Dagur - 24.02.1986, Blaðsíða 12
Ritstjórn • Auglýsingar • Afgreiðsla Síminn er 2 4 222
Prófkjör hjá krötum:
Freyr
ferí
framboð
Opið prófkjör hjá Alþýðu-
flokknum á Akureyri vegna
bæjarstjórnarkosninganna í
vor verður að líkindum aðra
helgina í mars.
Freyr Ófeigsson, bæjarfull-
trúi Alþýðuflokksins, hefur
staðfest það í samtali við
blaðið, að hann gefi þar kost á
sér. Jórunn Sæmundsdóttir,
varamaður Freys, gefur hins
vegar ekki kost á sér til endur-
kjörs. Meðal annarra prófkjörs-
kandidata sem nefndir hafa ver-
ið eru Hulda Eggertsdóttir,
Helga Árnadóttir, Herdís
Ingvadóttir og Gísli Bragi
Hjartarson. Einnig hefur verið
lagt að Sigbirni Gunnarssyni að
gefa kost á sér í prófkjörinu.
- GS
Raðsmíðaskípin:
62 tilboð í 4 skip
- Blöndósingar, Skagstrendingar, Akureyringar, Siglfirðingar meðal bjóðenda
Alls bárust 62 tilboð í rað-
smíðaskipin fjögur, sem verið
er að smíða hjá Slippstöðinni,
Stálvík og Þorgeiri og Eilert
hf. á Akranesi, en tilboðin
voru opnuð á föstudaginn.
Mörg tilboð bárust frá aðilum
á Norðurlandi; m.a. frá
Blönduósi, Skagaströnd,
Siglufírði, Arskógsströnd, Ak-
ureyri og Svalbarðsströnd, að
ógleymdu Úgerðarfélagi Þing-
eyinga.
Alls eru það um 30 aðilar, sem
standa að baki þessum tilboðum,
því margir buðu í fleiri en eitt
skip. 13 tilboð bárust í skipið hjá
Stálvík, 17 í skipið hjá Þorgeiri
og Ellert og 32 tilboð bárust í
skipin tvö hjá Slippstöðinni. Að
sögn Gunnars Ragnars, fram-
kvæmdastjóra Slippstöðvarinnar,
liggur næst fyrir að fara yfir þessi
tilboð og meta þau, því þau eru
öll byggð á mjög mismunandi
forsendum. Síðan verður tilboð-
unum raðað niður eftir því
hversu hagstæð þau eru og niður-
staðan lögð fyrir stjórnvöld, jafn-
framt því sem skipasmíðastöðv-
arnar munu gera tillögur um, við
hvaða bjóðendur þær telja eðli-
legast að hefja viðræður fyrst.
Það er ríkisábyrgðarsjóður,
sem kemur til með að standa að
lánveitingum til kaupa á skipun-
um, þar sem ríkisábyrgð var veitt
til að ráðast í raðsmíðaverkefnið.
Það er því ljóst að stjórnvöld
koma til með að hafa veruleg
áhrif á hver fær þessi eftirsóttu
skip, en ríkisábyrgðarsjóður mun
heyra beint undir Þorstein
Pálsson, fjármálaráðherra.
Rækjuskipin verða gerð til
rækjuveiða með búnaði til fryst-
ingar um borð. Þar að auki fá þau
um 200 tonna þorskkvóta hvert.
Skipin eru um 40 m að lengd.
- GS
„Greiðsla upp í
endanlegt verð“
- segir Guðmundur Þórisson um kartöfluverð til bænda
„Bændum veitir auðvitað ekki
af að fá fullt verð fyrir
kartöflurnar sínar eins og mál-
um er háttað. Ég vil hins vegar
ekki að óreyndu tala um verð-
lækkun. Ég lít þannig á að
þetta sé greiðsla upp í það verð
sem við fáum endanlega.“
Petta sagði Guðmundur Þóris-
son formaður Félags kartöflu-
bænda við Eyjafjörð er hann var
spurður hvernig honum litist á þá
lækkun sem orðið hefur á verð-
inu sem bændur fá greitt fyrir
kartöflur þær sem fara til
kartöfluverksmiðjunnar á Sval-
barðseyri.
Hann sagðist vona að ríkis-
valdið tæki þátt í að leysa vanda
kartöfluverksmiðjanna með
niðurgreiðslum eða einhverjum
öðrum ráðum þannig að bændur
fengju á endanum meira fyrir
kartöflurnar.
„Það er vilji fyrir því innan
ríkisstjórnarinnar að styrkja
rekstur kartöfluverksmiðjanna
en hins vegar hefur ekki verið
tekin ákvörðun um á hvern hátt
það verði gert. Það er Alþingis
að ákveða hvernig útvega á fjár-
magn til þeirra aðgerða."
Guðmundur sagði að ekki virt-
ist vera vilji fyrir því að stöðva
innflutning á frönskum kartöfl-
um, a.m.k. hefði ekki verið látið
á það reyna. Franskar kartöflur
væru auðvitað ekkert annað en
hrein landbúnaðarafurð og þess
vegna ætti að banna innflutning á
þeim eins og öðrum landbúnað-
arafurðum. Hins vegar væri mun
erfiðara að koma á innflutnings-
banni í dag heldur en ef það hefði
verið gert áður en innflutningur
hófst. BB.
Skemmdir á
gangbrautaiijósum
„Þaö er meö ólíkindum hvað
fólki getur dottið í hug þcgar
skemmdarfýsnin er annars
vegar,“ sagði Ingólfur Ing-
ólfsson rafvirki, en hann er
starfsmaður Rafveitu Akur-
eyrar og sér m.a. um viöhald
gangbrautarljósa á Akureyri.
Við hittum hann við
gangbrautarljós á Skútnahæð
í Glerárhverfí. Þar var hann
að skoða skemmdir sem unn-
ar voru á gangbrautarljósun-
um.
Reyndar voru það ekki gang-
brautarljósin sjálf sem höfðu
orðið fyrir barðinu á
skemmdarvörgunum að þessu
sinni heldur tengikassinn sem
stjórnar þeim. Ingólfur sagði að
þetta væru einu gangbrautar-
ljósin sem skemmd væru
stöðugt. Hann tók sem dæmi að
á stýrikassann við sjálf ljósin
hafi hann gefist upp á að láta
gler sem gæfi til kynna hvort
mætti ganga yfir götuna. „Þessi
gler voru brotin linnulaust, svo
ég greip til þess ráðs að setja
tréplötu í staðinn."
Af ummerkjum að dæma
voru engin börn að verki við
skemmdir á tengikassanum, því
átökum hefur þurft að beita til
að opna kassann. Jafnvel hefur
verið beitt sterkum verkfærum
við skemmdirnar. Það þarf
varla að taka fram hversu alvar-
legt það er að skemma gang-
brautarljós á svo fjölfarinni
götu sem Hlíðarbraut er við
Skúta. Þar er gangbraut sem
mikið er notuð af skólabörnum
og hefur þessi staður verið mikil
slysagildra. Einnig er umferð
hraðari á þessum stað en mörg-
um öðrum innanbæjar. Þegar
Ingólfur var spurður hvað væri
til ráða, svaraði hann: „Það
hafa verið svo miklar skemmdir
á þessum ljósum að það er ekki
um annað að ræða en taka þau
niður, ef ekki verður breyting
til batnaðar." gej-
Ingólfur Ingólfsson við stýríkassa Ijósanna á Skútuhæð.
Mynd: KGA.
Húsavík:
Trillukarlar
vilja friðun
á Skjálfanda
Félag smábátaeigenda á
Húsavík hefur farið þess á leit
við bæjarstjórnina að hún hlut-
ist til um það við sjávarútvegs-
ráðherra að hann beiti sér fyrir
því að friðaður verði innri hluti
Skjálfandaflóa fyrir dragnóta-
veiðum, þannig að veiðar verði
með sama hætti og var þegar
svæðið var opnað árið 1965.
„Nú er dragnótabátum hleypt
upp í fjöru og þetta samræmist
ekki neinum friðunaraðgerðum.
Þetta er ef til vill liður í því að
reyna að leggja smábátaútgerð
niður,“ sagði Þórður Ásgeirsson
formaður Félags smábátaeigenda
á Húsavík. Hann sagði að minni
bátar yrðu að fara út fyrir veiði-
svæði stærri báta sem næði upp í
harða fjöru.
„Veiðarfæri smábáta eiga ekki
samleið með veiðarfærum stóru
bátanna. Smábátaeigendur eru
ekki í skuld við Fiskveiðasjóð,
svo það er óþarfi að stoppa þá.
En þeir koma daglega að landi
með ferskan og góðan fisk,“
sagði Þórður. IM/gej-