekki mikið hægt að
segja um þennan leik, mót-
spyrnan var ekki það mikil að
hægt sé að taka mark á þessum
úrslitum. Vörnin hjá okkur var
léleg en í sókninni gengu hlut-
irnir ágætlega. Engu að síður
eru stigin kærkomin í barátt-
unni,“ sagði Gunnar Gunnars-
son þjálfari og leikmaður Þórs
í handbolta eftir stórsigur á
Skallagrími í Höllinni á föstu-
dagskvöld, 30:17.
Skallagrímsmenn voru yfir í
byrjun og leiddu 3:2 eftir nokkrar
mín. Síðan tóku Þórsarar leikinn
í sínar hendur og voru komnir
með 6 marka forystu í hálfleik
14:8.
í síðari hálfleik dró enn í sund-
ur með liðunum og „ sprungu“
leikmenn Skallagríms í leiknum,
en þeir mættu norður með aðeins
einn skiptimann. Þegar flautað
var til leiksloka höfðu Þórsarar
gert 30 mörk gegn aðeins 17
mörkum Skallagrímsmanna.
Um getu einstakra leikmanna
Þórs er lítið hægt að segja eftir
þennan leik því mótstaðan var
svo óskaplega lítil.
í liði Skallagríms bar mest á
Andrési Gunnlaugssyni og var
hann einnig markahæstur í liðinu
með 8 mörk, Kristmar Óiafsson
kom næstur með 3 mörk.
Mörk Þórs: Sigurpáll Aðal-
steinsson 8, Ingólfur Samúelsson
6, Jóhann Samúelsson 5, Kristinn
Hreinsson 4, Ólafur Hilmarsson
3 og þeir Aðalbjörn Svanlaugs-
son og Sverrir Júlíusson 2 mörk
hvor.
Leikinn dæmdu þeir Ólafur
Haraldsson og Stefán Arnaldsson
og gerðu það vel.
Úrslitin 3:0 fyrir KA og kom sá
sigur nokkuð á óvart.
Það verður að segjast eins og
er að lið HK virkaði slakara en
menn áttu von á. Það breytir þó
ekki því að KA-liðið átti í heild
góðan dag að þessu sinni og liðið
vann því verðskuldað. KA vann
fyrstu hrinuna 18:16 en síðan
tvær þær síðari með 15:5 og 15:7
þannig að 3:0 sigur var öruggur.
Kvennalið KA og Breiðabliks
léku tvo leiki í 1. deild kvenna.
Breiðablik vann þann fyrri með
3:0,15:13,15:8 og 15:6 en í síðari
leiknum gekk meira á. Þá vann
KA fyrstu hrinuna 15:13 en
Breiðablik tvær næstu, báðar
15:12. KA tókst að hafa sigur í 4.
hrinu 16:14 eftir að hafa verið
undir 4:13 og 8:14. Þá var komið
að úrslitahrinunni og þá hafði
Breiðabiik betur og vann 15:5 og
leikinn þar með 3:2. Þær Anna
Einarsdóttir og Halla Halldórs-
dóttir voru bestar í liði KA.
Svig karla:
1. Guðmundur Sigurjónss. KA 101,75
2. Brynjar Bragason. KA 110,45
3. Rúnar I. Kristjánss. KA 160,95
Stórsvig stúlkna:
1. Kristín Jóhannsdóttir Þór 112,30
2. Sólveig Gísladóttir Þór 120,76
Fleiri luku ekki keppni.
Stórsvig pilta:
1. Jón Ingvi Árnason Þór ' 102,25
2. Jón Harðarson KA 103,26
3. Bjarni Freysteinsson KA 104,15
%
Strákarnir í blakliði KA unnu HK
blakinu
Mynd: KGA.
'4ÍÍV'
Guðrún H. Kristjánsdóttir.
Vetrar-
hörkur í
Englandi
Enn var lítið hægt að leika í
ensku knattspyrnunni um helg-
ina vegna veðurs og varð að
fresta flestum leikjum í 1. og 2.
deild. Getraunaúrslitin eru því
eflaust sérkennileg í augunt
ntargra því kastað var upp ten-
ing til að fá fram úrslitaröð.
Arsenal-Chelsea fr.
A. Villa-Ipswich fr. 2
Coventry-Southampton 3:2 1
Leicester-Birmingham fr. v
Liverpool-Birmingham 0:2 2
Man. Utd.-WBA 3:0
Oxford-Newcastle fr. 1
OPR-Luton 1:1 x
Sheff-Wed.-Tottenham 1:2 2
Watford-Nott. Forest fr. 2
West Hant-Man. City fr. 2
Carlicle-Hull fr.
Fulham-Blackburn fr. 1
Grimsby-Barnsley fr. 1
Leeds-Bradford fr.
Middlesb.-Sheff. Utd. fr.
Millwall-C. Palace fr.
Nonvich-Huddersfield fr.
Portsmouth-Oldham 1:2.
Stoke-Charlton 0:0 x
Sunderland-Shrewsburv fr.
Wimbledon-Brightron 0:0