Dagur - 01.07.1986, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 1. júlí 1986
„Hér er alveg yfirdrifið nóg að gera, þessi staður er mjög vel fallinn til að
reka sumarbúðir,“ sagði Kristján Sigurðsson, en hann og Steinunn
Hannesdóttir eru umsjónarmenn með sumarbúðum sem reknar eru af
Ungmennasambandi Eyjafjarðar í Árskógi.
- spjallað við Kristján Sigurðsson en
hann ásamt Steinunni Hannesdóttur er
umsjónarmaður sumarbuðanna
Árskógi, en í fyrra dvöldu um 70
börn í sumarbúðunum.
Eins og Kristján benti á í upp-
hafi er staðurinn vel fallinn til að
reka sumarbúðir og margt sem
menn taka sér fyrir hendur. Farið
er á hestbak nokkrum sinnum
meðan á dvölinni stendur og
einnig er skroppið niður á
Hauganes og farið í veiðiferð
þaðan á trillum. „Krakkarnir eru
mjög hrifnir af þessu,“ sagði
Kristján. Þá er mikið um íþrótta-
iðkun ýmiss konar, farið í sund,
knattspyrnu og frjálsar íþróttir.
Á kvöldin er líka nóg að gera.
Haldnar eru kvöldvökur sem
krakkarnir sjálfir hafa umsjón
með.
„Krakkarnir eru fljótir að
kynnast, við erum líka með ýmiss
konar nafnaleiki og þess háttar í
upphafi til að flýta fyrir
kynnum," sagði Kristján.
„Krakkarnir eru auðvitað ákaf-
lega misjafnir, sumir hafa varla
þroska til að bjarga sér sjálfir og
leiðist ef ekki er verið að gera
eitthvað fyrir þá. En svo eru aftur
aðrir sem alltaf finna sér eitthvað
að gera. Enda eru möguleikarnir
óteljandi og staðurinn hinn
ákjósanlegasti,“ sagði Kristján
að lokum. -mþþ
Endalaust
hægtað
finnasér
eitthvað
aðgera
Blaðamenn Dags brugðu sér út
að Árskógsskóla einn daginn í
síðustu viku, en þar var fyrsti
hópurinn að „útskrifast". Og þó
að krakkarnir fimmtán væru að
fara heim daginn eftir eftir vel
heppnaða sumardvöl að Árskogi
var leiðanum ekki fyrir að fara.
Lífsglaðir krakkar, enda rétt
nýlega yfirstaðin heljarinnar
grillveisla. Velviljaðar húsmæður
úr sveitinni höfðu mætt á staðinn
og tekið að sér að grilla pylsur
ofan í svanga maga.
Það voru örfáar pylsur eftir
liggjandi á grillinu er okkur bar
að garði. Nokkrir strákar hám-
uðu í sig rabarbara í eftirmat.
Allir á ferð og flugi, en okkur
tókst að fá Kristján til að segja
okkur ögn af sumarbúðum
UMSE í Arskógi.
Kristján sagði að í þessum
fyrsta hópi hefðu verið fimmtán
krakkar, en von væri á öðrum
hópi bráðlega og í honum væru
fleiri krakkar. Krakkarnir sofa í
skólanum, þar sem engin heima-
vist er við skólann stinga þau sér
ofan í svefnpoka og líkar það
bara vel.
Þeir krakkar sem í sumarbúð-
unum eru koma frá öllu Eyja-
fjarðarsvæðinu, nokkrir jafnvel
úr Þingeyjarsýslu. Hver hópur er
í sumarbúðunum í átta daga og
er kostnaðurinn 6000 krónur.
Flestir eru á aldrinum 12-14 ára
og er skipting kynjanna nokkuð
jöfn, að sögn Kristjáns.
Þetta er annað sumarið sem
UMSE starfrækir sumarbúðir að
Við borðuðum
- og dálítið af frönskum kartöflum
sögðu Hans
„Við vorum hérna í fyrra líka, en get-
um ekki gert upp á milli hvort er
skemmtilegra núna eða þá,“ sögðu
þeir Hans Karlsson 13 ára frá Dvergs-
stöðum í Hrafnagilshreppi og Ingvi
Stefánsson 12 ára frá Teigi einnig í
Hrafnagilshreppi.
Þeir Hans og Ingvi sögðust hafa mest
gaman af fótboltanum og á kvöldin fylgj-
ast þeir með heimsmeistarakeppninni í
knattspyrnu í sjónvarpinu. „Við spáum
því að Frakkar og Argentínumenn spili
úrslitaleikinn og að Argentína vinni 2:1.
það gæti að vísu orðið vítaspyrnukeppni.
Já, líklega verður vítaspyrnukeppni."
Innan sviga skal það ítrekað að viðtalið
var tekið í síðustu viku og þá lágu úrslit
og Ingvi
ekki fyrir í margrómaðri heimsmeistara-
keppni.
„Maradonna er svindlari,“ sögðu
strákarnir, bara ekkert annað! „Hann er
að vísu klár að þvæla og svoleiðis. . “
- Ættum við að tala um eitthvað ann-
að en heimsmeistarakeppnina? Mér dett-
ur í hug að spyrja ykkur hversu margar
pylsur þið hafið borðað áðan.
„Við borðuðum fimm pylsur og dálítið
af frönskum kartöflum. Svo fengum við
okkur ís og banana á eftir. Nei, við borð-
uðum enga rabarbara. Hitt var alveg
nóg.“
- Er gaman hérna?
„Það er alveg frábært. Ofsalega
gaman. Kristján er fínn og Steinunn líka.
Það er ekki hægt að segja annað.“ -mþþ