Dagur - 24.02.1986, Blaðsíða 11

Dagur - 24.02.1986, Blaðsíða 11
24. febrúar 1986 - DAGUR - 11 Frá ársþingi Ungmennasambands Austur-Húnavatnssýslu, sem haldið var á Húnavöllum. Ársþing U.S.A.H. Nýlega var ársþing Ung- mennasambands Austur-Hún- vetninga haldið að Húnavalla- skóla, en þetta mun hafa verið 69. ársþing sambandsins. Mik- ill áhugi virðist vera á starfi sambandsins og var 100% mæting þingfulltrúa til merkis um það, enda virðist vera tals- verður uppgangur í hinum ýmsu greinum íþrótta sem stundaðar eru innan aðildarfé- laga sambandsins svo og í öðru starfi. Samþykkt var að ganga til sam- starfs við Vestur-Húnvetninga og Strandamenn um starfrækslu sumarbúða sem yrðu á Reykja- skóla í Hrútafirði og var auðsær mikill áhugi fyrir að af þessu sam- starfi gæti orðið sem fyrst. Menn voru að vonum mjög ánægðir með frábæran árangur frjáls- íþróttafólksins á síðasta ári en þá tók U.S.A.H. að vinna sér sæti í annarri deild frjálsra íþrótta auk þess sem sett voru 11 Islandsmet í yngri flokkunum, og mun nú undirbúningur vegna landsmóts- ins ’87 verða hafinn af fullum krafti. Tvö ný aðildarfélög bættust í U.S.A.H. en það voru Golf- klúbburinn Ós sem stofnaður var á Blönduósi á síðastliðnu ári og Skákfélag Blönduóss og nágrenn- is. Að lokum má geta þess að Ungmennafélagið Vorboðinn átti 70 ára afmæli á síðasta ári og í stað þess að halda veislu með til- - heyrandi kökuáti og kaffidrykkju réðust Vorboðafélagar í gerð íþróttavallar og gáfu sjálfum sér þar með stórskuldir í afmælisgjöf en um leið bjartari framtíð fyrir komandi afreksmenn innan fé- lagsins. G.Kr. Vilja byggja upp skíðasvæði í Skarðinu „Ég held að það sé framtíðar- áætlun að flytja skíðasvæðið í Skarðið,“ sagði Jón Pálmi Pálsson bæjarritari á Siglu- fírði. Aðalskíðasvæði Siglfírð- inga var flutt að íþróttamið- stöðinni við Hól sunnan bæjar- ins fyrir nokkrum árum. Nú eru uppi hugmyndir um að flytja að minnsta kosti aðstöðu fyrir norrænar greinar á gamla staðinn í Siglufjarðarskarði. Svokölluð Skarðsnefnd sendi bæjarráði Siglufjarðar bréf þess efnis að kanna möguleika upp- byggingar skíðasvæðis í Skarð- inu. „Að hálfu bæjarins hefur engin ákvörðun verið tekin í þessu máli,“ sagði Jón Pálmi. „Pað er mikill áhugi meðal skíðamanna að þetta verði gcrt og þeir hafa lagt á sig mikla vinnu í þessu sambandi," sagði Kristján Möller íþróttafulltrúi á Siglufirði. Hann sagði að mikið snjóleysi undanfarin ár hafi gefið þessari hugmynd aukið gildi. Ekki eru menn sammála um það hvort eigi að flytja skíðalyftuna úr Hóls- hyrnu við íþróttamiðstöðina í Skarðið, eða festa kaup á nýrri lyftu. Eins hafi verið gerðar snjómælingar undanfarin ár í Skarðinu, en allir þeir vetur hafa verið mjög snjóléttir, þannig að snjómælingar vantar á snjóþung- um vetri, svo menn eru ekki al- veg sammála um að fara í breyt- ingar án þess að hafa nákvæmari mælingar. Einnig eru skipt- ar skoðanir um það hvort eigi að fara út í fjárfrekar framkvæmdir við skíðasvæðið, þegar í gangi eru 2 stór verkefni í íþróttamál- um bæjarins, en það eru fram- kvæmdir við nýtt íþróttahús og gerð grasvallar. „Eitt er víst," sagði Kristján, „að Skíðasvæðið í Skarðinu er paradís skíðamanna, um það eru allir sammála hér á Siglufirði." gej- Nauðungaruppboð sem auglýst var í 61., 67. og 70. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Strandgata 23, (skúrbygging), Akureyri, þingles- inni eign Þorsteins Gunnarssonar o.fl. fer fram eftir kröfu Björgvins Þorsteinssonar hdl., innheimtumanns ríkissjóðs og bæjargjaldkerans á Akureyri á eigninni sjálfri föstudaginn 28. febrúar 1986, kl. 17.00. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 52., 65. og 68 tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Norðurgata 28, efri hæð, Akureyri. þinglesinni eign Vilhjálms Halldórssonar, fer fram eftir kröfu Hreins Páls- sonar hdl. og bæjargjaldkerans á Akureyri á eigninni sjálfri föstudaginn 28. febrúar 1986, kl. 16.30. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 93., 95. og 97. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982 á fasteigninni Hólabraut 15, 2. hæð, Akureyri, þinglesinni eign Magnúsar Tryggvasonar og Höllu Guðlaugsdóttur, fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes hrl., veðdeildar Landsbanka íslands, innheimtumanns ríkissjóðs og bæjargjaldkerans á Akureyri, á eigninni sjálfri föstudaginn 28. febrúar 1986, kl. 15.15. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 1., 27. og 33. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Norðurgata 32, Akureyri, þinglesinni eign Jakobs Tryggvasonar o.fl. fer fram eftir kröfu Agnars Gústafs- sonar hrl. og Ragnars Steinbergssonar hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 28. febrúar 1986, kl. 14.30. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var 1110. tbl. 1984 og 11. og 15. tbl. Lögbirtinga- blaðsins 1985 á fasteigninni E-hluta I Kauþangi v/Mýrarveg, Akureyri, þinglesinni eign Matthíasar Þorbergssonar o.fl. fer fram eftir kröfu Hafsteins Sigurðssonar hrl. og Iðnaðarbanka íslands hf. á eigninni sjálfri föstudaginn 28. febrúar 1986, kl. 13.30. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 79., 80. og 82. tbl. Lögbirtingablaðsins 1984 á fasteigninni A-hluta Kaupangi v/Mýrarveg, þinglesinni eign Tryggva Pálssonar, fer fram eftir kröfu Iðnlánasjóðs, Gústafs Þórs Tryggvasonar hdl. og bæjargjaldkerans á Akureyri á eigninni sjálfri föstudaginn 28. febrúar 1986, kl. 14.15. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð annað og síðasta á Lerkilundi 31, Akureyri, talin eign Sigurðar S. Magnússonar, fer fram eftir kröfu Ævars Guðmundssonar hdl., Landsbanka íslands og bæjargjaldkerans á Akureyri á eigninni sjálfri föstudaginn 28. febrúar 1986, kl. 16.00. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð annað og síðasta á Tungusíðu 12, Akureyri, þinglesin eign Magnúsar R. Jónssonar, fer fram eftir kröfu bæjargjaldkerans og Sigríðar Thorlacíus hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 28. febrúar 1986, kl. 14.45. Bæjarfógetinn á Akureyri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.