Dagur - 10.03.1986, Blaðsíða 1
„Bogdan er
harðjaxl"
- segir Þorbjörn Jensson sem
er hættur að leika handboita
69. árgangur
Akureyri, mánudagur 10. mars 1986
47. tölublað
íslenska landsliðið í hand-
knattleik kom til landsins í
fyrrinótt eftir glæsilega
keppnisferð til Sviss þar sem
liðið hafnaði í 3. sæti heims-
meistarakeppninnar.
Á íþróttasíðum í dag eru við-
töl við forráðamenn íslenska
liðsins og leikmenn. Þar kemur
fram að Islandi hefur verið boð-
ið á fjölmörg handknattleiks-
mót fram að Olympíuleikunum
í Seoul 1988 og gæti liðið komið
til með að leika 80-100 lands-
leiki á næstu tveimur árum.
Þá er fjallað um það hvort
hinn pólski Bogdan verði áfram
þjálfari íslenska landsliðsins.
Jón Hjaltalín Magnússon for-
maður HSÍ lýsir þeirri skoðun
sinni að stefna beri að því en
Þorbjörn Jenssen segir Bogdan
vera hörkutól hið mesta og
hvað eftir annað hafi það
hvarflað að leikmönnum
íslands að hætta þegar hann var
að brjóta menn niður, til þess
að geta byggt þá upp aftur eins
og hann vildi hafa þá.
Sjá íþróttir
á bls. 6, 7 og 8.
Þorbjöm Jensson.
- Ásgeir Arngrímsson í þriðja sætinu
Sigurður Jóhannesson og Úlf-
hildur Rögnvaldsdóttir, bæjar-
fulltrúar Framsóknarflokksins
á Akureyri, hlutu örugga kosn-
ingu í fyrsta og annað sætið á
lista framsóknarmanna við
bæjarstjórnarkosningarnar á
Akureyri í vor, en valið var á
framboðslistann á kjörfundi á
laugardag. Sigurður hlaut yfir
80% atkvæða í fyrsta sætið og
Úlfhildur um 75% í annað
sætið, en kosið var í hvert sæti
fyrir sig eftir röð þeirra. I
þriðja sætinu lenti Ásgeir Arn-
grímsson, 31 árs gamall
útgerðartæknir hjá ÚA.
Hlutur kvenna er mjög góður á
framboðslistanum, en konur eru
í 2., 4. og 6. sæti af átta efstu sæt-
unum. Eins og áður sagði er Úlf-
hildur í 2. sætinu, í fjórða sætinu
varð Kolbrún Þormóðsdóttir, 34
ára húsmóðir og kennari, og í
sjötta sæti Unnur Pétursdóttir, 26
ára iðnverkakona. Þá er ógetið
um 5. sætið en þar er Þórarinn E.
Sveinsson, mjólkursamlagsstjóri,
33 ára. í sjöunda sætinu varð svo
Sigfús Karlsson, 20 ára gamall
bankastarfsmaður, og í áttunda
sæti Ársæll Magnússon,
umdæmisstjóri Pósts og síma, 57
ára.
Það má því segja að í fyrstu
átta sætum á framboðslista Fram-
sóknarflokksins til bæjarstjórnar-
kosninganna á Akureyri sé góð
blanda af fólki með mikla reynslu
í bæjarmálum og ungu fólki með
nýjar og ferskar hugmyndir, auk
þess sem hlutur kvenna er ekki
fyrir borð borinn.
Kosningarnar gengu fljótt og
vel fyrir sig og þeim lauk á rösk-
lega tveimur tímum. Þóttu þær
takast með ágætum, en þeir sem
tóku þátt í þeim sáu framboðs-
listann mótast og gátu hagað
kosningum í aftari sæti eftir því
hvernig raðaðist í þau fremri.
Kom það glöggt fram í kosning-
unum að fundarmenn vildu hlut
kvenna sem jafnastan hlut karla á
framboðslistanum. - HS
Magnús efstur
á Sauðárkróki
Prófkjör Framsóknarflokksins
á Sauðárkróki fyrir bæjar-
stjórnarkosningarnar í vor fór
fram í lok síðustu viku. Nokk-
ur spenna ríkti í kring um þetta
prófkjör og var búist við
óvæntum úrslitum. Þannig
héldu margir að Sæmundur
Hermannsson, sem gaf kost á
sér að nýju eftir nokkra fjar-
veru frá bæjarpólitík, mundi
eiga gott „comeback“ og lenda
í einhverju af efstu sætunum.
En annað kom á daginn.
Þegar úrslitin lágu fyrir á að-
faranótt sunnudags, var ljóst að
um geysilega jafnt kjör var að
ræða.
Niðurröðunin í efstu sætin
varð þessi: í 1. sæti, Magnús Sig-
urjónsson, í 2. sæti, Pétur Péturs-
son, í 3. sæti Sighvatur Torfason,
í 4. sæti Magnús Sigfússon og í 5.
sæti Björn Mikaelsson.
Sem dæmi um hversu mjótt var
á munum á milli sæta má nefna
að Magnús fékk einu atkvæði
fleira en Pétur í 1. sætið. Niður-
röðunin er mjög svipuð og var á
listanum síðast, nema hvað að
Pétur fer upp fyrir Sighvat og
Magnús Sigfússon fer ofar á
listann.
Góð þátttaka var í prófkjörinu
en niðurstaðan er ekki bindandi
og er nokkur óánægja framsókn-
arfólks á Sauðárkróki með það
fyrirkomulag. -þá.
Húsavík:
Piltur
lærbrotnaði
Þessi átta skipa fyrstu sætin á framboðslista Framsóknarflokksins til bæjarstjórnarkosninganna á Akureyri í vor.
T.f.v. eru Sigurður Jóhannesson, Ársæll Magnússon, Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, Ásgeir Arngrímsson, Kolbrún
Þormóðsdóttir, Sigfús Karlsson, Unnur Pétursdóttir og Þórarinn E. Sveinsson . Mynd: HS.
Oddeyri hf.
- nýtt útgerðafyrirtæki
á Akureyri
Nýtt útgerðarfélag, Oddeyri
h.f., var stofnað á Akureyri á
föstudaginn. K. Jónsson og
co. h.f. og Akureyrarbær eru
stærstu hluhafarnir í félaginu.
Blaðinu hefur ekki tekist að fá
staðfest hvaða aðilar aðrir standa
að stofnun þessa hlutafélags.
Forráðamenn Oddeyrar h.f.
hafa í hyggju að kaupa annað
raðsmíðaskipið sem nú er í smíð-
um hjá Slippstöðinni h.f. á Akur-
eyri en K. Jónsson ásamt fleirum
gerði tilboð í skipin á sínum tíma
og átti eitt af sex hæstu tilboðun-
um. BB.
Listi sem getur náð
góðu gengi í vor
- segir Sigurður Jóhannesson, efsti maður á lista
Framsóknarflokksins á Akureyri
Umferðarslys varð á Húsavík á
laugardagskvöld. I miðbænum
missti ökumaður stjórn á bif-
reið sinni er hanit var að aka
fram úr öðrum bíl.
Bíllinn hafnaði með vinstri
hliðina á ljósastaur. Farþegi í
framsæti lærbrotnaði og var flutt-
ur með sjúkrabíl á sjúkrahúsið á
Akureyri. Ökumaðurinn var
einnig fluttur á sjúkrahús en fékk
að fara heim að lokinni
rannsókn. Bíllinn er talinn ónýt-
ur.
Mikil hálka var á götum Húsa-
víkur á laugardagskvöldið og er
hún talin orsök slyssins. IM.
„Ég vil lýsa yfir ánægju minni
og þakka þann mikla stuðning
sem ég fékk í þessu prófkjöri,“
sagði Sigurður Jóhannesson
j sem hlaut yfirburðakosningu í
fyrsta sæti framboðslista Fram-
sóknarflokksins til bæjar-
stjórnarkosninga á Akureyri.
„Það var fyrirsjáanlegt að mik-
il breyting mundi verða á efri sæt-
um listans frá síðustu bæjar-
stjórnarkosningum. Margt nýtt
fólk kemur til með að starfa að
bæjarmálum í Framsóknar-
flokknum á næsta kjörtímabili
ásamt mörgu því ágæta fólki sem
verið hefur þar að störfum að
undanförnu.
Þetta fólk hefur fjölbreytt
áhugamál og kemur með fjöl-
þætta reynslu úr ýmsum atvinnu-
greinum. Við getum því fastlega
vænst þess að listi framsóknar-
manna geti náð góðu gengi í
bæjarstjórnarkosningunum í
vor,“ sagði Sigurður.
„Ég vil þakka óvæntan en
mjög svo ánægjulegan stuðning í
prófkjörinu. Ég hlakka til að
starfa með því ágæta fólki sem er
með mér á lista og vona að störf
okkar verði bæjarfélaginu og
Framsóknarflokknum til fram-
dráttar," sagði Ásgeir Arngríms-
son, sem varð í þriðja sæti í próf-
kjörinu. BB.
Landsbyggðin:
Fasteignir ekki
veðhæfar nema
að 35%
Sjá bls. 3
Prófkjör framsóknarmanna á Akureyri: _
Sigurður og Ulf-
hildur urðu efet