Dagur - 16.04.1986, Síða 3
16. apríl 1986 - DAGUR - 3
Framsóknarfl. á Húsavík:
Skrifstofan
opin 3 daga
í viku
Kosningaskrifstofa Framsókn-
arflokksins á Húsavík var opn-
uð í Garðari sl. föstudag.
Skrifstofan verður fyrst um
sinn opin mánudaga, miðviku-
daga og föstudaga frá ki. 17-
19. Þormóður Jónsson starfar
á skrifstofunni og frambjóð-
endur munu verða þar með
sérstaka viðtalstíma, einnig
verða haldnir umræðufundir
um ákveðna málaflokka.
Sigurgeir Aðalgeirsson for-
maður flokksins sagðist hvetja
fólk til að líta inn og kynna sér
málin.
Við síðustu bæjarstjórnarkosn-
ingar á Húsavík hlaut Fra'msókn-
arflokkurinn þrjá menn kjörna.
Tryggvi Finnsson skipar áfram
efsta sæti listans en Sigurður Kr.
Sigurðsson og Jónína Hallgríms-
dóttir gáfu ekki kost á sér til
endurkjörs. Nú er Hjördís Árna-
dóttir í öðru sæti og Lilja Skarp-
héðinsdóttir í þriðja sæti á listan-
um. IM
Nýjar mjólkurumbúðir fyrir Mjólkursamlag KEA eru nú í prentun. Fyrstu sýnishornin eru komin úr prentsmiðjunni,
en Þórarinn E. Sveinsson mjólkursamlagsstjóri, gerði ráð fyrir að um miðjan maí yrði öll mjólk samlagsins komin
í nýju umbúðirnar. Á þeim má sjá fjöllin umhverfis Akureyri, þ.e. eins og þau koma þeim fyrir sjónir sem eru staddir
í Vuðlareit. A umbúðunum eru einnig fróðleiksmolar um Kaupfélag Eyfirðinga, en KEA á 100 ára afntæli á árinu
eins og kunnugt er. Það var Kristján Kristjánsson auglýsingateiknari sem sá um gerð nýju umbúðanna.
Námskeið
fyrir að-
standendur
fatlaðra
barna
Helgina 21. 26. og 27. apríl nk.
munu Landssamtökin Þroska-
hjálp, Sjálfsbjörg Landssamband
fatlaðra, Styrktarfélag lamaðra
og fatlaðra og Styrktarfélag van-
gefinna standa að og skipuleggja
námskeið fyrir aðstandendur fatl-
aðra barna á aldrinum 0-14 ára.
Þessi námskeið hafa verið haldin
víða s.s. á Austfjörðum, Vest-
fjörðum, Munaðarnesi og Ölfus-
borgum og hafa tekist mjög vel.
Námskeiðið er miðað við þátt-
töku allrar fjölskyldunnar og
verður gefinn kostur á barna-
gæslu í umsjá sérþjálfaðs
starfsfólks.
Að þessu sinni verður nám-
skeiðið haldið að Illugastöðum
og miðast við þátttöku fólks á
Norðurlandi eystra.
Gert er ráð fyrir 22-24 þátttak-
endum auk barna. Námskeiðs-
og fæðisgjald er 2000 kr. pr.
mann og 1000 kr. fyrir börn.
. Félag sauðfjárbænda v/Eyjafjörð:
Varar við frekarí sam-
drætti í sauðfjárframleiðslu
Aöalfundur Félags sauðfjár-
bænda við Eyjafjörð var hald-
inn þann 10. mars s.l. að Hótel
KEA á Akureyri.
Ýmsar ályktanir og samþykktir
voru gerðar á fundinum. Þær
helstu voru þessar:
Fundurinn telur að þegar í stað
beri að vinna að aðskildum verð-
lagsgrundvelli, annars vegar fyrir
sauðfjárbú og hins vegar fyrir
kúabú. í því sambandi er bent á,
að samkvæmt útreikningi Bú-
reikningastofu landbúnaðarins
hafa sauðfjárbú skilað minnstum
tekjum flest undanfarin ár og
taka þurfi tillit til þess við
útreikning verðlagsgrundvallar.
Skorar fundurinn á Stéttarsam-
band bænda að hrinda þessari
breytingu í framkvæmd hið allra
fyrsta.
Fundurinn telur óviðunandi að
ullarverksmiðja SÍS umreikni
innlagt ullarmagn í hreina ull til
verðútreiknings. í verðlags-
grundvelli landbúnaðarins er
miðað við óhreina ull og er því
eðlilegt að verðútreikningur til
bænda miðist við það. Fundurinn
vísar til reglugerðar máli sínu til
stuðnings.
Skorað er á landbúnaðarráð-
herra að hlutast til um að bændur
nái fullu verðlagsgrundvallar-
verði fyrir innlagða ull á yfir-
standandi verðlagsári. Telur
fundurinn að lækkandi hlutdeild
ullar í heildartekjum bóndans
skapi þá hættu, að meðferð ullar
versni og minna verði lagt upp úr
kynbótum með tilliti til meiri og
betri ullar.
Fundurinn varar við áformum
um enn frekari samdrátt í sauð-
fjárframleiðslu. Meiri samdráttur
getur haft veruleg áhrif á byggð
víða um land. Skorar fundurinn
, Ólafsfjörður:
Armann efstur á
lista vinstri manna
Sameiginlegur framboðslisti
vinstri manna til bæjarstjórn-
arkosninganna í Ólafsfirði hef-
ur nú verið ákveðinn. Að list-
anum standa sem kunnugt er
Framsóknarflokkurinn, Al-
þýðuflokkurinn og Alþýðu-
bandalagið ásamt óháðum
borgurum.
Listann skipa eftirtaldir:
1. Armann Þórðarson
útibússtjóri
2. Björn Valur Gíslason
sjómaður
3. Agúst Sigurlaugsson,
form. Ólafsfj.d.
Verkalýðsfél.
Einingar
4. Gunnar L. Jóhannsson,
skólastjóri
5. Sigurbjörg Ingvadóttir
kennari
6. Helga Magnúsdóttir,
talsímavörður
7. Jónína Óskarsdóttir
húsmóðir
8. Jóhann Helgason,
húsasmiður.
9. Ingi Vignir Gunnlaugsson
húsasmiður
10. Björn Þór Ólafsson,
kennari
11. Árni Sæmundsson,
sjómaður
12. Ásdís Pálsdóttir,
húsmóðir
13. Helga Jónsdóttir,
skrifstofumaður
14. Guðbjörn Arngrímsson,
húsvörður
BB.
því á Stéttarsamband bænda að
sernja ekki við ríkið um minna
framleiðslumagn en ca. 12 þús-
und tonn af kindakjöti, nema fyr-
ir liggi af hálfu ríkisvaldsins
ákvörðun um hvar byggð skuli
aflögð. Þá er bent á að frekari
samdráttur geti stefnt afkomu
vinnslustöðvanna í tvísýnu þar
sem mörg þúsund manns hafa
lífsviðurværi sitt. Þar er skinna-
iðnaðurinn nefndur sem dæmi en
hann skapar nú verulegar gjald-
eyristekjur.
Formaður Félags sauðfjár-
bænda við Eyjafjörð er Guð-
mundur Skúlason að Staðar-
bakka í Hörgárdal en varafor-
maður Steinn Snorrason á Syðri-
Bægisá. BB.
Leikfétag
Akureyrar
Sýning á föstud. kl. 20.30
og laugard. kl. 20.30, uppselt.
Miðasalan er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 14-18 og sýningar-
daga fram aö sýningu.
Sími í miðasölu: ■■■■
(96) 24073. ■■■■
Toshiba örbylgjuofninn fæst hjá okkur
Veriö velkomin og kynnist þvi hvernig hægt er að matreifta allan venjulegan mat i Toshiba örbylgjuotiiinum
á otrulega stuttum tima. Hvers vegna margir réttir verfta betri úr Toshiba ofninum en gömlu eldavélinni.
Og þér er óhatt aft láta börnin baka.
Og siftast en ekkí sist. Svo þú fáir fullkomift gagn af ofninum þinum holdum vift matreiftslunámskeift tyrir
eigendur Toshiba ofna.__________________________
Nykomin búsáhöld fyrir örbylgjuofna.
SIEMENS
Þvottavélar, eldavélar, ísskapar
og fleira, einnig smá heimilistæki
í urvali
til dæmis:
Hitateppi:
Tilvalin gjöf handa pabba og mömmu
eða afa og ömmu.
Einnig kaffikönnur,
handhrærivélar ásamt fylgi-
hlutum, brauöristar meft hita-
grind, eggjasjóðarar,
straujárn meft og án gufu,
hraðgrill og ótal margt fleira.
Blomberq
þvottavélar, ísskápar
og eldavélar.
Viðurkennd gæðavara.
2ja ára ábyrgð.
Búsáhöld í úrvali
Tótu barnastóllinn
Sérstaklega hentugur og þægilegur í flutningi.
PETRA
smá heimilistæki í úrvali.
Nyjung t.d. hraösuöukanna,
nytsöm til margra hluta.
0
NYLAGNIR
VIDGfROIR
VERSLUN
Kaupangi v/Mýrarveg. simi 26400
Verslið hjá fagmanni.
Ferðafélag Akureyrar
Færeyjar
Ferðafélag Akureyrar
ráðgerir ferð
með Norrænutil ...... .
Færeyja dagana
19.-26. júní.
Ráðgert er að fara eitthvað um
eyjarnar, meðal annars til
Suðureyjar og gista þar á
hóteli í tvær nætur, en þrjár
nætur á farfuglaheimili í Þórshöfn.
í Færeyjum er gisting og
morgunverður innifalinn í fargjaldi.
Fargjald er áætlað kr. 15.000—
17.000 en hálft gjald fyrir 7-
14 ára börn.
4fe»'«5SX!-.
H6>wk, 4*...»^* _
_ streymoVn W\V^
V
-ÍNb.
tgjfv S|nða.<qu.
M.ð.agu.*
TOwwyre. •
Væntanlegir þátttakendur eru beðnir að hafa samband
við skrifstofu félagsins að Skipagötu 12, sími 22720, mið-
vikudaginn 16. eða fimmtudaginn 17. apríl kl. 17.30-
19.00.