Dagur - 01.07.1986, Síða 5

Dagur - 01.07.1986, Síða 5
1. júlí 1986- DAGUR-5 Pési panda. Ránið í furðugripa- safninu er komin út og á bókar- kápu er aðalsöguhetjunum svo lýst: „Pési panda er lítill og skond- inn náungi, búsettur að Skrifla- bæ, sem er hrörlegur miðalda- kastali. Hann lendir gjarnan í hinum æsilegustu ævintýrum og á þá aldeilis hauk í horni þar sem gamli þjónninn hans er, hann Vaskur. Ekki má gleyma Runka ref. Hann er reyndar skúrkurinn í sögunum, þótt hann sé ákaflega kurteis og tungulipur." Þeir félagar eiga eflaust eftir að verða vinsælir meðal lesenda teiknimyndasagna. Höfundur er Maartin Toonder. Bjarni Fr. Karlsson þýddi. Bókin er prent- uð í Danmörku. Bókaútgáfan Iðunn gefur út. Þjóðhagsstofnun: Samdráttur í þjónustu og byggingavöruverslun Nú liggja fyrir upplýsingar um heildarveltu í einstökum atvinnugreinum fyrstu þrjá mánuði þessa árs á grundvelli söluskattsframtala. Þessar upplýsingar gefa mikilvæga vísbendingu um útgjaldaþróun á hverjum tíma - og þar með raunar um framleiðslu í þess- um greinum. Tölurnar eru unnar mánaðarlega og sýna heildarveltu í hverri grein, þ.e. bæði þann hluta, sem er sölu- skattsskyldur, og eins þann hluta, sem er undanþcginn söluskatti. Söluskattur og aðrir óbeinir skattar eru meðtaldir í heildarveltunni. Rétt er að minna á, að í þessum tölum gætir áhrifa hækkunar sölu- skatts úr 24% í 25% 1. júlí 1985. Heildarvelta í smásöluverslun á fyrsta ársfjórðungi 1986 nam 7,8 milljörðum króna og hafði aukist um tæplega 37% frá sama tímabili í fyrra. Veltuaukning í almennri heildverslun var tals- vert minni, eða 28'/2%, og ein- ungis um 21% í byggingavöru- verslun. Hins vegar jókst velta í sölu bifreiða og varahluta um 36%, enda tók sala á nýjum bíl- um mikinn kipp í kjölfar tolla- lækkana í marsmánuði síðast- liðnum. Þetta sést best af því, að á fyrsta fjórðungi þessa árs voru fluttar inn um 2.200 bifreiðar samanborið við 1.400 bifreiðar á sama tíma í fyrra. í þjónustugreinum var veltu- aukningin 28%, sem er töluvert minna en verið hefur að undan- förnu. Þannig má nefna, að allt árið í fyrra jókst velta í þjónustu- greinum um 46% frá árinu áður. Auk verslunar- og þjónustu- greina er fylgst með veltubreyt- ingum í nokkrum vörugreinum iðnaðar. Þessar upplýsingar gefa þó ekki eins glögga heildarmynd og fyrir aðrar greinar, þar sem aðeins rétt rúmlega helmingur veltu í iðnaði er framtalsskyldur til söluskatts. Með þennan fyrir- vara í huga má nefna, að sú velta í iðnaði, sem fram kemur á sölu- skattsskýrslum, virðist hafa auk- ist um rúmlega 38% á fyrsta fjórðungi þessa árs. Fyrsta bókin í nýjum flokki teiknimyndasagna Á mælikvarða vísitölu vöru og þjónustu hækkaði almennt verð- lag um 31% á fyrsta fjórðungi þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra. Sé miðað við þessa verðbreyt- ingu, má ætla, að veltan hafi auk- ist að raungildi um 4-4'Á% í smásöluverslun, en um rúmlega 51/2% í vörugreinum iðnaðar. Hins vegar virðist gæta samdrátt- ar í byggingavöruverslun og þjónustugreinum. Til samanburðar má nefna, að síðustu áætlanir benda til 4-5% aukningar neysluútgjalda heimil- anna á árinu öllu. Þess ber þó að geta, að þær áætlanir taka mið af þeim kjarasamningum, sem gerð- ir voru í febrúarmánuði síðast- liðnum, en áhrifa þeirra fer vart að gæta í veltutölum fyrr en á öðrum fjórðungi ársins. Að öllu sainanlögðu og að svo miklu leyti sem unnt er að draga ákveðnar ályktanir af tölum fyrsta ársfjórð- ungs eingöngu virðast veltutöl- urnar koma allvel heim og saman við spár Þjóðhagsstofnunar um útgjaldaþróun á árinu öllu. Innrömmuð Plaköt Gallery myndir Glæsilegt úrval A-B búðin Kaupangi, sími 25020. 11 Vidskiptavinir Landsbankans eru Í’IL'5 einstaklingar úr öllum stéttum og landshlutum; fyrirtækin úr öllum atvinnugreinum og at öllum stærdum. Landsbanki Islands er þjódareign og þess vegna sannarlega ástæða tilþess aö árna landsmönnum öllum heilla á 100 ára ~ Landsbanki 111*1111 Islands Banki allra landsmanna . -

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.